Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 11
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. 11 Utlönd Bátasmíðar Innan um risaolíuskipin á Persaílóa sigla viðar- bátar sem lítiö hafa breyst undanfarin tvö þúsund ár. Þeir eru smíðaðir í íran með fomum aðferðum þar sem helstu verkfærin era hamar og meitill. Þeir kallast „dhow“ og komust fyrst á spjöld sög- unnar þegar fomgríski landkönnuðurinn Peripl- us skráði lýsingu á sjósetningu skammt frá þar sem nú er Dubai. Fyrir þrem áratugum vora 'skip þessi enn mest áberandi allra á Persaílóa og mikill fjöldi þeirra plægir þar enn öldur. Vélar hafa að vísu komið í stað þríhymdra segla, eink- um í bátum sem stunda lengri siglingar. Enn vinnur íjöldi skipasmiða að gerð dhowa, án þess að hafa af því minnstu áhyggjur að tæknin kunni að gera Ust þeirra úrelta. Kafliboð Láðsforingjar NATO og Varsjárbandalagsins hittast nú reglulega á „vígvöllum“ Evrópu til skrafs og ráðagerða. Fyrir skemmstu hefði þaö þótt draumórakennd hugmynd að herforingjar þessara andstæðu afla ættu eftir að hittast, deila með sér innihaldi kaflibrúsa og skiptast á upplýs- ingum. Samkomulag það sem gert var í Stokk- hólmi um gagnkvæmar heimildir til að fylgjast með heræfingum hefur hins vegar gert drauminn að veruleika. Fulltrúar NATO hafa fylgst með mörgum heræfingum austan við jámtjald og nýlega hafa fyrstu fulltrúar Austur-Evrópuþjóða fylgst með æfingum NATO í Vestur-Þýskalandi. Hellagrafir Hauskúpur manna hanga við innganginn og sagt er að sporaslóðir hverfi skyndilega og á dul- arfullan hátt viö kalksteinshellana á Nýju-Kale- dóníu. Kanakar, sem era frumbyggjar eyjanna, halda sig fjarri hellunum, þar sem líkamar stríðs- höfðingja þeirra hafa verið lagðir til hinstu hvíldar. Ferðamenn, kafarar og hellakönnunarfólk læt- ur þó ekki gömul hindurvitni standa í vegi fyrir sér. Hellamir á eyjunum skipta tugum, era flest- ir fylltir vatni og bjóða upp á ótal ævintýri. Þeir sem hætta sér niður í þá snúa flestir aftur fullir aðdáunar. Vatnið í hellunum er ferskvatn, krist- alstært og leikur ljóssins innan um dropasteins- dijólana gefur þeim yfirbragð álfheima. Ferðamannaiðnaður á Nýju-Kaledóníu varð fyrir miklum áfollum í kjölfar átakanna milli kanaka og franskra innflytjenda á eyjunum árin 1984 og 1985. Þeir sem hafa lifibrauð sitt af ferða- mönnum vonast til þess að hellamir geti orðiö aðdráttarafl og aðstoðað við endurappbyggingu iðnaðarins. Þeir telja að aðeins lítill hluti hell- anna hafi fundist enn, þótt kanakamir viti ef til vill um þá flesta. Blaðaúrval Þótt íslendingar stæri sig gjama af þeim ótölu- lega fjölda blaða og tímarita sem gefinn er út hérlendis komumst við varla í hálfkvisti við íbúa Suður-Ameríkuríkisins Perú. Þær sex milljónir manna, sem byggja landið, geta vahð á milli sext- án dagblaða, fjögurra vikulegra fréttarita og ótölulegs fjölda annarra rita. Ritin era jafn- margvísleg og þau era mörg. Allt frá örgustu slúðurblöðum tU alvarlegra og virðulegra frétta- blaða. Allt frá blöðum, sem sérhæfa sig í fregnum af fljúgandi furðuhlutum, til pólitískra áróðurs- rita sem birta langar skýringar á íhugunarefnum nútíma byltingarmanna og skæruliða. Perúmenn vfija að dagblöð noti ótvíræðar lýs- ingar og þótt mikið beri á menningarlegu efhi og léttmeti, með hæfilegu íblandi af misjafnlega nöktum konum, tíðkast í ritunum lýsingar á dag- legum viðburðum sem ekki þættu fýrir viðkvæm- ar sálir á Vesturlöndum. Líklega eiga Perúmenn heimsmet í blaðaútgáfu og ef magn er sama og gæði era þeir líka bestir. INNSKRIFT Dagblaðið Visir óskar eftir að ráða starfskraft til afleys- inga í 3-4 mán. Góð vélritunar- og islenskukunnátta nauðsynleg. Þarf að geta byrjað sem fyrst. Vaktavinna. Upplýsingar gefur prentsmiðjustjóri í síma 27022. YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT HÁTÚNI 6A © Ný námskeið eru að hefjast. Byrjendanámskeið. Sérstaklega góð alhliða leikfimi fyrir konur og karla á öllum aldri. Morgun-, síðdegis- og kvöldtímar. Upplýsingar í síma 27710. VISA- EUROKORTAÞJÓN- USTA. Tölva í sérflokki fcTJ iy IL ,j |q| gg EÉ EÉ B B E3 S q q u b m m |Qf B q fcrji HBHBBBÉBHBÉ IS 116 innbyggð forrit meö stóru formúlusafni. Forritanleg i Basic. allt að 40KB. Minnisbanki þar sem auövelt er að geyma og finna upplýsingar. Þægileg i almennum og jöfnureikningi. Auðvelt að geyma )ofnur um leið og þær eru nolaðar. Sérstaklega hentug i skolann og við tæknistörf. ALTMULIGT Verslun með hitt og þetta. Laugavegi 134, hinum megin við Hlemm. s. 624050. n Jeep ri AMC EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR Eigum fyrirliggjandi mikið úrval original varahluta í AMC og Jeep bifreiðar. Einnig aukahlutir fyrir Wagoneer og Cherokee árg. '84-88, m.a. upphækkunarsett, toppgrind- ur, mottusett, vindskeiðar, sílsalistar, stokk- ar; útispeglar, varadekkspokar, safarígrindur að framan, stuðarahlífar, dráttarbeisli, aur- hlífar o.fl. o.fl. Ath. sérpantanir á ca 2-3 vikum án auka- kostnaðar. Hraðpantanir á ca 3 dögum. EGILL VILHJÁLMSSON HF., Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.