Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1987, Blaðsíða 32
F R E T
A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sírni 27022
ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987.
Júlíus Sólnes:
„Kemur mér
ekki á óvart“
„Það kemur mér ekki á óvart hversu
^ margir styðja ríkisstjómina. í upphafi
hvers stjómarsamstarfs ríkir alltaf
ákveðin eftirvænting meðal fólks og
það er reiðubúið að veita nýjum ríkis-
stjómum brautargengi,“ sagði Júlíus
Sólnes, þingmaður Borgaraflokksins.
„Þessi ríkisstjóm hefur þó minni
meðbyr í upphafi ferils síns en nokkur
sú ríkisstjóm sem ég man eftir. Skýr-
ingamar á því em sjálfsagt óvinsælar
aðgerðir í efnahagsmálum í upphafi
stjómarsamstarfsins og einnig það að
mikil sundrung og sundurlyndi ein-
kenndu stjómarmyndunina og það
hefur raunar einkennt stjómarsam-
starfið það sem af er.“ jme
Steingrímur J. Sigfússon:
" Sumarið hag-
stætt stjóminni
„Sumarið er ævinlega hagstætt rík-
isstjómum bvi þá er Aiþingi í fríi og
nú hafa ráðherramir átt sumarið í
alls konar kynningum í fjölmiðlum. Á
meðan getur stjómarandstaðan lítið
beitt sér,“ sagði Steingrímur J. Sigfus-
son, Alþýðubandalagi, um niðurstöðu
könnunar DV á fylgi við ríkisstjóm-
íjfrjna.
„Þetta er nokkm minna fylgi en
stjómarflokkamir höfðu í kosningun-
um. Reynslan hefur sýnt að sijómir
em oft vinsælM í upphafi ferilsins en
þegar á Mður. Það má því búast við
að fylgið fari minnkandi í framtíðinni
þegar meira reynir á þohifin í stjóm-
arMöum," sagði Steingrímur J. Sigfús-
son. -GK
Birgir Ísleífur Gunnarsson:
Hvatning
til dáða
„Af þessu er ljóst að ríkisstjómin
,-^hefur fylgi mikils meirihluta þjóðar-
innar. Það er auðvitað hvatning til
dáða við lausn þehra verkefna sem
við er að fást,“ segir BirgM- ísleifur
Gunnarsson menntamálaráðherra um
þá einkunn sem ríkisstjómin fær í
skoðanakönnun DV. -HERB
llar
gerðir
sendibíla
25050
SEllDIBiLKTÖDITl
Borgartúni 21
LOKI
Kannski þeir heimti líka
skaðabætur fyrir að hafa fengið
að fara um borð i Hval 9?
Vilja rannsokn
og skaðabætur
Á fundi í Hvalavinafélaginu í gær
var samþykkt að óska eftir rannsókn
á atburðum helgarinnar í Hvalfirði
og að krefjast skaöabóta vegna tjóns
sem hvalavinir uröu fyrir þegar þeir
stóðu í aðgeröum um borð í Hval 9.
Aö sogn Magnúsar Skarphéðins-
sonar, talsmanns hvalavina, verður
óskað rannsóknar hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins á þvf hversu
Ragnar Ómarsson var hætt kominn
þegar skorið var á Mflínu hans þegar
hann hékk niður úr tunnunni f
mastri bátsins en Rangar náöi þá aö
grípa f handfang og forða sér fiá falM.
Þá veröur krafist skaöabóta vegna
tjóns sem varð þegar bakpoki þeirra
félaga var skorinn niður úr tunn*
unni meö þeim afleiöingum að
fársímiogfleiritæki sem í pokanum
voru eyðilögöust
„Langfiestir starfsmenn Hvals hf.
komu þó nfiög vel fram við okkur
þó einstaka maður sýndi okkur
ókurteisL Okkur er alls ekki illa við
starfemenn Hvals hf.,“ sagði Magnús
Skarphéðinsson f morgun. -ój
Jón Baldvin Hannibalsson:
Spyrjum að
leikslokum
„Þetta er svipaö og stjómarflokkam-
ir hafa samanlagt í þessari skoðana-
könnun. Ég tel út af fyrir sig
skynsamlegt aö beðið sé með að láta
í Ijós hrifiiingu og aðdáun yfir ríkis-
stjóminni þar til hún hefur náð þeim
árangri sem hún stefnir að,“ segir Jón
Baldvin Hannibalsson fjármáiaráð-
herra um stuðning við stjómina í
skoðanakönnun DV.
„Rikisstjómin hefur feril sinn í mjög
óvissu efnahagsástandi og verður að
grípa til aðgerða sem ekki em líklegar
til vinsælda í fyrstu umferð. Það skipt-
ir meira máM að ná árangri og þá fyrst
er tímabært að ætlast til þess að rflds-
stjómin ryóti verka sinna. Spyijum
að leikslokum."
