Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Side 4
4
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Hvalveiðamar stöðvaðar á miðnætti:
Áfram unnið í
Hvalstöðinni
- Veiðst hefur upp
„Það verður hér áíram vinna, þótt
ekki verði í sama mæli ó meðan á
þessu hléi stendur. Það verður unnið
við viðhald ýmiss konar sem við höfum
lítið getað komist í,“ sagði Kristján
Loftsson, skrifstofustjóii Hvals h/f, en
lét þess þó getið að þeir sem ynnu á
hvalveiðiskipunum sjálfum færu þó í
frí en þau koma inn á miðnætti.
I dag hefjast viðræður íslendinga og
Bandaríkjamanna um hvalveiðar í
Washington. Þegar Kristján var
spurður um útkomu þess fundar sagð-
ist hann ekki vita hvað tala ætti um.
Hins vegar bjóst hann ekki við að ís-
lenska sendinefndin myndi láta undan
í langreyðarkvótann
þrýstingi af neinu tagi og sagðist varla
búast við að hvalvertíðinni væri lokið,
hvort heldur sem til lengri eða
skemmri tíma væri litið.
Kristján sagði að mikið hefði verið
af hval og hann skammt undan landi.
Þegar hefði veiðst upp í langreyðar-
kvótann, sem er 80 dýr. Engar san-
dreyðar hefðu enn veiðst en leyfilegt
er að veiða 40. Kristján sagðist engu
\dlja spá um hversu lengi stöðvunin
myndi vara, það færi eftir lengd við-
ræðnanna. Hann biði bara eftir grænu
ljósi frá sjávarútvegsráðherra.
-JFJ
Þjóðhátíðin í Eyjum 1987:
Vinna hafin í Dalnum
Ómar Garðsscn, DV, Vestmannaeyjum;
Nú þegar 3 vikur eru til þjóð-
hótíðar eru merki um þessa mestu
hátíð Vestmannaeyja að koma f ljós.
Kominn er myndarlegur hlaði af
brennudrasli á Fjósaklett, m.a.
gamla stýrishúsið af Gullborginni,
sem var búið að þjóna sínum til-
gangi og vel það. Vinna hófst í
Dalnum fyrir nokkrum vikum og
þjóðhátíðarlagið hefur verið kynnt,
en það er eftir Kristin Svavarsson
og ljóðið eftir Áma Johnsen.
Þorsteinn Jónsson fiá Laufási er
formaður þjóðhátfðamefndar þetta
árið og var hann inntur frétta af
undirbúningi. Þorsteinn sagði að
þeir í nefndinni hefðu tekið þátt í
hreinsun bæjarins undanfarið og
hirt allt brennanlegt sem þeir ko-
must yfir og stefndi í það að brennan
yrði með stærsta móti í ár.
Brennan, sem er á föstudagskvöld-
inu á þjóðhátíðinni, er einn af
hápunktum hennar, en þá lýsir hún
upp Dalinn og hamrabeltið í kring.
Búið er að ráða skemmtikrafta, en
það er eitt af fyrstu störfum nefhdar-
innar. í ár mun Hljómsveit Magnús-
ar Kjartanssonar leika á stóra
pallinum ásamt Greifunum frá
Húsavík. „Munu þeir skiptast á
þannig að aldrei ætti að koma dauð-
ur punktur í dansinn. Auk þess
munu landsfrægir skemmtikraftar
koraa fram á kvöldvökum öll kvöld-
in. Svo má ekkí gleyma því að við
fáum h]jómflutning8kerfi Reykja-
víkurborgar leigt, þannig að dag-
skráin ætti að komast vel til skila.“
Á sunnudeginum verður dagskrá
á vegum Hvítasunnusafnaðarins og
þann dag verður stanslaus dagskrá
allan daginn. Dansleikir verða öll
kvöldin til kl. 05.00 á morgnana og
auk Hljómsveitar Magnúsar Kjart-
anssonar og Greifanna verður hin
vinsæla hljómsveit Eymenn á litla
pallinum. Þá má ekki gleyma því að
útvarpsstöð verður starfandi alla
dagana."
