Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
RÚV, rás 1, kl. 20.00:
Minningar úr skuggahverfi
Flutt verður í kvöld leikritið Minn-
ingar úr skuggahverfi eftir Erlend
Jónsson í leikstjóm Benedikts Áma-
sonar.
Leikritið hlaut 4. verðlaun í leikrita-
samkeppni Ríkisútvarpsins á síðast-
liðnu ári.
I umsögn dómnefhdar segir meðal
annars að leikritið sé góður fulltrúi
þeirra útvarpsleikrita sem leitast við
að lýsa mannlegum örlögum á hugljúf-
an og hljóðlátan hátt. í stuttu samtali
bregði höfundur ljósi á ævihlutskipti
tveggja einstaklinga, drauma 'þeirra.
vonbrigði og ósigra og vefi á fínlegan
hátt inn í leikinn þann boðskap að
engin nótt sé svo dimm að ekki komi
dagur á eftir.
Leikendur em: Margrét Guðmunds-
dóttir. Erlingui- Gíslason og Karl
Guðmundsson. Tæknimenn em
Hreinn Valdimarsson og Óskar Ing-
varsson.
Fimmtudagxir
4 júní"
Stöð 2
16.45 Guö getur beöiö (Heaven Can
Wait). Bandarisk gamanmynd með
Warren Beatty og Julie Cristie í aðal-
hlutverkum. Oft er talað um mannleg
mistök, en englum getur lika orðið á
í messunni. I fljótfærni nær einn þeirra
í ófeigan mann og tekur hann með til
himna. Þar verður uppi fótur og fit
þegar hið sanna kemur í Ijós.
18.20 Myndrokk.
19.00 Ævintýri H.C. Andersen. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lina. Áhorfendur Stöðvar 2
á beinni linu i síma 67 38 88.
20.25 Sumarliðir. Hrefna Haraldsdóttir
kynnir helstu dagskrárliði Stöðvar 2
næstu vikuna, virðir fyrir sér iðandi
mannlífið í höfuðborginni og stiklar á
menningarviðburðum. Stjórn upp-
töku: Hilmar Oddsson.
20.55 Dagar og nætur Molly Dodd (The
Days And Nights Of Molly Dodd).
Nýr bandarískur gamanmyndaflokkur
með Blair Brown, William Converse-
Robberts, Allyn Ann McLerie og
James Greene í aðalhlutverkum.
Fjallað er um margslungið lif hinnar
ungu, gáfuðu og aðlaðandi Molly
Dodd á gamansaman hátt. Molly er
fráskilin og fasteignasali að atvinnu.
En líf hennar er enginn dans á rósum.
Fyrrverandi eiginmaður Mollyar, sem
er afdankaður jassleikari, hefur ekki
alveg sagt skilið við hana og býður
sjálfum sér i mat með reglulegu milli-
bili. Móðir Mollyar á þá ósk heitasta
að verða amma og er sífellt að angra
Molly með því. Yfirmaður hennar og
fyrrverandi elskhugi hótar í sífellu að
stytta sér aldur og lyftuverðinum í hús-
inu hundleiðast Ijóðin sem Molly
skrifar.
21.25 Dagbók Lyttons (Lytton’s Diary).
Nýr breskur sakamálaþáttur. Neville
Lytton er sá slúðurdálkahöfundur sem
á hvað mestri velgengni að fagna á
Fleet stræti. Hann er þvi hataður og
dáður I senn. En frama hans er ógnað
þegar i Ijós kemur að ein besta grein
hans til þessa er uppspuni frá rótum.
Lögsókn fylgir í kjölfarið og er staða
Lyttons og orðstír að veði. Til þess að
bjarga sér frá falli leitar Lytton heimild-
armenn sína uppi að nýju. Hann kemst
að því að hann var sjálfur fórnarlamb
samsæris en spurningin er hvort hægt
sé að birta sannleikann.
22.15 i hita nætur (Still Of The Night).
Hörkuspennandi bandarisk kvikmynd
frá 1982 með Meryl Streep, Roy
Scheider, Jessica Tandy og Joe Griif-
asi i aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Robert Benton. Niður skuggalegt
stræti læðist bilaþjófur fram með bíla-
röðinni. Hann reynir hverja hurðina á
fætur annarri uns ein þeirra opnast og
út fellur blóðugt lík! Sálfræðingur einn
flækist inn i málið þegar upp kemst
að líkið er af einum sjúklingi hans. Öll
bönd beinast að ástkonu hins myrta
og er hún einnig sjúklingur sálfræð-
ingsins. Hann laðast að konunni og
reynir að hjálpa henni. Við það þarf
hann að horfast í augu við morðingj-
ann.
