Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Page 2
2
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987.
Fréttir
Tekjur 1987 skattfrjálsar
í frumvarpi Þorsteins
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra segir að við gerð frumvarps
um staðgreiðslukerfi skatta sé miðað
við að tekjur yfirstandandi árs, 1987,
verði ekki skattlagðar. Stefiit sé að
því að staðgreiðslan hefjist 1. janúar
1988.
„Ég geri ráð fyrir að það verði far-
ið að kynna þetta efnislega í stjóm-
arflokkunum í byrjun næstu viku,“
sagði Þorsteinn í gær.
Kvaðst hann búast við að nefnd,
sem vinnur að frumvarpinu í fjár-
málaráðuneytinu, skilaði tillögum
sínum fyrir mánaðamót. Frumvarpið
yrði lagt fram á Alþingi eins fljótt
sem kostur væri með það í huga að
það yrði að lögum fyrir vorið.
Um hugmynd Þorkels Helgasonar
prófessors, sem Páll Pétursson, þing-
flokksformaður framsóknarmanna,
hefur tekið undir, þess efiiis að tekj-
ur ársins 1986 verði skattfrjálsar,
sagði fjármálaráðherra:
„Við höfum skoðað þetta. Ég geri
ekki ráð fyrir að það verði ofan á.“
Kvaðst hann ekki óttast þenslu við
það að menn fæm að auka við sig
vinnu eða að námsmenn tækju sér
frí frá námi til að fá skattlausar tekj-
ur.
„Það er mikil eftirspum eftir fólki
á vinnumarkaðinn og ef þetta myndi
auðvelda það að fá fólk til vinnu
stuðlaði það að þveröfúgum áhrifum.
Það væri miklu frekar að þetta hefði
áhrif til að draga úr þenslu.“
Þorsteinn kvaðst ekki hafa
áhyggjur af misferli við það að tekj-
ur ársins 1987 yrðu skattlausar.
„Það em auðvitað viss tilvik sem
þarf að setja reglur um. Það þarf að
koma í veg fyrir óeðlilegar tilfærslur
og augljós undanskot
-KMU
Kvartað yfír afslætti á skilafresti í söngvakeppnina:
„Spurning um sönglög
en ekki hegningarlög"
segir Bjöm Bjömsson hjá Hugmynd
Þrír tónlistarmenn kvarta yfir því í
bréfi til útvarpsstjóra að vikið hafi
verið frá fresti til að skila inn söng-
lögum til þátttöku í undanrásum fyrir
söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Évr-
ópu og segja óeðlilegt að vik'ð sé frá
ákvæðum um skilafrest án þess að slík
breyting sé auglýst, að því er fram
kemur í bréfi þremenninganna til út-
varpsstjóra.
Tónlistarmennirnir em Gísli Helga-
son, Herdís Hallvarðsdóttir og
Guðmundur Ámason og segja þau í
bréfinu að vegna anna í hljóðverum
borgarinnar hafi menn í sumum tilfell-
um þurft að senda inn ófullgerðar
hljóðritanir en fljótlega eftir áramót
hefði síðan kvisast út að enn væri
verið að skila inn lögum. Skilafrestur
rann út um áramót.
í samtali við DV sagði Bjöm Bjöms-
son hjá Hugmynd, sem sér um fram-
kvæmd keppninnar, fyrir hönd
sjónvarpsins að það væri ekki rétt að
skilafrestur hefði verið framlengdur.
„Það hefur enginn formlegur frestur
verið veittur," sagði hann. Hins vegar
gat Bjöm þess að vegna hátíðanna og
þess að aðeins einn virkur dagur var
á milli nýársdags og helgar, og því
póstsamgöngur ekki með greiðasta
móti, hefði verið ákveðið að bíða með
að opna póstinn með lögunum til 10.
janúar. Enda hefði aðstandum keppn-
innar verið kunnugt um fólk úti á
landi og erlendis sem póstlagt hefði
keppnislög rétt fyrir áramót. Rétt hefði
þótt að bíða eftir þeim pósti.
Bjöm sagði að hefði einhver haft lag
á því að misnota sér þetta væri það
án vitundar Hugmyndar og síðan væri
það einnig spuming hvort túlka ætti
skilareglumar með þrengsta móti.
