Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. Meiming Tónlistargagniýnandi DV á raftónlistarháb'ð í Austumki Einkunnarorö Ars Electronica voru aö þessu sinni „Freie Klange - Offene Raume“ eða fijálsir ómar - opiim geimur. Þeim er ætlaö aö lýsa vilja aöstandenda hátíðarinnar til aö taka nýjum straumum opnum örm- um. í aðfaraorðum heildarefnis- skrár segjast þeir sem aö hátíðinni standa hafa fullan hug á þvi að hleypa þverstæðum og andstæðum straumum að. Og í þokkabót vonuð- ust þeir eftir forvitnum gestum sem kynnu að hafa bæði augu og eyru opin. Það gegndi að visu svolítið öðru máli þegar maður heyrði viðbrögð almennings í Linz við mörgu af því sem ff am fór, að maður tali nú ekki um viðbrögð kolleganna. En að- standendum Ars Electronica segi ég þaö fullum fetum til hróss að þeir héldu allt sem halda mátti undir opnum himni,. utan dyra, og á allt nema þrennt var ókeypis irrn. Dýr- ustu miðar á þau atriði, sem selt var mn á, kostuðu um þijú hundruð krónur (með þeim fyrirvara að „Oári“ hafi ekki rýrt gengi krónunn- ar í millitíðinni). Ars Electronica fór ffam dagana 16. til 19. september og skiptist í sex þætti: Ómgarð, Ómsenur, Ómstyrk, Ómkropp, Ómmyndir og Geimóma. Þar að auki fóru fram hátíðardagana ráðstefnan Hinn fijálsi ómur, mynd- bandasýningin Myndbandssvið Evrópu, Bæjarsmiðja sjónvarpsins og vel á minnst, málverkasýning Peters Kotauczeks sem nefndist „Kerfismálverk (tölvumálverk) - gullgerðargrúsk (alchemie) eða bylt- ing í málaralist?" Evrópa lifir Það reyndist meira fram boðið en svo að maður entist til að hlaupa eftir því öllu þessa daga. Þó voru þama allt saman viðurkenndir myndaböndungar boðnir til leiks. Þeirra á meðal voru Tom van Vliet, Jeremy Welsh og Rinaldo Bianda - sem sé úrval vítt og breitt að úr Evrópu. Eitt atriði Bæjarsmiðjunnar fór þó tæpast fram hjá öllum al- menningi, það var sýningin Evrópa lifir. Hún var byggð upp af ótal dæm- um um listræna myndbandavinnu um gjörvalla Evrópu. Ekki sá ég að visu neitt íslenskt dæmi en hólminn okkar telst gjaman á ystu endimörk- um álfunnar. Þessu var sjónvarpað um risaskerm sem settur var upp á Hauptplatz, aðaltorginu, sem um þessar mundir er eitt flakandi sár vegna byggingar bílageymslu undir því. Með þvi tókst að mínum dómi að kcma þvi til skila til almennings að myndbandalist væri ekki neitt „pri''ntflipp“ listamannanna heldur nýtt i stform sem ætti erindi til alls almennings, rétt eins og hver önnur list. Einn góður maður skilgreindi sjónvarpið þannig: „Sjónvarpið er í sjálfu sér kaldur miöill, kjaftaskur sem leyfir fólki að kynnast eyði- mörkinni án þess að þurfa að kvelj- ast vegna hitans og án þess að þurfa að rífa sig burt ffá hversdagsleikan- um.“ Evrópa lifir var tilraun til að fá fólk til að sjá skjáinn í öðm ljósi. Ómgarðurinn Ómgarðurinn eða Klangpark var sýning ómandi skúlptúra í Donau- park, garðinum sem Brucknerhaus stendur í. Öll bám þau ómræn nöfn og sum vom af miklu hugviti gerð. Til mín höfðuðu þau mest og best sem gerð vom samkvæmt hug- myndum vindhörpumeistaranna í sögu Heinessens. Þeirra á meðal má nefha „Wind Gamelan/Spin-a- Tune“, verk Bills og Mary Buchen frá New York. Það var þyrping vind- bærra ómgjafa sem komið var fyrir á stöngum og gáfu hver fyrir sig frá sér einn ákveðinn tón en vom sam- stilltir í indónesískan gamellan skala - nánar tiltekið