Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
íþróttir
„Leikurinn
var hrein
martröð ‘ ‘
- sagði Bjami Sigurðsson markvorður
MarK á þessu augnabliki hefði getað breytt gangi leiksins. Ómari Torfasyni
fellda myndin er táknræn fyrir darraðardansinn sem jafiian var í vítateig íslendin
Niðurl
I Lauj
— stærsti ósigur íslenska lam
Leikkerfið
hentar
ekki
Hörður Hilmarsson Valsmaður.
sem var í sigurliði íslands í rimm-
unní við A-Þjóðverja árið 1975. var
meðal áhorfenda í Laugardalnum
í gærkvöldi.
í spjalli við DV sagðist hann
finna til ósigursins með landsliðs-
strákunum. ..jiað er ekki erfitt að
setja sig í þeirra spor.“ sagði Hörð-
ur.
„Engu að síður skorti í þessum
leik þá baráttu sem hef'ur fleytt
liðinu vfir margan hjallann í gegn-
um tíðina." hélt hann áfram.
„l'aö vantaði rétt hugarfar í upp-
hafi. Að auki þvkir mér valið
leikkerfi ekki hento liðinu. Menn
spila ekki í þeim stöðum sem falla
best að leikstíl þeirra. Sigurður
Jónsson ieikur til að mvnda sem
bakvörður og sem slikur koma
fremur gallar hans í ljós en kostir.
Að mínu viti er engin ástæða til
annars en að skipa Amóri í sína
stöðu. á miðjunni, og lato þá Lárus
og l’étur um sóknina."
-JÖG
Svartasti
dagur
ferilsins
„Þetta var í einu orði sagt hrika-
legt. Spilið var í molum og eftir
þriðja markið hrundi þetto endan-
lega.“ sagði Gunnar Gíslason eftir
hið sárgrætílega tap í gærkvöldi.
„Sérhver maður getur spilað
helmingi betur en í kvöld en ég
hreinlega veit ekki hvað fór úr-
skeiðis. Ég hef enga atsökun fvrir
þessu stórtapi, þetta er áreiðanlega
svartosti dagur á ferli mínum sem
knattspymumanns. Það er ekki
laust við að maður hinkri við og
hreinlega hugsi sinn gang hvað
framtíðina varðar.“
-RR
Líktogað
spila við
Kýpur
„Þetta var óvenjulega léttur
leikur og það var eins og að spila
við Lúxemborg eða Kýpur,“ sagði
Jörg Stubner í hæðnistón eftir
leikinn í gær.
„Ég bjóst við íslendingum sterk-
um og grimmum og að leikurinn
yrði jafn og spennandi. Við komum
íslendingum hins vegar í opna
skjöldu strax í byrjun og refsuðum
þeim fyrir einbeitíngarleysið.“
-RR
„Þessi leikur var hrein martröð frá
fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,"
sagði Bjarni Sigurðsson, markvörður
íslenska liðsins, eftir tapið stóra í
gærkvöldi. Bjami mátti sækja boltann
sex sinnum í netið að baki sér. Slíkt
hefur aðeins einu sinni áður hent
markvörð íslenska liðsins hér heima
og var það í leik gegn Englendingum
árið 1963.
Sorglegt að svona ógæfa líti dags-
ljósið, sérstaklega með hliðsjón af
þeirri trú manna að slíkir ósigrar hljóti
að hevra sögunni til.
„A-Þjóðverjamir voru betri á öllum
sviðum í þetto skiptið," sagði Bjarni
og var eðlilega daufur.
„í raun er sorglegt hversu illa fór
með hliðsjón af þeim leikmönnum sem
við höfum á að skipa. Ég held að okk-
ar lið sé ekki síðra en það a-þvska í
sjálfii sér. 1 þessum leik skorti hins
vegar allan kraft. Vitanlega ætluðu
sér allir að vinna og gera vel en ekk-
ert varð síðan úr. Það virtist allt vera
á móti okkur, við fengum fleiri færi
en oft áður en þetta snerist allt í hönd-
unum á okkur.
Við verðum samt að halda haus þótt
svona hafi farið. Landsliðið á fleiri
leiki fyrir höndum og það verður að
horfa til framtíðarinnar þótt leikir tap-
ist,“ sagði Bjami að lokum.
JÖG
„Það verður að segjast eins og er
að við spiluðum ekki sem lið. Við
náðum ekki að sækja að neinu ráði.
Eg vil meina að við höfum fengið
fLeiri tækifæri í þessum leik en oft
áður en því miður tókst okkur ekki
að nýta þau sem skyldi, við hlutum
því að tapa. Einnig var vömin mjög
slök og eftir að þessi atriði eru talin
upp er ekki von á góðu.“
Þetta sagði Sigfried Held í samtali
við DV eftir að Islendingar höfðu
verið teknir í kennslustund af sterku
hði Austur-Þjóðverja. Leikurinn,
sem fór fram á Laugardalsvelli í
gærkvöldi, var liður í Evrópukeppn-
inni í knattspymu. Austur-Þjóðverj-
ar sigruðu, 0—H, og hefði sigur þeirra
hæglega getað orðið stærri.
