Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Blaðsíða 32
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
36
Sviðsljós
Ólyginn
J sagði...
Shirley
MacLaine
'r
trúir eins og allir vita á það yfir-
náttúrlega. Hún hefur flakkað um
allan heiminn og rætt við anda í
hinum ýmsu heimshornum, þar á
meðal I Indlandi og Perú. Eftir
heimkomuna skrifar síðan hin
hressa leikkona um reynslu sína
af öllu þessu bjástri og rokselur
frásagnirnar. Áhugamenn um
málefni tengd kvensunni segja
hana biða eftir því að fljúgandi
diskur lendi til þess að bjóða henni
far út I geiminn til viðræóna við
hina ýmsu súperkarla. Shirley
glottir að bollaleggingunum en
segist ekki munu hika við þiggja
slíkt kostaboð - og það án þess
að biðja um farmiða heim aftur.
Patrick Duffy
gengur um með skjalatösku úr
slönguskinni undir hendinni og
þykir mörgum leikfangið I allra
dýrasta lagi. Kappinn er eins og
margar aðrar ómissandi súper-
stjörnur-- hefur það á hreinu að
það verði aó nást til hans í síma
bókstaflega alltaf allan sólarhring-
inn. Því er þráðlaus sími hannaður
I eitt horn töskunnar og ýtir það
verðinu örlítið upp á við. Eitthvað
á þriðja hundrað þúsund þarf að
greiða fyrir gripinn og munar
Duffy lítið um eyrinn. Dallasþætt-
irnir hafa malað honum gull að
undanförnu og mun svo verða
meðan þættirnir halda áfram að
ganga I áhorfendur um heim allan.
Elísabet
Bretadrottning
deplaði ekki auga þegar argur en
kornungur uppreisnarmaður
skellti því á hana við opinbera
móttöku að allra best væri að
England yrði gert að lýðveldi. Hún
samsinnti brosandi með þeim orð-
um að þetta væri einmitt skoðun
þeirra Skota en Englendingarnir
vildu ólmir halda sínu konungs-
veldi. Viðstaddir urðu'hvumsa og
ekki síður þegar bent var á þá stað-
reynd að Elísabet værí einmitt
fædd og uppalin í Skotlandi.
Drottningin er þekkt fyrir annað
en að verða auðveldlega orðlaus
og hélt bara áfram í sama dúr -
ákveðin í því að láta ekki eiga hjá
sér í sennunni.
' 't '
1
1
tónaflóði
Jón G. Haúksson, DV,. Akureyii:
Fagurblá tiplaði Sæbjörgin fánum
prýdd á öldunni, í takt við hvínandi
tóna lúðrasveitar-, inn til Akureyrar
á dögunum. Þetta var upphafið að
stórgóðum aðalfundi Slysavarnafé-
lagsins að Hrafnagili í Eyjafirði. Á
fundinum var mest rætt um öryggis-
fræðslu sjómanna, leitar- og björgun-
armál á hafi úti og öryggi smábáta.
Félaginu barst gjöf frá Nesskipi hf.,
til minningar um skipverja Suður-
lands sem drukknuðu í vetur.
En meira um Sæbjörgina. Hún er
skólaskip í öryggismálum sjómanna.
Var áður gamli Þór Gæslunnar, þá
grá en nú fagurblá.
Værðarvoðir biðu skipverja. Hér er Jón Arnþórsson, hjá iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri, að afhenda tuttugu og fjögur ullarteppi.
Mikil veðurblíða var við komu Sæbjargar. Þetta er osvikin sumarmynd með
Sæbjörgu í baksýn. DV-myndir JGH
Riddaramennskan
er ekki útdauð ennþá
Alþjóðamót í riddaramennsku fer nú fram í Frans - að sjálfsögðu - og
taka þátt í mótinu herramenn frá Englandi, Spáni, Italíu, Póllandi, Svíþjóð
og Frakklandi. Keppnin stendur yfir frá fyrsta til tíunda júní og meðfylgj-
andi Reutermynd sýnir óþekktan sænskan riddara á útopnu.
Hvað er
að hugsa?
Það er ekki hættu-
laust að trimma úti á
vegunum eins og ástand
þeirra oft er á þessum
árstíma. Meðfylgjandi
mynd er þó ekki tekin á
hringveginum hérlendis
heldur kemur frá Col-
orado. Ljósmyndari einn
á staðnum var orðinn
hundleiður á að hossast
eftir vonlausum þjóð-
vegum og á myndin að
vekja menn til umhugs-
unar vestra. Leggirnir
voru fengnir að láni í
næstu verslun þannig að
ein gluggagínan lét sér
nægja mittið og upp úr
um tíma meðan neðri
hlutinn dró að sér at-
hygli vegfarenda og
vakti umræður um vega-
gerð á réttum stöðum.
Þetta væri kannski at-
hugandi fyrir smáþorpin
úti á landi!