hinn blíða Jövu- skala. Þama réð vindur og vindátt bæði lengd verks og blæbrigðum öll- um að sjálfsögðu. að þær væm ffá grunni fyrst og fremst sprottnar af einlægri, músík- alskri tjáningarþörf. Þaö var músík- alskur kjaminn, miklu fremur en hnitmiðaðar tæknibrellumar, sem gerði nýstárleg verk þeirra svo þekkileg. Geimómar Waterworks er „concerto grosso" fyrir tuttugu skipsflautur (eimpíp- ur), flugelda eða himintrumbur, tvo hljómgervla og átta bassatúbur. Það liggur í augum uppi að þama er höfðað fil bæði Vatna- og Flugelda- svítu Hándels. Eiginlega er verið að afgreiða hvort tveggja í einu á ný- tæknilegan hátt. Waterworks vom skrambi líflegur og vel útfærður píp- og ljósakonsert. Flugeldunum var beitt hámákvæmt bæði sem ljósaeffektum og slagverki (þess vegna nafnið himintrumbur). Eimpípumar og túbumar féllu prýð- isvel saman svo að ég valdi þeim í huganum nafnið himinlúðrar (fil samræmis við trumbumar). Hljóm- gervlamir sáu til þess að allt saman yrði hæfilega fjarrænt og dularfullt og allt féll þetta saman í eina bráð- músíkalska heild. Þannig fékk maður það á tilfinninguna aö allt stæði hvað með öðm í stað þess að vera samansafn effekta eins og gjaman vill verða þegar verið er aö fóndra með fjölþætt listræn áreiti. NICA Eins er enn ógetiö í tengslum við Ars Electronica, samkeppninnar og verðlaunanna, sem bera nafnið NICA. Þau em veitt fyrir tölvulist. Það er fjármagn Siemens fyrirtækis- ins sem að baki verðlaununum stendur. Hina gullnu NICA styttu hlutu að þessu sinni: John Lasseter frá San Rafael fyrir töhmteikni- myndir (animation), Brean Reffin Smith frá London/Berlín fyrir tölvu- grafík og þeir Jean-Claude Risset frá Marseilles og Peter Gabriel frá Lon- don, fyrir tölvumúsík. Meðal þátttakenda í keppninni að þessu sinni var Láms Halldór Grímsson. Það vakti athygli mína að hann var í skránni talinn Hol- lendingur. Kannski aö við verðum að fara að passa okkur á því aö aör- ar þjóðir hreinlega eigni sér ekki okkar frumlegu nýlistamenn. Það leiðir aftur hugann að því hvort ekki væri grundvöllur fyrir því að halda svipaða hátíð heima á mun víðara sviði en rammi Norrænna músík- daga leyfir, svo ágætir sem þeir nú annars em. EM Liz Philips kemur líka frá New York. Verk hennar nefndist „Windspun for Linz“. Hlýr blærinn, sem barst með ánni, var leiddur um hljóðnema yfir í hátalara og ómaði í öllum sínum margbreytileik yfir Dónárgarð. Já, það er miidl músík í vindinum, eins og Páll ísólfsson sagði. Það var skógarvörður sem sýndi Thomasi Rother frá Essen eitt helj- armikið bogið tré í byijun þessa árs. Þar með fæddist hugmyndin að „Stóra boganum". Tréð var höggviö. Rother átti bút úr gasleiðslu (reynd- ar tæpir tveir metrar í þvermál) og ákvaö að festa bjáikann þar við. Svo spennti hann stálstreng einn mikinn yfir og þar með var kominn heljar- stór ómbogi sem aðeins þurftí að Tórúist Eyjólfur Melsted dangla í til að fá ómsvörun úr. Reyndar nægði að þungir vörubílar ækju hjá til að fá strenginn til að óma. Svo skemmti ég mér hreint ljóm- andi við „radióARTivar" fundar- herbergismublur Franz Xavers frá Vín. Þær eru borð og fjórir stólar. í stólsetunum eru næmir varma- skynjarar og það sem þeir skyifia breytist í sinutóna, en jafhframt koma bylgjumar fram í ýmist þrí- eða ferhymdum ljósarörum. Aldeilis heljar skemmtilegt spilverk sem lifg- að gæti heldur