Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Side 13
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987. 13 Neytendur Hengilóbelía á móti norðrinu og 3ja m I Blómavali við Sigtún var mikið úrval af sumarblómum og flölærum jurtum. Sumarblómin kostuðu 30 kr. eins og annars staðar, tóbakshom, og dalíur 150 kr., önnur potta-sumarblóm vom á verðinu frá 98 kr. upp í 150 kr. Þama sáum við hengilóbelíu sem kost- aði 150 kr. Trausti Gunnarsson versl- unarstjóri sagði að hún væri alveg tilvalin til að prýða norðurhlið hússins í hengipotti, hún yndi sér þar mjög vel og myndi blómstra í allt sumar. í Blómavali sáum við stóreflis alpa- rós með bleikum blómum og kostaði hún 3950 kr. Einnig vom til litlar alpa- rósir á 1300 kr. Stóru alparósimar em mjög erfiðar í ræktun, varla á færi annarra en algjörra „sérfræðinga", en þó em dæmi þess að ræktun þeirra hafi tekist vel í görðum hér. Rósimar í Blómavali kostuðu 440 kr., pelargón- íur 250 til 300 kr. Iðna lísa skartaði þama og kostaði 150 kr. Fjölæm jurtirnar vom til í miklu úrvali. Einna vinsælastar em prímúl- ur en þær em einmitt blómstrandi um þessar mundir og til margar tegundir. Gullhnappurinn er líka að blómstra og því mjög vinsæll. Fjölæm blómin kosta írá 95 kr. upp í 195 kr. Jarðar- berjaplöntur, sem allar vom með blómum, kostuðu frá 100 kr. og 150 alaskaösp á kr. Allar matjurtirnar kostuðu 22 kr. Loðkvisturinn á hraðleið upp vinsældalistann Loðkvisturinn, sem er frekar lítill og phrjálegur um þessar mundir, er á hraðri leið upp vinsældalistann. Hann kostar 340 kr. Fólki til glöggvunar má benda á að það er einmitt loðkvist- ur sem er í beði fyrir framan Verslun- arbankann við Grensásveg, mjög skemmtileg og „smart“ planta. „Þessi tegund hefur eiginlega tekið við af birkikvistinum sem hefur verið einna vinsælastur undanfarin ár,“ sagði Trausti er hann sýndi okkur mnna- og trjáaúrvalið. Birkikvistur- inn kostáði 360 kr. Þá sáum við berberis, runna sem ber hvít ber og verður að sögn Trausta sérstaklega fallegur á haustin,í skæmm rauðum og gulum litum. Hann kostaði 350 kr. og er mikið notaður sem stök planta, jafnvel innan um fjölærar plöntur. Ýmislegt í limgerði var til í Blóma- vali, t.d. gljávíðir á 80 kr., alaskavíðir á 30 og 50 kr. og viðja á 35 kr. Trausti sagði að bfátoppur væri vinsæll í lim- gerði nú orðið og hefði reynst vef bæði á Akranesi og Akureyri. Hægt er að móta blátopp skemmtilega með klippingu en hann er einnig mjög 2980 kr. skemmtifegur ef hann er látinn vaxa vilft, að sögn Trausta. Þá er enn ótaf- inn einn kostur blátoppsins og raunar annarra toppa. Vorhret skaðar þá ekki hið minnsta. Eins og í vor, er kulda- kastið kom eftir ótímabært vor, hafði það engin áhrif, topparnir sem byrjað- ir voru að bruma hættu vexti og biðu þangað til aftur hlýnaði og héldu þá áfram að vaxa. Birkiplöntur, 130 cm á hæð, kostuðu 180 kr. stk. og 85 cm plöntur kostuðu 130 kr. stk. Birkitré með hnaus, 2—214 m, kostaði frá 1000 kr. Loks voru þarna himinháar aspir, 3-4 m á hæð, og ko- stuðu 2980 kr. Þessar aspir eru 5-6 ára gamlar frá Haflormsstað. Tveggja metra aspir kostuðu 1800 kr. Þá sáum við dvergeplatré sem henta mjög vel í garðskála og kostuðu 1545 kr. Trausti sagði að þessi tré væru mjög viðráðanleg fyrir gróðurskála- eigendur og fulfvissaði okkur um að þau myndu bera ávöxt. 1 það minnsta vom þau flest alsett dásamlega falleg- um epfablómum sem ilmuðu stórkost- lega vel. Ýmislegt fleira var á boðstólum sem ekki er hægt að telja hér frekar. -A.BJ. VORB' LJÚFI OÐII SÁ MN lÁ " piltnlliiilllBi]!g^^mMi«.^gTV^.: ^ o_ _.+, . 'Up.i'.rimimCfU. . r. \ | ...„.-ícrMii i / JuJ y | ' -íi íifeí'S 4 1 :'v" ^ j&ÉJ ffíjml 1 /’Ts : y )(f\ X ; . ■ ' : \ / / v / \ - / A | f /\ i Æ ». Æ Jm / í i LJ \ —SM§liíl / jáf / J VORHAPPDRÆTTI SÁÁ r r DREGIÐ 10. JUNI UPPLAG MIÐA 100.000 Verslunarhúsnæði til leigu Til leigu ca 110 fm verslunarhúsnæði við Laugaveg (Hlemm). Laust strax. Möguleiki á margvíslegum rekstri. Upplýsingar í síma 82128. PANTANIR SÍMI13010 KREDIDKOR TAÞJÖNUS TA HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 SUMARSKÓR Póstsendum IÐNSKÓLINN f REYKJAVIK Innritun fyrir skólaárið 1987-1988 Innritun fer fram dagana 1 .-4. júní að báðum dögum meðtöldum. Innritað verður í eftirtalið nám: Ath: Siðasti innritunardagur 1. Samningsbundið iðnnám (námssamningur fylgi umsókn nýnema). 2. Grunndeild í bókagerð. 3. Grunndeild í fataiðnum. 4. Grunndeild í háriðnum. 5. Grunndeild í málmiðnum. 6. Grunndeild í rafiðnum. 7. Grunndeild í tréiðnum. 8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði. 9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun. 10. Framhaldsdeild í bókagerð. 11. Framhaldsdeild í hárgreiöslu. 12. Framhaldsdeild í hárskurði. 13. Framhaldsdeild í húsasmíði. 14. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði. 15. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun. 16. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun. 17. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði. 18. Almennt nám. 19. Fornám. 20. Meistaranám (sveinsbréf fylgi umsókn). 21. Rafsuðu. 22. Tæknibraut. 23. Tækniteiknun. 24. Tölvubraut. 25. Öldungadeild í bókagerðargreinum. 26. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og rafeinda- virkjun. Innritun fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík frá kl. 10.00 til 18.00 alla innritunardagana og í Miðbæjar- skólanum 1. og 2. júní. Öllum umsóknum nýnema fylgi staðfest afrit prófskír- teina. Iðnskólinn í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.