Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987.
19
Texti og myndir:
Jón G. Hauksson,
DV, Akureyri
Sturla Kristjánsson -
„Mér leiddist alltaf í
skóla sem krakki.“
skólalaganna væru þá jafnframt
gerð óvirk þannig að grunnskóla-
lögin segðu einungis til um vægi
þáttanna en ekki magn.“
- Hefur þessu verið neitað?
„Ýmist neitað eða ekki svarað.“
- Sverrir segir að þú hafir fleiri
stöðugildi á fræðsluskrifstofunni
en heimilt sé. Er það rétt?
„Fræðsluráðið ræður starfsfólk
skrifstofunnar og fjöldi stöðu-
gilda er í fullu samræmi við lög
og reglur og umfang verkefna.
Okkur er ekki kappsmál að hlaða
upp fólki, okkar markmið er að
sinna þeirri þjónustu sem lög og
reglur kveða á um.“
Leik ekki keisara
- Hefur þú átt í samskiptaerfið-
leikum við Sverri eða aðra í
menntamálaráðuneytinu?
„Nei, alls ekki.“
- En lætur þú illa að stjórn?
„Það er nú erfitt fyrir mig að
svara þessari spurningu. Þú verð-
ur, held ég, frekar að spyrja aðra.
En ég tel mig þó standa við það
að vinna af heiðarleik og festu.
Ég vil ekki taka lögin í mínar
hendur og leika einhvern keis-
ara.“
- En ertu frekur?
„Nei, ég er hugsjónamaður. Ég
vil leiðbeina, ekki valdbeita."
- Þú ert þess „heiðurs" aðnjót-
andi að tveir menntamálaráð-
herrar hafa rekið þig, fyrst Ingvar
Gíslason, þegar þú varst í leyfi
sem fræðslustjóri 1983 og kenndir
við Þelamerkurskóla, og svo
Sverrir síðastliðinn þriðjudag.
Fólk spyr sig sjálfsagt út á hvað
þetta Þelamerkurævintýri hafi
gengið?
„Það var innansveitarkróníka
sem gekk ekki út á neitt. Mála-
lyktir og málsmeðferð var hrein
skelfing. Við i fjölskyldunni erum
raunar þakklát fyrir að hafa lifað
það af og teljum okkur nú eiga
töluvert inni hjá þeim er þar réðu
ferðinni."
- Ertu ennþá í Sjálfstæðis-
flokknum?
„Já.“
- Þú ert ekkert á leiðinni út
úr honum?
„Ég á enga samleið með mönn-
um sem beita eða líða valdníðslu.
Ég er frjálslyndur „húmanisti“.“
- Ætlarðu að stefna Sverri
vegna brottrekstursins?
„Ég ætla að Ieita réttar míns.
Ég hef ráðið mér lögfræðing sem
mun sjá um framhaldið.“
Samtökin um jafnrétti
- Þú hefur starfað lítillega í
Samtökunum um jafnrétti á milli
landshluta. Ertu harður byggða-
maður sem vill fullkomið jafn-
rétti á milli landshluta eins og til
dæmis á milli Norðurlands eystra
og Reykjavíkur?
„Ég vil fyrst og fremst að sömu
lög séu virt alls staðar á landinu.
Ef ekki koma til undanþágur frá
lögum hlýtur að vera eðlilegt að
þau séu virt.“
- Telur þú að Sjálfstæðisftokk-
urinn eigi eftir að tapa fylgi í
kosningunum í vor vegna þess
að Sverrir rak þig?
„Mér heyrist það á mönnum.
En þetta mál er ekki flokkspóli-
tískt og ég vona að stjórnmála-
menn leggist ekki svo lágt að
reyna að nýta sér það þannig."
- Ert þú tilbúinn að setjast aft-
ur í fræðslustjórastólinn á meðan
Sverrir Hermannsson er mennta-
málaráðherra?
„Ég hef alls ekkert ofnæmi fyr-
ir Sverri Hermannssyni og ég ur
tilbúinn að setjast aftur í stólinn
hvenær sem er. Starf mitt þarna
hefur verið mitt líf.“
- Hvað þá um áhugamál og
tómstundagaman hjá þér?
„Skólastarfið er mitt líf en ekki
hrauðstrit. Ég þarf engin önnur
áhugamál. Það er það fjölbreytt
og gefandi að ég þarf ekki afþrey-
ingu annars staðar. Ég þarf ekki
að leita lífsfyllingar í tómstund-
um.“
- Sturla, ég spurði þig í upp-
hafi hvernig þú hefðir tekið
uppsögninni. En hvernig hefur
hún komið við konuna þína og
syni?
„Það er mjög erfitt að lýsa því.
Auðvitað slær þetta alla út af
laginu og brýtur alla niður. Það
hlýtur að gera það. Hvemig á til
dæmis að útskýra það fyrir 6 ára
barni hvers vegna föður þess sé
vikið úr starfi?“
- Svona að lokum, Sturla. Þú
sagðir áðan að þú hefðir tölu-
verða seltu í blóðinu og sem
drengur ætlaðir þú að verða sjó-
maður. Hefði ekki verið betra
eftir allt umstangið síðustu daga
að fara bara á sjóinn í gamla
daga og verða skipstjóri?
„Ekki held ég það, enda er auð-
vitað orðið of seint að hugsa um
það. Ég dái haustið og hef reynd-
ar lengi sagt það að ég vonaðist
til að eiga milt ævikvöld einhvers
staðar við friðsælan vog og gutla
á trillu."
„Skólastarfið er
mitt líf en ekki
u