Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Page 34
34
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
Andlát
Frímann Frímannsson lést 14.
mars sl. Hann fæddist ó Akureyri 27.
apríl 1919, sonur Frímanns Frí-
mannssonar og Maríu ísleifsdóttur.
Eftirlifandi eiginkona Frímanns er
María Antonsdóttir. Þau hjónin
eignuðust einn son. Útför Frímanns
verður gerð frá Kristskirkju, Landa-
kóti, í dag kl. 13.30.
Anna Kristjánsdóttir, til heimilis
að Hulduhólum, Mosfellssveit, lést í
Borgarspítalanum aðfaranótt 13.
mars sl.
Gíslína Guðrún Eyjólfsdóttir,
Reynivöllum 3. Selfossi, andaðist í
Sjúkrahúsi Suðurlands þann 17.
mars sl.
Heiti potturinn
Jazzklúbbur
Dagskrá í
mars-maí 1987.
JAZZ hvert SUNNUDAGS-
KVÖLD kl. 9.30
í DUUSHÚSI.
Komdu í Heita pottinn!
Sunnudagur 22/3
Opnun jazzklúbbsins.
Ávarp: Jón Múli Árnason
1) Skátarnir
2) Tríó Eyþórs
Gunnarssonar
3) Friörik Theodórsson
og félagar
Sunnudagur 29/3
Kvartett Björns
Thoroddsen
Mánudagur 30/3
Ath. breyttan tíma!
Sérstakt jazzkvöld vegna
komu danska trompet-
leikarans Jens Winther til
landsins en hann leikur
ásamt tríói Eyþórs Gunn-
arssonar.
Sunnudagur 5/4
Tríó Egils B. Hreinssonar
ásamt Sigurði Jónssyni
tenórsaxófónleikara.
Sunnudagur12/4
Kristján Magnússon
og félagar.
Sunnudagur 26/4
Tríó Guðmundar
Ingólfssonar.
Sunnudagur 3/5
Stórsveit Kópavogs
(Djassþand Kópavogs).
18 manna stórsveit („big
band") undir stjórn Árna
Scheving.
FISCHERSUNDI SÍMAR: 14446- 14345
Gunnar Jónsson, Mávahlíð 43,
andaðist þriðjudaginn 17. mars.
Hrefna Matthíasdóttir, Ásvalla-
götu 81, Reykjavík, lést í Landa-
kotsspítala að morgni þriðjudagsins
17. mars.
Kristín Jóna Kristjánsdóttir and-
aðist á öldrunardeild Landspítalans,
Hátúni 10, að kvöldi mánudagsins
16. þ.m.
Rósa Lárusdóttir, Dalbraut 25,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 17.
mars.
Auður Marinósdóttir, Suðurhólum
22, verður jarðsungin frá Áskirkju
föstudaginn 20. mars kl. 15.
Útför Ingibjargar Ingibjartsdótt-
ur, Kríuhólum 4, áður Bjargarstíg
16, hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Útför Einars Erlendssonar fer fram
frá Víkurkirkju laugardaginn 21.
mars kl. 14. Kveðjuathöfn verður
haldin í Áskirkju föstudaginn 20.
mars kl. 10.30.
Einar ísfeld Kristjánsson, Bleikju-
kvisl 3, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 20. mars
kl. 15.
Útför Guðrúnar Jónsdóttur frá
Seljavöllum fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 20. mars kl. 13.30.
Þorkell Hjaltason, kennari, Hverf-
isgötu 70, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 20.
mars kl. 13.30.
