Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Side 28
40
FÖSTUDAGUR 25. JÚLl 1986.
Andlát
Ásbjörn Jónsson lést 12. júlí sl.
Hann fæddist á Deildará í Múlasveit
i Austur-Barðastrandarsýslu. For-
eldrar hans voru Jón Jónsson og
Ástríður Ásbjömsdóttir. Ásbjörn
kvæntist Kristrúnu Valgerði Jóns-
dóttur og eignuðust þau tvö börn.
Síðustu árin vann Ásbjörn við að
kaupa fisk af bátum, gera að honum
og selja hann síðan. Útför hans verð-
ur gerð frá Fríkirkjunni í dag kl.
13.30.
Björg Evertsdóttir verður jarð-
sungin laugardaginn 26. júlí kl. 14
Jrá Sauðárkrókskirkju.
Þórhildur Sigurðardóttir frá
Stóru-Fellsöxl verður jarðsungin frá
Innra-Hólmskirkju laugardaginn 26.
júlí kl. 14.30.
Sigríður Tómasdóttir, Austurbrún
6, andaðist að morgni 24. júlí.
Svavar Magnússon bifreiðarstjóri,
Fellsmúla 20, lést í Borgarspítalan-
um 22. júlí.
Ýmislegt
Nýtt sérkort af Suðvesturlandi
Landmælingar Islands hafa sent frá sér
nýtt sérkort af Suðvesturlandi í mæli-
kvarða 1:100.000. Kortið er mjög vandað
að allri gerð og á því eru öll helstu útivist-
arsvæði í nágrenni Reykjavíkur. m.a.
Reykjanesfólkvangur, Bláfjöll og Þing-
vellir. Kortið fæst bæði flatt og brotið í
kortaverslun Landmælinga íslands að
Laugavegi 178 og á helstu sölustöðum
korta. Komin eru út fleiri sérkort í mæli-
kvarða 1:100.000 og ber þar fyrst að nefna
kort yfir gönguleiðina Landmannalaug-
ar-Þórsmörk og Fimmvörðuháls. Á þessu
korti er einnig hið vinsæla útivistarsvæði
„Við höf-
um engu
hótað“
- ósamræmi í viðbrögðum Bandaríkjastjómar
„Við höfum engu hótað Islendingum.
Hér hlýtur að vera einhver misskiln-
ingur á ferðinni," sagði ónafngreindur
bandarískur embættismaður um þær
fréttir að Bandaríkjastjóm hóti efna-
hagsþvingunum stöðvi íslendingar
ekki hvalveiðar næstkomandi mánu-
dag. Embættismaðurinn sagði að
engin afstaða hefði verið tekin um það
hvort íslendingar væm að brjóta sam-
þykkt Alþjóða hvalveiðiráðsins og að
viðræður væm enn í gangi til að ná
samkomulagi um túlkun ákvæðisins
um „primary for local consumption",
Undarlegs ósamræmis gætir nú í
fréttum af viðbrögðum Bandaríkja-
manna en samkvæmt „óformlegum
skilaboðum" bámst Steingrimi Her-
mannssyni fréttir af því að viðskipta-
ráðuneytið hefði sett Islendingum frest
til næstkomandi mánudags um að
hætta hvalveiðum. Haft er eftir jap-
önskum embættismanni að Japanir
muni ekki kaupa hvalkjöt af íslend-
ingum nema samþykki fáist frá
Bandaríkjastjóm og að hótanir um
aðgerðir muni einar nægja til þess að
Japanir loki fyrir innflutning á hvala-
afurðum frá íslandi.
Steingrímur Hermannsson fúndaði í
dag með stjómarandstöðunni en Eiður
Guðnason fór fram á að henni yrði
gerð grein fyrir stöðu mála „svo og
því hvemig ríkisstjómin hyggist
bregðast við þessum einstæðu hótun-
um Bandaríkjastjómar“. Á ríkis-
stjórnarfundi var ákveðið að bíða með
allar frekari ákvarðanir þar til Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
kemur til starfa á ríkisstjómarfund
næstkomandi þriðjudag. Ríkisstjómin
mun því hunsa þann frest sem settur
var í hinum óformlegu skilaboðum.
í samtali við DV segir Helgi Ágústs-
son allar líkur til þess að Bandaríkja-
stjóm muni standa fast á sínu og engar
líkur séu á að fresturinn verði fram-
lengdur. - sjá viðtal bls. 2 -S.Konn.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti em lausar til umsóknar
kennarastöður í handavinnu tré- og málmgreina, tölvufræðum,
viðskiptafræðum og 'A staða tónmenntakennara.
Umsóknir skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík fyrir 10. ágúst.
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður í stærðfræði
og þýsku við Menntaskólann á Akureyri framlengist til 10.
ágúst.
Menntamálaráðuneytið
Utvarp - sjónvarp
Helga Þ. Stephensen leikkona:
„Sakna fimmtudags-
leikrítsins“
I gærkvöldi hlustaði ég aðallega á
rás eitt. Fimmtudagskvöld er mikil-
vægasta útvarpskvöld vikunnar og
-ég er ekkert ofboðslega hress með
dagskrána í heild. Ég byijaði á því
að hlusta á Daglegt mál Guðmundar
Sæmundssonar en hann talaði um
valfrelsi í máli. Þetta eru örstuttir
þættir en mér finnst þeir alltaf sterk-
ir og góðir. Ég hlustaði á þáttinn
Undrabam frá Malaga meðan ég var
að elda mat og þvo upp. Þetta var
góður og fræðandi þáttur fyrir þá
sem hafa áhuga á listamanninum.
