Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987.
9
Ferðamál
Makalausar verðlaunaveitingar:
Að yfírgefa
elskhuga
og flugvélar
Verðlaunin fyrir verstu tilkynning-
una í flugi fara án efa til breska
flugfélagsins Britannia en um borð í
vél þess félags á leiðinni frá Zurich til
London var af vangá látin segulbands-
upptaka með neyðarlendingu í segul-
bandstækið þegar tilkynna átti um
sölu á áfengi og tóbaki!
I breska tímaritinu Business Tra-
veller er sagt frá ýmsum makalausum
verðlaunaveitingum til þeirra sem að
ferðamálum starfa úti í hinum stóra
heimi. Við skulum líta á nokkur dæmi.
Neyðarviðvörun
Það eru talin ein mestu mistökin í
ruglingi á tilkynningum er segul-
bandsspóla með leiðbeiningum um
hvemig ætti að yfirgefa flugvélina á
neyðarstundu „um leið og hún lenti í
sjónum" var sett í hátalarakerfi flug-
vélarinnar og var búið að glymja yfir
farþegunum í tvær mínútur áður en
áhöfhin tók eftir þessu og flugstjórinn
rauk til og stöðvaði útsendinguna.
Farþegamir vom skelfingu lostnir í
sætum sínum er flugstjórinn bað þá
innilega afsökunar og sagði að þama
væri um mistök að ræða. Þeir ætluðu
að auglýsa útsölu á áfengi og tóbaki.
Farþegunum létti við þessar upplýs-
ingar. Þeir höfðu ekki einu sinni tekið
eftir að flugvélin var ekki einu sinni
nálægt sjó.
Öryggisæfingar fyrir daufum
eyrum
Ónefnd bandarísk flugfreyja er talin
eiga áhrifamestu öryggisæftngamar
um borð í flugvél en flugþjónustufólk
er orðið dauðleitt á að vera með örygg-
isæfingar í sérhveiju flugi fyrir algjör-
lega daufiim eyrum farþeganna.
Þessi bandaríska flugfreyja náði svo
sannarlega eyrum farþeganna er hún
sagði:
„Herrar mínir og frúr. Eins og segir
í dægurlaginu þá em að minnsta kosti
fimmtíu leiðir til þess að yfirgefa ást-
vin sinn en ég get trúað ykkur fyrir
því að það em aðeins sex útgönguleið-
ir úr þessari flugvél svo þið skulið
taka vel eftir!“
Vildarkjör á
lúxushóteli
Lúxushótel Dorchester í London
býður nú í fyrsta skipti í sögunni upp
á vetrarfrí á sérstökum kjörum. Ekki
er víst að öllum finnist þetta vildar-
kjör en fyrir 220 sterlingspund, eða
fyrir 12.980 kr. ísl„ er boðið upp á gist-
ingu fyrir tvo, flösku af kampavíni við
komu, kvöldverð, sem búinn er til af
Anton Mosimann yfirmatreiðslu-
manni, og enskan morgunverð. Irrnifa- ■
lið er þjónustugjald.
Þessi vildarkjör gilda til marsloka.
Þeim sem ekki þekkja til þessa hót-
els má taka fram til glöggvunar að þar
gista stórstjömumar gjaman þegar
þær em á ferð í London. Þannig væri
hægt að rekast t.d. á Elísabetu Taylor
í anddyrinu eða einhvem annan álíka
nafritogaðan.
-A.BJ.
Ekki er allt sem sýnist I fluginu og
ýmislegt skemmtilegt getur komið upp.
Yfirvegaðasti farþeginn
Yfirvegaðasti flugfarþegi ársins er
eflaust farþegi sem ferðaðist með írska
flugfélaginu Air Lingus í maí sl. Flug-
vélin lenti í hávaðaroki nokkra km
fyrir utan flugbrautina eftir að hafa
sleikt húsþökin í nágrenninu og rifið
niður háspennulínur og tré. Ekki
týndu farþegamir lífinu í þetta sinn
en þrjátíu og sex slösuðust.
Þá sagði þessi yfirvegaði farþegi um
leið og hann komst út úr flakinu: Þetta
var mjög erfið flugferð!
Þetta var þó ekki nærri því eins erf-
ið ferð og sú sem júgóslavneska
flugfreyjan, Vesna Vulovic, lenti í í
maímánuði. Fyrir þá fékk hún verð-
laun fyrir að hafa það af í lengsta
fallhlífarstökkinu, sem reyndist 33
þúsund fet eða nærri þúsund metrar.
Nafh Vesnu er að finna í Heims-
metabók Guinness. Árið 1972 var hún
eina manneskjan sem lifði af er júgó-
slavnesk DC-9 vél sprakk í loft upp á
flugi og aðrir, sem vom með vélinni,
fórust, tuttugu og sex talsins. Það
þótti með ólíkindum að hún skyldi
finnast á lífi í braki vélarinnar.
-A.BJ.
BRAUTARHOLTI33 - SIMI695660.
Honda Prelude EX árg. 1983, ekinn
35.000 km, sjálfsklptur, sóllúga, vetrar-
dekk, sumardekk, útvarp og segul-
band. Verð 530.000,-
VW Jetta GL árg. 1986, eklnn 9.1
vökvastýrl, 5 gira, vetrar- og i
dekk. Verð 550.000,-
MMC Lancer GLX árg. 1985, ekinn
20.000 km, sumar- og vetrardekk, út-
varp oa seaulband. Verð kr. 380.000,-
Honda Chuttle Wagon árg. 1984, ekinn
30.000 km. Verð 420.000,-
Ford Escort XR 3i árg. 1985, eklnn
13.000 km. Verð kr. 520.000,-
BMW 315 árg. 1982, ekinn 65.000 km,
útvarp og segulband, fallegur bill. Verð
320.000,-
GOH URVAL NYLEGRA BILA A
STAÐNUM, TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA.
OPIÐ:
Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30.
Laugard. kl. 10.00-17.00.
SJÓNVARPIÐ
_ingar
Rokkar
auglýsir eftir
hugmyndaríku, hressu og
dugmiklu fólki til umsjónar
í unglingaþáttunum
Rokkarnir geta ekki þagnað og
Unglingarnir í frumskóginum.
Umsækjendur þurfa
að geta starfað sjálfstætt
og með öðrum að
þáttagerð og hafið
starfið nú þegar.
Hafir þú áhuga þá liggja
umsóknareyðublöð frammi í
símaafgreiðslu sjónvarpsins
Laugavegi 176.
Umsóknarfrestur rennur út
föstudaginn 23. janúar næstkomandi.
SJONVARPIÐ