Áð endingu sagði Þorsteinn að nú
ætti bara eftir að semja við veður-
guðina, en eins og endranær á
þjóðhátíð, er það veðrið em setur
punktinn yfir i-ið.
Það er ekki á hverjum degi sem barn er skirt i listasafni. Þetta geröist þó á föstudagskvöldið þegar Ina Salome
listakona lét skíra dóttur sína i Nýlistasafninu. Það var sr. Rögnvaldur Finnbogason sem skírði barnið sem hlaut
nafnið Kristín. DV-mynd KAR
Arsgömul stúlka skírð
í Nýlistasafninu
Nokkuð óvenjulegt má það teljast
þegar ársgamalt bam er skírt í mynd-
listasafni klukkan sjö að kvöldi. Þetta
gerðist síðasliðið föstudagskvöld en
móðurinni, ínu Salome Hallgríms-
dóttur listakonu, datt í hug sama dag
að nota tækifærið, rétt fyrir opnun
sýningar hennar, og fá prest til að
skíra dótturina. Hún hlaut nafnið
Kristín. Það var fjölskylduvinur, séra
Rögnvaldur Finnbogason, sem skírði
bamið en föðuramman, Bryndís, fékk
að halda stúlkunni undir skírn. Krist-
ín litla er búsett í Finnlandi ásamt
foreldrum sínum, ínu Salome og
Gunnari Borgarssyni sem er nemandi
í arkitektúr. Þau kusu að bíða með
skímina þangað til að þau kæmu heim
til íslands. Fjölskyldan verður hér
aðeins í sumar í heimsókn.
-ELA
Gjögur:
Ámeshreppingar sigursælir
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Þrír fullorðnir menn fóru úr Ár-
neshreppi í Strandasýslu á landsmó-
tið á Húsavík og komu þeir allir
heim með verðlaunapening. Ólafur
Axelsson, Gjögri, kom með gullpen-
ing, en hann varð í fyrsta sæti í
beitingum, en hann vann líka fyrstu
verðlaun í beitingum á sjómanna-
daginn á Hólmavík. Svo tóku tveir
þátt í skákmótinu, þeir Gunnar
Finnsson skólastjóri og Jakob Thor-
arensen, Gjögri, og komu báðir með
silfurpening fyrir góða frammistöðu
í mótinu. Þess má geta að þetta er
fimmta landsmótið sem Ólafur fer á
og hefur hann fjórum sinnum náð
verðlaunasæti, en Jakob keppti nú á
landsmóti í annað sinn. Þeir Jakob
og Ólafur eru bræður.
Fimm unglingar úr hreppnum
kepptu í hlaupum á landsmótinu og
kom Ingibjörg Valgeirsdóttir, 13 ára,
heim með silfurpening.
I dag mælir Dagfari
Salmonella í Dölunum
Þeir eru sniðugir í Dölunum.
Ferðafólk hefur verið abbast upp á
þá meira en góðu hófi gegnir í sum-
ar. Þannig lagði heil ætt af Suður-
nesjunum land undir fót og hélt
ættarmót að Laugum, fór þar um
sveitir, settist upp á hótelinu og söng
Heim í Búðardal og um Amorellu
svo undir tók í fjöllunum. Slíkar
heimsóknir eru til ama og mælast
illa fyrir í friðsælum sveitum lands-
ins sem ekki hafa áhuga á annarra
manna ættum. Dalamennimir tóku
það til ráðs að eitra matinn fyrir
gestunum með þeim glæsilega ár-
angri að ættarmótið leystist upp í
gubbupest og niðurgang hjá meiri-
hluta þeirrar þrjú hundruð ætt-
menna sem slysuðust til að borða
matinn. Mátti víst engu muna að
ættin yrði aflífuð í heilu lagi og er
það auðvitað ekkert gamanmál enda
runnu tvær grímur á þá Dalamenn-
ina þegar fréttist um. veikindin því
aldrei var meiningin að drepa heila
ætt þótt matareitrunin hafi verið
ætluð til að fæla fólkið og aðra ferða-
menn frá því að spilla sveitarómantí-
kinni. Þetta átti í mesta lagi að vera
sprell þannig að fólkið missti lyst-
ina.
