Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Stefanía og nýi vinurinn, Mario Oliver, sem á næturklúbb í Los Angeles eins og kunnugt er, segja sig hafa fundið ástina einu og sönnu. Ste- fanía vill nú ólm verða syngjandi rokkstirni í Ameríku og skáka um leið sjálfri Madonnu. Kærastinn er sagður hafa mjög góð sambönd i tónlistarheiminum í Ameríku og ætla að hjálpa Ste- faníu sinni við að brjóta sér leið upp á toppinn. í þessu skyni hef- ur Stefanía lýst því yfir að hún ætli sér að flytja til Ameríku um lengri eða skemmri tíma, Rainer föður sínum til ómældrar gremju en hann reis upp á afturfæturnar er hann heyrði áform dótturinnar, taldi hana hafa skyldum að gegna sem prinsessa í Mónakó. En Stefanía er ákveðin í að búa með Mario i L.A. og vinna þau nú sameiginlega að gerð mynd- bands með prinsessunni í kjölfar nýrrar plötu. Barry Manilow ólst upp í hinu illræmda hverfi Brooklyn i New York. Faðir hans fór frá konu og börnum þegar Barry var aðeins tveggja ára að aldri og segist Barrv bera blendn: ar tilfinningar í brjósti til hans. i aðra röndina elskar hann föður sinn en hatar hann samt. Barry segist hata hann fyrir það að hann var ekki til staðar þegar hann þarfnaðist hans, sérstaklega þegar eldri strákarnir í hverfinu gerðu honum lífið leitt en sem strákur segist hann hafa verið lítill og mjósleginn og með alltof stórt nef sem honum var strítt á. Þegar hann var ellefu ára birtist pabbi hans allt í einu og gaf hon- um notað segulband. Siðan leið og beið og sá gamli birtist á ný þegar Manilow var að syngja á skemmtun en síðan hefur ekkert til hans sést. Manilow segist í sjálfu sér vera á báðum áttum um hvort hann hafi einhvern áhuga á að hafa mikið samband við föður sinn þar sem hann hefur sýnt honum svo lítinn áhuga í gegn um tíðina. Michael Jackson hélst ekki lengi á fyrstu elskunni sinni - hinni Ijóshærðu Karen Faye sem vinnur við förðun. Hún var fyrsta opinbera ástin í lífi Mic- hael Jackson og aðalumræðuefn- ið í New York fyrir tveimur mánuðum. Sú Ijóshærða tók svo upp á því að fljúga til Los Ange- les þar sem hún á heima og er þar með sögð hafa sagt skilið við goðið Michael Jackson - aðdá- endum hans til mikillar undrunar sem svo sannarlega hefðu viljað vera svo nálægt goðinu. Ómar Ragnarsson bregður á leik eins og honum er einum lagið, grettir sig og fettir viö góðar undirtektir á stjórnarborðinu. Við borðiö sitja Auður Eyd- al leiklistargagnrýnandi DV, Jónas Kristjánsson ritstjóri og Kristín Halldórsdóttur, Hörður Einarsson framkvæmda- og útgáfustjóri og Steinunn Yngvadótt- ir, Ingólfur P. Steinsson auglýsingastjóri og Erna Fríða Berg, Ellert B. Schram ritstjóri og Ágústa Jóhannsdóttir, Benedikt Jónsson hússtjóri og Halldóra Ármannsdóttir, Inga Þórarinsdóttir. Árshátíð Frjálsrar íjölmiðlunar Árshátíð Frjálsrar Qölmiðlunar var haldin á dögunum, var þar margt um manninn og mikið um að vera eins og eftirfarandi myndir bera með sér. Það mætti halda að öll Parísarmódelin væru mætt á árshátíð DV en svo var ekki heldur er hér um að ræða starfsfólk auglýsingadeildar og fylgdar- lið þeirra. Á myndinni sjást Guðrún Sigtryggsdóttir, Bjarni Einarsson, Fjóla Stefánsdóttir, Sigrún Brynjarsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir, Valgerður Ragn- arsdóttir, Lárus Lárusson og Selma Ragnarsdóttir Ingólfur reytti af sér brandarana við mikinn hlatur og fögnuð fagurra kvenna. Við borðið sitja Anna Guðnadóttir, Guðlaug Þorkelsdóttir, Ingólfur Steins- son, Erna Friða Berg og Ágústa Jóhannsdóttir. Meðal skemmtiatriða var fegurðarsamkeppni „veikara kynsins". Hvers lags kvenpeningur er þetta nú eiginlega...? Með loðna leggi og flöt brjóst. Siðar kom í Ijós að um kvenklædda karlmenn var að ræða. Á myndinni sjást, talið frá vinstri: Jónas Haraldsson fréttastjóri, Sigmundur Steinarsson, ritstjóri Reykjaness, og Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður Meðan á borðhaldi stóð voru tekin nokkur lög og veislugestir lifðu sig inn í gamalt Þórsmerkurljóð, María, Mar.Ja.. Á myndinni sjást Halla Guðmundsdóttir og Kjartan Kjartansson prentari, Sigriður Sigurjónsdóttir og Ólafur Ingi Jónsson prentsmiðjustjóri. Sigurdór veislustjóri lifir sig inn í gamla tima og fullvissar veislugesti um að hann hafi engu gleymt úr bransanum en hann var m.a. i hljómsveit Svavars Gests, Aage Lorange, Eyþórs Þorlákssonar o.fl. Hérna tekur hann lagið ásamt hljómsveit Grétars Örvarssonar. Fyrst á réttunni, svo á röngunni, tjú, tjú, og tjúttað fram á nótt. Dansað af mikilli innlifun og tilþrif sýnd. DV-myndir S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.