Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987. Fréttir Skýring á óreglu segulsviðs jarðar Islendingur á síðum Newsweek 28 ára gamall íslendingur vinnur að stórmerkum jarðfræðirannsóknum í bandaríska vikublaðinu News- week þann tuttugasta og annan desember síðastliðinn er grein um rannsóknir sem fram hafa farið á vegum Califomia Institute of Tec- hnology og leiða í ljós líkur íyrir því að kjami jarðar sé ekki með jöíhu yfirborði eins og hingað til hefur verið talið heldur með toppum og lægðum. Það sem er athyglisvert við þessa grein er að í henni kemur fram að einn þeirra sem unnið hefur að rann- sóknunum á vegum skólans heitir Ólafur Guðmundsson. Okkur á DV þótti þetta nafri hljóma íslenskulega og það kom á daginn að hér er um Islending að ræða. Við höfðum upp á Ólafi Guð- mundssyni í Kalifomíu. Hann stundar þar doktorsnám við Cal. Tech. en svo er skólinn nefhdur í daglegu tali. Ólafur er tuttugu og átta ára gam- all Revkvíkingur, fæddur árið 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og B.S. prófi í jarðeðlisfræði frá Há- skóla íslands. Árið 1981 hélt hann til Seattle í Washington-ríki í Bandaríkjunum og lagði stund á jarðeðlisfræði þar og árið 1984 lauk hann meistara- gráðu í faginu. Olafur Guðmundsson, tuttugu og átta ára jarðeðlisfræöingur, sem vakið hefur athygli i Bandaríkjunum fyrir rannsóknir sinar á segulsviði jarðar. Haustið 1984 fór Ólafur til náms við Cal Tech þar sem hann leggur nú stund á doktorsnám í sinni grein. Aðspurður sagðist Ólafur vera eini íslenski stúdentinn í sinni deild en þrír stúdentar væm við skólann í öðrum deildum. Ólafúr sagði að prófessor Don Anderson hefði átt hugmyndina sem unnið var eftir við rannsóknimar en sagðist að mestu hafa unnið með prófessor Robert Clayton. Það em þessir þrír sem eiga heiðurinn af rannsóknunum. Óregla stafar af ójöfnu yffir- borði kjarna Rannsóknimar hafa beinst að óreglu í segulsviði jarðar en það á upptök sín í ytri kjama jarðarinnar. Eftir niðurstöðum rannsókna þeirra félaga að dæma er ein skýring á þessari óreglu að yfirborð kjama jarðarinnar er alls ekki slétt eins og áður var haldið, það er að segja að á mörkum kjama og möttuls em bungur og ójöfhur. Ólafur segir að ekki sé hægt að fullyrða að með þessari tilgátu hafi óregla segulsviðsins verið skýrð en mjög líklegt sé að eitthvað af óregl- unni sé skýranlegt út frá þessu landslagi. Að sögn Ólafs benda niðurstöður til þess að dýptarmunur á hæstu og lægstu punktum sé um það bil tíu kílómetrar. Ólafur vildi taka það sérstaklega fram að fleiri skólar væm með sams konar rannsóknir í gangi og meðal annars væm jarðeðlisfræðingar í Harvard og Massachusetts Institute of Technology (MIT) að fást við sömu hluti og niðurstöður þeirra væm mjög svipaðar. Ástæðan fyrir því að það er Cal A New Window on ttie Worl Geologists find peaks and valleys in the earth’s When Jule* Veme eent ProfeMor Hardwiggand hisnephew Harryon their Journey to the Center of the Earth.theyawningabyaaeatheydiacovered thereaeemed no leaa fictional than thegiant aea aerpenta that charged their raft. Yet once again, acience fiction tuma out to be uncannilypreacient.Laatweek.atthemeet- ing of the American Geophyaical Union in San Franciaco, geophyaiciata challenged atandard theory by reporting that the earth ia not built like an