Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Page 8
8
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
Útlönd
Flotavemd á Persaflóa á áætluðum tíma
Kaupahéðinn fram-
bjóðandi kommún-
ista á Kýpur
Kommúnistaflokkur á Kýpur hef-
ur tilkynnt að hann styðji forseta-
framboð George Vassiliou, sem er
nýiiði í stjómmálum, hagfræðingur
og kaupahéðinn.
Vassiliou býðu'- sig fram óháð
stjómmálaflokkum. Hann segir að
stuðningur kommúnista styrki fram-
boð sitt verulega og geri raunar nær
fullvíst að hann sigri í kosningunum.
Þá hefúr Vassiliou einnig tryggt
sér stuðning Nicos Rolandis, fyrrum
utanríkisráðherra, sem stofnaði
flokk fijálslyndra á síðasta ári.
Vestrænir embættismenn telja
ólíklegt að utanríkisstefiia Kýpur
breytist nokkuð þótt Vassiliou verði
kjörinn. Búist er við að hann haldi
hlutleysisstefhu þeirri sem ríkt hef-
ur. Hann er fylgjandi tollabandalagi
við Evrópubandalagið og hefur tekið
hófsama afstöðu gagnvart herstöðv-
um Breta á eyjunni.
Haft er eftir heimiidum í Washington að á morgun. þriðjudag, verði banda-
ríski fáninn dreginn að hún á tveim risaolíuskipum frá Kuwait og þeim siglt
út á Persaflóa á miðvikudag, undir vemd bandaríska flotans.
Bandaríkjamenn hafa samþykkt að skrá ellefú olíuskip frá Kuwait í Banda-
ríkjunum og verja þau gegn árásum á flóanum.
F>rsta tankskipið. sem verður endurskráð með þessum hætti, er liðlega
fjögur hundruð þúsund tonna hráolíuflutningaskip sem ber nafhið Bridge-
ton. Skipið hefúr legið ríð ankeri úti fyrir höfhinni í Khor Fakkan í
Sameinuðu arabísku fúrstadæmunum um nokkurra vikna skeið.
Bandaríska strandgæslan sagði í gær að endurskráningu Bridgeton og
annars tankskips, Gas Prince. væri lokið. Þau hétu áður A1 Rekkah og Gas
Al-Minagish.
Iranirhafa aukið árááir sínar á skip á Persaflóa til mikilla muna undanfar-
ið. Þeir hvggja á miklar heræfingar með þátttöku bæði flughers og flota á
flóanunr á næstunni, að eigin sögn til þess að sýna stórveldunum að þeim
er alvara með hótunum sínum um hertar aðgerðir.
Bandaríski flotinn hefur sent fimmtán herskip til vamar oliuskipunum á
Persaflóa og þí sama tilgangi eru yfir fimmtíu orrustuþotur og sprengjuflug-
vélar um borð í flugmóðurskipi.
íranmálið átti að verða kosningamál
Thomas O’Neill, frTrum forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins, skýrir
frá því í bók sem hann er nú að ganga frá, að ætlun ríkisstjómar Reagan
forseta hafi veríð að nota fyrirhuguð skipti á vopnum og gíslum við Irani
í kosningunum 1986. Repúblikanar reyndu þá í örvæntingu allt sem þeim
gat komið til hugar til þess að halda meirihluta sínum í öldungadeild þings-
ins og töldu forsetinn og samstarfsmenn hans að tækist þeim að frelsa
bandaríska gísla í Líbanon fyTÍr tilstilli írana myndi það nægja til að meiri-
hluti þeirra í deildinni héldist í kosningunum 1986.
O'Neill segir ennfremur í bók sinni að Reagan hafi skort þekkingu á svo
til öllum málum, bæði innanríkis- og utanríkismálum. Forsetinn hafi verið
að leika hlutverk sem hann skrifaði sjálfúr og hafi ekki einu sinni skilið
sínar eigin áætlanir.
íranskur andófs-
maður myrtur í Vín
Lögreglan í Austurríki skýrði frá
því í gær að talið væri að lík, sem
fannst í íbúð í miðborg Vínar fyrir
viku, væri af írönskum andófs-
manni. Maðurinn, sem hét Hamid
Reza Chitgar, hafði verið myrtur.
