Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
Viðskipti_
Villti laxinn 75%
en eldislaxinn í
dýrari
París
- vel borgað fyrir skötubörð og skötuselshala
Hull
Mb. Þorri landaði í Hull 4. júní. alls
90 lestum, fyrir kr. 4,5 millj., meðalv.
kr. 49,06. Mb. Hrungnir landaði einnig
í Hull 5. júní 87 lestum fyrir kr. 3.9
millj.
Grimsby
Mb. Vöttur landaði í Grimsby 9. júní.
Bv. Engey landaði í Grimsby þriðju-
dag 9. júní og miðvikudag 10. júní.
Áætlaður afli var 250 lestir. Ekki var
vitað um aflaverðmæti þegar þetta er
ritað en markaðurinn hefúr verið í
allakasta lagi að undanfórnu.
England
Seldur fiskur út gámum fvrstu vik-
una í júní í Englandi.
Sundurliðun Seltmagn kg Söluverð ísl. kr. Kr. kg
Þorskur 38.215 1.792.540 46,91
Koli 245 12.010 49,02
Grálúða 10 444 44,48
Blandað 19.676 765.145 38,89
Samtals: 58.146 2.570.141 44,20
Mb. Þomi seldi í Grimsby 8. júní
Sundurliðun Seltmagn kg Söluverð ísl. kr. Kr. kg
Þorskur 9.375 441.383 47,08
Ýsa 24.750 1.272.933 51,43
Ufsi 2.062 62.909 30,50
Karfi 312 9.531 30,50
Blandað 2.875 95.190 33,11
Samtals: 39.375 1.881.948 47,80
Sundurliðun Seltmagn kg Söluverð ísl. kr. Kr. kg
Þorskur 272.520 14.576.461 53,49
Ýsa 267.338 14.979.201 56,03
Ufsi 54.505 1.739.873 31,92
Karfi 23.990 608.754 25,38
Koli 84.369 5.037.571 59,71
Grálúða 71.280 3.707.329 52,01
Blandað 114.068 6.905.771 60,54
Samtals: 888.072 47.554.969 53,55
Lax uppalinn i náttúrunni þykir enn betri matur en eldislax - og þess vegna
fæst mun meira fyrir hann. Hafbeitarstöðvar njóta góðs af þvi. Hérna er
Pétur í Kjötbúrinu við Laugaveginn með einn nýgenginn.
Spánn
I Fiskaren 3. júní segir meðal ann-
ars: Vegna verkfalla togarasjómanna
á Norður-Spáni hefúr borist minna að
af þorski en verið hefði ef eðlilegt
ástand hefði verið á útgerð. Segir blað-
ið að útgerðarmenn telji sig hafa tapað
4000 milljónum peseta á verkfallinu.
Telur blaðið að tapast hafí 12.000 tonn
af þorski miðað við venjulegar vorver-
tíðarveiðar eða allt að 60% af ársveið-
inni 1987.
Blaðið segir að Norðmenn verði að
vara sig á því að senda slæman lax á
markaðinn en borið hafi á því að mið-
ur góð vara hafi verið á boðstólum og
kaupendur hafi jafnvel skilað aftur
laxi sem þeir hafi keypt. Telur blaðið
þetta mjög slæma auglýsingu fyrir
norskan lax. Þennan dag bárust á
markaðinn alls tæp 400 tonn. Það sem
einkennt hefúr markaðinn að undanf-
ömu er hið mikla framboð af lýsingi
en af honum hafa verið um 45 tonn
daglega. Verð á þorskflökum hefur
verið 160 til 180 kr.
Fiskmarkadimir
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur 10-12 Ib.Lb
óbund.
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11-15 Sb
6mán. uppsögn 12 20 Ib
12 mán. uppsogn 14 25.5 Sp.vél.
18mán. uppsogn 22 24.5 Bb
Ávisanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-7 Sp
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 1.5-2 Ab.Bb,
Lb.Sb.
Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2,5-4 Ab.Úb
Innlán meo sérkjörum 10-22
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur * 5.5-6.5 Ib
Sterlingspund 7.5-10 Vb
Vestur-þýsk mork 2,5-3.5 Ab.Vb
Danskar krónur 9-9.5 Ab.Sb,
Sp.Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 21 24 Bb.Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 24-26 eða kge
Almenn skuldabréf 21.5 25 Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningaríyfirdr.) Útlán verðtryggð 21.5-25 Úb
Skuldabréf
Aö2.5árum 6.Ö-7.5 Lb
Til lenari tima 6.75-7.5 Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 18.5-24 Ab
SDR 7.75-8 Bb.Lb,
Úb
Bandarikjadalir 8-9 Sb
Sterlingspund 10,25-11.5 Lb
Vestur-þýsk mork 5.25-5.75 Bb.Lb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-6.75
Dráttarvextir 33,6
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júni 1687 stig
Byggingavísitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. apríl
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 110kr.
Eimskip 248 kr
Flugleiðir 170kr
Hampiðjan 114 kr.
Iðnaðarbankinn 134 kr
Verslunarbankinn 116 kr
Úgerðarf. Akure. hf. 150 kr.
Skagstrendingur hf. 350 kr
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla
gegn 24% ársvöxtum, Samv.banki 25% og
nokkrir sparisj. 26%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast í DV á fimmtudögum.
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir
15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65-69 ára geta losað innstæður sínar
með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán-
aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða
fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með
8% vöxtum.
Þríggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verótryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eöa almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggöar. Nafnvextir eru
15,5% og ársávöxtun 15,5%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 10% en
2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt-
ar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi
er 13.64% á fyrsta ári. Hvert innlegg er með-
höndlað sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst
óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar
um þrjá mánuði ef innleggið er snert. Á þriggja
mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxt-
un þriggja mánaða verötryggðs reiknings, nú
með 1% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist
færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangeng-
in tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækk-
anir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með
20% nafnvöxtum og 21 % ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings
meö 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Vextir færast misserislega.
Metbók er meö hvert innlegg bundiö í 18
mánuði á 24,5% nafnvöxtum og 26% ársávöxt-
un, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með
3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg
er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru
færðir misserislega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 20% vexti með 21%
ársávöxtun á óhreyfðri innstæöu. Verötryggð
bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða fresti er
borin saman verðtryggð og óverðtryggð ávöxt-
un og gildir sú sem hærri er. Heimilt er að taka
út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfð-
ar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka
vexti, nú 0,75% á mánuði, og verðbætur reikn-
ast síðasta dag sama mánaðar af lægstu inn-
stæðu. Vextir færast misserislega á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er með 22%
ársvöxtum og 23,3% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 20%
nafnvöxtum og 21.0% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæðu frá siðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greiðast 21,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 22,4%) eftir 16 mánuði og
22% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 23%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verótryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær-
ast misserislega á höfuðstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 12%, eftir 3 mánuði 17%, eftir 6
mánuði 21%, eftir 24 mánuöi 22,5% eða árs-
ávöxtun 23,8%. Sé ávöxtun betri á 3ja eöa 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn. Vextir færast á höfuð-
,,aái.aQ&,flfl.aua------------------- --------
Ingólfur Stefánsson
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 22%
nafnvexti og 23,2% ársávöxtun á óhreyföri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum,
nú 17,72% (ársávöxtun 18,36%), eða ávöxtun
3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir
í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al-
mennir sparisjóðsvextir, 10%, þann mánuð.
Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta
árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar
glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36
mánuöi tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn-
aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun
kemst þá í 19,49-22,93%, samkvæmt gildandi
vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða, sem er óhreyfö í heilan
ársfjóröung, nýtur kjara 6 mánaða bundins
óverötryggs reiknings, nú meó 20,4% ársávöxt-
un, eða 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt-
un fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara”. Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæö, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæöa reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk-
an dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfalls-
legar veróbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán-
uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn.
Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða-
birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur
áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt-
um skilyróum.