avocado, with a amooth, round core. Rather, the molten core haa peaka taller than Mount Everest and val- leyi deeper than the Grand Canyon—fea- tureathatmayhelpsolveauchlongitanding puzzles aa why the continenta move. The acientista diacovered this interior landacape through "aeiamic tomography," a geologic veraion of the CAT scan that haa revolutionized medicine. Like CAT Kana, seiamic-tomography acana are produced by computera that combine information from wa ve*— in thia caae, seismic wavea generat- ed by earthquakea. Olafur Gudundason, Robert Clayton and Don Anderson of the California Inatitute of Technology sludied Making Waves Peaka and valleys in the cor e are created when hot magma nie* through the mantle.cooU.and ainka again. waves from aome 25,000 quakea, al er than 4.5 on the Richter acale. B where the waves changed apeed t raveled thousands of miles into th Clayton aaya, the team determim the core poke* into Uje mantle, th middle layer, and where the man into the core. According to the ne there are peaks in the core 1,8001 neath eastern Australia, the centr Atlantic Ocean, Central Ameria central Aaia and the northeas' Ocean, where a mountain at leaat high risesundertheGulfof Alaaka underlieEurope.Mexico.theaoutf cific and the Eaat I ndies, which floa valleyat leaatsix mileadeep Sloahlnj cors: The diacovery of th core promiaes toanawer aome long puzzlea. For one, it may crack th the transient milliaecondx. Everj the length of a day varies by al milliaeconda, as meaaured by the of diatant quasars. Since day len( termined by the time it take* the rotate once on ita axia—24 houra— team of researchers at the AGU apeculated that the undergroun and valley walls alter the amooth Perhaps, they auggest, the aloshii jagged core against the mantle m rotation jerky instead of amooth. Clayton believes that the newl ered peaka and valleys are create tion within the mantle, which cc molten rock with the consistency When cold material in this viacc sinka, he explaina, it creates abysf core; when hot currents in the ma they draw the core upward like whipped cream (chart). The mounl valleys probably laat only aa long a one current to riae and fall—rou million years. By Krutinizing tl and valleys for hinta of how the r moving, geophysicista may bette stand the aingle biggest mystery field: how continenta move. Thi plates of the earth's crust slide n mantle and cauae everything fron ation of the Himalayas to the eru Mount St. Helena. But geophysii aren't aure how th* mantle move* drives it. With the new window on ( that aeismic tomography gives th may finally glimpse the engine th the heart of the planet. SH..OI Greinin í Newsweek, frá tuttugasta og öðrum desember, þar sem fjall- að er um rannsóknir þeirra félaga við Cal Tech. Tech sem nú sveipa; sig sviðsljósinu en ekki einhver hinna skólanna sem stunda sambærilegar rannsóknir er sú að á ráðstefiiu nokkru fyrir jól, þar sem Ólafúr hélt fyrirlestur, gaf Cal Tech út fréttatilkynningu um málið. í kjölfar þess hafa blaðamenn sýnt mikinn áhuga á rannsóknum Cal Tech en ekkert hefur verið fjall- að um rannsóknir hinna skólanna. Kem heim Um framtíðina sagði Ólafur að hann ætti sennilega eitt til tvö ár eftir til að ljúka sínu námi. Hvað síðan tæki við væri óljóst að öðru leyti en því