Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987. Neytendur Stjupmóðirin efst á vinsældalistanum Nú er runninn upp tími sumar- blómanna. Fólk hefur væntanlega að mestu lokið við gróíhreinsun í görðum sínum og notar nú góðviðr- is- og fh'daga til þess að planta út blómum, trjám og runnum. Sumir voru svo forsjálir að sá til sumarblómanna sjálfir fyrr í vor og fá fjölæru plöntumar hjá vinum og vandamönnum. En þeim til hagræð- ís, sem þurfa að kaupa plöntumar, gerðum við smákönnun, bæði á verði og eins hvað er vinsælast í ár. 20 % verðhækkun Hefðbundin sumarblóm kosta 30 kr. Það er 20% verðhækkun frá í fyrra, en þá kostuðu þau 25 kr. Hefð- bundin sumarblóm em m.a. stjúp- mæður, sem em einna vinsælastar allra sumarblóma, morgunfrúr, ljónsmunni, alisíur, hádegisblóm o. rn.fi. Tegundir eins og tóbakshom (petunia), flauelsblóm og dalíur kosta 150 kr. Mikilvægt er að vera iðinn við að klípa visnuð blóm af stjúpmæðnm- um og tóbakshomunum, smærri blóm hreinsa sig sjálf. Matjurtimar kosta allar 22 kr. plantan. Þeim er plantað i jiffipotta sem hægt er að láta í sjálft beðið þvi potturinn eyðist í moldinni. Við á neytendasíðunni fórum í heimsókn í nokkrar gróðrarstöðvar og er hér greint frá því sem fyrir augu bar. Þvi miður er ekki hægt að heimsækja allar stöðvamar á svæðinu en þær em mun fleiri en hér em taldar upp. -A.BJ. Hengilísa á 190 kr. og pelagóníur á 290 kr. Svipað úrval er af plöntuni í þeim gróðrar- stöðvum sem við heimsóttum og mikið til sömu tegundirnar á boðstólum. Hefðbundin sumarblóm kostuðu alls staðar 30 kr. og pott- aðar matjurtir 22 kr. Við rákumst þó á ýmislegt á yfirreið okkar. eins og t.d. í Alaska við Miklatorg sáum við lísu í hengipotti. svokallaða ..hengilísu" sent kostaði 190 kr.. og einnig venjulega lísu í potti á 100 kr. í Alaska kostaði hengilobelía 95 og 100 kr.. begóníru' kostuðu 150 og 220 kr\. pelagoníur 290 kr.. bláhnoðrar 100 og 150 kr„ fuksía 290 kr. Hefðbundnú sumarblómin kostuðu það sama alls staðar eða 30 kr. og dalíur og tóbakshorn 150 kr„ Limgerðisbirki. 50 70 cm á hæð. kostaði 110 kr. í Alaska. Qórar stærðir kostuðu frá 190 kr. upp í 250 kr. 160 cm á hæð kostaði birkið 500 kr. Fallegt og beinvaxið. Kvistar vom til af ýmsum geiðum og kost- úðu 300 og 320 kr. Svrenur sem voru 120 cm kostuðu 750 kr„ þéttar og góðar plöntur að sögn Kristínar Birgisdóttir garðvrkjufræð- ings, sem unnið hefur í þrjú ár við plöntuaf- greiðslu hjá Alaska. Þama vom til fimrri ára alaskaaspir, 3ja metra háar á 3900 kr. og 50-60 cm plöntur á 380 kr. Tveggja ára gljávíðir kostaði 90 kr. og 4 ára 200 kr. Viðja 40 kr. og tvær stærðir af alaskavíði kostaði 60 og 90 kr. Rósirnar, bæði dorn og hnausa rósir. kostuðu 450 kr. og meyja- og hjónarós á 400 kr. Fjölærar plöntur kostuðu 90 til 300 kr„ gott úrval af steinbrjótum var til á 90 til 110 kr. plantan. Við látum þessa upptalningu nægja. Þess má loks geta að Alaska er nú rekið af sama aðila og plöntusalan hjá Alaska i Breiðholti og gróðrarstöðin Birkihlíð í Kópavogi. -A.BJ. Kristín er þarna með kúlulagað flauelisblóm sem kostar 150 kr. DV-mynd JAK Fólk kaupir gjarnan 30-50 sumarblóm í garðinn sinn 1 Grænuhlíð við Bústaðaveginn em sumar- blómin á 30 kr„ eins og hjá hinum blómasöl- unum, og dalíur og tóbakshom á 150 kr. Fjölærar plöntur vom þar til frá 90 kr. upp i 270 kr. Pottaðar matjurtir kostuðu 22 kr„ nema salat það kostaði 12 kr. Allar matjurt- imar eru í pottum. „Þetta er góður tími til að planta út ein- mitt núna. Fólk notar kvöldin og helgamar til þess að snyrta til hjá sér og skrýða allt með blómum," sagði Vernharður Gunnarsson, garðyrkjumaður í Grænuhlíð við Bústaðaveg- inn, í samtali við DV. Hann sagði að sala sumarblóma væri alltaf að aukast. Vemharður gerði ráð fyrir að fólk keypti svona á bilinu frá 30 til 50 plöntur eða fyrir ca 2500-3000 kr. Svalakassarnir em vinsælir. I þá fara gjam- an stjúpmæður sem klæða þá vel. Einnig hentar tóbakshomið vel. En hafið hugfast að klípa visnuðu blómin einkum af þessum tveim tegundum. Grænahlíð hefur löngum haft á boðstólum fallegar rósir. Þær kosta á bilinu frá 400 til 460 kr. Þórður Runólfsson afgreiðslumaður sagði að það væri alveg á færi hvers