Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Page 9
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
9
Utlönd
Fólk reynir aö komast í gegnum röð herlögreglumanna til aö komast nær
messu páfa. Simamynd Reuter
Keppni verdur haldin laugardaginn 13. júní ef veður leyfir.
Keppendur mæti fyrir kl. 12.00. Keppni hefst kl. 14.00.
Ef rígnir er keppni frestaö til sunnudags eða næstu helgar.
Stjórnin.
Afrakstur leiðtoga-
fundarins þykir rýr
Fréttaskýrendur telja flestir að af-
rakstur . fundar leiðtoga sjö helstu
iðnríkja heims, sem staðið hefur yfir
í Feneyjum undanfama daga, hafi ve-
rið fremur rýr. Þykja lokayfirlýsingar
fundarins um efhahagsmál og anriað
lítið afgerandi og ekkert nýtt eða veru-
lega áhugavert boðað í þeim.
Það sem talið er merkast af niðm--
stöðum fundarins er að leiðtogarnir
komu sér saman um samhæfingu á
nokkrum atriðum sem gefið geta til
kynna ef efnahagsmál heimsins em
að fara eitthvað út af sporinu.
Deilur milli leiðtoganna urðu litlar
en þó helstar vegna mótmæla Banda-
ríkjamanna gegn því að iðnaðarþjóðir
skuldbindu sig til þess að auka þróun-
araðstoð við snauð ríki.
Fundur leiðtoganna endaði næstum
með ósköpum þegar hvorki Reagan
Bandan'kjaforseti né Mitterrand, for-
seti Frakklands, komu á réttum tíma
til lokaathafnar fundarins. Reagan
kom fimm mínútum eftir að athöfnin
hófst og Mitterrand tveim mínútum
síðar.
Þá hrjáði það athöfnina að allt raf-
magn fór af byggingunni þar sem hún
var haldin, rétt við upphaf hennar.
Raunar notaði Reagan forseti og hans
menn myrkrið, sem bilunin olli. til
þess að læðast í sæti sín.
Það vakti athygli fréttamanna við
athöfhina að margir af leiðtogunum
virtust hlusta með takmarkaðri at-
hygli á Fanfani. forsætisráðherra
Italíu, þegar hann las upp lokavfirlýs-
ingu fundarins. Þykir það ef til vill
segja meira en flest annað um gildi
hennar.
Lík Jaime Extrenadoyro sem er einn þeirra 15 sem herinn í Perú hefur skotið
fyrir að hlíta ekki útgöngubanni. simamynd Reuter
KVARTMILA
Utgöngubann
bitnar á sak-
Það vakti athygli viðstaddra á lokafundum leiðtogafundarins í Feneyjum að Reagan Bandarikjaforseti tók inn lyf
meðan á fundunum stóð. í Ijós kom að forsetinn hafði fengið húðsmit vegna skordýrabits og var á lyfjum til aö
hreinsa það upp. Simamynd Reuter
lausum borgurum
Síðan í febrúar 1986 hafa 15 saklaus-
ir borgarar verið skotnir til bana af
hemum í Lima, höfuðborg Perú. I
flestum tilvikum hefur verið um það
að ræða að hermenn hafa verið að
framfylgja útgöngubanni sem sett var
til að sporna við vaxandi hryðjuverk-
um vinstri sinna í landinu. í seinni tíð
hafa hermennimir þótt gerast helst til
of skotglaðir, skjóta. fyrst og spyrja
svo. Eins konar „umboðsmaður stjórn-
arskrárinnar" hefur lýst yfir áhyggjum
sínum vegna þessarar þróunar og ráð-
herra hermála segir að ráðstafanir
hafi verið gerðar til að koma í veg
fyrir frekara dráp á saklausum.
Á nætumar er Lima sem draugaborg
og jafnvel þeir sem hafa sérstaka næt-
urpassa veigra sér við að vera á ferli.
Bílstjórum er ráðlagt að keyra á um
20 kílómetra hraða og hafa gluggana
opna til að heyra örugglega ef þeim
er skipað að stöðva.
Þrátt fy'rir allt virðist sem ekki dragi
úr árásum skæruliða heldur þvert á
móti að þær hafi aukist.
Róstur við
messu páfa
Jóhannes Páll páfi hvatti í gær, á
þriðja degi heimsóknar sinnar í Pól-
landi, pólsk stjórnvöld til að uppfylla
stefnumið hinna bönnuðu bændasam-
taka Einingar og gaf í skyn að stjórn-
völd í Moskvu kæmu enn í veg fyrir
að von hans um að heimsækja Lett-
land rættist.
Róstur urðu milli lögreglu og nokk-
ur hundmð ungmenna í Kraká en þau
stefndu í átt til messu páfa með mót-
mælaspjöld á lofti. Fjöldi mótmælenda
var handtekinn og sjónarvottar sögðu
að lögreglumaður hefði særst er flug-
eldum var skotið í átt ,að lögreglu.
. iwiíí v>< 08 v,j tlíiii nnríJ íiKnoy
.flll'i m inJCQrj