Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987.
Sagnhafi las spilið
í öðrum slag
Hollenska stórfyrirtækið BOLS
veitir árlega vegleg verðlaun fyrir
hugmyndaríkustu spilamennskuna
og renna verðlaunin bæði til spilar-
ans og bridgedálkahöfundar sem um
spilið íjallar.
Bandaríkjamaðurinn og bridge-
dálkahöfundurinn Alfred Sheinwold
skrifar þannig um eitt af spilum ný-
kiýnds heimsmeistara, Manfields.
„Einn af okkar nýkrýndu heims-
meisturum krækti sér í 10 impa í
einu af síðustu spilum úrslitanna
með því að leysa spilið raunverulega
í öðrum slag. Ennfremur varð hann
að þræða spilið því það er tilgangs-
laust að lesa stöðuna strax í öðrum
slag ef maður fylgir því ekki eftir.
Austur gefur/a-v á hættu.
K6532 K3 3 109643
87 ÁG104
G62 Á10875
109812 D
K75 D9 D94 ÁKG765 G8 ÁD2
Austur Suður Vestur Norður
1H 1G* 2H 2S
4H* pass pass pass
*) Gríngrand.
*) Kit Woolsey á stundum meira en
einn kóng og einn gosa þegar hann
hækkar um sagnstig.
Pakistaninn Zia Mahmood í suður
spilaði út tígulás og síðan tígulsjöi.
Fazli í norður trompaði með kóngn-
um og nú vissi Manfield hvemig
spilið lá.
Tígulskiptingin var augljós og
norður hafði byijað með K-3 eða
K-4 í hjarta því með K-4-3 eða K-9
hefði hann trompað lágt. Norður gat
ekki átt trompkónginn einspil þvi
með 11 svört spil hefði hann sagt
meira. Suður átti líklega tvílit í báð-
um svörtu litunum því með einspil
og sterkan sexlit í tígli hefði hann
líklega sagt tvo eða þrjá tígla í stað
gríngrandsins.
Með þessa vitneskju í farteskinu
yfirtrompaði Manfield með tromp-
ásnum og spilaði spaðagosa. Zia drap
á drottninguna og spilaði tigulkóng
eftir nokkra umhugsun. Bridgeskýr-
endur höfðu á meðan bollalagt hvort
Zia myndi spila öðrum lágum tígli í
þeirri von að makker gæti stungið
af'tur en suður gat alls ekki verið
vissum að norður ætti annað tromp.
Manfield trompaði með hjartasjöi
(lykilspilamennska) og spilaði
hjartafimmi. Þegar Zia lét lágt var
Manfield trúr sinni köllun og svín-
aði sexinu.
Síðan svinaði sagnhafi spaðatíu.
Þegar nían kom frá Zia staðfesti hún
fyrri niðurstöður sagnhafa. Þar að
auki hefði Zia ekki drepið strax á
spaðadrottningu með D-9-x. Þessi
niðurstaða staðfesti einnig lauf-
lengdina hjá suðri og Manfield tók
síðan tvo hæstu í laufi og fimm spila
endastaðan var nú þessi:
K2
G2
109
7
1094
D9
G65
Á4
108
Manfield spilaði nú spaðaás og Zia
sat í súpunni. Ef hann kastaði tígli
mundi Manfield kasta laufi úr blind-
um og spila laufadrottningu. Ef Zia
kastaði öðrum tígli mundi Manfield
kasta tígulníu. Síðan er spaðafjarka
spilað og spilið er unnið.
Frá Bridgesambandi Islands
Bridgesambandið minnir á skrán-
ingu í tvímenningskeppnina á
Bridgehátíð 1987. Síðasti dagur
skráningar er miðvikudagur 23. jan-
úar nk. kl. 16. Skráning í opna
Flugleiðamótið í sveitakeppni (sem
er opin öllu bridgeáhugafólki og
verður spiluð á sunnudeginum og á
mánudeginum) stendur hins vegar
fram til þriðjudagsins 10. febrúar.
Einnig minnir Bridgesambandið á
að frestur til að sækja um þátttöku
í Evrópumótinu í tvímennings-
keppni, sem spilað verður í París
dagana 27.-29. mars, rennur út
þriðjudaginn 20. janúar nk. ísland á
rétt að senda allt að 7 pör á mótið.