sem er að rækta rósir, en þær þyrftu nokkra umönn- un, bæði gott skjól, áburð og sól. Limgerðisplöntumar í Grænuhlíð vom myndarlegar. Þar var m.a. til viðja (90 cm) á 60 kr. mispill á 100 kr. (60-120 cm), ýmsar tegundir af blómstrandi runnum kostuðu frá 250 kr. Birkikvisturinn, sem er einna vinsæl- astur var jafnframt sá ódýrasti. Þá em fagursýrenur eftirsóttar, fallegar plöntur sem allar vom með knúppa og tilbúnar að blómstra í sumar. -A.BJ. Fagursýrenan I höndunum á Vernharði Gunnarssyni tilbúin að blómstra i sumar. DV-mynd JAK Gljávíðirínn þolir ekki götuljósin „Það er alltaf töluvert sem selt er af grænmetisplöntum fyrir heima- garða. Fólkið vill helst þær tegundir sem eru fljótvaxnar, eins og blóm- kál, brokkál og salat. Þetta er allt pottað og plöntumar kosta 22 kr.,“ sagði Pétur N. Ólason í gróðrarstöð- inni Mörk við Stjömugróf. Pétur er danskur að ætt og upp- mna en í ágúst em tuttugu ár síðan hann opnaði gróðrarstöðina í Stjömugrófinni þar sem hann hefúr um tvo og hálfan hekíara lands und- ir ræktun. Alltaf er verið að bæta við og þótt aðaláherslan sé lögð á tré og runna em á boðstólum í Mörk allar tegundir af blómstrandi sumar- blómum, fjölbreytt úrval er af grænmeti og fjölærum jurtum. „Við byrjuðum fyrstir á því fyrir tíu árum að sá til sumarblómanna í potta. Það er betra fyrir báða aðila, fyrir þá sem kaupa plönturnar því þannig halda þær áfram að vaxa. Þetta er einnig hentugra fyrir gróðr- arstöðina. Þá verða afföllin mun minni. Þá er hreinlega hægt að taka frá þær plöntur sem ekki em tilbún- ar í sölu en áður þurfti að henda þeim,“ sagði Pétur. Hann sagði að fólk ætti að hreinsa blóm eins og stjúpur, tóbakshom og bellis af visnuðum blómum. Blómin em viljugri að blómstra ef þau sem em visnuð em tekin í burtu. Mörg litlu blómin hreinsa sig sjálf. Skrautrunnar og stór tré Skrautmnnar og stór tré eiga nú vaxandi vinsældum að fagna. „Fyrir nokkrum árum voru stór tré ekki söluvara. Það var hreinlega ekki hægt að selja þau. Fólk gat oft fengið ókeypis tré þegar borgin var að taka gömul lönd fyrir byggingar- lóðir. Nú hefur þetta breyst. Fólk vill gjarnan kaupa stór tré í dag,“ sagði Pétur. Hann sýndi okkur stóru trén sem hann hefur á boðstólum. Þama vom átta ára gamlar aspir, um 2 ‘A m á hæð og kostuðu 2-3000 kr. 2ja metra hátt birki kostaði 3000 kr. 2 I4-3ja m há reynitré kostuðu 2200 kr. „Reynirinn hefur ekki verið nógu vinsæll undanfarið en ég vil endilega halda honum á lofti. Hann er ein- staklega fallegur sem stakt tré,“ sagði Pétur. Ymsar tegundir em til af reyni- viði, aðrar en þessi venjulegi, t.d. úlfareynir. Hann er sérstaklega fall- egur, ber afar falleg bleik blóm. Úlfareynir var til á stærðarbilinu 1-1,25 m og kostaði 850 kr. Pétur sagði að berin af úlfareyni væru einkar góð í sultu, bæði sæt og víta- mínauðug. Af einu meðalstóru tré geta komið nokkur kg af berjum að sögn Péturs. Pétur sagði að aspir ættu það til að fá haustkal en langflestar aspir hér á landi em til komnar eftir vor- hretið 1963, þegar nærri allar aspir i landinu fórust. Pétur mælir með birki í limgerði eða alparifsi, blá- toppi, mnnamum eða jafnvel kvista- tegundum. „Gljávíðirinn er vinsælastur í lim- gerði en hann hentar ekki nógu vel. Hann kelur oft á haustin og svo þolir hann ekki ljósastaura. Það er mikill galli. Við erum nýlega búnir að komast að raun um þetta en fólk ^hefur ekki skilið hvers vegna gljá- víðirinn hefur farið illa þar sem ljósastaurar lýsa á hann. Það ætti heldur ekki að nota eins mikið af alaskavíði og gert er í görðum. Hann er of grófur og ætti ekki að nota nema í skjólbelti á stóm landi, ekki í litla garða,“ sagði Pétur. Af skrautrunnum, sem við sáum i Mörk, má nefna birkikvist sem kost- ar eftir stærð 300, 350 og 400 kr„ loðkvista og dúnylla og sýrenur á 450 kr. Allar rósir í Mörk kosta 400-450 kr. Þá var nokkurt úrval af plöntum fyrir garðskála en Pétur sagði að slíkar plöntur væm dýrari en venjulegar garðplöntur og oft vandi að velja slikar plöntur. -A.BJ. ... I—BTTr"T —Ir : Km Pétur i Mörk sýnir okkur sjö ára fjallafuru og fimm ára dvergfuru sem kosta 650 kr. plantan. DV-mynd K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.