Hann kvað það álit lögfræðings Ríkis-
útvarpsins að ekki væri ástæða til
þess, „enda er þetta spuming um sön-
glög en ekki hegningarlög," eins og
Bjöm komst að orði. -ój
Eurovision:
Jóhann G. stóivirkur
Jóhann G. Jóhannsson óskar Magnúsi Eiríkssyni til hamingju með Gleðiban-
kann sem sigraði í söngvakeppni ríkissjónvarpsins í fyrra. í skoðanakönnun
DV skömmu fyrir keppnina bar lag Jóhanns, „Ef“, hins vegar sigur úr býtum.
Jóhann G. Jóhannsson á tvímæla-
laust mestu möguleikana á að sigra í
undankeppni Eurovision-söngkeppn-
innar sem fram fer hér á landi 9. mars.
Af 10 lögum sem valin vom til áfram-
haldandi þátttöku af 59 sem bámst í
keppnina á Jóhann tvö lög og textann
í því þriðja.
Hafa höfúndar úrslitalaganna nú
fengið í hendur 150 þúsund krónur
hver frá ríkissjónvarpinu til frekari
útfærslu verka sinna og fullbúa þau
fyrir lokakeppnina. Að sögn Hrafns
Gunnlaugssonar er markmiðið að
helstu höfundareinkenni keppenda fái
að njóta sín gagnstætt fyrirkomulag-
inu sem gilti á síðasta ári þegar allar
útsetningar og flutningur vom í hönd-
um sömu manna.
Lögin sem komust í úrslit em þessi.
Innan sviga em nöfn laganna á ensku:
Lífsdansinn (Dance of life) eftir Geir-
mund Valtýsson og Hjálmar Jónsson.
Ég leyni minni ást (I hide my love)
eftir Jóhann G. Jóhannsson.
í bhðu og stríðu (Tender is the storm)
eftir Jóhann Helgason.
•Mín þrá (All I want) eftir Jóhann G.
Jóhannsson.
Lífið er lag (Life is a melody) eftir
Gunnlaug Briem, Friðrik Karlsson og
Birgi Bragason.
Hægt og hljótt (Nice and easy) eftir
Valgeir Guðjónsson.
Sofðu vært (Sleep tight) eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
Hanastél (Cocktail) eftir Gunnar
Þórðarson og Ólaf Hauk Símonarson.
Gamlar glóðir (Old flame) eftir Þor-
geir Daníel Hjaltason og Iðunni
Steinsdóttur.
Aldrei ég gleymi (I’ll never forget) eft-
ir Axel Einarsson og Jóhann G.
Jóhannsson.
Sigurvegarinn í undankeppninni fer
síðan með lag sitt til Brussel þar sem
sjálf úrslitakeppnin fer fram 9. maí
næstkomandi. -EIR
Hlýindin á íslandi:
Ósköp venjuleg
Vegna hinna miklu hlýinda, sem
leikið hafa um okkur íslendinga und-
anfarið, hafði DV samband við
Magnus Jónsson, veðurfræðing hjá
Veðurstofunni, og innti hann álits.
Magnús sagði að hlýindin nú væm
ekki óvenjuleg. Hins vegar væri held-
ur ekki algengt að fá svona hlýindi.
En ef þetta stæði eitthvað lengur væri
hægt að flokka þetta sem einstakt.
Magnús sagði ennfremur að það
eina sem þyrfti ef til vill að hafa
áhyggjur af væri gróðurinn ef hlýinda-
skeiðið stendur lengur.
Jóharrn Pálsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkur, sagði að gróður væri
ekki farinn af stað að ráði. Þó væri
eitthvað um að fjölærar plöntur upp
við húsveggi væm famar að stinga sér
upp úr jörðinni en þær þyldu flestar
frost.
Sagði Jóhann að ekki þyrfti að hafa
áhyggjur af gróðri enn sem komið
væri. -ÓA
Starfsemí fíkniefnalogreglunnar 1986:
Alls vom 380
aðilar
- atvinnulausir stærsti
í yfirliti um starfsemi fikniefna-
deildar Lögreglunnar í Reykjavík
kemur fram að alls vom 380 aðilar
kærðir á árinu 1986. Af þeim höfðu
240 komið við sögu deildarinnar áð-
ur en 140 vom kærðir í fyrsta sinn.
Af þessum aðilum höfðu 35 orðið
uppvísir að innflutningi fíkniefna en
57 að dreifingu þeirra.
Ef litið er á aldursdreifingu þeirra
sem kærðir vom kemur í ljós að
þeir vom flestir á aldrinum 21-30
ára eða 213 talsins sem er rúmlega
helmingur heildarfjöldans. Fjöldi
þeirra sem var undir tvítugu, eða
15-20 ára, var 89 en yfir þrítugu
voru 78 kærðir.
