Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 28
40 MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVlK LAUSAR STÖÐUR Á vegum Svæðisstjórnar málefna fatlaðra í Reykjavík taka bráðlega til starfa vistheimili og sambýli fyrir fatl- aða. Okkur vantar því fólk til starfa, einkum þroskaþjálfa, sjúkraliða eða fólk með sambærilega menntun. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af með- ferðarstarfi með fötluðum og þekki fjölþætt markmið þess. Laun skv. kjörum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 31. júlí nk. til Svæðisstjórnar. Nán- ari upplýsingar í síma 62 13 88. Svæðisstjórn málefna fatlaöra Hátúni 10-105 Reykjavík. STÚLKAN SÖKNUÐUR 30x40 cm í stramma. 30x40 cm. ÁN GARNS: 700 KR. - MEÐ GARNI: 1270 KR. Vorum að taka upp mikið úrval af strömmum. Smyrnateppin komin. Nýir litir í Mamsell og Rosett garni. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT. HANNYRnAVFRfiLIININ ÓÐINSGÖTU 1 SÍMI 13130 Úrval af fallegum ítölskum á mjög góðu verði. í útileguna jafnt sem í veisluna. Italskir gæðaskór frá KATRIN - margar gerðir. Verð kr. 2.450,- PÓSTSENDUM. Skóbúðin Lipurtá, Borgartúni 23. Sími 29350. Skóbúðin Snorrabraut 38. Sími 14190. Merming_________________ Vaxtar-Verk Ljósmyndir Svölu Ólafsdóttur í Djúpinu Djúpið, áður vinsælt gallerí, nú ámóta vinsæl jassbúlla, hefur alla burði til að verða gott afdrep fyrir íslenska ljósmyndara sem hafa lengi þurft á sýningaraðstöðu að halda. Takmarkað rými á staðnum trygg- ir náin kynni áhorfenda og ljós- mynda og dempuð birta og kastljós sjá til þess að hver ljósmynd fær þá athygli sem hún verðskuldar. Ég held að jasstónlist fari heldur ekkert illa við ljósmyndir. Þó má enn bæta lýsinguna, gera hana skilvirkari. Ekki veit ég hvort húsráðendur í Djúpinu eru sérstaklega hallir undir ljósmyndun, alltént hafa nokkrir ís- lenskir ljósmyndarar sett þar upp sýningar að undanfómu. Guð láti gott á vita. Svala Ólafsdóttir heitir sú sem nú á þama ljósmyndir, 18 talsins. Hún hefur að undanfömu verið í námi í ljósmyndun í San Francisco. Mér SVALA SÝNÍR Plakat af sýningu Svölu Ólafsdóttur. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson segir svo hugur að ljósmyndirnar á sýningu hennar séu skólaverk það- an. Þær em að minnsta kosti þessleg- ar, sýna námfúsan nemanda leysa margs konar verkefrii: í nektarljós- myndun, í ljós-og-skugga kompositi- on, í andlitsmyndagerð og loks í „skapandi ljósmyndun". í flokki þeirra síðastnefndu er sennilega myndröðin „Vaxtar-verk“ sem er í lit. Öll þessi verkefhi leysir Svala kunnáttusamlega af hendi en einnig fremur ópersónulega, eins og sá sem er ekki enn farinn að leggja höfuðið að veði. Fái Svála áframhaldandi aðhald, hvort sem það er í formi skólunar, opinberrar gagnrýni eða sjálfsgagn- rýni, held ég að hún eigi eftir að gera sig gildandi í íslenskri ljós- myndun. -ai Að kasta fyrsta steininum Gægjugat eftir Gunnar Hersvein Tunglið (eigin útgáfa) 1987, 21 Ijóð Útlit bókarinnar er þokkalegt, en þó finnst mér hálfgerður fioimbýl- ingsbragur á því að prenta aðeins öðrum megin á blað. Sérkennileg kápumynd er eftir Ólaf Samúelsson. 