Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987. Tilkyrmingar Stuðkompaníið skýjum ofar Stuðkompaníið. sem sigraöi á Músíktil- raununt 'S7. hefur nú hlióðritað fjögur lög sem komin eru út á hliómplötunni Skvium ofar. Stuðkontpaniið hlióðritaði tónlist sína1 í Hlióðrita undir stiórn Gunnars Smára Helgasonar i jtinímánuði sl. Lögin eru öll fruntsamin af bræðrunum Karli og Atla Örvarssyni en flestir textar eru eftir Karl. Lögin fjögureru Tunglskinsdansinn. Allir gerðu gys að mér. Hörkutól stíga ekki dans og Hér er ég tallir syngia meði. Stuðkompaníið er fimm manna sveit: Karl Örvarsson. söngvari og leikur auk þess á saxafón. Örvarr Atli Örvarsson. leikur á hljómborð og trontpet auk þess að syngia bakraddir. Magni Friðrik Gunnarsson annast gitarleik og söng. -Jón Kiartan Ing- ólfsson er bassaleikari og svngur ennfrem- ur radriir og Trausti Már Ingólfsson ber bumbur og þenur raddböndin að auki. Stuðkompaníið er frá Akureyri og hefur verið starfrækt í nintt ár. Nýlega er komin út kassetta með lögum plötunnar á ann- arri hliðinni og tónlist Greifanna af plötunni Sviðsmynd á hinni. Ctgefandi er Steinar hf. Eldri borgarar í stuttri lýðháskóladvöl í Danmörku Skólaganga er ekki lengur forréttindi unga fólksins. Endurmenntun fólks á öll- um aldri eykst sífellt og gerist með ýmsum hætti. Nú er eldri borgurum boðið að dveljast tvær vikur í sumar á lýðháskóla i Danmörku og kynnast þar siðum. menn- ingu og sögustöðum. Námskeiðið verður 6. 19. ágúst í Vrá-lýðháskólanum á Jót- landi. 20 íslendingar komast þar að en auk þess verða nemendur frá Svíðþjóð og Nor- egi. Fararstjórar verða þau sr. Lárus Halldórsson og Dónthildur Jónsdóttir. safnaðarsvstir í Hallgrímssókn. en heimá- menn í Vrá annast fræðsludagskrána sem að siáifsögðu er miðuð við reynslu og að- stæður eldra fólks. Aðstoð verður veitt við túlkun ef þarf. Ferðákostnaður verður kr. 33.000. Af því er flugferðin kr. 10.000 en fæði. gisting. aðrar ferðir og leiðsögn kr. 17.000. Dómhildur Jónsdóttir veitir nánari upplvsingar og annast skráningu í síma 39965. SÉRKORT SPECIAL MAP SPESIALKART SPE2IALKARTE HÚSAVÍK / MÝVATN LANDMÆUNGAR ÍSIANDS ísland og Evrópubandalagið Öryggismálanefnd hefur gefið út ritgerð eftir Gunnar Helga Kristinsson stjórn- málafræðing og ber hún lieitið ísland og Evrópubandalagið. I ritgerðinni er fiallað um ýmis atriði tengd samskiptum íslands við Evrópubandalagið. Eftir inngöngu Portúgala og Spánveria í bandalagið 1986 er Island háðara Evi-ópubandalaginu um utanríkisviðskipti sín en nokkurt hinna Norðurlandanna fyrir utan Noreg og mun Bókin utan vegar Bókrún hf.. útgáfufélag. hefur gefið út ljóðabók sem nefnist Bókin utan vegar eftir Steinunni Eyjólfsdóttur. orta í minn- ingu sonar hennar sem lést af slysförum. Bókin utan vegar er 50 bls. kilja í litlu broti. I henni eru 19 ljóð sem höfundur- inn. Steinunn Eyjólfsdóttir. fylgir úr hlaði með tileinkuninni ..Til allra foreldra sem missa börnin sín af slysförum. Og til allra hinna. Þessi ljóð yrkir hún í minningu sonar síns. Leifs Dags Ingimarssonar. sem lést 4. maí 1984. Guðrún Svava Svavars- dóttir listmálari hefur gert teikningar við nokkur ljóðanna. Ctlit og hönnun bókar- innar sá Elísabet Cochran um. setning og umbrot fór fram í Leturvali. filmuvinna og prentun hjá Grafík og band annaðist Félagsbókbandið. Þetta er fimmta bók höfundar. Bókin L'tan vegar er í litlu upp- lagi og er hluti þess tölusettur og áritaður af höfundi. I Reykjavík er bókin til sölu hjá bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og Máli og Menningu auk Forlagsins. Ennfremur á fáeinum bóksölustöðum úti á landi. Spakmælið Að vera viðbúinn er mikils virði, aó kunna að bíða er meira virði, að gæta hins rétta augnabliks er alls virði. A.Schnitzler. