Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
Atvinnumál á Suðumesjum
Atvinnumál á Suðurnesjum
brenna mjög á fólki um þessar
mundir. Við frambjóðendur G-Iist-
ans höfum orðið áþreifanlega vör
við það undanfarnar vikur í vinnu-
staðaheimsóknum okkar um
kjördæmið.
Togarar hafa horfið burt af svæð-
inu einn af öðrum án þess að það
hafi heyrst hljóð úr horni neins
staðar frá. Fyrir fáeinum vikum,
þegar sala togarans Gauts úr Garð-
inum fór fram, komu þó upp
háværar raddir um að stöðva þá
sölu. Það er vel skiljanlegt því
byggðarlagið verður skilið eftir
hráefnis- og kvótalítið þegar af-
hending togarans fer fram núna í
maí.
Aö selja miðin
Ég hef haft tilhneigingu. og ekki
að ástæðulausu, til að velta aðeins
fyrir mér tölum í þessu dæmi. Tog-
arinn er að tryggingarmati 90
milljónir króna en er seldur á 160
milljónir. Mig langar til að varpa
fram þeirri spurningu hver sé
ábyrgð sjóða og peningastofnana
við að aðstoða menn til að fjárfesta
í slíkri endileysu. Svona fjárfest-
ingar eru fyrirfram dæmdar til að
fara á hausinn. Hvaða sveitarfélagi
er hjálp í slíkri aðstoð?
Þarna er veriö að kaupa kvóta
fyrir 70 milljónir eða með öðrum
orðum verið að selja miðin. Það er
verið að selja óveiddan fisk úr sjón-
um, fisk sem kannski veiðist aldrei.
Þannig hafa verið seld burt af
svæðinu 4.400 til 4.500 tonn á árun-
um 1984-1985.
Það er því sanngjörn krafa okkar
Suðurnesjamanna að kvótinn verði
endurskoðaður með tilliti til svæða
því miðin eru jú og verða svæðis-
bundin. Suðurnesjasvæðið er
vertíðabundið svæði. Því ekki
hægt að beina skipunum á aðrar
veiðar stóran hluta ársins eins og
hægt er á Vestfjörðum og fvrir
Norðurlandi þar sem stutt er á
rækjumið þar sem ekkert kvótalög-
mál ríkir.
Voru fjórtán togarar
Fyrir nokkrum árum voru togar-
ar á svæðinu 14 en nú eru aðeins
5 eftir. Svo getur farið að þeim
fækki enn því mjög mikil óvissa
ríkir nú um útgerð togaranna
tveggja sem systurfyrirtæki Sjö-
Kjallarirm
Bjargey Einarsdóttir
framkvæmdastjóri í Keflavík
stjörnunnar hf. í Njarðvík gerir út.
Sjöstjaman gæti verið seld á nauð-
ungaruppboði næstu daga eða
vikur.
Ekki eru togarar Hraðfrystihúss
Keflavíkur öruggari í sessi. Óttast
menn að þeir lendi hjá einhverju
fyrirtækja Sambandsins úti á landi.
Það væri því vægt til orða tekið
að segja að togaraútgerð á Suður-
nesjum stæði á brauðfótum. Því
finnst mér að það sé kominn tími
til, áður en allt er komið í strand,
að menn setjist niður og athugi
hvort ekki henti þessu svæði ein-
hver önnur leið til öflunar sjávar-
„Hér mun verða mikið atvinnuleysi ef
ekkert verður að gert og það snarlega.
Þó munu loðnufrysting og hrognataka
fresta vandanum eitthvað. En hvað tekur
við eftir það? spurði fólkið í Garðinum
um daginn í vinnustaðaheimsókn okkar
G-listamanna.“
„Herinn á sinn þátt i þeirri stöðu sem komin er upp á Suðurnesjum. Hann hefur í gegnum árin togað til sin
fólk þegar stórframkvæmdir hafa verið á hans vegum en fleygt þvi til baka þegar verkefnum lýkur.“
afurða, t.d. bátaútgerð. Á ég þá við
70-120 tonna báta en ekki báta af
stærðinni 9.999999 tonn!
Bátaútgeröin
Bátaútgerð var mjög blómleg á
Suðurnesjum fyrir nokkrum árum
en þar hefur engin endurnýjun far-
ið tram. Flotinn er orðinn mjög
gamall og ætti í raun að vera kom-
inn í úreldingu að stórum hluta.
Ég vil nefna hér tvö dæmi.
Fyrst er Grindavík. Þar hefur lít-
il áhersla verið lögð á togaraút-
gerð. Þeir einbeittu sér að
bátaútgerð enda staðan í dag sú
að í Grindavík eru mörg öflugustu
fiskvinnslufyrirtæki landsins og
bátaútgerð í blóma.
Dæmi um stað sem hefur skellt
sér út í togaraútgerð er hins vega.'
Keflavík og Njarðvík. Þar voru
áður stór og stöndug fyrirtæki eins
og Hraðfrystihús Keflavíkur. Þau
seldu alla sína báta og fóru út í
togaraútgerð. Þau standa nú uppi
eignalaus og atvinnuleysisvofan
hangir stöðugt yfir fólkinu sem þar
vinnur.
Hvað tekur við?
Talið er að nokkur hundruð
manns vinni nú við fiskvinnslu á
Suðurnesjum. Hér mun verða mik-
ið atvinnuleysi ef ekkert verður að
gert og það snarlega. Þó munu
loðnufrysting og hrogntaka fresta
vandanum eitthvað. En hvað tekur
við eftir það? spurði fólkið í Garð-
inum um daginn í vinnustaðaheim-
sóknum okkar G-listamanna.
