Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
13
Neytendur
Gamlir
bílar
uppí
nýja
Töluvert hefur borið á því að bíla-
umboð hérlendis auglýsi að þau taki
gamla bíla upp í verð nýrra og hafa
margir tekið þessari þjónustu fegins
hendi.
Einn heimildarmanna okkar sem
þekkir vel til í bílabransanum sagði
okkur að yfirleitt gæfu umboðin um
20% lægra verð íyrir endursölubif-
reiðar heldur en fá mætti á aimennum
markaði.
Þetta væri þó ekki með öllu illt því
þannig mætti sleppa við allt skulda-
bréfafarganið því bíllinn væri hrein-
lega tekinn upp í sem greiðsla á nýjum.
Þetta væri öllum ljóst sem færu út í
slík viðskipti og gætu þeir því valið
um hvom háttinn þeir hefðu á.
En eftir hverju skyldu umboðin fara
við mat á gömlum bifreiðum? Við ák-
váðum að gera athugun á þessu.
Við höfðum samband við Jöíur h/f,
en það er eitt umboðanna sem býður
þessa þjónustu. Þar var fyrir svörum
sölumaður, Sjöfn að nafni. Sagði hún
að þessu væri þannig háttað að fyrst
væri athugað hverrar gerðar bíllinn
væri og hvort um of dýra tegund væri
að ræða.
„Síðan er pöntuð söluskoðun á verk-
stæði, og er bíllinn metinn út frá
ástandi vélar, kílómetraíjölda, lakki,
dekkjum og o.s.frv. Því næst bjóðum
við í hann.“
Sjöfn staðfesti að verðið væri um
20% lægra með þessu móti. Væri þá
reiknað með að staðgreiðsluverð væri
þetta lægra, en í gangverði væri yfir-
leitt reiknað með afiollum vegna
skuldabréfa, en þau munu nema um
20%. ;
En hver skyldi vera skoðun F.Í.B. á
málinu? Við snerum okkur til Andra
Amasonar héraðsdómslögmanns, en
hann er lögfræðilegur ráðgjafi sam-
takanna.
„Þetta eru að mörgu leyti eðlilegri
viðskiptahættir heldur en þegar fólk
er að standa í þessu sín á milli. Þetta
skapar líka visst öryggi því menn
sleppa við allt víxla- og skuldabréfa-
vafstur.“
Það kom einnig fram í máli Andra
að á almennum markaði eru afíoll u.þ.
b. 15% í skuldabréf, þóknun til
sölumanns o.fl. Þannig kæmi þetta
svipað út, en mertn fengju þó nýjan
bíl um leið og þeir aíhentu þann
gamla. Þannig væru þetta eðlilegir
viðskiptahættir jafhvel þótt eitthvað
hefði borið á misnotkun í einstaka til-
fellum.
VIKAN
HRESST BLAÐ VIKULEGA
Verður
rigninga-
sumar?
Iri ætlar sér
að beina
rigningunni
til Íslands
Ásgerður
Ásgeirsdóttir
og Sæmundur
Pálsson
Saman
í megrun
Skömmuð
fyrir of
rnikla
sjálfs-
gagnrýni
Guðný
Ragnarsdóttir
í Vikuviðtalinu
'i , " I§f Sumar-
^ ' lyfting
með
. ■ á ■ fagfólki
Nafn Vikunnar:
-PLP