Meistarastigaskráin, áunnin stig
allra bridgespilara fram til 10. des-
ember 1986, er fullunnin og rétt
ókomin úr prentun. Henni verður
dreift til allra bridgespilara, félögun-
um að kostnaðarlausu.
Reykjavíkurmótið
í sveitakeppni
Að loknum 6 umferðmn (af 21) er
staða efstu sveita þessi:
1. sveit Pólaris 119 stig, 2. sveit Atl-
antik 114 stig, 3. sveit Sigtryggs
Sigurðssonar 111 stig, 4. sveit Páls
Valdimarssonar 110 stig, 5. sveit
Samvinnuferða/Landsýnar 109 stig,
Bridge
Stefán Guðjohnsen
6. sveit Ólafs Lárussonar 105 stig, 7.
sveit Jóns Hjaltasonar 110 stig, 8.
sveit Hreins Hreinssonar 95 stig, 9.
sveit Delta 91 stig. 10. sveit Sigmund-
ar Stefánssonar 90 stig, 11. sveit
Guðmundar Thorsteinssonar 90 stig.
Næstu fjórar umferðir verða spil-
aðar á laugardag og sunnudag í
Sigtúni 9 og hefst spilamennska kl.
13 báða dagana.
Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Mánudaginn 5. janúar hófst aðal-
sveitakeppni félagsins. Staða efstu
sveita að loknum 4 umferðum er
þessi:
1. Þorsteinn Þorsteinsson 90 stig,
2. Þórarinn Árnason 79 stig, 3. Sig-
urður Kristjánsson 75 stig, 4. Ágústa
Jónsdóttir 65 stig, 5. Jóhann Guð-
bjartsson 64 stig, 6. Sigurður Isaks-
son 63 stig, 7. Viðar Guðmundsson
63 stig.
Mánudaginn 19. janúar verða spil-
aðar 5. og 6. umferð. Spilað er í
Ármúla 40 og hefst keppni stundvís-
lega kl. 19.30.
BRE Reyðarfj.-Eskifj.
16/91. kvöld Fisléttur tvímenningur:
1. Jónas-Hörður 123, 2. Einar-
Sigurður F. 117, 3. Búi-Gísli 115.
23/9-14/10, 2.-5. Ortökumót v/Aust-
urlandsmóts í tvímenningi:
1. Aðalsteinn-Sölvi 1026, 2. Krist-
ján-Sigurður H. 932, 3. Auðbergur-
Guðgeir 846,8, 4. Sigurður F.-Einar
896,6.
21/10-28/10, 6.-7. Hraðsveitakeppni:
1. sv. Aðalsteins 1171, 2. sv. Hauks
1137, 3. sv. Sigurðar F. 1084.
16/10, 8. Landstvímenningurinn:
1. Jóhann-Hafsteinn 176, 2. Guð-
mundur-Jónas 174, 3. Kristján-Bogi
173.
4/11, 9. Nýliðakeppni (Aðeins 3
mættu með nýliða):
1. (8) Sigurður-Hallgrímur 154, 2.
(11) Auðbergur-Rúnar Olsen 137, 3.
(12) Ingibjörg-Sigurbjörg 137.
11/11-9/12,10.-14. Meistarakeppni -
tvím.:
1. Jóhann-Hafsteinn 1189, 2. Krist-
mann-Magnús 1169, 3. Aðalsteinn-
Sölvi 1139.
16/12,15. Konfektkassatvímenning-
ur:
1. Garðar J.-Garðar B. 234, 2. Rún-
ar-Andrés 233, 3. Gísli-Guðni 229.
29/12, 16. Jólamót - peningaverð-
laun:
1. Ásgeir-Friðjón 193, 2. Bjami-
Hörður 185,3. Jóhann-Hafsteinn 173.
6/1, 17. Tvímenningur v/frestunar
sveitakeppni:
A-riðill: 1. Svala-Ingibjörg 121, 2.
Sölvi-Kristján 117, 3. Aðalsteinn-
Svavar 116, 4. Sigurður-Einar 116.
