Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Pantanasími 13010
^ Litakynning.
Permanentkynning.
Strípukynning. {/* j
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Það ertýtí sem situr við stýrið.
| UMFERÐAR
"rao
ARCTIC CAT
VÉLSLEÐAMENN!
VERTÍÐIN
ER AÐ HEFJAST
Vantar alla vélsleða á skrá.
STÆRSTI VÉLSLEÐAMARKAÐUR LANDSINS
Umboð fyrir hina vinsælu Arctic Cat vélsleða.
6íla&
Vélsleðasalan
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
84060 S 38600
Sandkom
um og með breyttum áhersl-
um. H-ið hefur undanfarin ár
verið skemmtistaður yngri
kynslóöarinnar á Akureyri
en Kristján Kristjánsson, eig-
andi staðarins, hefur lýst því
yflr að nú verði aldurstak-
markið fært upp á við og farið
verði út í matseld af krafti
fyrir gesti. Þá er ætlunin að
flytj a þekkta erlenda
skemmtikrafta norður til
þess að skemmta gestum á
hinum nýja stað sem reyndar
mun verða opnaður undir
nýju nafni. Það er heldur ekki
farið leynt með að þessar
breytingar séu gerðar til þess
að fara i samkeppni við Ólaf
Laufdal og Sjallann hans.
Sumirfengu
rósir
Bóndinn í Siglunesi við Siglu-
örð hefur mikinn hug á þ ví
að leggja sjálfur veg heim til
sin og hefur staðið í miklu
þjarki við bæjaryfirvöld
vegna þessa. Er bóndinn fyrir
löngu búinn að kaupa sér
stórvirk vinnutæki til þessa
en leyfið hefur ekki fengist
hjá bæjaryfirvöldum fyrr en
á dögunum aö meirihluti
bæjarstjómar gaf grænt ljós.
Fögnuður greip um sig í her-
búðum bóndans og lýsti hann
sér meðal annars í því að
hann sendi bæjarfulltrúun-
um rósir. Þeir fimm bæjar-
fulltrúar sem mæltu með
leyfinu fengu rauðar krata-
rósir, en það voru þrír sjálf-
stæðismenn, einn framsókn-
armaðurogeinn
alþýðubandalagsmaður. Hin-
ir fi órir sem vom á móti
fengu ekki rósir heldur ein-
ungis topplausa rósarstilka.
Það vom fulltrúar krata og
annar fulltrúi allaballa. Bæj-
arstjómarkratar á Siglufirði
urðu þvi af kratarósunum í
þettaskiptið.
Guðrún Helgadóttir lætur gjarnan
gamminn geisa og hefur nú gefið
framboði Ólafs Ragnars undir fótinn.
Úllásama
báti
Guðrún Helgadóttir, alþing-
ismaður og allaballi, lætur
gamminn geisa í Tímaviðtali
í vikunni. Þar gengur á ýmsu
eins og venjulega þar sem
hún er á ferð. Guðrún segir
að nú ríði á að Alþýðubanda-
lagið fái styrkan og sterkan
formann. Hún finnur fram-
boði Sigríðar Stefánsdóttur
allt til foráttu en gefur hugs-
anlegu framboði Ólafs
Ragnars Grimssonar undir
fótinn. Hins vegar útilokar
hún ekki eigið framboð þótt
hún segi að henni ftj ósi hug-
ur við slíku. En það skemmti-
legasta í viðtalinu er án efa
þegar hún tjáir sig um linur
í þeirri pólitík er Olafur
Ragnar vill reka: „Þær hafa
kannski ekki verið skýrar hj á
neinum okkar. Það hefur ve-
rið óuppgerður ágreiningur í
veigamiklum málum og því
ekki auðvelt hvorki fyrir
þingmenn né formann fram-
kvæmdastj órnar að veifa
pólitík sem ekki er ljóst hvort
flokkurinn stendur undir. Ég
held að þar séum við öll á
sama báti.“ - Og svo eru
menn undrandi á atkvæð-
atapi allaballa undanfarin
misseri.
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson:
sem Valsmenn eru vanir en
hinir ekki. Slæmt að við skul-
um ekki eiga lið sem kemst
áfram til dæmis í þriðj u um-
ferð þannig að hægt verði að
bj óða upp á frost og skafrenn-
ing. Þá myndu sigurlikur
landans aukast til muna.
Talið er að margir bændur slátri
lömbum sem eru umfram fullvirðis-
réttinn heima og selji kjötið framhjá
kerfinu.
Heimaslátrað
á lága verðinu
Eins og fram hefur komið
í þessum dálki eiga bændur
víða um land nú fj ölda lamba
umfram fullvirðisréttinn. Nú
hefur það s vo gerst að sumir
þeirra eru farnir að slátra
lömbiun heima hj á sér og
selja framhjá keríinu. Aö
sögn heimildarmanna er
lambakjötið boðið á vildar-
kjörum og sennilega eru
margir sem troða nú ódýru
heimaslátruðu lambakjöti í
frystikistur sínar enda hitinn
ekki gefinn ef kaupa þarf
hanníverslunum.