Tilkynningar
I gærkvöldi
Valgerður Bergsdóttir myndlistarmaður:
„Get ekki sagt
að mér hafi leiðst“
Ég kom frekar seint heim úr vinnu
í gærkvöldi en datt inn í sjónvarps-
dagskrána þar sem Bubbi og Valgeir
voru að syngja saman í þættinum I
takt við tímann. Að því loknu fylgd-
ist ég með lögunum sem valin hafa
verið til undakeppni fyrir Eurovision
og ég get ekki sagt að mér hafi leiðst,
þetta eru alveg ágætir söngvarar
yfirleitt. Annars finnst mér Eurovisi-
on keppnin yfirhöfuð hrútleiðinleg
og ég vildi að íslendingar fyndu sinn
eigin tón í stað þess að semja sig að
ákveðinni forskrift, því mér finnst
Eurovision í raun vera samansaíh
af væmnum lögum.
Mig langar til að koma þeirri von
minni á framfæri að sjónvarpið
sinnti einnig öðrum menningarþátt-
um á sama hátt og dægurtónlistinni.
Ég kíkti aðeins á framhaldsþátinn
LeÍKsnillingur í fyrsta sinn en fannst
hann einna helst líkjast smásögun-
um eins og maður las áður í Family
joumal og Hjemmet, meira svona
viðvera og annað ekki.
Af útvarpinu er það að segja að
ég hlusta mest á rás 1 en yfirleitt
ekki á Bylgjuna eða rás 2. Ég datt
inn í þátt á rás 1 um gamla tónlist
og matrigala og fannst gott að hlusta
á það í bílnum á leiðinni heim.
Ævar Kjartansson fmnst mér vera
mjög góður og skemmtilegur út-
varpsmaður og Jón Múli finnst mér
þvæla ansi skemmtilega um jass og
eru þættimir hans mjög áheyrilegir
og mátulega gamaldags.
Annars hef ég ffekar lítil tök á því
að hlusta á fjölmiðla yfirhöfuð vegna
vinnutíma.
Áhugafólk um scháfer hunda
stofnar félag
Nýlega var stofnað í Reykjavík félag
áhugafólks um þýska scháferinn. Félagið
hefur það að markmiði að stuðla að hrein-
ræktun þessara hunda á íslandi og reyna
eftir bestu getu að leiðbeina fólki um með-
ferð og ræktun hundanna, félagsmeðlimir
geta allir orðið sem áhuga hafa á þessu
máli. Af gefnu tilefni vilja stjórn og rækt-
unarráð félagsins taka fram að engir
scháferhundar hafa verið teknir út með
tilliti til ræktunar og að hvolpar eru enn
sem komið er ekki seldir í nafni félagsins.
Vetrarfagnaður Ferðafélags-
ins
Ferðafélagið heldur vetrarfagnað föstu-
daginn 20. marrs í Risinu, Hverfisgötu
105. Fagnaðurinn hefst með fordrykk kl.
19.30, en borðhald kl. 20. Til skemmtunar
verður „glens og grín“, sem félagsmenn
sjá um. Hljómsveit leikur fyrir dansi.
Veislustjóri verður Árni Björnsson, þjóð-
háttafræðingur. Aðgöngumiðar kosta kr.
1500 og eru um leið happdrættismiðar.
Tilkynnið þátttöku í síðasta lagi í dag.
Miðar seldir við innganginn og á skrif-
stofu FÍ, Öldugötu 3.
Veggtennis hefur um langt skeið átt mikl-
um vinsældum að fagna erlendis enda
haldast í hendur spennandi keppni og al-
hliða líkamsrækt. Það er fyrst að undan-
förnu sem þessi íþrótt nær að ryðja sér
verulega til rúms hér á íslandi og nýtur
hún síaukinna vinsælda þrátt fyrir mikið
aðstöðuleysi. En unnendur veggtennis
ættu þó að sjá fram á betri tima því hinn
15. mars verður tekin í gagnið mjög
fullkomin 820 fm veggtennis- og íþrótta-
miðstöð undir nafninu „Veggsport" í
Héðinshúsinu að Seljavegi 2. Það eru tveir
lærðir íþróttakennarar, þeir Hafst.einn
Daníelsson og Hilmar H. Gunnarsson sem
réðust í þessa framkvæmd. í Veggsporti
verða 5 veggtennissalir, hver um sig 54 fm
og verður byrjendum boðið upp á tilsögn.