Einnig er vert að geta þess að
nú er að ljúka stórframkvæmdum
á Keflavíkurflugvelli. Stefnir þá í
stórfellt atvinnuleysi. Herinn á
sinn þátt í þeirri stöðu sem komin
er upp á Suðurnesjum. Hann hefur
í gegnum árin togað til sín fólk
þegar stórframkvæmdir hafa verið
á hans vegum en fleygt því svo til
baka þegar verkefnum lýkur. Eins
mun verða nú þegar framkvæmd-
um lýkur við flugstöðvarbygging-
una og í Helguvík.
Þetta hefur átt sinn þátt í því að
ekki hefur verið hægt að byggja
upp traustan og stöðugan atvinnu-
grundvöll á Suðurnesjum.
Bjargey Einarsdóttir
Greinarhöfundur skipar Qórða sœti á
frambjóðendalista Alþýðubandalagsins á
Reykjanesi.
Málþóf ársins
Það er hrikaleg staðreynd að í ís-
lensku dómskerfi skuli menn veigra
sér við því að leiða deilumál til lykta
þegar leitað er til dómskerfisins með
úrlausn mála. Slíkt henti nokkra
embættismenn íslenska ríkisins á
haustmánuðum 1986 og nú, 10. febr.
1987, þegar málum BJ var vísað frá
Fógetarétti Reykjavíkur.
Kerfiskarlar bregða á leik
Á haustmánuðum 1986 kom úpp
deila, milli flokksmanna Alþýðu-
flokks annars vegar og landsnefadar
og framkvæmdanefndar BJ hins
vegar, um yfirráðarétt yfir fjármál-
um, bókhaldi og húsnæði BJ.
BJ-mönnum fannst og finnst enn
ástæða til að rannsaka bókhald BJ.
En kerfiskörlunum í Rannsóknar-
lögreglu ríkisins og saksóknara
fannst að ekki væri neitt athugavert
við falsað bókhald og meintar fjár-
málatilfærslur í bókhaldi BJ og
vísuðu málinu frá. Þegar þetta lá
fyrir tók einhver sig til, úr vinahópi
fyrrverandi þingmanna BJ, og birti
á Stöð 2 eftirminnilega frétt um önn-
ur misferli þingmanna BJ. Kerfis-
karlamir hafa örugglega fylgst með
þessu líka. Þetta var kallað pólitískt
morð á Stefáni Benediktssyni og
fékk víst hina vesalingana til að
skjálfa í hnjáliðunum. En samtrygg-
Kjállaiinn
Guðmundur Óli
Scheving,
vélstjóri
ing embættismanna er slík að ekkert
var aðhafst meira á þeim bæ.
BJ-menn ákváðu í framahaldi af
þessum málalokum að fara fram á
innsetningaraðgerð hjá borgarfóg-
eta. Því nú var starfsemi BJ komin
í fullan gang, nafn flokksins í fullu
gildi, framboð á Reykjanesi og
Reykjavík lágu fyrir og alls kyns
samningar í fullu gildi, bankareikn-
ingur, póstgiróreikningur á nafni
BJ. Nýtt fólk komið til starfa, búið
að skipa í nefndir innan BJ fyrir þá
sem hættu. En hvað gerist? Möppu-
dýrin hjá borgarfógeta taka til
greina óundirritaða fundargerð af
einhverjum fundi, sem sagt er að sé
af hinum svokallaða sprengifundi,
og þar sagt að allir í BJ hafi sagt
af sér störfum. Þetta er lygi, Þor-
steinn Hákonarson sagði ekki af
sér, fyrir því eru næg vitni af þessum
umrædda fundi og það var engin
„Þetta var kallað pólitískt morð á Stef-
áni Benediktssyni og fékk víst hina
vesalingana til að skjálfa í hnjáliðunum.
En samtrygging embættismanna er slík
að ekkert var aðhafst meira á þeim bæ.“
„Það er rétt að árétta það við alla þá sem BJ skuldar að senda reikn-
inga sína til Guðmundar Einarssonar, Stefáns Benediktssonar eða
Kolbrúnar Jónsdóttur ... “
fundargerð skrifuð á þessum um-
rædda fundi. Armur Alþýðuflokks-
ins nær örugglega inn í raðir
möppudýranna og þá er ekki að
spyrja.
I niðurlagi bréfs borgarfógeta segir
að áfrýja megi málinu til Hæstarétt-
ar en tíminn leiðir í Ijós hvort sú
leið verður farin eða önnur.
Flóttamennirnir úr BJ pólitísk
viðrini
Það er ekki hægt annað en brosa
samt, þrátt fyrir það mótlæti sem
við, hið nýja fólk í BJ, höfum fengið
hér í upphafi starfs okkar. Þvi þing-
mönnunum okkar fyrrum hefur alls
staðar verið hafnað af alþýðuflokks-
fólki, já, af kjósendum Alþýðu-
flokksins, og maður gæti haldið að
það eina sem að gagni gæti komið
fyrir þessa þingmenn BJ (fyrrver-
andi) væri að þeir legðu fjármuni
BJ í kosningasjóð Alþýðufokksins,
eða kannski þeir séu búnir að því.
Það er rétt að árétta það við alla
þá sem BJ skuldar að senda reikn-
inga sína til Guðmundar Einarsson-
ar, Stefáns Benediktssonar eða
Kolbrúnar Jónsdóttur í Alþýðu-
flokki, þar eru fjármunir BJ i dag
og þau bera ábyrgð á fjármálum BJ.
Eins og haft var eftir Kolbrúnu á
Stöð 2 hér um daginn. Menn ættu
að skoða þetta vel, það er ekki á
hverjum degi að alþingismenn af-
hjúpa sig sem pólitísk viðrini.
Guðmundur Óli Scheving.