Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987.
Utlönd
Mótaði utanríkisstefnu
Norðmanna frá 1973
Knut Olav Fiydenlund, utanríkis-
ráðherra Noregs, sem andaðist í
gær, aðeins 59 ára að aldri, var sá
maður sem mest áhrif hafði á stefhu
landa sinna í vamar- og öryggismál-
um og mótaði að mestu utanríkis-
stefnu Noregs frá þvi að hann tók
fyrst við embætti utanríkisráðherra
árið 1973.
Það voru ekki nema níu mánuðir
liðnir af öðru kjörtímabili hans í
embætti utanríkisráðherra minni-
hlutastjómar Verkamannaflokksins
og var búist við að með vorinu mundi
hann kynna nýja stefnuskrá stjóm-
arinnar í utanríkismálum. Auk þess
hafði hann í undirbúningi ýmis
frumvörp varðandi stefiiu Norð-
manna í öryggismálum og tengsl
Noregs við Efhahagsbandalagið
þegar hann lést.
Frydenlund var á ferðinni enn einu
sinni í embættiserindum þegar hann
hneig niður á Fomebu-flugvelli í
Osló af völdum heilablóðfalls. Hefði
hann lifað áfram hefði hann orðið
sextugur 31. mars næstkomandi.
íslendingar missa hauk í
horni
Með fráfalli Frydenlunds sakna
íslendingar vinar i stað. Hann
reyndist okkur mikill haukur í homi
og hinn besti drengur á örlagatím-
um, þegar við háðum þorskastríðið
síðasta, 1975-’76, við breska flota-
veldið. Enginn hafði eins mikil áhrif
og hann á það að norska þjóðin stóð
á þeim viðsjártímum heils hugar að
baki íslendingum.
Hann og norska nefndin áttu
frumkvæðið að samþykkt Norður-
landaráðs, sem var íslendingum
öflugur stuðningur í landhelgisdeil-
unni, og á ráðherrafundi í aðalstöðv-
um NATO í Brussel í árslok 1975
veitti hann Einari Ágústssyni, þá-
verandi utanríkisráðherra okkar,
svo röskan stuðning í atgöngu að
James Callaghan, utanríkisráðherra
Breta, að enn er viðbrugðið hve
klumsa breska ljónið varð.
íslendingar í dag, við á morg-
un
Aðspurður síðar hví hann stæði
svo fast með íslendingum í land-
helgisdeilunni svaraði Frydenlund:
„í dag berjast Islendingar fyrir mál-
stað sem við Norðmenn kunnum að
þurfa að beijast fyrir á morgun."
Ekki lét hann við svo búið standa
því að norska stjómin fyrir hans
atbeina hafði síðan milligöngu um
samningaviðræður íslendinga og
Breta sem fóm fram í Osló og end-
uðu þar í samkomulagi á miðju ári
1976.
í samningaviðræðum Norðmanna
og íslendinga 1980 um landgrunnið
í kringum Jan Mayen og mörk efna-
hagslögsögu landanna höfðu þessi
fyrri samskipti Fiydenlunds og Is-
lendinga sín áhrif til þess að sú
samningagjörð fór að mestu fram í
sátt og samlyndi og lyktaði farsæl-
lega, svo báðir undu sæmilega við
sitt.
Byrjaði ungur í utanríkisþjón-
ustunni
Fáir hafa komið til ráðherraemb-
ættis jafh rækilega undirbúnir á sínu
sérsviði og Frydenlund á sínum tíma.
Hann hafði mjög ungur lokið versl-
unarskólaprófi með háum einkunn-
um og nær samtímis stúdentsprófi.
Frydenlund var rétt rúmlega tvítug-
ur þegar hann hafði lokið laganámi
og hóf þá strax störf við norsku utan-
ríkisþjónustuna.
Hann bætti enn við sig námi sem
laut að diplómatísku starfi enda
gegndi Frydenlund ýmsum trúnað-
arstörfum í mikilvægum sendiráðum
Starfsbræðurnir Henry Kissinger (þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna) og Knut Olav Frydenlund,
Myndin er tekin á Fornebu-flugvelli i Osló.
Frydenlund utanrikisráðherra ásamt eiginkonu og börnum þeirra þrem i einni heimsókn þeirra til Islands.
Norðmanna, eins og í Bonn og
Brussel, og var um hríð fulltrúi Nor-
egs í Evrópuráðinu. Ráðuneytis-
stjóri var hann orðinn í utanríkis-
ráðuneytinu 1966 og hefur skrifað
athyglisverð rit um utanríkisþjón-
ustu og alþjóðasamstarf.
