Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Page 33
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
45
Sviðsljós
Simamyndir Reuter
Lím-blómabrj óstahaldarar
Það allra nýjasta nýtt í baðfatatískunni á Rivierunni kemur beint frá ströndum Brasilíu. Þetta eru blómabrjósta-
haldarar eða nokkurs konar límmiðar sem þrýst er á húðina og festast þar. Þetta er mjög vinsælt á ströndunum
núna, því ekki þarf lengur að hafa áhyggjur af stórum litamun eftir brjóstahaldara. Límblómin þekja ekki nema
það allra nauðsynlegasta en vernda brjóstin samt sem áður fyrir hættulegum útfjólubláum geislum sólarinnar.
Simamynd Reuter
Smokkastuttbuxur
Þessar vörur, stuttermabolur og stuttbuxur, gefa límblómunum ekkert eftir hvað sölu viðkemur. Á bolnum stend-
ur „Ég hef mælst neikvæður í eyðniprufu" og á stuttbuxunum er sérstakur vasi merktur „verjur". Það er um að gera
að hafa allt á hreinu í þessu sambandi enda rýkur þessi vara út og er að slá öll sölumet á ströndum Frakklands. 30%
af sölu fatnaðarins rennur til rannsókna á eyðnisjúkdómnum.
Glæsilegir
Hinir geysivinsælu
FEMINA skór
loksins á íslandi.
Verð: 3025,-
£*taxks
£JxkaM.
Hvítt leður - Svart leður - Svart rúskinn.
EURS
Austurstræti 6 - sími 22450
Laugavegi 89 - sími 22453
Reykjavík
Póstsendum