Talsmaður lögreglunnar sagði í
gær að vinir Chitgar hefðu borið
kennsl á líkið. Ekki er þó talið full-
víst að þeir hafi rétt fyrir sér þar sem
morðið er talið hafa verið framið í
maímánuði og líkið því töluvert
rotnað.
Talið er að morðið sé af stjóm-
málalegum toga spunnið.
Leitað að fórnarlömbum óveðursins sem gekk yfir norðurhluta Ítalíu um helgina.
Símamynd Reuter
Tuttugu fórust
í óveðri á ttalíu
Aurskriða féll yfir borgina Tartano á
Ítalíu þar sem þessar litlu stúlkur
búa. Simamynd Reuter
Baldur Róbertsson, DV, Genúa;
Rúmlega tuttugu manns hafa látist
í óveðri sem gengið hefur yfir norð-
urhluta Italíu siðustu tvo daga.
Margir hafa slasast eða týnst í óveðr-
inu og er talið að fjöldi látinna eigi
eftir að hækka töluvert þegar farið
verður að leita í aurskriðum og
rústum.
Rigningar hófust á Norður-Italíu
fyrir viku og síðustu tvo dagana hef-
ur verið eins og hellt úr fötu yfir
svæðið kringum borgina Bergamo.
Margar aurskriður féllu og lenti ein
þeirra á fjölbýlishúsi sem síðan féll
á hótel. Ar flæddu yfir bakka sína
og tóku þær með sér allt lauslegt, svo
sem bíla, tré og brýr. Óx ein áin um
rúma fimm metra á tveimur klukku-
stundum. Hreinsaði hún götur og
næstum allan jarðveg úr litlum dal
þar sem rúmlega tvö þúsund manns
búa.
Mesta óveðrið er liðið hjá í bili en
talið er að það geti skollið á aftur
síðar í vikunni.
Kontra drápu átta á
afmæli stjómarinnar
Skæruliðar kontrahreyfingarinnar,
sem berst gegn stjórn sandinista í Nic-
aragua, drápu í gær átta manns, þar
á meðal konu og bam, í árás á sam-
yrkjubú skammt frá Matagalpa í
Nicaragua, þar sem hátíðarhöld fara
fram í dag í tilefni átta ára afmælis
stjómarinnar. Kontrahreyfingin, sem
nýtur flárhagslegs og hemaðarlegs
stuðnings bandarískra stjómvalda,
hefúr undanfarið hert mjög aðgerðir
sínar í Nicaragua. Undanfama viku
hafa skæruliðar hreyfingarinnar gert
árásir á að minnsta kosti þrjú þorp.
Að sögn talsmanna stjómarhersins
hafa nær þrjátíu skæruliðar fallið í
þessum árásum.
Ronald Reagan, forseti Bandaríkj-
anna, hvatti á föstudag bandaríska
þingið til þess að samþykkja enn frek-
ari aðstoð við kontrahreyfinguna og
sagði að hún væri í raun hið eina sem
stæði í vegi fyrir yfirráðum Sovétríkj-
anna í Mið-Ameríku. Reagan minntist
ekki á neinar upphæðir í þessu sam-
bandi en heimildir segja að forsetinn
hyggi á aðstoð sem nemur um hundrað
og fjörutíu milljónum dollara.
Kontraskæmliðar hafa undanfarið
háð baráttu sem miðar beinlínis að
Bandaríski söngvarinn og kvikmyndaleikarinn Kris Kristofferson heldur
krepptum hnefa á loft þegar hann lýkur flutningi lags er hann samdi til aö
minnast átta ára afmælis stjórnar sandinista i Nicaragua. Simamynd Reuter
því að grafa undan efnahag Nic-
aragua. Vonast þeir til þess að skapa
óánægju sem leiði til uppreisnar gegn
sandinistum í landinu. Hafa stjómvöld
í Band'aríkjunum haldið því fram að
með stuðningi sínum við kontrahreyf-
inguna séu þau að reyna að koma á
lýðræði í Nicaragua. Stjóm Nicaragua
hefúr hins vegar sakað Bandaríkja-
menn um að vilja ekki friðsamlega
lausn mála í landinu enda hafi þeir
ekki sinnt boðum um samningavið-
ræður milli embættismanna ríkis-
stjórnanna tveggja.
Kona i San Jose de Bogay i Nic-
aragua situr hjá líki eiginmanns síns
sem skæruliðar kontrahreyfingar-
innar felldu i árás i síðustu viku.
Simamynd Reuter