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð við andlát og útför INGU NILSEN BECK frá Reyðarfirði. Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og öðru starfsfólki á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað. Kristinn Beck Kristní Beck og fjlöskylda I gærkvöldi Björk Haraldsdóttir, nemi í arkitektúr: Útvarpsrásimar fýrir neðan allar hellur ..Ég horfi ntjög lítið á sjónvnrp enda hef ég takmarkaðan áhuga á flestu því seni þaö hefur upp á að bjóða. Ef ríkissjónvarpið sýndi meira fi'á lista- og menningárlífi og svo auðvitað eitthvað tun arkitektúr þá myndi viðhorf mitt kannski breytast og ég tæki upp á því að sitja fyrir framan kassann á kvöldin. Stöð 2 fær alveg að vera í friði fvrir mér því enginn afruglari er á heimilinu. Ég horfi heldiu- ekki á óruglaða hlutann þannig að ég veit í raun ekkert imi dagski'á hennar. Annai-s finnst mér að fólk ætti að gera meira að því að fá sér góða göngutúra og fara eitthvað út í nátt- úruna. í staðinn fyrir að hanga yfir vonlausu sjónvarpi. Það lyftist á mér brúnin við að fá allar þessar útvarpsrásir og ég hélt að nú yrði loks hægt að finna eitt- hvað fi'rir alla. En hvílík vonbrigði. Björk Haraldsdóttir. Tónlistin á öllum rásunum er fyrir neðan allar hellur. Það er eins og þeir eigi aðeins um 50 plötur sem svo eru spilaðar aftur og aftur, liggur við í sömu röð. Ef ég mætti koma með smáráð þá myndi ég ráðleggja þáttargerðamönnum að gefa vin- sældalistunum aðeins írí og líta t.d. á Underground listann í Bretlandi. Því þrátt fyrir ungan aldur eru þess- ar rásir allar orðnar feriega þreyttar. Slúðurfréttimar á Stjömunni em eina viðleitnin til að gera eitthvað öðmvísi og það er alltaf af hinu góða. Ég er fór í bíó um daginn og sá Platoon sem er magnþrungin mynd. Samt sem áður finnst mér búið að þurrausa þennan stríðsmyndamark- að. Svo verð ég að minnast á kvikmyndina Betty Blue sem verið er að sýna núna. Þessi mynd er al- veg frábær. Það ættu allir að splæsa 200 kr. og skella sér á hana.“ háðara því en það hefur verið nokkrum einstökum markaði á lýðveldistímanum. Þetta felur m.a. í sér að ákvarðanir sem teknar eru innan bandalagsins hafa sífellt meiri áhrif á íslandi. Ritgerðin er í fjölriti og er 125 bls. að stærð. Hún er til sölu í helstu bókaverslunum en má einnig fá i póstkröfu frá skrifstofu Öiyggismála- nefndar. Laugavegi 26. Greifarnir gefa út hljómplötu Hliómsveitin Greifarnir senda nú frá sér sína aðra hljómplötu sem kallast Sviðs- mynd. A plötunni eru lögin Ast. Framan við sviðið og Frvstikistulagið. Fjórða lagið sem platan geymir nefnist Þyrnirós. Greif- arnir hafa verið önnum kafnir allt frá því í júníbyrjun við tónleika og dansleikja- hald. Þess má geta að efni plötunnar Sviðsmynd kemur einnig út á kassettu og mun tónlist Stuðkompanísins vera á ann- arri hliðinni en tónlist Greifanna á himii. Steinar hf. gefa plötu Greifanna út. Sérkort af Húsavík/Mývatn Nýtt sérkort. Húsavík/Mývatn. í mæli- kvarðanum 1:100.000. er komið út hjá Landmælingum Islands. Á kortinu eru sýnd öll helstu útivistarsvæði í nágrenni Húsavíkur og Mývatns. eins og Ásbyrgi. þjóðgarðurinn vestan Jökulsár á Fjöllum og Dettifoss. svo dæmi séu nefnd. Kortið fæst bæði flatt og brotið í kortaverslun Landmælinga Islands. Laugavegi 178, og á öðrum helstu útsölustöðum korta. Fleiri sérkort eru komin út í mælikvarðanum 1:100.000. svo sem kort er sýnir gönguleið- ir á Hornströndum og í Skaftafelli. Til eru önnur sérkort. m.a. Þórsmörk/Land- mannalaugar. Þingvellir, Hekla, Mývatn, Vestmannaeyjar