Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
3
Fréttir
Lottóvélin bilaði i beinni útsendingu
„Kom flatt
upp á okkur“
- segir Þorgeir Ástvaldsson
„Venjulega hefur unnist tími fyrir
fréttir til að yfírfara hvort allt sé
ekki í stakasta lagi en svo var ekki
nú. Þó sýndu öll Ijós og merki að
allt vœri í lagi. Það kom siðan í ljós
að það hafði gleymst að snúa einum
aðalrofanum rétt,“ sagðí Þorgeir
Ástvaldsson, er hann var spurður
hvers vegna 'lottóvélin hefði ekki
farið af stað í beinni útsendingu á
laugardagskvöldið.
„Sem betur fer voru starfsmenn
sjónvarpsins fljótir að setja hlémerk-
ið á skjáinn en ég get ekki þrætt
fyrir að þetta kom mjög flatt upp á
okkur. Það er alltaf svolitið erfitt
að lenda í slíku í sjónvarpi því mað-
ur verður að halda andlitinu. Mér
var þó hlátur efst í huga, sennilega
vegna taugaveiklunarinnar," sagði
Þorgeir ennfreraur.
Hann sagði að von væri á annarri
vél til landsins og myndi þetta atvik
flýta fyrir því að hún yrði tekin í
notkun. „í salnum með okkur er allt-
af viðstaddur fulltrúi borgarfógeta-
embættisins og hann er með
innsiglaða tösku með kúlum í. Ef
vélin hefði ekki farið aftur í gang
hefðum við notað þá aðferðina en
þá hefði fúlltrúinn þurft að rjúfa
innsiglið í beinni útsendingu og færa
kúlumar með hönskum yfir í plast-
poka. Það hefði þá komið í hfut
stjómendanna að draga fimm kúlur
úr pokanum.“
- Er þessi vél þá eitthvert drasl?
„Nei, vélar eins og þessi eru notað-
ar víða um heim og viðurkenndar.
Mér er ekki kunnugt um hvað hin
hefúr fram yfir þessa en hún á að
vera eitthvað betri."
- Er ekki hætt víð að fólk efist um
leikinn ef vélin á það til að bila?
„Nei, það held ég ekki. Það er fylgst
vel með öllu í sambandi við drátt-
inn, bæði frá borgarfógetaembætt-
inu og íslenskri getspá. Ég er
stundum spurður að þvi hvort við
getum ekki komið þvf þannig fyrir
að heppilegar tölur komi upp. Það
er náttúrlega engin leið til þess.
Kerfið á að vera alveg pottþétt. Ég
vissi ekki heldur til þess að nokkur
viðbrögð hefðu komið upp hjá sjón-
varpinu vegna þessa,“ sagði Þorgeir.
Þess má geta að einn aðih var með
heppnina með sér í þetta skiptið og
fékk í sinn hlut rúmlega 1,7 milljón-
ir króna. -ELA
Enn leitað að húsnæði fyrir Málningu hf.
Hafa tvennt í sigtinu
„Við erum ennþá að leita að hús-
næði undir starfsemina. Við höfum
tvennt í sigtinu en ætlum að skoða
fleira á morgun," sagði Stefán Guðjo-
hnsen, forstjóri Málningar hf.
Stefán sagði að verið væri að leita
að 1500 fermetra húsnæði og leitað
væri í Reykjavík, Kópavogi og Hafii-
arfirði. „Við þurfum að hafa húsnæðið
á leigu í um 2 ár en þá vonumst við
eftir að endurbyggingu eftir brunann
verði lokið.“ -JFJ
Flugstöðm rýmd vegna
bilunar í hljóðkerfi
- góð æfing, að sógn lögreglunnar
Brunakerfi nýju flugstöðvarinnar
fór í gang á annarri hæð hússins í
gærmorgun, á mesta annatíma flugs-
ins. Er talið að um bilun í hljóðkerfi
hafi verið' að ræða. Heyrðist rödd
Gunnars Eyjólfssonar leikara sem
sagði frá ástandi mála og hvar og
hvemig væri best að koma sér út úr
flugstöðvarbyggingunni. Viðvörunin
var gefin á þrem tungumálum, ís-
lensku, ensku og þýsku. Allir héldu
stillingu sinni og voru með eindæmum
rólegir. Að sögn lögreglunnar i nýju
flugstöðinni eru þessi nýju tæki mjög
næm og það má varla falla á þau ryk-
kom til þess að þau fari ekki í gang.
Talið er að um 1000 til 1500 manns
hafi verið staddir í flugstöðinni þegar
neyðarkerfið fór af stað og tókst að
rýma flugstöðina á innan við hálftíma.
Ekki var nauðsyn að það gerðist skjót-
ar vegna þess að sams konar kerfi, sem
mælir hita og er í samspili við hljóð-
kerfið, sýndi ekki á sér neina hreyf-
ingu.
Mikil flugumferð er á þessum tíma
sólarhrings og var því hér um góða
æfingu að ræða, sagði lögreglan enn-
fremur.
Alls em fimm lögreglumenn á vakt
yfir daginn í flugstöðinni og þrír á
nóttinni, auk slökkviliðsins, sem er að
sjálfsögðu tiltækt allan sólarhringinn.
Einnig munu tollverðir og annað
starfslið vera þjálfað í að bregðast við
í svona tilfellum. -GKr.
Flugstöð Leifs Eirikssonar.
ERÞETTA
B(KI
RÉTTASPO
FYRIRÞIC
Ef þú hefur áhuga á að myndbandstækið þitt endist
betur er mikið atriði að spólurnar, sem þú notar, séu í
háum gæðaflokki. Er þá bæði átt við bandið sjálft og
kassann utan um. PANASOIMIC PREMIUM STD
myndbandsspólan sameinar báða þessa gæðaþætti og
er því kjörinn valkostur þeirra sem vilja meiri upptöku -
gæói og betri endingu tækjanna.
VERÐ AÐEINS KR. 595.
ClJAPIS
BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133.