Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
17
• Hugo Sanchez skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í gærkvöldi. Hér stekkur
hann yfir fyrirliða Atletico Madrid. Simamynd Reuter
Hugo Sanchez
með tvö möik
Hugo Sanchez skorar og skorar þessa aði þriðja mark Real sem stefnir nú
dagana. I gærkvöldi skoraði hann tvö að því að vinna tvöfalt á Spáni.
mörk þegar Real Madrid sigraði At- I hinum undanúrslitaleiknum gerðu
letico Madrid, 3-2, í undanúrslitum RealSociedadogAthleticBilbaojaín-
spænska bikarsins. Butragueno skor- tefli. -SMJ
I--------------------------------------1
! Xamax meistari !
| Neuchatel Xamax tryggði sér sviss- kvöldi. Titillinn lendir svo sannar- |
neska meistaratitilinn í fyrsta skipti lega á réttum stað núna en Xamax
I í sögu félagsins þegar liðið gerði hefur verið með yfirburðaforystu í |
I jafntefli við Lausanne, 1-1, í gær- vetur. -SMJ .
Svíar lágu
Tveir leikir fóru fram í undankeppni ólympíuleikanna í gærkvöldi.
Ungverjar sigruðu Svía, 2-1, í C-riðli og Júgóslavar sigruðu Austum'kis-
menn, 1-0, í E-riðli. Plotar skoraði fyrir Ungverja en Johansson fyrir
Svía. Tuce skoraði fyrir Júgóslava. -SMJ
Adrian Heath sýnir góð tilþrif en allt kemur
fyrir ekki. Englandsmeistarar Everton, sem eru nú á keppnisferðalagi um
Asíu og Ástralíu, töpuðu í gærkvöldi gegn landsliði Ástralíu, 4-1, eftir víta-
spyrnukeppni. Um 20.000 áhorfendur fylgdust með leik liðanna.
Símamynd Reuter
fþróttir
„Getum ekki skorað“
- sagði Sepp Piontek eftir jafhteflið gegn Tékkum
Tékkar virðast hafa sérstakt lag á
Dönum. í 14 leikjum þjóðanna hefur
Dönum aldrei tekist að sigra og á því
varð engin breyting í gærkvöldi þegar
þjóðimar skildu jafnar, 1-1, í Dan-
mörku.
Danir náðu forystu á 16. mínútu
þegar Jan Mölby skoraði með góðu
langskoti eftir aukaspymu Sören
Lerby. Danir fengu mörg góð færi og
einu sinni skaut Elkjær í slá þegar
hann stóð fyrir framan autt markið.
Vamarmaðurinn Ivan Hasek jafnaði
á 48. mínútu og voru Tékkar mjög
ánægðir með stigið. „Danir vom
heppnir í Bratislava - nú vorum við
heppnir," sagði Josef Masopust, þjáif-
ari Tékka, sem tefldi fram ungu og
óreyndu liði.
„Við virðumst eiga í vandræðum
með að skora mörk núna. Sóknarmenn
okkar eru hættir að skora,“ sagði Sepp
Piontek eftir leikinn. Staðan í 6. riðli
er nú þessi:
Danmörk..........4 2 2 0 3-1 6
Tékkósl..........4 1 3 0 5-2 5
Wales............3 1 2 0 6-2 4
Finnland.........5 0 14 1-10 1
-SMJ
• Jan Mölby skoraði mark Dana i gærkvöldi.
Fríðarverðlaun
Nóbels til Noregs?
• Alexander Zavarov, knattspyrnumaður Sovétríkjanna, skoraði sigurmark
þeirra gegn Norömönnum.
Gauti Grétaisson, DV, Noregi:
Það ætlar seint að takast hjá
Norðntönnum að skora mark i
landsleik í knattspymu og er nú
rætt um það í Noregi að norskir
knattspyrnumenn eigi skilið frið-
arverðlaun Nóbels. Norðmenn
hafa ekki enn skorað i Evrópu-
keppninni og revndar ekki í
síðustu sex landsleikjum.
Sovétmenn byrjuðu leikinn gegn
Norðmönnum af miklum krafti og
fengu tvö dauðafæri í upphafi.
Mark þeirra kom síðan á 16. mín-
útu eftir að Alexander Zavarov
hafði afgreitt góða fyrirgjöf beint
inn af stuttu færi.
Eftir markið færðist doði yfir
leikinn og var leikur Sovétmanna
ekki sannfærandi. Norðmenn
revndu að sækja í seinni hálfleik
og átti þá Anders Giske skot í slá.
f norska liðinu voru 10 atvinnu-
menn og höfðu Norðmenn miklar
væntingar til liðsins f>TÍr leikinn.
Nú telja Norðmenn einu von liðs-
ins um sigur vera gegn íslandi.
Áhorfendur voru ekki nema 10.400.
-SMJ
ítalir lágu fyrir
kraftmiklum Svíum
Sænska landsliðið með 5 leikmenn
frá Gautaborg innanborðs sigraði ít-
ali, 1-0, í Stokkhólmi í gærkvöldi fyrir
framan 40.000 áhorfendur. Þrátt fyrir
slæma byrjun, þar sem Svíar fengu
dæmda á sig fíirðulega vítaspymu.
tókst sænska liðinu að rjúfa sigur-
göngu ítala sem höfðu ekki tapað í
riðlinum fram að því.
Á 15. mínútu var dæmd vítaspyma
þegar Thomas Ravelli, markvörður
Svía, og Roberto Tricella duttu saman.
Ravelli varði síðan spymu Roberto
Mancini.
Á 25. mínútu kom sigurmarkið. Jo-
hnny Ekström átti frábæra sendingu
á vamarmanninn Peter Larsson sem
lék á Walter Zenga og skoraði. „Ef ég
hefði brennt af þessu færi hefði ég
hætt knattspymuiðkun,“ sagði Lars-
son eftir leikinn. Staðan í 2. riðli er
nú þessi:
Svíþjóð...........5 4 10 10-1 9
Ítalía............5 4 0 1 11-3 8
Sviss..............4 112 7-7 3
Portúgal...........4 0 3 1 4-5 3
Malta..............6 0 1 5 3-19 1
-SMJ
Vmnur Napolí tvöfalt?
Atalanta, sem nýlega féll í 2.
deild á Ítalíu, verður ömgglega
fulltrúi landsins í Evrópukeppni
bikarhafa. Það verða nefnilega
Atalanta og meistarar Napolí er
leika til úrslita f ítölsku bikar-
keppninni.
I gærkvöldi sigraði Napolí Cagl-
iari, 4-1, í seinni leik liðanna.
Atalanta gerði jafhtefli, 0-0, við
Cremonese en liðið sigraði í fyrri
leik liðanna.
-SMJ