Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987. 23 íþróttir 'ardal dsliðsins á heimavelli í 24 ár Athygli vakti að Ásgeir Sigurvins- son fór út af áður en leLktíminn var allur. Sagði Sigi Held þjálfari að því hefðu forráðmenn Stuttgart ráðið. „Ásgeir mátti mæta A-Þjóðverjum með því skilyrði að hann léki ekki allan tímann," sagði Held. Erfitt er að geta um frammistöðu einstakra leikmanna íslenska liðsins en þó er vert að nefna Sigurð Jóns- son, sem var sá eini sem barðist að einhverju marki, en hans framtak var bara ekki nóg. Aðrir leikmenn léku langt undir getu. Til að mynda sáust Ásgeir og Ragnar varla. Lárus Guðmundsson og Pétur Amþórsson komu inn á sem varamenn en sýndu htið. Það eru örugglega mai'gir sem setj- ast nú niður og leita orsakanna fyrir þessari útreið. Við stilltum upp okk- ar sterkasta liði, alls átta atvinnu- mönnum sem ætla má að séu í toppformi, en ekkert dugði til. Leik- menn þessir koma saman tveimur dögum fyrir landsleiki og gefur það augaleið að sá tími er engan veginn nægur til að hrista saman heilsteypt lið. Ónnur landslið fara í æfingabúð- ir á ári hverju. Þetta þarf hér ef við ætlum okkur einhvem hlut í keppni sem þessari. Vonandi setjast menn nú niður með uppbrettar ermar og fyrirbyggja að úrslit sem þessi líti dagsins ljós í framtíðinni. -JKS „Ótrúlegar lokatölur" - sagði Eldingin, Andreas Thom Eldingin a-þýska, Andreas Thom, gerði þrennu í leiknum í gær, var hann enda einn bestur maður á vellinum. Hraði hans er ótrúlegur og með hon- um lagði kappinn drögin að þessum stóra sigri A-Þjóðverjanna. Að vonum var Thom ánægður með afrek sitt með sama lagi og leik a- þýska liðsins í heild. „Ég verð nú að viðurkenna að þetta eru hreint ótrúlegar lokatölur,“ sagði Thom í spjalli við DV í búningsklefa eftir leikinn í gærkvöldi. „Vitanlega bjóst ég ekki við svona stórsigri. Islenska liðið var ótrúlega slakt og það brotnaði algerlega saman þegar staðan var orðin 3-0. Við geng- um þá á lagið og náðum mjög góðum leik. Það gekk hreinlega allt upp hjá okkur. Aðstæðumar voru samt erfiðar og völlurinn slæmur. Engu að síður var stórkostlega gaman að spila þenn- an leik og ég er glaður að a-þýska þjóðin fékk að njóta þess að horfa á leikinn í sjónvarpi." -RR •Andreas Thom fór hreiniega á kostum i gær. DV-mynd GunSver Staðan í 3. riðli Úrslit í gærkvöldi: ísland - A-Þýskaland.........0-6 Noregur - ÚSSR...............0-1 Staðan: Sovétríkin.........5 4 1 0 10-1 9 A-Þýskal...........5 2 2 1 8-2 6 Frakkland.........4 12 1 2-2 4 ísland.............5 0 2 3 1-11 2 Noregur............3 0 1 2 0-5 1 Markahæstir: Andreas Thom. A-Þýskal..........4 Igor Belanov, USSR.............3 Úrslit í riðlinum til þessa Island - Frakkland...........0-0 Ísland-USSR..................1-1 USSR - Noregui’..............4-0 A-Þvskaland - ísland.........2-0 Frakkland - USSR.............0-2 Noregur - A-Þýskaland........0-0 A-Þýskaland - Frakkland.......0-0 Frakkland - Island...........2-0 USSR - A-Þýskaland...........2-0 Stange huggaöi Held „Það verður að segjast eins og er að leikur íslenska liðsins kom mér mjög á óvart. Þetta var sama liðið sem lék svo vel gegn Sovét- mönnum og Frökkum - í dag var það gjörhreytt," sagði Bemd Stange, landsliðsþjálfari A-Þjóó- k verja, eftir leikinn. Hann átti erfitt með að dylja gleði sína en var þó prúður í framgöngu. Reyndi meira að segja að hugga Sigi Held á ganginum fyrir framan búnings- klefann. Þá hljóp hann upp í stúku þegar eftir leikinn vegna viðtals hjá a-þýska útvarpinu. Já, það var mikil gleði í herbúðum Þjóðveija. „Þetta var góður leikur hjá okk- ur. Leikmenn okkar em að ljúka tímabilinu og eru í góðu líkamlegu ástandi. Þá er ég með mjög ungt lið sem við bindum miklar vonir við í firamtíðinni þar eru til dæmis fimm leikmenn undir 20 ára aldri. Ég átti því ekki von á þessum úr- slitum.'1 Stange sagði að A-Þjóð- verjar hefðu enga möguleika í riðlinum - til þess væri forvsta og geta Sovétmanna of mikil. „Mér fannst Eðvaldsson bestur Islend- inga í f>Tri hálfleik en Siggi Jónsson bestur í þeim seinni." -SMJ Alger hiyllingur „Þessi leikur á sjálfsagt eftir að hafa slæm áhrif á íslenska knatt- spvrnu ef á heildina er litið," sagði Pétur Pétursson sem misnotaði. vítaspjTnu í gærkvöldi. „Það var alger hrvllingur að tapa þessum leik. 0-6. en kannski heppni að ekki skyldi hafa fiirið verr. Ég vil alls ekki kenna leik- skipulaginu eða þjálfaranum um þessar ófarir. Bjartsýnin varð okk- ur að falli að rnínum dómi." Pétur sagðist jafitframt hafa tek- ið mörg vítin og aldrei bilað. ..Ef fólk telur að vítið hafi ráðið úrslitum hlýt ég að taka sökina á mínar herðar." sagði hann. -JÖG MEÐ A HRINGVEGINUM GETRAUNASEÐILL SKILAFRESTUR ER TIL ÞRIÐJUDAGS 9. JÚNÍ. Sendist til 1. Verðlaun: Myndavél frá Ljósmyndaþjónustunni, Laugavegi 178, að verð- DV-FERÐABLAÐ mæti kr. 5.750,- Þverholti 11 2. Verðlaun: Sjónauki frá Gelli, Skipholti 7, að verðmæti kr. 2.890,- P.O. Box 5380 3. Verðlaun: 2 stk. filmur + framköllun frá Ljösmyndaþjónustunni, Laugavegi 125 Reykjavík 178, að verðmæti kr. 1.660,- 3C- A MYNDINNI SJAIÐ ÞIÐ? □ INGÓLFSFJALL □ ESJU □ HEKLU Nafn........ Heimilisfang Póstnúmer... Sími........

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.