Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
Fréttir
Bíll þjófsins Það komst upp um eggjastuldinn þegar bíllyklarnir týndust
og eggjaþjófurinn leitaði aðstoðar fálkaeftirlitsmanns. DV-mynd JGH
Austurrískur eggja-
þjófur gripinn
- fékk 25.000 krónur í sekt
Jón G. HaukssanJDV, Akureyn:
38 ára gamall Austurríkismaður
hefur játað stuld á 14 andareggjum í
Mývatnssveit. Lögreglan handtók
manninn í ívrrakvöld. Eggin voru í
sérútbúnum hitakassa. Maðurinn seg-
ist ekki hafa komið áður til Islands
en hitakassinn ber þess merki að hafa
komið til landsins áður. Austurríkis-
maðurinn er frá smábænum Rust og
starfar á vinnuvélum.
Það er broslegt hvernig upp komst
um stuldinn. Maðurinn týndi bíllykl-
um sínum og bað Hauk Hreggviðsson,
fálkaeftirlitsmann í Mý\’atnssveit, um
aðstoð við að opna bíldvrnar. Haukur
sá hvers kyns var og lét lögregluna
vita. Eggjaþjófurinn var í Mývatns-
sveit í gær til að sýna lögreglunni
hvar hann hefði tekið eggin. Eggin
sem maðurinn tók eru 2 flórgoðaegg,
en þau eru mjög sjaldgæf, 5 rauð-
höfðaegg og 7 toppandaregg. Fimm-
tánda eggið segist hann hafa fengið
gefins hjá bónda og er búið að sann-
reyna það.
Sakadómur Húsavíkur tók málið
fyrir í gærkvöldi. Því lyktaði með
dómssátt og 25.000 króna sekt sem
greidd var á staðnum. Austurríkis-
maðurinn á að mæta til útlendingaeft-
irlitsins á morgun og verður líklega
sendur til Austurríkis um helgina.
Öll eggin sem hann tók eru friðuð
með þeirri undantekningu að bændur
mega nytja þau svo fremi sem stofninn
er ekki í hættu. Bannað er að flytja
eggin úr landi.
Maðurinn játaði að hafa tekið eggin
og ætlað að flytja þau úr landi og
unga þeim út. Nú eru eggin orðin of
köld og enda sjálfeagt á safni.
Mesta magn hassolíu
sem fundist hefur
Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi
vegna smygls á um 750 grömmum af
hassolíu til landsins. Einn þremenn-
inganna hafði í morgun áfiýjað
gæsluvarðhaldsúrskurðinum til
hæstaréttar.
Fíkniefnadeild lögreglunnar hand-
tók mennina þrjá, tvo Islendinga og
einn Breta, með mikið magn af hass-
olíu seint að kvöldif hvítasunnudags.
Lögreglan hafði fylgst með íslending-
unum vegna gruns um að þeir væru
viðriðnir fíkniefnasmygl. Islending-
amir voru handteknir þegar þeir voru
að yfirgefa Hótel Loftleiðir en þar gisti
Bretinn. Við leit á þeim fundust 600
grömm af hassolíu. í kjölfar þess var
Bretinn handtekinn en við leit fannst
ekkert á honum. Var hann sendur í
röntgenmyndatöku, kom þá í ljós að
ekki var allt með felldu. Eftir dvöl hjá
lögreglu gengu niður af manninum
verjur sem höfðu að geyma 150 grömm
af hassolíu.
Bretinn, sem var nýkominn frá Lon-
don, mun hafa smyglað efninu til
landsins með því að gleypa veijur,
fylltar með hassolíu. Sonur annars Is-
lendingsins var síðan handtekinn í
Manchester í Englandi aðfaranótt
miðvikudags. Sá er grunaður um að
hafa útvegað hassoliuna í Marokkó
og fengið Bretann til að smygla efninu
hingað til lands.
Islendingamir tveir, sem handteknir
vom hér, em þrjátíu og sextíu ára
gamlir, þeir ásamt Bretanum hafa nú
verið dæmdir í 30 daga gæsluvarðhald.
Ekki er enn ljóst hvort farið verður
fram á framsal íslendingsins sem
handtekinn var í Mancester. íslend-
ingurinn, sem handtekinn var ytra,
og annar íslendingurinn, sem hand-
tekinn var hér, hafa áður komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar.
Þetta er mesta magn af hassolíu sem
fíknieffialögreglan hefur lagt hald á í
einu til þessa. Smyglaðferðin, sem not-
uð var til að koma efninu til landsins,
getur verið lífshættuleg. Dæmi em til
erlendis um að menn hafi látið lífið
ef verjumar rifna. -sme
Misjöfh öryggis-
gæsla sameigin-
leg ákvörðun
„Við getum sagt að það sé hvort
tveggja, að íslensk stjómvöld séu
samþykk því, miðað við söguna, að
þörf á öiyggisgæslu sé misjöfh eftir
ráðherrum, en því er ekki heldur að
neita að beiðnir um sérstaka gæslu
hafa komið frá sumum ríkjanna,"
sagði Hjálmar W. Hannesson hjá
utanríkisráðuneytinu í morgun þeg-
ar hann var inntur eftir því hvers
vegna öryggisgæsla væri svo áber-
andi misjöfh við komu utanríkisráð-
herra NATO-ríkja til íslands.