Þá verður einnig önnur aðstaða fyrir
hendi, s.s. ljósaböð, lyftingaaðstaða, gufu-
böð, leikfimi fyrir alla aldursflokka í 90
fm leikfimisal og í framtíðinni er gert ráð
fyrir nuddpotti sem staðsettur verður ut-
andyra. Þá verður heilsubar þar sem hægt
verður að fá hressandi hollustudrykki og
slaka á. í Veggsporti verður hægt að
kaupa allan útbúnað er þarf til að stunda
veggtennis, einnig verða spaðar til leigu,
auk þess sem boðið er upp á skápaað-
stöðu. Fyrirhugað er að stofna félagaklúbb
fyrir heitasta veggtennisáhugafólkið og
felur félagsskírteini í sér ýmis konar af-
slátt. Bókað er langt fram í tímann og fer
hver að verða síðastur ef þeir ætla að taka
þátt í nýja líkamsræktaræðinu.
Krýsuvíkursam-
tökin minna á
landssöfnun til
styrktar upp-
byggingu í
Krýsuvík. Söfn-
unin fer fram
dagana 20.-22.
mars. Gíróreikn-
ingur samtak-
anna er 621005.
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
“Tónleikar á Isafirði
Tónleikar verða haldnir í sal grunnskól-
ans á Isafirði fimmtudaginn 19. mars kl.
20.30. Flutt verða verk verk fyrir píanó
og þverflautu eftir Hjálmar H. Ragnars-
son, C.Ph.E. Bach, Paganini, Liszt og G.
Paggi. Flytjendur eru Björk Sigurðardótt-
ir á píanó og Kristrún H. Björnsdóttir á
flautu. Tónleikarnir eru liður í undirbún-
ingi fyrir píanókennara- og blásarakenn-
arapróf þeirra í vor frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík. Að tónleikunum standa Tón-
listarskóli og Tónlistarfélag Isafjarðar.
Spilakvöld SÍBS og Samtaka
gegn astma og ofnæmi
Síðasta spilakvöld vetrarins verður í Hall-
veigarstöðum við Túngötu í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30. Kaffiveitingar við
vægu verði. Góðir vinningar. Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti. Allir
velkomnir.
Sýningar
Daði Guðbjörnsson opnar
sýningu í Gallerí Borg
I dag kl. 17 opnar Daði Guðbjörnsson sýn-
ingu í Gallerí Borg við Austurvöll. Á
sýningunni verða um 35 verk: olíumál-
verk, vatnslitamyndir, pastelmyndir og
grafik, unnar á sl. tveimur árum. Petta er
sjöunda einkasýning Daða, en hann hefur
einnig tekið þátt í fjölda samsýninga bæði
hérlendis og erlendis. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18. Um helgar er
opið frá kl. 14-18. Sýningin stendur til 31.
mars.
Myndlistarsýning á Hofsósi
Lars Emil Árnason opnaði myndlistarsýn-
ingu í félagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi,
sunnudaginn 15. mars sl. Á sýningunni eru
um 20 málverk auk 8 skúlptúra úr hinum
ýmsu efhum. Lars Emil stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík, Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands auk fram-
haldsnáms við Akademy voor Beeldende
Kunst í Hollandi. Hann hefur haldið
einkasýningar bæði heima og erlendis auk
fjölda samsýninga. Sýningin er opin frá
kl. 18-20 virka daga en kl. 16-20 um helg-
ar. Öll verkin á sýningunni eru til sölu.
Sýningunni lýkur þann 28. mars.
Afmæli
90 ára er í dag, 19. mars, Stefán
Stefánsson í Vík í Mýrdal. Hann
ætlar að taka á móti gestum nk. laug-
ardag 21. þ.m. í sal kaupfélagsins þar
í bænum eftir kl. 16.