-HERB
Aðgerðir í Mosfellsbæ á sunnudag:
Loka Vesturiandsvegi
„Með þessum aðgerðum viljum við
vekja athygM á því neyðarástandi í
umferðarmálum um Mosfellsbæ sem
kostað hefiir þijú mannslif á einum
og hálfum mánuði nú í sumar,“ sagði
Birgir Sveinsson skólastjóri en hann
er einn þeirra aðila sem standa fyrir
göngu og útifundi við Hlégarð í Mos-
fellsbæ á sunnudaginn kemur klukk-
an 16.00 en þá er ætlunin aö loka
Vesturlandsvegi fyrir allri umferð í 40
mínúntur á meðan fundurinn stendur
yfir.
Undirbúningsnefiid fúndarins hefur
sent sýslumanni bréf þar sem sótt er
um leyfi fyrir fundinum og lokuninni
enda er ekki ætlunin að hafa ólöglegt
andóf í frammi. Búist er við svari frá
sýslumanni í dag.
Birgir sagði að fundinum væri ætlað
að kynna þetta ófremdarástand fyrir
þremur aðflum: íbúum Mosfellsbæjar,
þeim sem leið eiga um Vesturlands-
veg, og fyrir yfirvöldum. Birgir telur
aö bráðabirgðalausn þessara mála
hljóti að felast í götuvitum, aukinni
löggæslu og jafnvel undirgöngum, „en
framtíðarlausn á þessari landsbyggða-
rumferð um bæinn okkar hlýtur að
vera fólgin í því að færa Vesturlands-
veginn vestur fyrir MosfeMsbæ," sagði
Birgir. -KGK
Sjómaðurinn sigraði Karl
Gyifi Kristjánæcn, DV, Akureyii
„Minni spámenn" halda áfram að
koma á óvart í landsMðsflokki á Skák-
þingi íslands á Akureyri. í gærkvöldi
var það togarasjómaðurinn Ólafur
Kristjánsson frá Ákureyri sem sigraði
alþjóðameistarann Karl Þorsteins en
Ólafur, sem hefur komið mjög á óvart
á mótinu, er nú í 2.-5. sæti.
Staöa efstu manna eftir fimm um-
ferðir er þannig að Margeir er efstur
með 4 vinninga, Helgi, Þröstur Þór-
hallsson, Ólafur og Davíð eru með 3 'A
vinning og Karl og Jón eru með 3 vinn-
inga. Sjötta umferð veröur tefld á
morgun.
Steingrímur á allsherjarþinginu
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra flutti ræðu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í gær og bauð þar leiðtogum risaveldanna að
koma til íslands sem ætti að vera griðland þeirra sem væru að leita
eftir friði í heiminum. Nánar segir frá ræðu Steingríms á bls. 2.
DV-símamynd Olafur Amarson
Guðmundur Bjamason:
Ánægður með niðurstöðuna
„Ég get ekki verið annað en ánægð-
ur með þessa niðurstöðu. Ríkisstjórn
in hefur stuðning þorra almennings í
upphafi ferilsins," sagði Guðmundur
Bjarnason, heflbrigðis- og trygginga-
ráöherra, um könnun DV á fylgi við
stjómina.
Veðrið á morgun:
Skúrir eða él
á Norðurlandi
Á morgun Mtur út fyrir norðan- eða
norðaustanátt á landinu. DáMtil
rigning verður norðaustanlands og
skúrir eða él á Norðurlandi og norð-
antil á Vestfiörðum. Sunnanlands
verður þjart veður að mestu. Hiti
verður á bflinu 2 til 9 stig.
„Þetta sýnir að fólk hefur skilning á
að það verður aá taka á málunum. Það
á enn eftir að ráða fram úr viðkvæm-
um málum og ég vona að fólk haldi
áfram að sýna verkum stjómarinnar
skilning. Menn gera sér grein fyrir því
að stjómin veröur aö trygga jafnvægi
í atvinnulífinu," sagði Guðmundur
Bjamason. -GK
Guðrún Agnarsdóttir
Togstreita
og ósætti
„Það er eðlilegt að fólk gefi nýrri
ríkissfióm svigriím til að standa við
gefin loforð. Þó em ekki nema tæplega
fimmtíu prósent aðspurðra sem styðja
þessa nýju rfldsstjóm enda togstreita
og ósætti opinskátt innan hennar strax
frá fyrstu byrjun. Margar eldraunir
bíða ríkissfiómarmnar á næsta leyti
og verður rétt að hyggja að verkum
hennar og vinsældum þegar hún hefur
gMmt við þær,“ sagði Guðrún Agnars-
dóttir, þingkona Kvennalista.
-jme