Leita þarf áftur til ársins 1963 til
að sjá svona stóran skell á heima-
velli, það var gegn Englendingum
en sá_ leikur tapaðist með sama
mun. Úrslit leiksins voru að vonum
gífurleg vonbrigði fyrir 12 þúsund
áhorfendur. Þeir klöppuðu hins veg-
ar liprum Austur-Þjóðverjunum lof
í lófa í leikslok. Strax í upphafi leiks-
ins hófu A-Þjóðverjar mikla pressu
á íslenska markið. Sóknarmenn
þeirra voru liprir og snöggir og
gerðu oft usla í vöm íslenska liðs-
ins. Agengni þeirra kom íslenska
liðinu ósjaldan í opna skjöldu.
• A 15. mínútu skomðu Þjóðverj-
ar sitt fyrsta mark. Var Ralf Minge
þar á ferð og átti sá ekki í erfiðleik-
um með að koma boltanum í netið,
0-1.
Mínútu síðar sköpuðu íslendingar
sér ágætt tækifæri þegar Ómar
Torfason skallaði knöttinn inn í
vítateig Þjóðverja. Þar tók Amór
Guðjohnsená móti honum með hjól-
hestaspymu en boltinn fór rétt fram
hjá stönginni. Stuttu seinna átti
Pétur Pétursson máttlausan skalla
sem Muller markvörður varði.
• Síðan tóku Þjóðverjar aftur til
við að pressa og markið lá í loftinu.
A 36. mínútu er Thomas Doll aftur
á ferðinni og gefur fállega sendingu
inn í vítateiginn. Þar tekur Apdreas
Thom við knettinum og skorar með
hörkuskoti eíst í markið glæsilegt
mark, 0-2.
Undir lok fyrri hálfleiks áttu ís-
lendingar sitt hættulegasta tækifæri
í hálfleiknum. Pétur Pétursson gaf
fallega skallasendingu inn í víteig á
Ómar Torfason óvaldaðan, Ómar
rakti knöttinn aðeins áfram og lét
skot ríða af en Muller varði glæsi-
lega. Ef Ómari hefði tekist að skora
er aldrei að vita nema það hefði
breytt gangi leiksins íslenska hðinu
í hag.
Islenska hðið kom tvíeflt til leiks í
seinni hálfieik. Strax á annarri mín-
útu barst knötturinn inn í víteig
Þjóðveija, Atli Eðvaldsson var þar
vel staðsettur og hugðist taka við
boltanum. Fékk hins vegar bak-
hrindingú og féll við. Góður dómari
leiksins, Henning Lund Sörensen frá
Danmörku, dæmdi umsvifalaust
vítaspymu. Pétur Pétursson tók vít-
ið en spyrna hans var máttlaus og
Rene Múller markvörður varði án
erfiðleika.
• Á 49. mínútu skomðu Þjóðverj-
arnir síðan eftir aukaspyrnu.
Thomas Doll skoraði fram hjá
Bjama í markinu eftir hörmuleg
vamarmistök, 0-3.
Þremur mínútum síðar átti Sævar
Jónsson þrumuskot en Þjóðveijar
vörðu skot hans á marklínu.
• Á 23. mínútu fékk Andreas
Thom knöttinn rétt fyrir utan víta-
teig og engin hætta virtist á ferðinni.
Thom var hins vegar ekkert að tví-
nóna við hlutina, skaut fimaföstu
skoti að markinu. Boltinn fór í ís-
lenskan vamarmann, yíir Bjama
markvörð og í netið. Þar stóð Bjami
of framarlega í márkinu - því fór sem
fór, 0 4.
• Á síðustu fimm mínútum leiks-
ins bættu Þjóðverjar við tveimur
mörkum. Matthias Döschner skor-
aði fimmta markið og síðan full-
komnaði Andreas Thom þrennu sína
með sjötta markinu eftir að hafa
pijónað sig skemmtilega í gegnum
vöm íslenska liðsins.
Sigi Held .Leikslokin endurspeglast í hverjum andlits-
| drætti landsliðsþjálfarans. Stórt tap að baki en hvað tekur við?
DV-mynd GunSver _
„Eg er oríHaus
- sagði Amór Guðjohnsen eftir leikinn
áá
„Ég er orðlaus, úrslitin eru hrika-
leg og leikurinn er án tvímæla sá
versti sem ég hef spilað fyrir Ls-
land,“ sagði Amór Guðjohnsen í
gærkvöldi. Var hann með allra dau-
fasto móti enda ekki ástæða til
annars. *
„Við vorum æstir en samt ekki
nægjanlega ákveðnir til að gera vel.
Við spiiuðum alls ekki eins og við
erum vanir að gera.“
Amór toldi rót ófaranna ekki
liggja í leikerfi íslenska hðsins.
„Éf vel gengur þá verkar þetto
kerfi ágætlega. Því var til að mynda
beitt í jafiiteflisleikjunum við
Frakka og Sovétmenn í haust,“ sagði
Amór. „I kvöld komumst við hins
vegar aldrei í takt við það sem var
að gerast á vellinum."
-JÖG
• Markakóngur Belgíu var að von-
um daufur í gær.