Laufdal fær
samkeppni
Nú eru breytingar á sam-
komuhúsinu H-100 á Akur-
eyri á lokastigi og mun
ætlunin að opna það með stæl
í mjög breyttum húsakynn-
Vonandi
vont veður
Þegar íslensk knattspymulið
fóru að taka þátt í Evrópu-
mótunum var löngum litið á
það sem happadrátt ef liðin
drógust gegn heimsfrægum
erlendum liðum með þekkta
snillinga innanborðs og
skipti þá engu máli þó ekki
Fyrirliði Vals, Þorgrímur Þráinsson,
óskaði eftir rigningu og roki i leikn-
um í gær en fékk sól og blíðu.
væri minnsti möguleiki á
sigri. Aðalatriðið var að fá
heimsfræg lið til íslands,
margt áhorfenda á völlinn og
peninga í kassann til að
greiða kostnaðinn vegna
þátttökunnar. Þetta hefur
sem betur fer breyst nokkuð
og fyrir kemur að íslensk lið
eiga möguleika á að komast
í aðra umferð. Þannig var
með Val sem í gær lék gegn
a-þýsku liði á Laugardalsvelli
en eftir jafnteflið ytra sagði
fyrirliði Vals í sjónvarpi að
allt gæti gerst í síðari leikn-
um. En það vakti mikla
athygli að fyrirliðanum virt-
ist það mest í mun að veður
yrði vont þegar leikurinn
færi fram. Rok og rigning var
efst á óskalistanum. Veður
Meðalfellsvatn
Mjög góð
silungsveiði
■og stæm fiskur í sumar
„Það hefur verið góð silungsveiði í
vatninu í sumar og stærstu fiskamir
sem við fréttum af voru 5 punda og
það hafa komið á milli 80 og 90 lax-
ar,“ sagði Gísli Ellertsson á Meðalfelii
er við spurðum um Meðalfellsvatn.
„Það veiddist töluvert af tveggja og
þriggja punda silungi, ætli þetta sé
bara ekki gott árferði sem gerir þessa
góðu silungsveiði, eftir af laxinn fór
verulega að láta sjá sig í vatninu um
10. ágúst dró verulega úr silungsveð-
inni en laxinn veiddist. Laxveiðin er
heldur minni núna en síðasta sum-
ar,“ sagði Gísli ennfremur. Við frétt-
um að fyrir skömmu hefði veiðst 5
punda urriði í Bugðu og tveir sjóbirt-
ingar, annar þeirra var 6 pund,
nýgenginn.
„Síðasti dagurinn í ánni var á mið-
vikudaginn og það hefur þokkalega
veiðst í sumar af silungi en minna af
laxi, stærstu sjóbirtingar hafa verið 5
pund,“ sagði Þorlákur Kolbeinsson,
Þurá, er við spurðum um Þorleifslæk-
inn (Varmá). „Það voru hjón héma í
vikunni og veiddu þau 30 fiska, sumir
vom þó frekar smáir. Tveir veiðimenn
vora nokkm á undan þeim og fengu
18 fallega fiska. Veiðin hefur verið
betri uppfrá en héma niðurfrá, þó
veiddi veiðimaðurinn héma í sumar 5
punda silung.
Er lækurinn er alfur að koma til
eftir að minna af skólpi var sett í hann
og rotþróin kom?
Björgúlfur Lúðviksson golfari er veiði-
maður klókur eins og méð kylfurnar
sínar, hér heldur hann á einum
tveggja punda úr regnbogatjörninni
hjá Hvammi í Hvammsvík.
DV-mynd G.Bender
„Jú, þetta er betra en ennþá renna
nokkur ræsi í ána en þetta stendur
vonandi til bóta. Það hafa verið tekin
gerlasýni héma í læknum og niöur-
stöður em væntanlegar innan tíðar,“
sagði Þorlákur í lokin.
„Það em komnir 850-860 fiskar á
land og þetta gengur vonum framar,
við höfum ekki undan að taka við
pöntunum," sagði Ólafur Skúlason á
Laxalóni en þar hafa veiðimenn fjöl-
mennt til veiða síðan veiðisvæðið var
opnað Hvammi í Hvammsvík. „Sím-
Veiðivon
Gunnar Bender
inn stoppar ekki en við bókum aöeins
nokkra daga fram í tímann," sagði
Ólafur og tók upp símann, veiðimaöur
var að panta veiðidaga. Nokkrum sek-
úndum eftír að Ólafur lagði á hringdi
annar. Menn höfðu greinilega áhuga.
-G.Bender