að hann myndi ein- hvemtíma enda heima á Islandi en vissulega væri mikill aðstöðumunur milli Islands og Bandaríkjanna hvað Ijármagn varðar. „Island er ákjósan- legur vettvangur fyrir jarðfræði- rannsóknir og leiðinlegt að ekki skuli vera til meiri peningar til að efla slíkar rannsóknir," sagði Ólafur. Það verður að segjast eins og er að alltaf vaknar upp gamla þjóðar- stoltið þegar fregnir berast af íslend- ingum sem skipa sér í fremstu röð á alþjóðavettvangi og óhætt er að full- yrða að Ólafur Guðmundsson er einn þeirra sem heldur uppi merki íslands með frammistöðu sinni. ÓA Anægja með Ola „Óli hafur staðið vil alla sína samn- inga. Hann stendur sig frábærlega," sagði Svan Friðgeirsson, fyrrum hlut- hafi í Olís, einn þeirra er seldu Óla Kr. Sigurðssyni hlutabréf sín í fyrir- tækinu. „Sögur um annað eru úr lausu lofti gripnar og eiginlega íúrðulegt að verið sé að reyna að bregða fæti fyrir Óla með slíkum hætti.“ Sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um að Óla Kr. Sigurðssyni myndi reynast erfitt að standa við skuldbindingar sina á gjaldaga sem var á fimmtudaginn. Veð kynnu að reynast ótrygg og ófúllnægjandi. „Óli greiddi okkur það sem um var satnið. Hann stóð við sitt, við erum ánægðir," sagði Gunnar Guðjónsson, fyrrum hluthafi í Olís. -EIR Fimbulveturinn á meginlandinu setur strik í reikninginn: Búast má við verðfalli á fiski í Evrópulöndum England. Bv. Vigri landaði 7. og 8. jan. alls 276 lestum fyrir kr. 16,3 millj. Verð á þorski var kr. 57,71, verð á ýsu var kr. 93,29 kílóið, koli kr. 116 kg. Bv. Haukur landaði 8. jan. alls 120 lestum fyrir kr. 7,924 millj. Þorskur kr. 66,41, ýsa kr. 90 kg, karfi kr. 58,45 kg. Bv. Þórhallur Daníelsson landaði alls 97 Iestum fyrir kr. 6,9 millj. Verð á jxirski var kr. 67,65 kg, ýsa kr. 101,43 kg, karfi kr. 55 kg. Bv. Ólafúr Jónsson lan- daði 12. jan. alls 168,5 lestum. Verð á þorski kr. 57,15 kg, ýsa kr. 83,72 kg, karfi kr. 39,52, koli kr. 42,69. Bv. Sindri landaði 12. jan. alls 128,5 lest- um fyrir kr. 6,9 millj. Verð á þorski kr. 55,31, ýsu kr. 58,18, aðrar tegund- ir fóru á lægra verði. 19 lestir voru seldar af fiski úr gámum 12. jan., meðalverð kr. 50,76 kílóið. Þýskaland. Bv. Ögri landaði 9. jan. alls 260,7 lestum fyrir kr. 15,572 millj. Verð á einstökum tegundum: Þorskur kr. 68,05 kg, ýsa kr. 97,60 kg, ufsi kr. 66,71 kg, karfi kr. 67,38 kg. Meðalverð kr. 59,72 kg. Bv. Gautur landaði alls 139 lestum fyrir kr. 8,947 millj. Meðalverð kr. 64. Verð á þorski kr. 70,15 kg, ufsa kr. 57,55 kg, karfa kr.67,39. Boulogne. Bv. Gautur landaði 12. jan. alls 77,8 lestum fyrir kr. 5,1 millj. Meðalverð kr. 66 kg. Þorskur kr. 65,13 kg, ýsa kr. 69,35 kg, ufsi kr. 68,92 kg, karfi kr. 69,35, koli kr. 50,43 kg. Annað kr. 88,72 kg. Nú væri hægt að hraöfrysta (isk ut- anhúss viða á meginlandi Evrópu og (ólk er minna á ferli vegna kulda og snjóa en ella. Ferskfiskneyslan minnkar um leið og nú má búast við verðfalli á helstu mörkuðum okkar. Verðfall? Erfiðleikar eru víða í löndunar- höfrium vegna sjóa og frosts. Búast má við að verðfall verði ef ekki ræt- ist úr veðrinu, t.d. í Englandi en þar Fískmarkaðirnir Ingólfur Stefánsson hefur snjóað síðustu daga og kuldi mikill á þefrra vísu. Frakkland. íslendingar eru nú famir að þekkja til fiskihafiiarinnar Bou- logne, þangað hefur farið nokkuð