B-riðill: 1. Bjarni-Höröur 96, 2. Jó-
hann-Atli 95, 3. Haukur-Búi 94.
NEW NATURAL COLOUR
itooth m
Imakeup ™
>£o\íie\
TANNFARDI
Pea\ht wunt rooni EMMG
It Jlll
PEARLIE tannfaröinn fæst loksins á islandi. Pearlie er EKKI tannkrem, heldur TANNFARÐI (TOOTH MAKE-UP). Gefur aflituðum tönnum, tann-
fyllingum og gervitönnum NÁTTÚRULEGA HVÍTA áferð. Notað af fyrirsætum og sýningarfólki. Einfalt i notkun, penslað á á fáeinum augnablikum.
Rannsakað á efnafræðistofnun; skaðlaust heilsu notenda, skaðlaust tönnum. PÓSTSENDUM (póstkrafa) UM LAND ALLT OG REYKJAVÍK. Send-
ið auglýsinguna i heilu lagi, útfyllta hér að neðan:
VINSAMLEGA SENDIÐ MER_
Nafn-
stk. PEARLIE tannfarða.
Póstnr-
Stöð—
EDA HRINGIÐ i SÍMA (91)611659, simsvari allan sólarhringinn, og pantið simleiðis hvort sem þér búið i Reykjavik eða á landsbyggðinni.
SENDIST TIL: ________________________________________________________________________________
PEARLIE UMBOÐIÐ, SKÓLABRAUT 1. B0X 290, 171-SELTJARNARNES. (91)6-11-6-59
ERTll Á LAUSU?
Ef þú ert á lausu og til í tuskið höfum við starfið fyrir
þig. Okkur vantar kvenfólk í snyrtingu og pökkun
strax.
í boði er:
1) Mikil vinna á failegum stað.
2) Góðar verbúðir.
3) Gott mötuneyti.
Sláðu til, það borgar sig. Hafðu samþand við okkur
I síma 97-81200.
Fiskiðjan KASK, Höfn í Hornafirði.
INNANHUSS-
ARKITEKTÚR
71
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ.
Nafn.....................................
Heimilisfang.
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Fostboks234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
DV 17/01 1987
7
URVALS NOTAÐIR
Árg. Km. Verð
Ch. Monsa SL/E, sjálfsk. 1987 4.000 515.000
Lada Samara1300 1987 3.000 250.000
Ch. Monsa SL/E, sjálfsk. 1986 9.000 500.000
Saab 900i, 2ja dyra 1986 6.000 600.000
Opei AsconaGL, 5d. 1985 10.000 470.000
Opel Kadett, 5 d. 1984 29.000 310.000
Opel Corsa, 3ja d. 1985 21.000 280.000
Daihatsu Charade, 5 d. 1982 37.000 230.000
Isuzu Trooper bensin 1982 54.000 550.000
Opel Rekord st. 1982 71.000 380.000
Opel Kadett, 5d. 1981 72.000 210.000
Ch. Capri Ciassic 1981 70.000 550.000
Ch. Chevi Van, 6 cyl. 1981 80.000 390.000
Mazda 626,4 d. 1980 104.000 185.000
Ch. Chevette 1979 46.000 150.000
Oldsm. Cutlass, d. 1979 36.000 310.000
Isuzupickup, yfirb., d. 1984 27.000 750.000
Isuzu Trooper, bensin 1983 30.000 620.000
Buick Skylark Itd. 1981 85.000 365.000
Mazda 929 hardtop 1981 112.000 250.000
Opel Ascona fastback 1984 13.000 400.000
Datsun Bluebird 1981 60.000 265.000
Ch. Malibu Sedan 1979 75.000 220.000
MMCTredia 1983 72.000 330.000
Isuzu van dísil 1983 60.000 380.000
Isuzu Trooper, bensin 1984 24.000 750.000
Citroen Axel 1986 10.000 230.000
Opel Kadett, 5 d. 1984 24.000 320.000
Ford Escort1600 1984 36.000 360.000
AMC Eagle, 4x4 1981 33.000 350.000
Mercedes Benz 280 E 1979 105.000 500.000
Volvo 144delux 1974 175.000 105.000
Opið laugardaga 13-17.
Simi 39810 (bein lina).
BILVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300