Oddviti norska Verkamanna-
flokksins
í utanríkismálum í tuttugu ár
Frydenlund var kosinn á þing fyrir
verkamannaflokkinn 1969 og strax
valinn til sætis í utanríkismálanefnd
Stórþingsins. Það var í stjóm Bratt-
elis sem hann varð utanríkisráð-
herra og þegar Nordli tók við af
Bratteli þótti enginn annar koma til
greina í utanríkisráðherraembættið
en Frydenlund.
Einar Ágústsson, utanríkisráðherra íslands, naut góðs að þar sem Fryd-
enlund var í fiskveiðideilu íslendinga við Breta 1976.
Verkamannaflokkurinn lenti í
stjómarandstöðu árin 1981 til 1986,
þegar Gro Harlem Brundtland tók
við, og enn þótti Frydenlund sjálf-
sagður í utanríkisráðherrastólinn. Á
meðan Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra hefur átt fullt í fangi
með að glíma við efnahagsmálin
hefur hún orðið að reiða sig á hand-
leiðslu hins gamalreynda diplómats
á utanríkismálunum.
Málamiðlunarmaður
Það var ekki aðeins i landhelgis-
deilu íslendinga og Breta sem
Frydenlund reyndist málamiðlunar-
maður. Svo hefur einnig reynst
heima fyrir i skoðanaskiptum meðal
Norðmanna innbyrðis um viðkvæm
stefhumál. Þegar landar hans klofh-
uðu í afstöðunni til aðildar að
Efnahagsbandalagi Evrópu, sem
fellt var í þjóðaratkvæði 1972, var
Frydenlund að vísu fylgjandi aðild
og hefur alla daga verið síðan, þrátt
fyrir þau málalok. Hann fór sér
hægt með þá afstöðu vegna hætt-
unnar á klofningi bæði innan
Verkamannaflokksins og meðal
þjóðarinnar í heild. En það lá ein-
hvem veginn í loftinu að hann
mundi þoka málinu aftur fram á
borðið til nýrrar umræðu ef honum
hefði enst aldur og starfeþrek til.
Varnar- og öryggismálin
brennandi viðkvæm í Noregi
Vamar- og öryggismálin hafa jalh-
an verið meðal brennandi áhuga-
mála hjá norsku þjóðinni sem
eðlilegt er í ljósi reynslu hennar af
hemámi Þjóðverja í síðari heims-
styijöldinni. Noregur er aðili að
Norður-Atlantshafsbandalaginu
með eigin flug-, landher og flota og
hefur neitað að leyfa erlendar her-
stöðvar í landinu. í vakningunni
gegn kjamorkuvánni hafa þeir einn-
ig bannað að kjamorkuvopn séu
innan norsks yfírráðasvæðis. Norð-
menn hafa fundið kaldan andar-
dráttinn frá rússneska biminum,
sem þeir eiga sameiginleg landamæri
með, enda er og eitt stærsta víg-
hreiður jarðar, flota- og herstöðvar
rauða hersins í næsta námunda við
þá. Nefnilega á Kolaskaga. Þeir hafa
átt í deilum við Sovétstjómina um
Svalbarða og lögsagnarmörkin í
Barentshafi og hafa öðrum Norður-
landaþjóðum fremur (að undanskild-
um Finnum einum) fundið hve
erfiðir samtýningamir em þar aust-
an garðs við þá. ,
Utanríkisráðherra Noregs hefur
þvi ekki verið of sæll af sínu hlut-
verki að reyna að þræða meðalveg-
inn á milli gagmýni vinstri armsins
í Verkamannaflokknum, sem sakaði
hann um að horfa í gegnum fingur
sér við flota NATO, og líða banda-
rískum herskipum siglingar um
norska lögsögu með kjarnavopn inn-
anborðs. Og hins vegar gagnrýni
hægrimanna, sem sjá rússnesku
grýluna að laumast í kafbátum inni
á öðrum hveijum firði og þykir aldr-
ei nóg treyst vamarsamstarfið við
NATO. - Þessi meðalganga fórst þó
Frydenlund furðu árekstralítið úr
hendi.
Sonur stöðvarstjórans varð
forsætisráðherra
Enda var það ekki af handahófi
sem hann var valinn til þess að
gegna forsætisráðherraembættinu i
forfóllum Gro Harlem Brundtland,
eins og raunar þessa síðustu ævi-
daga hans, á meðan hún var i
opinberri ferð í Japan.
Sonur jámbrautarstöðvarstjórans
í Drammen (í Oslóarfirði) lætur eftir
sig eiginkona og þrjú böm sem öll
hafa komið með honum hingað í
heimsóknir til íslands.