Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
Neytendur
Biriani
hrísgrjón
Bn'rn hrísgrjón eru farin að verða
miklu algengari á borðum okkar en
var fyrir aðeins nokkrum árum. Það
er einnig orðið hægt að fá þau í flest-
um matvöruverslunum þannig að
ekki þarf að gera sér mikið ómak
við að kaupa þau inn. Hrísgrjón eru
mjög góð með öðrum mat og jafnvel
sem aðalmáltíð ef blandað er saman
við þau til dæmis baunum. En hér
kemur ein af mínum uppáhaldshrís-
grjónauppskriftum. Þar eru hrís-
gijónin soðin með mung baunum,
sem vanalega eru notaðar til spír-
unar. Mung baunir eru mjög góðar
með hrísgrjónum og ekki síst fyrir
það að þær þurfa lítið meiri suðu en
hrísgrjónin.
200 g mungbaunir
4 msk. matarolia
2 meðallaukar
1 hvítlauksbátur
175 g gulrætur
250 g brún hrísgrjón
6 dl grænmetissoð
2 msk. tarnari sojasósa
salt
1 lárviðarlauf
Látið mung baunimar í pott með
köldu vatni. Látið suðuna koma upp
og sjóðið kröftuglega i 15 mínútur.
Látið renna af baununum.
Saxið laukinn, hvítlaukinn og
gulræturnar fínt. Hitið matarolíuna
í þykkbotna potti og látið grænmetið
þar í. Steikið það við lítinn hita í 5
mínútur og hrærið í öðru hveiju.
Hollustufædi
Svanfríður Hagvag
Látið út í baunimar og hrísgrjónin
og hellið soðinu þar yfir. Kryddið
með sojasósu, salti eftir smekk og
lárviðarlaufi. Látið suðuna koma
upp og látið malla undir loki í 45
mínútur eða þangað til allt er orðið
meyrt.
Kostnaður er um 170 kr. eða um 57
kr. á mann.
Bæklingur varðandi samkeppnina liggur frammi í þeim verslunum víðs vegar um landið þar sem framleiðsluvörur
Marska hf eru seldar.
Kjúklinga-
fjallið 600tonn
Neyslan á uppleið
„Því er ekki að neita að salmon-
ellusýkingin, sem kom upp i Búðar-
dal í vor, hefúr haft áhrif á eftirspum
eftir kjúklingum. Salan minnkaði en
er nú greinilega að taka við sér á
nýjan leik.
Það hafa saihast upp birgðir hjá
okkur og er nú orðið til um 600 tonna
kjúklingafjall i landinu. Er það um
fjögurra mánaða neysla," sagði Al-
freð Jóhannsson, fraimkvæmdastjóri
ísfugls í Mosfellssveit, í samtali við
DV.
- Má þá búast við kjúklingaútsölu
á næstunni?
„Nei, það verður engin útsala. Það
frestar bara vandanum að setja
birgðimar á útsölu. Við drögum úr
framleiðslunni. Það verður lokað
vegna sumarleyfa í þijár vikur hjá
okkur í Isfúgli og sumir framleiðend-
ur eru famir í langt sumarfh', jafiivel
alveg til áramóta,“ sagði Alfreð.
- Hvað segið þið við kjamfóður-
skattinum?
„Það er fáránlegt gjald sem notað
er til þess að niðurgreiða lambakjöt-
ið enn frekar. Eins og komið hefúr
fram erum við greinilega ekki nógu
raargir til þess að tekið sé mark á
orðum okkar,“ sagði Alfreð.
-A.BJ.
Agúrkan á 151 kr. en ekki 179 kr.
{ verðtöflu í föstudagsblaðinu, þar sem kannað var verð á íslensku grænmeti
slæddist inn villa. Agúrkur hjá versluninni Seljakaupi kosta 151 kr. en ekki
179 kr. eins og gefið var upp.
Canon Ljósmyndabúöin CailOH
Canon meó 50 mmf1.8
LJÓSMYNDABÚÐIN LAUGAVEG1118, ® 27744
mmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmm
VIÐKJÓSUM