23.45 Flugumenn (I Spy). Nýr banda-
rískur njósnamyndaflokkur með Bill
Cosby og Robert Culp í aðalhlutverk-
um. Tveir þrekmiklir og dugandi
bandarískir njósnarar fela sitt rétta and-
lit á bak við tennisíþróttina. Starfssvið
þeirra eru alþjóðlegar njósnir og þegar
þeir komast i hættu er það oft kímni-
gáfa þeirra ásamt kunnátta í júdói og
karate sem bjargar þeim. Þættirnir eru
teknir upp í mörgum löndum og gefa
raunverulegan blæ af heimi njósnara.
Bill Cosby hlaut verðlaun fyrir leik sinn
i þessum þáttum og var í raun upp-
götvaður á þessum tíma.
00.35 Dagskrárlok.
Útvarp rás I
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 i dagsins önn. * Viðtalið. Umsjón:
Asdis Skúladóttir. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. mánudagskvöld kl.
20.40) ^
14.00 Miódegissagan: „Fallandi gengi"
ettir Erich Maria Remarque. Andrés
Kristjánsson þýddi. Hjörtur Pálsson les
(30).
14.30 Gömul dægurlög.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Ekki er til setunnar boðið. Þáttur
um sumarstörf og fristundir. Urnsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir. (Frá Egilsstöð-
um) (Endurtekinn þáttur frá sunnu-
degi)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Siódegistónleikar. Rögnvaldur
Sigurjónsson og Gisli Magnússon
leika íslenska píanótónlist. a. Tilbrigði
eftir Pál isólfsson við stef eftir isólf
Pálsson. b. Þrjú pianólög op. 5 eftir
Pál isólfsson. c. „Idyll" og Vikivaki
eftir Sveinbjhörn Sveinbjörnsson.
17.40 Torgiö. Umsjón: Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldlréttir
19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endur-
tekinn þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson flytur.
19.40 Aö utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni.
20.00 Leikrit: „Minningar úr Skugga-
hverfi" eftir Erlend Jónsson.
20.50 Gítartónlist. Pétur Jónasson leikur
tónlist eftir Jaspar Sanz, Eyþór Þor-
láksson, Fernando Sor, Hafliða Hall-
grimsson og Heitor Villa-Lobos.
(Hljóðritað á tónleikum i Norræna
húsinu 1. október 1985)
21.30 Skáld á Akureyri. Fyrsti þáttur:
Matthias Jochumsson. Umsjón: Þröst-
ur Asmundsson. (Frá Akureyri)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Tvær skáldkonur og bækur þeirra.
Fjallað um „Timaþjófinn" eftir Stein-
unni Sigurðardótturog „Einsog hafið"
eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. Umjón:
Sigmar B. Hauksson.
23.00 „Musica antiqua". Eva Nássén,
Camilla Södereberg, Helga Ingólfs-
dóttir, Olöf Sesselja Oskarsdóttir og
Snorri Örn Snorrason flytja gamla tón-
list. (Hljóðritað á tónleikum i Lang-
holtskirkju 14. april 1985)
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn
Stefánsson. (Endurtekinn þáttur frá
morgni)
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
Stjaman FM 102,2
14.00 Stjarnan ter i loftiö. Kynning með
nokkrum sem starfa við stöðina.
16.00 Bjarni Dagur Jónsson stjórnar tón-
listarþætti og kannar viðhorf hlustenda
til nýju stöðvarinnar.
19.00 Helgi Rúnar Óskarsson leikur tónlist.
21.00 íslenskir hljómlistarmenn kynna eig-
in tónlist.
22.00 Örn Pedersen stjórnar viðskipta-
þætti. Einnig verður fjallað urn ferða-
mál.
Utvaip rás II
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Leifur
Hauksson, Guðrún Gunnarsdóttir og
Gunnar Svanbergsson.
16.05 Hringiöan. Umsjón Broddi
Broddason og Erla B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2. Gunnar
Svanbergsson og Georg Magnússon
kynna og leika 30 vinsælustu lögin.
22.05 Tiskur. Umsjón: Katrin Pálsdóttir.
23.00 Kvöldspjall. Stefán Jökulsson
sér um þáttinn
-00.10 Næturvakt Útvarpsins. Gunnlaug
ur Sigfússon stendur vaktina til
morguns.
Fréttir eru sagðar klukkan 9.00, 10.00,
11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp
Akureyii
18.03 Svæöisútvarp tyrir Akureyri og ná-
grenni. - FM 96,5. M.a. er leitað svara
við spurningum hlustenda og efnt til
markaðar á Markaðstorgi svæðisút-
varpsins.
Bylgjan FM 98,9
12.00 Fréttir.
12.10 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki
er i fréttum og leikur létta hádegistón-
list. Fréttir kl. 13.
