Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Page 5
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
5
Stjómmál
Fréttir
Umferðarlögin
hanga á bláþræði
efri deild óhress með breytingar neðri deildar
Umferðarlagalrumvarpið hangir á
bláþræði. I morgun var alls ekki víst
að það yrði afgreitt sem lög á þessu
þingi, sem áætlað er að ljúki klukkan
16 í dag.
Þingmenn efri deildar eru ósammála
nokkrum af þeim breytingum sem
neðri deildín gerði á frumvarpinu. Ber
þar hæst gamla bílnúmerakerfið.
Tveir þingmenn efri deildar, al-
þýðuflokksmennimir Stefán Bene-
diktsson og Karl Steinar Guðnason,
lögðu í gær fram breytingartillögu um
að taka upp nýja bílnúmerakerfið, sem
nýtur almenns stuðnings þingmanna
deildarinnar.
Gömlu númerin héldu velli á aðeins
einu atkvæði í neðri deild á morgun-
fundi á mánudagsmorgni. Vitað er að
tveir stuðningsmenn nýja kerfisins
voru fjm'sfruMir atkvæðagreiðsluna.
Einn fékk einfaldlega ekki fundarboð
en annar var hjá tannlækni.
Verði einhver breyting samþykkt á
frumvarpinu á fundi efii deildar, sem
hófst klukkan ellefu í morgun, er hætt
við að það dagi uppi.
„Við erum mjög óánægð með hvem-
ig neðri deild hefur breytt ýmsu,“ sagði
Salome Þorkelsdóttir, forseti efri
deildar, í gærkvöldi.
„Mér er efst í huga að neðri deild
skyldi ekki fallast á stöðvunarskyldu
þegar merkt skólabifreið stöðvar til
að hleypa út eða taka farþega. Ég er
mjög óhress með það. Þetta er að okk-
ar mati þýðingarmikið atriði," sagði
Salome.
Ráðgert var að allsherjamefnd efri
deildar, sem fjallar um umferðarlögin,
kæmi saman í morgun fyrir þingfund-
inn til að meta stöðuna. Spumingin
er hvort þingmenn efri deildar láti sig
hafa það að kyngja breytingum neðri
deildar til að fi-umv£upið dagi ekki
uppi.
„Ég veit ekki alveg hvað við gerum.
En við munum láta í okkur heyra,“.
sagði Salome.
-KMU
Staðgreiðslukerfi
skatta að logum
Staðgreiðslukerfið skatta varð að
lögum frá Alþingi í gær. Efri deild
samþykkti þá frumvarp um tekjuskatt
og eignarskatt sem var eitt af fjórum
frumvörpum sem flutt vom um skatt-
kerfisbreytinguna.
Á mánudag urðu að lögum frumvarp
um tekjustofna sveitarfélaga og frum-
varp um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Á þriðjudag afgreiddi Alþingi frá sér
sem lög frumvarp um gildistöku stað-
greiðslu opinberra gjalda.
Breytingin yfir í staðgreiðslukerfið
tekur gildi um næstu áramót. Þá byrja
menn að greiða skatt af tekjum sem
þeir fá jafnóðum. Nú greiða menn
skatt af tekjum síðasta árs. Kerfis-
breytingin felur því í sér að tekjur
yfirstandandi árs, 1987, verða ekki
skattlagðar. -KMU
Tillaga Jóhönnu úr salti
Þingsályktunartillaga Jóhönnu
Sigurðardóttur og Kolbrúnar Jóns-
dóttur um lífeyrisréttindi heimavinn-
andi fólks nær fram að ganga með
breyttu orðalagi. Um það náðist sam-
komulag í gær í félagsmálanefiid
sameinaðs þings.
Nær samhljóða tillaga Gunnars G.
Schram, formanns nefhdarinnar, og
þriggja annarra sjálfstæðismanna
verður ekki flutt. Eins og fram hefur
komið var Gunnar gagmýndur fyrir
að koma fram með þá tillögu meðan
tillaga Jóhönnu lá í salti í nefridinni.
Félagsmálanefhd leggur til að þing-
sályktunartillaga Jóhönnu verði
svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjóm-
inni að undirbúa tillögur sem tiyggi
þeim lífeyrisréttindi sem eingöngu
sinna heimilis- og umönnunarstörfiim
og leggja þær fyrir Alþingi eigi síðar
en 1. nóvember 1988.“
-KMU
Tollalækkun samþykkt
Lækkun tolla á ýmsum vörum var
samþykkt sem lög frá Alþingi í gær.
Lögin öðlast þegar gildi.
Þær vörur sem ýmist lækka í tolli
eða verða alveg tollfrjálsar, sam-
kvæmt nýju lögunum, eru:
Skíði, skíðaskór, bindingar og stafir,
ljósmyndapappír, ljósmyndavélar, úr,
klukkur, litir til listmálunar, filmur í
myndavélar, hljómplötur, hljóðsnæld-
ur og myndbönd, bæði átekin og
óátekin.
-KMU
Níu lög í kvöldmatnum
Níu lagafrumvörp voru samþykkt í tollskrá, dráttarvexti, orlof, vaxtalög
efri deild sem lög frá Alþingi um og tvenn lög um almannatryggingar,
kvöldmatarleytið í gær. Þau eru: önnur um fæðingarorlof.
