Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
Stjómmál_______________________________________________________________________________ dv
Alþýðufíokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur reyna:
Jon Baldvin með nýjan stíl á
stjórnarmyndunarviðræðum
Fyrsti fundur í þríhliða viðræðum
Alþýðuflokks. Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks um myndun ríkis-
stjórnar hófst klukkan 10 í morgun í
húsakvnnum Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar við Lindargötu. Formenn
flokkanna þriggja mættu þá einir til
að ákveða hvernig viðræðunum verð-
ur háttað.
Jón Baldvin Hannibalsson, sem hef-
ur umboð forseta til stjórnarmyndun-
ar, vakti athygli á blaðamannafundi
síðdegis í gær íyrir nýjan stíl á viðræð-
unum og samskiptum við íjölmiðla.
Hann dreifði fréttatilkynningu ogboð-
aði að hann myndi reglulega gera slíkt
og halda blaðamannafundi meðan
hann stýrði viðræðunum.
Hann hefur að höfðu samráði við
formenn hinna flokkanna ákveðið að
efni viðræðnanna verði fjórskipt:
Fyrst verði rætt um meginmarkmið
fyrirhugaðs stjórnarsamstarfs, þvi
næst um fvrstu aðgerðir, síðan um
verkefhaskrá fyrir kjörtímabilið og
loks um verkaskiptingu milli ráðu-
neyta og skiptingu starfa á milli
ráðheira.
-KMU
Visbending um
ráðherraefni
Vangaveltur um ráðherraefni flokk-
anna eru hafnar. Nokkra vísbendingu
gefur hvaða menn flokkamir hafa til-
nefnt til að taka þátt í stjómarmynd-
unarviðræðunum.
Fyrir Alþýðuflokkinn mæta Jón
Baldvin Hannibalsson formaður, Jó-
hanna Sigurðardóttir varaformaður
og Jón Sigurðsson, efsti maður i
Reykjavík. Athygli vekur að í frétta-
tilkynningu Alþýðuflokksins er
Kjartan Jóhannsson, sem þátt tók í
viðræðunum við Sjálfstæðisflokk og
Kvennalista, ekki nefndur.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins taka
þátt í viðræðunum Þorsteinn Pálsson
formaður, Friðrik Sophusson vara-
fomiaður og Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokksins, þeir sömu og
vom í viðræðunum við Alþýðuflokk
og Kvennalista.
Framsóknarflokkurinn sendir Stein-
grím Hermannsson formann, Halldór
Asgrímsson varaformann og Guð-
mund Bjamason, ritara flokksins.
-KMU
Nytt skatta- og
fjáimálakeifi
fyrsta krafa
Stefán Valgeirsson vill raöherraembætti fyrir samtök sin, styðji
Baldvin fyrir viðræður.
hann rikisstjórn. Hér heilsast þeir Stefán og Jón
DV-mynd Brynjar
Stuðningur Stefáns
kostar ráðherrastól
Alþýðuflokksins
Stefán Valgeirsson, þingmaður
Samtaka um jafnrétti milli landshluta,
hyggst ekki taka þátt í myndun ríkis-
stjómar nema samtök hans fái ráð-
herraembætti.
„Getur þú nefnt mér dæmi um að
Málefnalegur ágreiningur Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks ætti ekki
að verða djúpstæður í komandi stjórn-
armyndunarviðræðum ef marka má
orð Steingríms Hermannssonar, form-
anns Framsóknarflokksins, eftir fund
hans með Jóni Baldvini Hannibals-
syni, formanni Alþýðuflokksins, í
það hafi nokkurn tíma skeð að aðili
sem tæki þátt í að mynda ríkisstjóm
hafi ekki fengið ráðherraembætti?"
spurði Stefán á móti þegar DV lagði
fyrir hann spumingu um þetta atriði.
Það virðist því sem Stefán ætli að
gærmorgun.
„Það hefur verið lengst bil í land-
búnaðarmáium. Ég trúði því um
daginn að hann væri horfinn frá þeim
kröfum og ég trúi því enn í raun,“
sagði Steingrímur.
„Ég held hins vegar á ýmsum öðrum
sviðum, félagslegum sviðum og í ríkis-
verðleggja sig dýrar en „eitt banka-
ráð“, eins og Jón Baldvin Hannibals-
son hefur sagt að hann kosti.
fjármálum kannski til dæmis, sé ekki
langt á milli flokkanna.