14.00 Ásgeir Tómasson og siðdegispopp-
ið. Gömul uppáhaldslög og vinsælda-
listapopp i réttum hlutföllum. Fjallað
um tónleika komandi helgar. Fréttir kl.
14, 15 og 16.
17.00 Ásta R. Jóhannesdóttir i Reykjavik
siðdegis. Asta leikur tónlist. litur yfir
fréttirnar og spjallar við fólkið sem
kemur við sögu. Fréttir kl. 17.00.
18.00 Fréttir.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóamark-
aöi Bylgjunnar. Flóamarkaður og
tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00 Sumarkvöld á Bylgjunni.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Valdis
Oskarsdóttir. Tónlist og upplýsingar
um veður og flugsjmgöngur.
fllfa FM 102,9
13.Ö0 Tónlistarþáttur með lestri úr Ritning-
unni.
16.00 Hlé.
20.00 Bibliulestur I umsjón Gunnars Þor-
steinssonar.
21.00 Logos. Stjórnandi: Þröstur Stein-
þórsson.
22.00 Fagnaðarerindiðflutt i tali og tónum.
Miracle. Flytjandi: Aril Edvardsen.
22.15 Siðustu timar. Flytjandi: Jimmy
Swaggart.
12.00 Hádegið i góðum hondum Skúla
Gautasonar.
13.30 Siðdegi í lagi hjá Omari Péturssyni.
17.00 Marinó V. Marinósson með gamla
og góða tónlist fyrir alla.,
19.00 Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar. Leik-
in verða tiu vinsælustu lögin sem valin
voru á þriðjudaginn.
20.00 Guddli og Gassi spila plötur úr eig-
in söfnum.
22.00 Gestur E. Jónasson í stofu Hljóð-
bylgjunnar með góðu fólki.
23.30 Dagskráin klárast með góðri tónlist.
00.30 Dagskrárlok.
■39
Veðrid
Norðan- og norðaustangola eða kaldi,
súld eða rigning við ströndina norðan
og austanlands en skúrir á víð og dreif
í öðrum landshlutum. Hiti 4-8 stig
norðantil á landinu en 9-13 syðra.
Akureyri súld 7
Egilsstaðir þokur. 6
Galtarviti súld 5
Hjarðarnes skúr 7
Kcflavikurfhigvöllur alskýjað 8
Kirkjubæjarkiaustur rigning 7 r
Raufarhöfn súld 5
Reykjavik súld 8
Sauðárkrókur skýjað 8
Vestmannaeyjar úrkoma 7
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen þokur. 8
Helsinki rigning 8
Kaupmannahöfn rigning 11
Osló léttskýjað 2
Stokkhólmur skýjað 11
Þórshöfn skýjað 6
Útlönd kl. 12 í gær:
Algarve léttskýjað 28
Amsterdam þokumóða 15
Aþena heiðskírt 20
Barcelona skýjað 20
Berlín þokumóða 15
Feneyjar þokumóða 21
(Rimini 'Lignano) Frankfurt skýjað 17*
Hamborg skúr 14
LasPalmas heiðskírt 28
(Kanaríeyjar) London skúrir 15
Los Angeles mistur 18
Lúxemborg skúrir 14
Miami skýjað 30
Madrid skýjað 26
Malaga heiðskírt 31
Mallorca skýjað 21
Montreal skúr 23
Xeiv York alskýjað 17
Xuuk alskýjað 5
Paris skýjað 18
Róm skýjað 20 *■
Vin skúr 17
Winnipeg léttskýjað 13
Valencia léttskýjað 24
Gengið
Gengisskráning nr. 103-4. júni
1987 kl. 09.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 38.840 38.960 38.990
Pund 63,165 63.361 63.398
Kan. dollar 28.980 29.069 29.108-<r
Dönsk kr. 5.6773 5.6949 5.6839
Xorsk kr. 5.7707 5.7886 5.7699
Sænsk kr. 6.1276 6.1466 6.1377
Fi. mark 8.7963 8.8235 8.8153
Fra. franki 6.3895 6.4092 6.4221
Belg. franki 1.0308 1.0340 1.0327
Sviss. franki 25.8589 26.9387 25.7615
Holl. gyllini 18.9565 19.0151 18.9931
Vþ. mark 21.3641 21.4301 21.3996
ít. lira 0.02951 0.02960 0.02962
Austurr. sch 3.0404 3.0498 3.0412
Port. escudo 0.2736 0.2745 0.2741
Spá. peseti 0.3067 0.3076 0.3064
Japansktyen 0,26972 0.27056 0.27058
írskt pund 57.190 57.367 57.282
SDR 50.0860 50.2412 50.0617
ECU 44.2815 44.4183 44.3901
Simsvari vepna gengisskráningar 22190.
LUKKUDAGAR
4. júní
16572
Hljómplata frá
FÁLKANUM "
að verðmæti
kr. 800.-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
________________