Það vakti athygli í gærkvöld að
öryggisgæsla var ákaflega mikil og
stíf við komu George Shultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, til
Keflavíkur. Fjölmargir bandarískir
leyniþjónustumenn og öryggisverð-
ir, þeirra á meðal sérstakur
sprengjusérfræðingur, sem leitar að
sprengjum í öllum farartækjum sem
ráðherrann ferðast í, vom á flugvell-
inum fyrir lendingu vélar ráðherr-
ans. Þá var á flugvellinum fjöldi
íslenskra lögregluþjóna, bæði ein-
kennisklæddir og óeinkennisklædd-
ir, þeirra á meðal vopnaðir ríkislög-
reglumenn. Þeir höfðu meðal annars
það hlutverk að leita í pússi fulltrúa
Sölmiðla og athuga sérstaklega
hvort myndavélar væru myndavélar
en ekki dulbúin vopn. Þegar ráð-
herrann var lentur steig hann ekki
heldur út úr vélinni fyrr en öryggis-
verðir höfðu gengið endanlega úr
skugga um að engin hætta væri á
ferðum.
Með Shultz í flugvélinni var belg-
íski utanríkisráðherrann. Upphaf-
lega var þeim ætlað að aka í sömu
bílalest til Reykjavíkur en á síðustu
stundu var henni skipt, að því er
virðist að kröfu Bandaríkjamanna.
Ekki er vitað hvort það var af örygg-
isástæðum eða öðrum orsökum.
Við komu norska utanríkisráð-
herrans, Thorvald Stoltenberg, til
Reykjavíkurflugvallar í gærdag
kvað við nokkuð annan tón. Örygg-
isgæsla var engin, sást ekki svo
mikið sem einn hvítur lögreglu-
mannskollur. Norðmaðurinn beið
heldur ekki eftir neinu landgöngu-
leyfi heldur gekk úr vélinni um leið
og dyr voru opnaðar, brosmildur, og
lýsti því yfir að það væri gott að
koma til íslands.
Eins og komið hefur fram í fréttum
er öryggisgæsla við fund ráðherr-
anna, einkum við Hótel Sögu,
gífurleg. Jafnvel svo að nokkrir
starfsmanna NATO segjast ekki
muna eftir jafnstrangri gæslu.
Meðal þeirra sem gegna öryggis-
gæslu við fundinn eru björgunar-
Mikil umsvif voru við komu George Shullz, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og fjölmargir öryggisverðir, bæði islenskir og bandariskir, við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. DV-myndir JAK
sveitarmenn og hefur það vakið hennar vakti að sjálfsögðu athygli
athygli að þeir eru þar mættir í sveit- bandarísku öryggisvarðanna, en
arbúningum sínum, stökkunum reyndist af saklausum toga spunnin.
góðu, tilbúnir til leitar. íslensk Var þetta vél sem Flugleiðir höfðu
stjómvöld munu ekki hafa séð tekið á leigu til að anna flutningum,
ástæðu til að búa þá út með klæðnað vegna bilunar á einni af þotum fé-
sem minnt gæti meir á öryggisgæslu. lagsins. Þotan var leigð í London
Hafa menn leitt getum að því að og mun uppmni hennar hafa valdið
þeir séu þama enda einungis ef ein- Flugleiðamönnum ofurlitlum heila-
hver ráðherranna skyldi týnast. brotum þess efnis hvort rétt væri að
Þá vakti það athygli að skömmu láta hana lenda hér um svipað leyti
fyrir komu Shultz á Keflavíkurflug- og utanríkisráðherrar NATO-ríkja.
völl lenti þar flugvél frá flugfélaginu Niðurstaðan varð þó sú að slíkt
Middle East Airlines, sem hefur höf- gaeti varla skipt máli, svo úr varð
uðstöðvar sínar í Líbanon. Koma kyndug tilviljun. -HV
sem hvitur kollur.
Þannig leit skrifborð biskups út eftir brunann. DV-mynd JAK
Bruninn á heimili biskups:
Ýmsir ómetanlegir
munir eyðilögðust
„Eldurinn kom upp í vinnustofu
minni og tjónið varð þar. Það varð
verulegt tjón, einkum á bókum, skjöl-
um og handritum. Flestar bækumar
em mikið skemmdar," sagði Sigur-
bjöm Einarsson biskup í samtali við
DV, en eldur kom upp i vinnustofu á
heimili hans á Reynigmnd 67 í Kópa-
vogi um kvöldmatarleytið á þriðjudag.
Ókunnugt er um eldsupptök.
„Skrifborðið mitt sem er verðmætt
er líka illa farið. Það urðu sem betur
fer engin meiðsli, ég fékk aðeins ör-
litla bmnabletti og h'tilsháttar reyk-
eitrun," sagði Sigurbjörn.
Hann var fluttur á sjúkrahús vegna
reykeitrunarinnar. „Þeir vildu hafa
mig hjá sér í nótt og gefa mér súr-
efni,“ sagði hann í gær.
„I vinnustofúnni vom ýmsir ómetan-
legir munir, en það liggur víst fyrir
okkur öllum að skilja við þetta hvort
eð er og segja mú að ekki sé óeðlilegt
að þessir hlutir hverfi smátt og smátt.
En þetta voru hlutir sem kallaðir em
óbætanlegir og ekki er hægt að fá
aðra slíka í þeirra stað,“ sagði hann.
„En það verður margur fyrir meira
tjóni við sambærilegar aðstæður,"
sagði Sigurbjörn Einarsson biskup.
-ój