Lög um tekjuskatt og eignarskatt, -KMU
opinber innkaup, ríkisborgararétt,
Afgreiddu sautján
þingsályktanir í gær
Þrettán þingmál voru samþykkt sem
ályktanir Alþingis á fundi sameinaðs
þings í gær. Fjórum þingsályktunartil-
lögum var vísað til ríkisstjómarinnar.
Fjórar ályktanir vom samþykktar
frá ríkisstjóminni:
Vegaáætlun, réttur norrænna ríkis-
borgara til að nota eigin tungu í öðm
norrænu landi, stofnsamningur Evr-
ópustofiiunar fjarskipta um gervitungl
og viðbótarsamningur við Mannrétt>
indasáttmála Evrópu.
Níu þingmannatillögur hlutu sam-
þykki:
Ábyrgð vegna galla í húsbyggingum,
þjóðarátak í umferðaröryggi, könnun
á valdi í íslensku þjóðfélagi, auglýs-
ingalöggjöf, tryggingasjóður loðdýra-
ræktar, Þjóðhagsstofriun, sjúkra- og
iðjuþjálfun, norræni umhverfisvemd-
arsamningurinn og vamir gegn
mengun hafsins við ísland.
Til ríkisstjómarinnar var fjórum
þingsályktunartillögum þingmanna
vísað:
Efling atvinnu og byggðar í sveitum,
menntastofnun á sviði matvælaiðnað-
ar, efling fiskeldis og greiðslufrestur.
-KMU
I
Rútan á hliðinni fyrir utan veginn í Hvalfirði.
Rúta með 25 manns valt:
„Óhugnanleg
lrfsreynsla“
Rúta með 25 manns valt út af vegin-
um í Hvalfirði í gærmorgun, rétt undir
flallinu Þyrli, hjá h'parítnámunni sem
þar er. Rútan var á leið frá Reykjavík
í Málmblendiverksmiðjuna á Grund-
artanga með hóp af nemendum úr
Vélskólanum í skoðunarferð.
„Þetta var óhugnanleg lífreynsla,“
sagði einn farþeganna í samtali við
DV, „Rútan var á nær engri ferð er
óhappið varð en mikið rok var á þess-
um slóðum og ein hviðan náði að kasta
rútunni af veginum með þessum af-
leiðingum."
Enginn farþeganna slasaðist við
óhappið en nokkrir þeirra hlutu minni
háttar skrámur. Fljótlega kom krana-
bfll sem kippti rútunni á réttan kjöl
en önnur rúta var látin sækja far-
þegana.
-FRI
Nýi kjarasamningurinn alveg ófullnægjandi:
Flýja brunaverðir
Slökkvistöðina?
„Við teljum að með slíkum samn-
ingi sé nánast verið að segja bruna-
vörðum í Reykjavík að leita sér að
annarri vinnu,“ segir í ályktun stjóm-
ar Landssambands slökkviliðsmanna
um samning Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar við borgina.
Landssambandið bendir á að marg-
víslegar menntunar- og þjálfimarkröf-
ur séu gerðar til brunavarða í
Reykjavík, þar með um iðnmenntun.
I jólafostusamningunum hafi verið
samið um 35.000 króna lágmarkslaun
og enn hærri laun í samningum bygg-
ingamanna. Brunavörðum í Reykjavík
séu ætlaðar 29.070 krónur á mánuði.
„Þessari óvægu meðferð á slökkviliðs-
mönnum í Reykjavík mótmæla
slökkviliðsmenn allir,“ segir stjóm
Landssambandsins.
í ályktuninni kemur einnig fram að
samningar brunavarða við önnur
sveitarfélög að undanfómu séu betri
en Revkjavíkursamningurinn.
-HERB
LUKKUGETRAUN:
Opið laugardaga kl. 10-18.
BÍLATORG
NÓATÚN 2 - SÍMI 621033
Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til
Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu.
VERÐUR ÞÚ SÁ HEPPNI í MARS?
BILATORG mm\ BÍLATORG
Allar gerðir bíla vantar á söluskrá
- mikil sala.
Toyota Land Cruiser dísil árg. 1985,
hvitur, sjálfskiptur, ekinn 25.000 km.
Verð kr. 1.150.000,-
VW Golf GL árg. 1986, biásans, vetr-
ardekk, sumardekk, utvarp, segulb.,
ekinn 9.000 km. Verð kr. 495.000,-
Volvo 240 GL St árg. 1985, dökk-
grásans., plussinnrétting, læst drif,
sjálfskiptur, ekinn 45.000. Verð kr.
710.000,-
BMW 520i árg. 1986, vínrauður, einn
meö öllu, s.s. leðursætum, sjálf-
skiptingu, lituðu gleri, útvarpi,
segulb., ekinn 26.000 km. Verð kr.
880.000,-
Citroen CX 25 dísil, familale, svart-
ur, 8 manna, ekinn 118.000 km.
Verð kr. 695.000,-
Renault 11 TC árg. 1985, blásans.,
fallegur bíll, ekinn 26.000 km. Verð
kr. 345.000,-