Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. HANA ÞESSA enda er Létt og laggott sér á parti! Nú er tækifærið til að laga línurnar - grenna sig en smyrja brauðið samt. Létt og laggott er nýtt viðbit og helmingi fituminna en allt borð- smjörlíki, taktu eftir því. Létt og laggott er eingöngu ætlað ofan á brauð en hentar ekki til steikingar. Létt og laggott er framleitt úr mjólkurpróteinum, sojaolíu og smjöri. Það hefur smjörbragð og er símjúkt. Komdu þér á kreik og haltu ummálinu í skefjum - Létt og laggott léttir undir með þér. Útlönd i>v Japanskur lögregiuþjónn skoðar póstbíl sem valt út af vegi eftir að á hann hrundi í jarðskjálfta í gær stórt bjarg. Ekillinn lét lífið,- simamynd neuter Snarpur jarð- skjálfti á Japanseyjum Suðvesturhluti Japanseyja nötraði undan mjög snörpum jarðskjálfta í gær og urðu mikil spjöll á mannvirkj- um en einn maður fórst og þrennt slasaðist (þar á meðal tvö böm). Mað- urinn ók póstbifreið í Miyazaki-héraði þegar stórt bjarg féll á bifreið hans, sem valt út af veginum, og lét maður- inn þegar lifið. Bömin urðu fyrir glerbrotum þegar brotnuðu rúður í tveim skólum á með- an á kennslu stóð. En aldraður maður slasaðist þegar þakið á húsi hans hrundi yfir hann. Jarðskjálftakippurinn var með þeim snarpari sem mælst hafa, 6,9 stig á Richterkvarða. Öflugasti jarðskjálfti, sem mælst hefur í Japan, varð á aust- urströnd Kyushu 1941 og var 7,2 stig á Richter og kostaði hann þó ekki nema tvö mannslíf. Húseigandi í Miyazaki í Japan virðir fyrír sér þakhellumar á húsi sínu eftir jarðskjálftann snarpa i gær sem olli miklum usla. - simamynd Reuter Kína fær Makaó 1999 Yfirvöld í Kína og Portúgal virðast hafa komist að samkomulagi um fram- tíð portúgölsku nýlendunnar Makaó sem einu sinni var alræmt sjóræn- ingjabæli. Haft er eftir sendiherra Portúgala í Peking að nýlendan verði afhent Kínverjum í desember 1999. Eftir aðeins klukkustundar samn- ingaviðræður í gærmorgim var varautanríkisráðherra Kína, Zhou Nan, mjög bjartsýnn á lausn málsins. Hélt hann síðan einkafund með sendi- herra Portúgala sem síðan greindi frá niðurstöðum fundarins. Makaó er aðeins fimmtán og hálfur ferkílómetri og íhúar eyjunnar eru þrjú hundruð þúsund talsins. Eru flestir þeirra af kínverskum uppruna. Hefúr nýlendan verið undir yfirráð- um Portúgala í rúmlega fjórar aldir en þeir viðilrkenna nú þegar yfirráð Kínverja yfir Makaó. Breska nýlend- an Hong Kong, sem er ekki langt frá, verður afhent Kínverjum 1997.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.