í yfirlitinu er að finna skiptingu
kærðra í starfsstéttir og þar kemur
fram að langflestir hinna kærðu
vom atvinnulausir, eða 130 talsins,
en næstir koma verkamenn, 80 tals-
ins, síðan sjómenn, 44 talsins. Fæstir
þeirra sem kærðir vom flokkast sem
opinberir starfsmenn en þeir reynd-
ust 7. í öðrum starfestéttum vom
þetta á milli 20 og 30 aðilar, náms-
menn, iðnaðarmenn, verslunarmenn
eða fólk með eigin rekstur.
Aukning amfetamíns mest
Fjöldi hinna kærðu 1986 er svipað-
ur og árið á undan en þá vom 412
kærðir og skipting kynjanna er
einnig svipuð, í fyrra vom þetta 302
karlar og 78 konur en árið 1985 vom
þetta 333 karlar og 79 konur.
Magn þeirra fikniefna sem lagt var
hald á 1986 var hins vegar nokkm
meira en árið á undan, sérstaklega
hvað amfetamín varðar en það jókst
um nærri helming milli þessara
tveggja ára, úr 970 grömmum í 1698
grömm í fyrra.
Magn þess hass sem lagt var hald
kærðir
hópurínn, 130 talsins
á jókst einnig, úr 8,9 kg árið 1985 í
10,4 kg í fyrra og virðist því aukning-
in af amfetamíni vera hrein viðbót
við fíkniefnamarkaðinn hérlendis
sem veldur lögregluyfirvöldum
áhyggjum þar sem amfetamfn telst
til svokallaðra „harðra“ fíkniefna
Og hefúr mun meiri og verri áhrif á
neytandann en hass ef litið er til
langtímaneyslu.
Hvað varðar fíkniefnin kókaín og
LSD var mun minna um þau á mark-
aðinum í fyrra en árið á undan
samkvæmt yfirlitinu, aðeins var lagt
hald á 2 skammta af LSD í fyrra á
móti 2223 skömmtum árið 1985 en
taka má fram að megnið af því efni
kom fram í einu máli. Hvað kókaí-
nið varðar var lagt hald á tæp 8
grömm í fyrra á móti rúmum 24
grömmum árið 1985.
Yfirlitið var unnið af Þórði Þórð-
arsyni, deildarlögfræðingi hjá
Reykjavíkurlögreglunni. Aðspurður
hvað hann ómögulegt að áætla
hversu stór fíkniefnamarkaðurinn
hérlendis væri með því að leggja
framangreindar tölur til grundvall-
ar.
Þegar reynt er að áætla umfang
fíkniefnamarkaðar erlendis út frá
tölum um fíkniefnamagn sem lagt
er hald á er yfírleitt stuðst við þá
þumalfingursreglu að 5-10% af efn-
um í umferð náist. Ef miðað er við
hærri töluna kemur fram að neysla
á hassi í fyrra hefúr numið um 100
kg og neysla á amfetamíni hefúr
numið tæpum 17 kg. Þessar tölur
verður þó að taka með þeim fyrir-
vara að markaðunnn hér er mun
minni en erlendis og því vart rétt
að miða við sömu reglur hér og gilda
þar.
-FRI
Ami og Utvegsbankinn:
Afsökunarbeiðni
dregst a
Vilhjálmur Bjamason, útibús-
stjóri Útvegsbankans í Vestmanna-
eyjum, hefúr enn ekki beðið Áma
Johnsen afsökunar á ummælum er
birtust í Bæjartíðindum skömmu eft-
ir áramót. Þar sagði Vilhjálmur: „Ég
hef aldrei legið á þeirri skoðun minni
að Ámi Johnsen sé óhæfúr þingmað-
ur..
Ámi Johnsen kvartoði við banka-
stjóm og bankaráð Útvegsbankans
og í samtoli við DV á fimmtudaginn
sagði Ámi: „Mér er kunnugt um að
bankaráð Útvegsbankans hefúr
langinn
krafist þess af Vilhjálmi að hann
biðjist afeökunar á ummælum sín-
um.. .veit ég til þess að Vilhjálmi
verður afhent viðvörunarhréf...“
Enn hefúr Vilhjálmur ekki fengið
neitt bréf og í samtoli við DV í gær
var hann ekki á þeim buxunum ací
biðja Áma afeökunar.
„Þetto er mnanhússmál og við lítum
svo á að þvi sé lokið,“ sagði Láms
Jónsson, bankastjóri Útvegsbank-
ans.
-EIR