og Suðvesturland. Einnig eru komnar út 23 nýjar útgáfur af Atlas- blöðum í mælikvarðanum 1:100.000. I kortabúðinni að Laugavegi 178 fást auk þessara sérkorta önnur kort er gefin hafa verið út hjá stofnuninni. Einnig fást öll helstu ferðakort á um 200 útsölustöðum um land allt. Hverítu iiákvæmar eru 3pár fiskifræftíngs Tölvfín velur pakkningarnsr Soffaníaa Cecilsson í viötali Kvótasala - Kvótakaup Sjávarfréttir, 2. tbl. 1987, eru nýkomnar út. Meðal efnis í blaðinu er: Siðleysi eða eðlileg viðskipti? Úttekt Sjávarfrétta á eðli og umfangi við- skipta með óveiddan fisk í sjónum, m.ö.o. kvótasölu. f>á er í blaðinu grein þar sem kannað er hversu góðir spámenn fiski- fræðinnar eru. „Lögbrot ráðherranna hafa kostað mig tugi milljóna“ er yfirskrift gustmikils viðtals við Soffanías Cecilsson, útgerðarmann og fiskverkanda í Grundar- firði og formann Sambands fiskvinnslu- stöðvanna. Fjallað er um tölvuforrit sem Reiknistofa Háskóla íslands hefur gert og kemur á markað á næsta ári. Þá er í Sjáv- arfréttum grein um flatfiska eftir Gunnar Jónsson fiskifræðing, íjallað um nýja út- tekt Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins á arðsemi lifrarniðursuðu. Stærsta laxeld- isstöð landsins, íslandslax hf., heimsótt og Vilhjálmur Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Vogalax, ritar um markaðsmál eldisfisks og möguleika íslendinga í því efni. Ritstjóri Sjávarfrétta er Guðjón Ein- arsson en útgefandi Frjálst Framtak hf. Flateyri: Nýr Esso-skáli Nyi Esso-skalinn a Flateyri. DV-mynd Reynir Traustason Reynir Traustasan, DV, nateyri: Nýlega var opnaður nýr Esso-skáli á Flateyri. Skálinn stendur við inn- keyrsluna í bæinn og þykir mörgun prýði af. Hjónin Guðjón Jónsson og Jóhanna Snæfeld reka skálann fyrir eigin reikning. I stuttu spjalli við DV kvaðst Jó- hanna mjög ánægð með nýja skálann sem er um 100 fermetrar að stærð, en gamli skálinn sem var eins konar gestaþraut fyrir ferðafólk að finna neðst á Eyrinni var helmingi minni, eða um 50 fermetrar. Auk þess að selja bensín og allar algengustu bílavörur bjóða þau hjón upp á allt helsta svokallaða „sjoppu- fæði“. Skálinn er opinn frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 23 á kvöld- in og kvaðst Jóhanna myndu kapp- kosta að veita sem besta þjónustu. Hornafjorður: Heilsugæslustöðinni gefin eymasmásjá Júlia huslaitd, DV, Hofn; Nýlega barst Heilsugæslustöðinni á Höfn eymasmásjá að gjöf frá Lions- klúbbi Hornafjarðar. Þessi smásjá kemur að góðum notum á margan hátt, til dæmis við athugun á eyma- sjúkdómum, fíngerðum og nákvæmum saumum, einnig við að ná aðskota- hlutum úr auga eða holdi. Lionsmenn á Höfn hafa áður fært Heilsugæslustöðmni röntgentæki, framköllunarvél, sjúkraþjálfunar- bekk, augnskoðunartæki og eyrna- mælingartæki. Eymasmásjáin kostaði 220 þúsund og afhenti Hákon Valdimarssön, for- maður LKH, Stefáni Finnssyni héraðslækni tækið. Ekið á gangandi mann: Lýst eftir ökumanni Ekið var á gangandi vegfaranda á Fríkirkjuvegi aðfaranótt sunnu- dags. Slysið varð klukkan rúmlega eitt. Vitað er að það var lítill, Ijós fólksbíll sem ók á manninn og öku- maðurinn var ung, ljóshærð og stuttklippt stúlka. Hún kom út úr bíl sínum eftir að hafa ekið á mann- inn og talaði nokkur orð við hann. Ekki liggur ljóst fyrir hvort stúlkan fór af slysstaö vísvitandi. Maðurinn, sem ekið var á, er tutt- ugu og þriggja ára og fór hann með leigubíl á slysadeild. Mun hann vera illa tognaður og jafnvel er talið að vöðvar hafi rifnað. Ixigreglan skorttr á stúlkuna, sem ók hílnum, að hafa samband við slysarannsóknadeild lögreglunnar. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.