af fiski að undanfömu. Endurbætur standa nú yfir á löndunaraðstöðu, er það sérstaklega athafnasvæði smærri skipa, sem aukið verður, sem mun auðvelda athafnir stærri skipa. Landað heíúr verið allt að 200.000 tonnum á síðasta ári og búist við að landanir aukist þar vegna hins góða verðs sem fengist hefur fyrir afla þar. Englendingar líta hým auga til aukinna athafna í höfninni. Verið er að gera sölukerfið nýtísku- legt, byggt verður yfir allt svæðið og 20.000 cu. m vera kældir þar sem geyma á fiskinn yfir nóttina þar til hann er seldur. 250.000 cu. m frysti- geymslur verða á hafnarbakkanum. Vonandi eiga íslenskir seljendur eft- ir að eiga þar góð viðskipti í framtíð- inni. England. Árið 1985 fiskaði síldveiði- floti Breta 30.774 lestir sem seldust fyrir £ 3,75 milljónir. Árið 1986 var síldaraflinn 51.000 lestir sem seldust fyri £ 51,23 millj. Mestu af þessum aíla var landaði í rússnesk verk- smiðjuskip (Sovetskaya Livita) sem Bretar kalla Klondyke. Verð það sem fæst fyrir síldina til skipta er kr. 6,00 kg fyrir hluta árs 1986 en hækkaði i kr. 6,30 kg síðari hluta árs 1986. Verð til úgerðar var ákveðið á haustvertíð hérlendis kr. 6,00 fyrir síld stærri en 30 cm en kr. 3,00 kg fyrir smærri síld. Þrir verjendur sakborninga i kaffibaunamálinu, Eiríkur Tómasson, Ragnar Aðalsteinsson og öm Clausen, drekka kaffi með saksóknara, Jónatan Sveins- syni, í kaffistofu sakadóms. DV-mynd GVA Yfirheyrslur í kaffíbaunamáli Dómsyfirheyrslum í kaffibaunamál- inu verður fram haldið í Sakadómi Reykjavíkur á mánudag eftir tveggja mánaða hlé. Snorri Egilsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri verslunardeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga, mætir líklega fyrir réttinn sem vitni klukkan níu um morguninn. I næstu viku má búast við að leiddir verði saman fyrir réttinn þeir sak- bomingar, sem ekki hafa sama framburð, til að komast nær því hver segi satt. Sakbomingum ber í veiga- miklum atriðum ekki saman um gang mála. Eitt ár er liðið frá því að ríkissak- sóknari gaf út opinbera ákæru á hendur fimm yfirmönnum Sambands- ins, þeim Erlendi Einarssyni, fyrrver- andi forstjóra, Hjalta Pálssyni, framkvæmdastjóra innflutningsdeild- ar, Sigurði Áma Sigurðssyni, deildar- stjóra fóðurvörudeildar og forstöðu- manni skrifstofú SÍS í London, Gísla Theódórssyni, forstöðumanni skrif- stofu SÍS í London, og Amóri Val- geirssyni, deildarstjóra fóðurvöm- deildar. Þeim er gefið að sök að hafa með fjársvikum, skjalafalsi og broti á gjald- eyrislögum leynt Kaffibrennslu Akureyrar miklum afslætti af kaffi- verði og þannig náð undir Sambandið 4,8 milljónum dollara, um 200 milljón- um króna, á árunum 1979 til 1981. -KMU FUF á móti virðisauka „Stjóm Félags ungra framsóknar- manna í Reykjavík skorar á stjómvöld að leggja áform sín um gildistöku virð- isaukaskatts á hilluna, en þess í stað hefja gagngerar endurbætur á núver- andi söluskattskerfi, einfalda það, fækka undanþágum og herða sölu- skattseftirlit," segir í ályktun sem DV hefur borist frá FUF um skattamál. „Ljóst er að virðisaukaskattur mun ekki leysa þau vandamál sem stjóm- völd eiga við að glíma í skattamálum. Þvert á móti mun tilkoma virðisauka- skatts auka enn á þann glundroða sem nú ríkir,“ segja ungir framsóknar- menn -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.