Ég vil taka það fram að þessar við-
ræður við Jón voru mjög gagnlegar
og mjög málefhalegar og ég get ekkert
annað en gott um þær sagt.“
-KMU
„Nýtt skatta- og fjármálakerfi,"
nefhdi Jón Baldvin Hannibalsson fyrst
á fundi í Alþýðuflokksfélagi Reykja-
víkur fyrr í vikunni af kröfum sem
Alþýðuflokkurinn setur fram í stjórn-
armyndunarviðræðum við Sjálfstæðis-
flokk og Framsóknarflokk.
„Án þess að það komi til er allt ann-
að unnið fyrir gýg. Þá komumst við
aldrei til að vinna þau góðu verk sem
við viljum gera. Meðan við ekki uppr-
ætum skattsvik forréttindahópa,
meðan \dð komum ekki á réttlátu
skattakerfi sem hægt er að líta eftir
og tryggir sæmilega ásættanlegan
jöfnuð eftir efnum og ástæðum gagn-
vart skattgreiðendum þá verða öll
önnur mál þessa ríkisvalds í skötulíki.
Ég segi í öðru lagi: Við hljótum að
krefjast þess af samstarfsflokkum að
umbótamál eins og tillögur okkar um
einn sameiginlegan lífeyrissjóð fyrir
alla landsmenn og samræmd lífeyris-
réttindi verði þar efst á blaði.
í þriðja lagi segjum við: Húsnæðis-
mál. Nýr fjárhagsgrundvöllur fyrir
húsnæðislánakerfið, sem núna er ekk-
ert annað en biðlistar og lánsloforð,
innistæðulausar ávísanir fyrri ríkis-
stjornar. Við segjum löggjöf um
kaupleiguíbúðir og aðgerðir strax til
þess að bæta fyrir það sem þetta þjóð-
félag hefur misgert við þann hóp sem
við köllum misgengishóp og lenti í
húsnæðismannraunum árin 1980 til
1985.
I fjórða lagi: Átak til að stytta vinnu-
tímann og bæta kjör þeirra sem verst
hafa kjörin. Það þýðir nýja íjölskyldu-
stefnu, algjörlega ný viðhorf, nýja
forgangsröð félagslegra útgjalda, þar
sem við gerðum okkur vægast sagt
vonir um að við ættum málefnalega
samstöðu með flokki eins og Kvenna-
lista.
í fimmta lagi: Ný atvinnustefna er
byggir á auknu frjálsræði til sjós og
lands og í utanríkisviðskiptum og er
til þess fallin að leysa úr læðingi
krafta, hugmyndir, framtak og dugnað
einstaklinga í vaxtargreinum og til
þess að koma í veg fyrir að staðnað
ríkisvald verði áfram í þeirri stöðu að
sinna fyrst og fremst sérhagsmunum
gróinna atvinnuvega og samtaka,"
sagði Jón Baldvin. -KMU
-KMU
Ekki langt bil á milli flokkanna
- segir Steingrímur um Alþýðuflokk og Framsóknarflokk
Jón Baldvin má ráða dagskránni
- en fær ekki að verða forsætisráðherra, segir Steingrímur
„Við treystum ekki Alþýðuflokkn-
um til að fara með forsæti í svona
ríkisstjóm eftir næstum því þriggja
ára opinbera baráttu gegn Fram-
sóknarflokknum, samvinnuhreyf-
ingunni og bændastéttinni," sagði
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, að loknum
þingfiokksfundi í gær og eftir að
hann hafði tilkynnt Jóni Baldvini
Hannibalssyni, formanni Alþýðu-
flokksins, þá niðurstöðu að Fram-
sóknarflokkurinn væri reiðubúinn
að ganga til stjómarmyndunarvið-
ræðna við Alþýðuflokk og Sjálfstæð-
isflokk.
„Að sjálfsögðu er það Jón Baldvin
sem leiðir þessar viðræður og ræður
að meira eða minna leyti dag-
skránni," sagði Steingrímur.
Hann sagði hins vegar að fram-
sóknarmenn hefðu ekki hafnað
Þorsteini Pálssyni sem forsætisráð-
herra í stjóm þessara þriggja flokka.
Um næsta möguleika ef þessi
stjórnarmyndun mistekst sagði
Steingrímur:
„Tveggja flokka stjóm þeirra
flokka sem nú sitja. Mér finnst hann
vera bestur. Með eða án Stefáns
Válgeirssonar. Þetta gera löndin í
kringum okkur. Schluter er húinn
að sitja í fimm ár.“
Um það hvort til greina kæmi að
Stefán Valgeirsson fengi ráðherra-
embætti sagði Steingrímur:
„Við kaupum engan fyrir neitt
slíkt. Það kemur ekki til nokkurra
mála.“ -KMU