Ljóðatónleikar frá Norræna húsinu
voru aðeins á þyngri nótunum en
Marianne Eklöf söng mjög fallega.
Ég gat þó ekki almennilega sett mig
í stellingar til að hlusta á þann þátt.
Þátturinn Reykjavík i augum
skálda, um Tómas Guðmundsson,
var þáttur sem ég hefði getað haft
gaman af en mér fannst þetta hálf-
gerður hvíslþáttur. Það var gaman
að heyra Tómas sjálfan lesa ljóðin
sín en mér fannst að umsjónarmenn
þáttarins hefðu átt að leita til leik-
ara og fólks sem hefúr lært upplestur
í stað þess að lesa ljóðin sjálfir. Mér
finnst útvarpið ekki leita nóg til
listamanna í sambandi við upplestur
og annað slíkt. Ég hlustaði á Orð
kvöldsins sem mér finnst alltaf á-
gætt og skapa góða stemmningu.
Síðast á dagskránni var Frá tónlist-
arhátíðinni í Ludwigsburg. Ég verð
að segja að ég nýt þess aldrei al-
mennilega að hlusta á klassíska
tónlist í útvarpinu. Ég vil heldur
fara á konserta.
Ég sakna leikritsins á fimmtudög-
um og mér fannst þetta heldur þung
menningardagskrá í gærkvöldi. Út-
varpið er stærsta leikhús landsins
og ætti að ná til allra landsmanna.
að Fjallabaki, Hekla og Veiðivötn. Önnur
helstu sérkort eru: Göngukort af Hom-
ströndum og sérkort af þjóðgarðinum í
Jökulsárgljúfrum en á því korti eru einnig
Mývatn og Húsavík. Eldri útgáfur eru
einnig til af sérkortum yfir Skaftafell,
Þingvelli, Mývatn, Heklu og Vestmanna-
eyjar.
Sumardvöl í Básum,
Þórsmörk
Ferðafélagið Útivist mun nú í sumar bjóða
ferðafólki upp á ódýra sumardvöl í skálum
sínum i Básum, Þórsmörk. Skálar Útivist-
ar eru nú orðnir tveir, en í fyrravor var
reistur nýr, lítill skáli sem rúmar 25-30
manns í gistingu og hentar vel fyrir sum-
ardvalargesti. Stærri skálinn rúmar um
70 manns í svefnpokaplássi. Aðstaðan í
Básum er nú orðin eins og best gerist í
óbyggðum. I skálanum em vistlegir svefn-
salir og eldhús og í snyrtihúsi eru vatns-
salerni og heit sturtuböð. I Básum er
umhverfið friðsælt og fjölbreyttar göngu-
leiðir eru í nágrenninu til lengri eða
skemmri gönguferða. Af þeim má nefna
nýja gönguleið um tilkomumikið svasði,
Teigstungur, sem opnast hafa með bygg-
ingu göngubrúar á Hruná, en Útivistarfé-
lagar reistu þá brú fyrir skömmu. Tilvalið
er að dvelja á milli ferða, en Útivistarferð-
ir í Þórsmörk em á föstudagskvöldum,
sunnudögum og miðvikudögum. Nánari
upplýsingar veitirskrifstofan, Grófinni 1.
M Tapað - Fundið
Gleraugu töpuðust
Lesgleraugu með gylltri umgerð í brúnu
leðurhulstri töpuðust í fyrri hluta júlímán-
aðar í Reykjavík. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 681644.
Verkfærabox tapaðist
Smiður varð fyrir því óláni að tapa bláu
verkfæraboxi með verkfæmm sínum í.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 42965.
Fundarlaun.
Starfsmenn vinsældalista rásar 2 voru önnum kafnir i gær. Öllum þátttakendum í vali listans var flett upp i þjóðskránni
til að enginn hefði nú rangt við. DV-mynd GVA
Vinsældalisti rásar 2:
Valinn
stöðum
Nýr vinsældalisti rásar tvö var val-
inn í gær. Miklar deilur urðu vegna
tilhögunar á vali listans í síðustu viku
og var þvi þreytt um vinnuaðferðir í
gær. Hlustendur gátu að þessu sinni
hringt inn óskalög sín á fjórum stöðum
á landinu.
áfjórum
á landinu
Mikið var hringt og vandlega at-
hugað hver hringdi hveiju sinni. I
höfúðstöðvum listans í Efstaleiti sátu
starfsmenn önnum kafnir við að fletta
nöfnum þátttakenda upp í þjóðskrá
og götuskrám. Voru lítil brögð að því
að menn reyndu að villa á sér heimild-
ir.
Alls komust sex ísfensk lög í fyrstu
tíu sæti listans eins og sjá má á yfir-
liti yfir vinsældir dægurlaga á bls. 43
í blaðinu í dag.
-ÞJV