Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. Fréttir Hvalveiðar heimsins ræddar í Reykjavík: Vopnaðirverðir gæta fundarins Tveir óeinkennisklæddir en vopnað- ir lögreglumenn gæta íundar í vísinda- nefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem þessa dagana stendur yfir í húsi Haf- rannsóknarstofiiunar að Skúlagötu 4 í Reykjavík. Menn taka enga áhættu nú, mínnugir skemmdarverkanna í haust á hvalbátunum og hvalstöðinni. Um 25 vísindamenn víðs vegar að úr heiminum, þar af §órir íslenskir, sitja fundinn, sem að sögn Jóhanns Sigurjónssonar sjávarlíffræðings er vinnufundur fyrir ársfund Alþjóða hvalveiðiráðsins í júní. Frá því á mánudag hefur verið rætt um samband afla og sóknareiningar og breytingar á stofnstærð. Eftir helgi hefst annar fundur í vísindanefhdinni sem fjalla mun í þrjá daga um að- ferðir við stjóm hvalveiða. -KMU Fomlerfar í Bessastaðastofu: „Leggjum ríka áherslu á að varðveita þetta“ Undanfarnar tvær vikur hefur stað- ið yfir fomleifauppgröftur undir Bessastaðastofu á Bessastöðum og hefúr þar verið grafinn upp grunnur- inn að húsi sem talið er vera frá tíð Kristofers Heidemans landfógeta skömmu fyrir árið 1700. Við uppgröft- inn hafa ýmsir forvitnilegir hlutir komið í ljós. Fyrir utan leirkera- og postulínsbrot má nefna forláta krítar- pípuhaus og nokkur meðalaglös, þar af eitt með einhverju glundri í ennþá en á Bessastöðum var einmitt fyrsti lyfsali landsins. Blaðamönnum voru kynntar þessar fornleifarannsóknir í gær og sagði for- setinn, frú Vigdís Finnbogadóttir, að upphafið að þeim mætti rekja til þess að gólfið í stofunni hefði sigið stöðugt á undanfómum árum þannig að skipta hefði þurft um það og í framhaldi af því hefði verið ákveðið að grafa eftir fornleifum. ,,Við leggjum ríka áherslu á að varð- veita þessar fomleifar og erum ákveðin í að gera það. Ég tel engan vafa leika á því að við finnum leið til þess,“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir. Guðmundur Ólafsson fomleifafræð- ingur kynnti blaðamönnum það starf sem unnið hefur verið en í máli hans kom m.a. fram að búið væri að grafa allt að 2 metra niður úr stofúgólfinu en mannvistarlög næðu eins langt nið- ur og þeir hefðu getað komist ennþá sem væri rúmlega 3,5 metra undir gólf- inu en þar virtist vera hellulagt gólf sem fannst með því að taka borkjama úr botni 2ja metra djúps skurðar í borðstofúnni. Sagði Guðmundur að að öllum líkindum hefði staðið íbúðarhús á þessum stað snemma á miðöldum. I máli Guðmundar kom enn fremur fram að með nokkurri vissu væri hægt að segja að rústir þær sem grafnar hefðu verið upp undir gólfinu væru austari hluti konungsgarðs og leifar af húsi landfógeta. Eins og fyrr segir hefur verið ákveð- ið að varðveita þessar minjar. Hins vegar verður að kom stofunni í samt lag aftur og verður gólfið því byggt yfir minjamar eftir að þær hafa verið raka- og kuldavarðar. Fyrst um sinn verða rústimar ekki forvarðar en reistir stuðningsveggir utan um rústa- stallana svo ekki verði hætta á að þeir aflagist. -FRI Rannsóknariögreglan: Náði skartgripum fyrir milljónir Jónas Bjarnason, lögreglufulltrúi hjá Rannsóknarlögreglunni, skoðar þýfið. Rannsóknarlögregla ríkisins hefúr upplýst skartgriparánið f Úra- og skartgripaversluninni, Bankastræti 12, sem framið var í byrjun desember á síðasta ári. Þaðan var stolið umtals- verðu magni af skartgripum, að söluverðmæti um 3 milljónir króna. Rannsóknarlögreglan hefur unnið að rannsókn málsins og yfirheyrt fjölda manns en 17. mars sl. var tekinn til yfirheyrslu 28 ára gamall Reykvík- ingur sem játaði að hafa brotist inn í verslunina. Skartgripina flutti hann að kvöldlagi frá staðnum á felustað. Hefur þegar tekist að hafa uppi á megninu af þýfinu. í frétt frá RLR um þetta mál segir að síðastliðið sumar hafi verið brotist inn í sömu verslun og stolið skartgrip- um. Við rannsókn þess máls viður- kenndi 22 ára gamall Reykvíkingur innbrotið. Mun hann hafa komið hluta af þýfinu í hendur félaga sinna sem m.a. reyndu að selja það erlendis. DV-mynd: BG -FRI Sigriður Hjartar í garðinum sinum. DV-mynd BG Kuldakastið: „Erum verulega áhyggjufuH‘r - segir formaður Garðyrkjufélags íslands „Það er óhætt að segja að við garð- yrkjufólk erum verulega áhyggjufull en ekki er hægt að segja til um skemmdimar fyrr en séð verður hve langvarandi kuldakastið verður," sagði Sigríður Hjartar, formaður Garðyrkjufélags íslands, í samtali við DV er við ræddum við hana um áhrif kuldakastsins á gróðurfar en sem kunnugt er vom plöntur og tré byrjuð að taka vel við sér í hlýindakafianum sem verið hefur í vetur. „Það er mismunandi hve plöntumar standast kuldann vel, margar lauk- jurtir vom komnar upp er kastið kom og ég er hrædd um að þær sem náð höfðu að blómgast fari illa.“ Sigríður sagði einnig að það hefði verið bót í máli að snjór hefði komið á undan kuldanum, hann hlífði lægsta gróðrinum og hefði ástandið orðið mun verra ef snjórinn hefði ekki kom- ið til. „Við lítum til kuldakastsins sem kom 1963, í apríllok, eftir mjög mildan vetur. Þá drápust til dæmis allar aspir hér á suðvesturhorninu og síðan þá höfum við lagt kapp á að rækta upp tegundir sem þola betur hið rysjótta veðurfar sem hér er,“ sagði Sigríður. Sigríður er sjálf með vel hirtan garð við heimili sitt. Aðspurð hvemig hún teldi að hennar plöntur kæmu út úr þessu sagði hún að laukblómin sín hefðu að mestu hulist snjó og slyppu því líklega. Páskaliljumar hefðu verið vel á veg komnar en sennilega þyldu þær kuldann ef hann yrði ekki því meiri en krókusamir fæm sennilega illa hjá henni. _pRi Óveðrið í Eyjum: Fokker bundinn niður Ómar Gaiöaissan, DV, Vestmannaeyjum: Fokkervél Flugleiða, sem kom til Vestmannaeyja í fyrrakvöld, tepptist heldur illilega sökum óveðurs. Á með- an hún staldraði við gerði arfavitlaust veður þannig að ekki tókst að koma henni í loftið aftur. Á Vestmannaeyjaflugvelli er ekkert skýli fyrir flugvélar af þessari stærð þannig að bmgðið var á það ráð að leggja henni fyrir framan flugstöðina og setja sandpoka við hjól hennar. Þá var fenginn veghefill og stórir vömbíl- ar til að umkringja hana og hlífa henni fyrir veðri. Loks var hún njörvuð nið- ur með taugum. Vélin er óskemmd og var þess beðið að veður lægði svo hún kæmist í loftið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.