Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987.
15
Hann er að deyja
Ungur maður í nauðum á Lækjartorgi
enda greinilega alvara á ferðum;
vinurinn á stéttinni ekki mönnum
sinnandi og ekkert annað að gera
en kalla á sjúkrabíl. Það kom þó
upp úr dúmum að enginn mundi í
hvaða númer átti að hringja þar
til flett var upp í símaskrá.
Á meðan töldu ýmsir ráðlegast
að troða vasaklút upp í sjúklinginn
svo hann biti ekki úr sér tunguna.
Það var eiginlega þá sem sjúkl-
ingnum hætti að lítast á blikuna.
Hann var ekki eins illa staddur og
ssklausum vegfarendum virtist.
Sumir áttu erfitt með að trúa að þetta hefði allt verið leikur.
Það bjargaði þó leiknum að menn
hurfu frá þessu ráði og tóku að
drösla honum inn í strætisvagna-
biðstöðina meðan beðið var eftir
aðstoð.
Vinurinn tók nú mjög að hress-
ast, enda ráðlegast að vera ferða-
fær áður en sjúkrabíllinn kæmi á
staðinn. Gömul kona benti honum
á að hann ætti eftirleiðis að hafa
á sér spjald með leiðbeiningum fyr-
ir þá sem þyrftu að sinna honum.
Stöðumælavörður bauðst til að
koma sjúklingnum í samband við
andalækni svo að hann þyrfti ekki
að þjást meir.
En þjáningunum lauk þegar
sjúklingurinn lagði spilin á borðið
og viðurkenndi að hafa að undir-
lagi DV verið að leika á samborg-
ara sína. -GK
Sjúkraflutninga-
námskeið
Borgarspítalinn og Rauði kross íslands efna til sjúkraflutninganám-
skeiðs dagana 30. mars - 10. apríl nk.
Kennsla fer fram að mestu í Borgarspítalanum frá kl. 8-17 daglega
en eftir það gefst þátttakendum kostur á veru á sjúkra- og slysavakt
Borgarspitalans og Slökkvistöðvar Reykjavíkur.
Innritun og nánari upplýsingar á skrifstofu RKÍ, Rauðarárstíg 21, R.,
s. 91-26722 (Ásgerður).
Umsóknarfrestur er til 10. mars nk.
Peugeot 505.
Flaggskipið frá Peugeot
Peugeot 505 hefur sannað ágœti sitt með margra ára
reynslu við íslenskar aðstœður.
Peugeot 505 er rúmgóður, þœgilegur, traustur og
sparneytinn bíll.
Peugeot 505 er fáanlegur bœði sem fjögurra dyra
fólksbíll og skutbíll með sœtum fyrir allt að átta.
Peugeot505 er kraftmikill bíll með fjóðrun í sérflokki og
splittað drif að aftan o.fl. o.fl.
Verð frá kr.: 580.200.-
Peugeot 205 GTI
Bíllinn sem sigraði Evrópu nú loks fáanlegur á íslandi.
Peugeot 205 GTI, fremstur á meðal jafningja, hefur
vegna frábœrra aksturseiginleika verið valinn
„Sportlegi bíll ársins' af flestum virtustu bílablöðum
Evrópu.
Peugeot 205 GTI er fáanlegur með 115 hestafla vél
með viðbragð 8,6 sek. f 100 km hraða og 130 hestana
vél með viðbragð 8,1 sek. f 100 km hraða.
Þegar sest er undir stýri er orðið „stjómklefi' efst í huga
ökumannsins. Sœtið gefur réttan stuðning og öllum
mœlum og stjómtœkjum komið svo fyrir að ökumaður
hafi góða yfirsýn og greiðan aðgang.
Innifalið í verði; Álfelgur, litað gier, þokuljós að framan,
snúningshraðamœlir, olíuþrýstimœlir, digitalklukka o.fl.
Verð frá kr.: 592.100,-
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
Opið laugardag, 17/1, kl. 13-17.
Opið sunnudag, 18/1, kl. 13-17.
ÞÓRHILDUR/SÍA