1 þessum ljóðum ber nokkuð á þeirri hlutgervingu manna, sem ég nefiidi nýlega að einkenndi ljóð margra hinna yngstu skálda, sálarlíf fólks er sýnt með því að lýsa hlutum sem það notar. Þannig er titill eftir- farandi ljóðs tvíræður, bæði ber að taka hann bókstaflega og einnig táknar orðalagið að einhver sé tæp- ur, í mikilli hættu, en það á einnig vel við. Á bláþræði Hangir á bláþræði í stofuskotinu hirðuleysisleg í klæðaburði með úfið hár, snúna löpp og brotinn handlegg. Óttast skuggann sem vafði hana örmum á nætumar klæddi og kom henni á ról skuggann sem skutlaði henni í skúmaskotið skuggann og sorpaugað á stigaganginum. Ljóðið hefst á mynd sem gæti alveg verið af konu, en lesendur átta sig skjótt á því að hér er verið að tala um brúðu, en „skugginn" er bamið sem á hana. Eftir fyrsta erindið kem- ur ævisaga brúðunnar í þremur liðum sem verða hliðstæðir vegna endurtekningar orðsins skugginn. Ljóð er knappt og hnitmiðað, þannig er þessi saga einskorðuð við þrjú meginatriði; ást og umhyggju sem birtist í faðmlögum og vísun í sign- ingarversið sem bömúm er kennt; „Nú er ég klæddur og kominn á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól“ o.s.frv. Annar liður segir frá því að brúð- unni er skyndilega hafnað, og 3. liður sýnir geigvænlega framtiðina. Bókmenntir Örn Ólafsson Styrkur ljóðsins liggur einnig í tvi- ræðninni; eins og bamið meðhöndl- ar brúðuna sem barn, þá getur flest í lýsingu brúðunnar átt við örlög manns eða konu. Annað ljóð sækir styrk sinn að verulegu leyti í haglega vísun i Bibl- íuna, sem flestum lesendum mun að sönnu óljós endurminning. En það skýrir þessa einkennilegu mynd: Stytta Á fjallinu stendur hún sem stytta og starir uppí himininn. Ég kasta fyrsta steininum og gifsið brotnar af henni. Vatnið fossar útum augun niður nakinn líkamann og hún stingur sér í straumharða ána sem ber hana í burtu. Steinrunnin hverfum við sjónum hennar. Hér er það orðalagið „kasta fyrsta steininum" sem rifjar upp sögu af því að siðavandir menn ætluðu að grýta hórkonu (Jóh. 8,3-11), en Jesús sagði: „Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum. Varð þá eng- inn til þess, en þeir sem það gera í þessu ljóði em eðlilega sýndir sem steinrunnir, fastir í viðteknum skoð- unum. En sú sem fyrir grjótkastinu verður losnar úr slíkum álögum. Hversvegna? Um aðra konu, ber- synduga, sagði Jesú (Lúk. 7, 47): „hinar mörgu syndir hennar em fyr- irgefnar, því hún elskaði mikið“. Með öðrum orðum; hún lifir af lífi og sál, andstæða steinrunninna kon- formista. Orðin: „Vatnið fossar útum augun“ minnir í senn á tár hennar og á fossinn, sem hún væntanlega fer niður. Aftur er þetta nokkuð vel heppnað ljóð, samþjappað og sér- kennilegt. Önnur hrifu mig kannske minna, en em ekkert slök. Við skul- um að lokum líta á ljóð þar sem tómar mótsagnir draga upp mynd af innantómu lífi, eftirsókn eftir hé- góma er unnin fyrir gýg: Fötin skapa manninn Eftir að hafa ferðast kringum heiminn lesið óskrifaðar bækur horft á svartan sjónvarpsskjá og haldið orðlausar ræður um hvað honum finnst sest hann í helgan stein flettir tómu myndaalbúmi um stund og les af auðum síðum dagbókanna sem hann skrifaði sjálfur Vikiiii FÆST Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.