Sparisjóöir: Trompreíkningur er verðtryggö-
ur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með
3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur oröinn 3ja
mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með
svökölluðum trompvöxtum, 22,5% með 23,8%
ársávöxtun. Miðað er við lægstu innstæðu í
hverjum ásfjórðungi. Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæóan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóð$vexti, 9%. Vextir fær-
ast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð-
tryggða en á 25,5% nafnvöxtum og 27,1%
ársávöxtun. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum,
borin saman viö óverötryggða ávöxtun, og ræö-
ur sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta
dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn-
stæðu bundna í 18 mánuöi óverðtryggöa á 24%
nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun eða á kjörum
6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú meó 3.5%
vöxtum. Vextir færast á höfuöstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað,
Eyrarbakka, og Sparisjóður Reykjavíkur, bjóða
þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggö með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggö eóa óverðtryggð og
meö mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviöskipta eru 20%. Þau eru seld með
afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16%
umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins
getur numið 2.562.000 krónum á 2. ársfjórð-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.793.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.793.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.255.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til allt aö 40 ára og verðtryggð.
Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins
verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir
af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóöir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og með 5-6,75% vöxtum.
Lánstími er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og
lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta-
vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en
nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í veróbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6
mánuöi. Þá verður upphæöin 1050 krónur og
ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6
mánuðina. Á endanum verður innstæðan því
1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 2,8% á mánuði eða 33,6%
á ári.
Vísitöiur
Lánskjaravisitala í júní 1987 er 1687 stig
en var 1662 stig í maí. Miöað er við grunninn
100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1987 er
305 stig á grunninum 100 frá 1983.
Húsaleiguvisitala hækkaði um 3% 1. apríl.
Þessi visitala mælir aðeins hækkun húsaleigu
þar sem við hana er miðað sórstaklega í samn-
ingum leigusala og leigjenda. Hækkun visi-
tölunnar miðast við meðaltalshækkun; launa
næstu þrjá mánuöi á undan.
^MMMMMMMMMMMMWMMMMnM
París
Svo vitnað sé í Fiskaren áfram þá
segir blaðið að á markaðinn í París
hafi borist 549 lestir af fiskafurðum
3. júní. Þar af var um að ræða 111
lestir af innfluttum fiski, inest frá
EB-löndunum. Verð var gott: Þorskur,
smár, kr. 127 til 160, meðalstór þorskur
kr. 159 til 190 kílóið, ufsi kr. 83 til 101
kílóið, skötubörð kr. 139 til kr. 190
kílóið, skötuselshalar kr. 241 til 320,
nánast sama verð á innfluttum sem
innlendum, meðalstórir skötuselshal-
ar kr. 267 til kr. 400 kílóið.
Norskur lax kr.
1 til 2 kg kr. 267
3 til 4 kg kr. 352
4-5-6 kg kr. 458
Skoskur, villtur lax
kr. 449 til 700 kg
Skoskur eldisl.
kr. 348 til 450 kg
kr. 340 til 450 kg
New York
í fréttum, sem hér hafa verið teknar
úr norska blaðinu Fiskaren, segir um
markaðshorfur í USA. Við vestur-
ströndina hefur verið slæmt veður að
undanförnu og flotinn hefur legið í
höfn. Floti fiskimanna við vestur-
ströndina er að mestu smábátar og
þegar kominn er 20-30 hnúta vindur
geta þeir ekki stundað veiðamar. Sá
afli, sem komið hefúr á land þessa
bræludaga, er lélegur og varla mark-
aðstækur. Verð á norskum og skosk-
um laxi hefúr vorið nokkuð gott
síðustu dagana.
Verð á rækju frá vesturströndinni
er: Rækja, sem þarf minna en 350 stk.
í kílóið, kr. 400, 350/500 í kg kr. 360
kg, rækja, 500 og stærri, kr. 300 kílóið.
Norskur lax á Fultonmarkaði kr. 450
til 490 kílóið.
Mjög svipað verð er á markaðnum
í Boston. Munur á verði og stærð er
að fyrir hvert kíló, sem laxinn stækk-
ar, munar kr. 10 á kílói.