Heimamenn urðu lafhræddir og
kokkurinn sagði ekki ég. Hótelstjór-
inn sagði ekki ég og matvælafram-
leiðendumir sögðu ekki ég. Aðrir
vonuðu að málið yrði þaggað niður.
En Hollustuvemdin vildi rannsaka
málið. Rannsókn hófst á þeim tveim
áhættuhópum sem líklegast þykir
að beri salmonellusýkil, annars veg-
ar svínum og hins vegar starfsfólki
Sláturfélags Suðurlands. Ekki er
gott að vita hvort Hollustuvemdin
telur hreinlæti þessara tveggja dýra-
tegunda vera með svipuðu sniði, en
allavega mátti lengi vel ekki á milli
sjá hvorum megin sökin lá. Að lok-
um varð þó niðurstaðan sú að svínin
þóttu grunsamlegri og nú hefur ve-
rið staðfest að salmonellan fannst
einmitt í svínakjöti frá Sláturfélag-
inu. Eitmnin stafar af salmonellu í
svínakjöti frá Sláturfélagi Suður-
lands. Framleiðslustjóri Sláturfé-
lagsins er hálfhissa á þessari
uppgötvun því hann segir að hundr-
að svínum sé slátrað á hverjum degi
og þeir hafi ekki undan að selja
svínakjöt sem hingað til hafi verið
borðað með bestu lyst án þess að
nokkrum hafi orðið meint af.
Vill hann meina að svínin hafi
verið sýklalaus þegar þau fóm í
slátmn hjá Sláturfélaginu en með-
ferð í hreinlæti kunni að vera
ábótavant hjá þeim sem keyptu kjö-
tið, það er að segja hjá þeim vestur
i Dölum. Framleiðslustjórinn bendir
meðal annars á að salmonellusýklar
drepist við sjötíu gráða hita þegar
kjötið er soðið.
Af þessu má ráða að það vom ekki
svínin sem eiga sökina. Þau gæta
hreinlætis í hvívetna í stíunum á
svínabúunum. Sökin er heldur ekki
hjá Sláturfélaginu sem er búið að
selja hundmð tonna af svínakjöti
án þess að nokkur hafi lagst veikur,
svo vitað sé. Framleiðslustjórinn hjá
Sláturfélaginu fylgist vel með veik-
indum hjá þeim sem kaupa svínakjöt
hjá Sláturfélaginu og veit upp á hár
hvenær viðskiptavinir Sláturfélags-
ins fá niðurgang og hvenær þeir fá
ekki niðurgang. Nei, skýringin hlýt-
ur að liggja í því að kokkurinn í
Dölunum hefur gleymt að sjóða kjöt-
ið sem borið var á borð í ættarmót-
inu. Böndin berast sem sagt aftur
af þeim vestur í Dölum. Gallinn er
bara sá að sýkillinn gengur nú laus
á þeim slóðum og verður sennilega
að setja Dalasýsluna í sóttkví meðan
salmonellunni er útrýmt þar vestra.
Nú verður víst ekki lengur sungið
um amorellu í rútunum vestur í
Dalasýslu en hins vegar geta Dala-
menn sætt sig við að hafa fengið
salmonellu í staðinn en það er nú
allt önnur ella og ekki meira um það.
Af ættmönnunum þrjú hundruð,
sem töldu óhætt að éta svínakjöt að
Laugum í heiðursskyni við ættina
sína, er það aftur á móti að segja
að heilsa þeira er óðum að lagast.
Sumir lentu í botnlangauppskurði
en mestu máli skiptir að ættin lifði
ættarmótið af. Næsta ættarmót er
heldur ekki á döfinni fyrr en með
næstu kynslóð og þá verður ekki
farið í Dalina. Dalamenn fá frið fyr-
ir ættarmótum og ferðafólki, amo-
rellum og salmonellum ef að líkum
lætur. Eins og til stóð.
Dagfari