Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Page 8
8
v w/- r i ..
LAUGARDÁGUR 17. JANÚAR 1987.
Ferðamál
Leiklistarhátíð í
breska þjóðleikhúsinu
Sænski leikstjórinn, Ingmar Berg-
man, stjómar Hamlet í fyrsta sinn á
mikilli leiklistarhátíð sem stendur
fyrir dyrum í London. Þar mun
bandaríski leikarinn Jason Robards
koma fram í fyrsta sinn á leiksviði
í London.
Hátíðin heitir „Intemational
Theatre 87“ og er haldin til þess að
minnast þess að nú em tíu ár síðan
leikhúsið flutti í húsnæði sitt á Soth
Bend. Fjögur erlend leikhús taka
þátt í hátíðinni og verða verkin á
leikskránni frá því í febrúar þar til
í september.
Jason Robards leikur í verki Eug-
ene O’Neills, Ismaðurinn kemur, sem
meðal annarra verka verður ílutt í
febrúar. Schaubuhne leikhúsið frá
Vestur-Berlín kemur með annað
verk eftir O’Neill, Loðna apann, sem
er á dagskránni í maí. Konunglega
sænska leikhúsið, Dramaten, sýnir
Hamlet með Ingmar Bergman við
stjómvölinn og einnig Fröken Júlíu
en það verk hlaut mikið lof á listahá-
tíðinni i Edinborg í fyrra. Svíamir
verða á dagskránni í júní.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ingmar
Bergman leikstýrir Hamlet.
Japanskt frikhús, Toho leikhúsið
í Tókýó,kemur á leiklistarhátíðina
með sýningu sína á Macbeth, sem
hlaut fádæma góðar viðtökur á Ed-
inborgarhátíðinni árið 1985 og
Ingmar Bergman, sænski leik-
stjórinn góðkunni, ætlar að stjórna
á bresku þjóðleikhússviði á þessu
ári.
Medeu Euripidesar í september.
Tvær frumsýningar em á dagskrá
breska þjóðleikhússins á þessu ári.
Sýnt verður nýtt leikrit eftir Alan
Ayckboume, A small family busi-
Jason Robards hefur leikið í fjöl-
mörgum kvikmyndum og sjón-
varpsmyndum og fengið óskars-
verðlaun fyrir. Þama er hann með
Jane Fonda.
ness, og annað eftir Stephen Polia-
koff, Coming to land. I því em m.a.
leikarar sem þekktir em hér á landi
fyrir leik sinn í sjónvarpi, þeir Ant-
hony Andrews, Tim Pigott Smith og
Tim Pigott-Smith þekkjum við
mætavel úr sjónvarpinu og af hvíta
tjaldinu.
Maggie Smith.
Þá verður einnig boðið upp á verk
eftir Moliere, Lorca, Pirandello, Gol-
doni og Ihsen í breska þjóðleikhús-
inu.
Maggie Smith í hlutverki Miss Brody
með gamla góða Gordon Jackson
(Hudson). Allt þetta fólk leikur á
sviði breska þjóðleikhússins nú í
vetur.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
Ýmsir punktar:
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Hljómleikar,
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, paö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa pau.
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID
Þú hringir...
Við birtum... Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Opið:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
iaugardaga, 9.00— 14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
Frjálst, óháð dagblað
bjór og skassið
hún Kata
• íslenskir ferðalangar eru
menningarlega sinnaðir og vilja
gjarnan sækja leiksýningar,
hljómleika og listsýningar þegar
þeir heimsækja erlendar stór-
borgir. Enda líka sjálfsagt að
notfæra sér að sjá heimsfræga
listamenn og heyra þegar færi
gefst.
Annars staðar á þessari síðu er
sagt frá hvað er á boðstólum á
fjölum breska þjóðleikhússins í
vetur. Þá má einnig geta þess að
aðdáendur rússneska tónskálds-
ins Igor Stravinsky geta heimsótt
Stravinsky hátíð sem verður í
Barbican Center í London frá 29.
janúar til 22. febrúar.
Stjórnandinn er Gennadi Rozh-
destvensky og verkin sem flutt
verða ná yfir árin frá 1910-1945.
Ekki verða eingöngu flutt verk
eftir Stravinsky heldur einnig
eftir önnur tónskáld frá sama
tíma.
Þama verður hægt að hlusta á
stórkostlega tónleika fyrrihluta
kvölds og er aðgangur ókeypis.
• Það er getið um yfir 5 þúsund
bjórkráa í Good Beer Guide fyrir
árið 1987, en bók þessi er gefin út
í Bretlandi til stuðnings barátt-
unni fyrir betri bjór. Þetta er 14.
útgáfa bókarinnar.
Þama er að finna lýsingu í
smáatriðum á öllum tegundum
af bjór og öli sem fyrirfinnst á
breskum krám. Einnig er greint
frá hvers konar þjónustu er að
finna á kránum, hvort þar er að
finna húsagarð, hvort boðið er
upp á mat, hvort þar er aðstaða
fyrir böm og fleira í þeim dúr.
Þá er einnig sagt frá mörgum
bmgghúsum í Bretlandi. Yfir sjö-
tíu bjórkrár brugga bjór á staðn-
um.
• Nýjasti veitingastaðurinn í
London er Cafe Maxims sem ný-
lega var opnaður. Hann er í sama
húsi og Maxims de Paris í Panton
Street skammt frá Leicester Squ-
are.
Veitingastaðurinn er rúmgóð-
ur, tekur 120 manns í sæti, og
býður upp á franskan matseðil
sem samanstendur af ferskum
fiski, kjöti, fuglakjöti og óvenju-
legum grænmetisréttum.
• Bandaríski söngleikurinn
Kysstu mig Kata eftir Cole Porter
verður settur upp í Stratford-
upon-Avon í lok mánaðarins.
Það er The Royal Shakespeare
Company sem verður með söng-
leikinn á fimm vikna dagskrá
sinni frá 30. janúar. Leikhópur-
inn fer í leikför til Bradford,
Glasgow og Southampton áður
en sýningar hefjast í Old Vic leik-
húsinu í London.
Það er ekkert óeðlilegt þótt
Shakespeare hópurinn taki Kötu
til sýningar því hún er samin eft-
ir leikriti Shakespears, Skassið
tamið, eða The taming of the
screw, sem við höfum séð hér á
landi á kvikmyndatjaldinu með
þeim Elisabeth Taylor og Richard
Burton í aðalhlutverkum.
-A.BJ.