betur upp margan fundinn. En engum ráðlegg ég að ætla sér að spila póker við músík- Dónárgarðinn og miðbæinn. Annars er það auðvitað vitleysa að vera að tengja hugmyndina við John Cage þvi hver krakki í Reykjavík og nær- sveitis hefur að sjálfsögðu einhvem tíma búið til skemmtilegt spilverk með því að festa spil eða annan ómvaka sem griplaði teinana á hjól- inu sínu og gefur oft býsna þekkileg ljóð þegar stálfákurinn stigni geysist fram. Undir liðnum Ómstyrkur komu tveir aðilar fram og inn á þeirra at- riði þurftu menn að borga sig. Kannski var það varúðarráðstöfun frá heymarvemdarráði borgarinnar því bæði David Hykes og Harmon- íski kórinn hans og Rhys Chatham ásamt Þrumuguðum sínum höfðu, að því er virtist, það takmark eitt aö framleiða sem mestan hávaða. Að baki hávaðanum reyndist harla fátt bitastætt, bæði hjá öskufiði Hy- kes og gítarsláttumönnum Chat- hams. Ómkroppur Lengstum hefur maðurinn átt það helst ráða að syngja til aö kalla fram óm úr sínum kroppi. í tónhæfingu (músíktherapíu) hafa menn þó fóndrað með innri músík manns- Mkamans aUt frá Pyþagórasi sem ég held að fystur manna hafi fjallað um það fyrirbæri vísindalega - að minnsta kosti í okkar vestræna heimi. Með tilkomu næmra skynjara og ómbreyta (konvertera) má vinna á harla lif- og Mstrænan máta með þá innri músík mannsins sem fram undir þetta hefur verið einkamúsík- svið hefibrigðisstétta (þ.e.a.s. þeirra sem standa í þeim þrepum spítala- pýramídans sem gengur um með Jeanette Yamikian: Kroppurinn er líka hljóðfæri. alska fundarborðið hans Franz Xavers. Ómsenur og Ómstyrkur Ómsenumar reyndust ekki tíltak- anlega nýstárlegar uppákomur, utan ein. Þó áttu þar þekktir menn eins og Earl Howard frá New York og þeir Paul Panhuyisen og Johan Go- edhart frá Eindhoven ópusa. Það var Richard Lerman frá Boston sem stóð fyrir skemmtilegasta og frumlegasta uppátækinu undir þeim Mð sem nefndist „Travelon Gamelon". Sam- kvæmt hinni gömlu en þó síungu hugmynd Johns Cage um „preparer- aða“ píanóið „útbjó“ Lerman tutt- ugu reiðhjól sem hjólaö var á um hlustunarpípu). En þama vom flutt þrjú verk, hvert öðm merkilegra. Jeanette Yanikian frá Amsterdam flutti verk sitt, „Aorta", fyrir hjart- slátt, blóðrás og lungu (andardrátt). Henni til aðstoðar vom Kees Koe- man tóntæknir og Johan Vonk ljósameistari. Þeim sem fram að því var ókunnugt um þá músíkölsku fimamöguleika, sem hinn mannlegi kroppur býr yfir, var þetta stórkost- leg upplifun. Meira að segja koUe- garnir konservatívu hrifust. Aö hrista ópusana fram úr ermunum Harry De Wit, Mka frá Amsterdam, kynnti mönnum „Kostrument" sitt. var Michel Waisvisz. Framlag sitt kallaði hann „Touch Monkeys". Stjómtæki em fest við hendur og tengd við átján stafræna (digital) músíkróbóta. Michel Waisvisz kom mér sem eins konar músíkalskur maríónettumeistari fyrir augu og eyru. Vopnaður tólum hans nægir að yppta öxlum eða sveifla höndun- um til að láta hina fjölbreytilegustu hljóma geysast um saM. Það má vissulega telja HoUending- ana hafa komið, séð og sigrað hér í Linz. Hugmyndir þeirra um óm- kroppinn áttu þaö sammerkt að vera ekki einungis tæknilegar brefiur til þess eins að brydda upp á einhveiju nýju. Ég hafði það á tilfmningunni Nafiiið er samsett úr orðunum Kost- ume og Instrument = ómklæði. íklæddur sMkum gaUa getur tón- smiðurinn bókstaflega hrist tónverk fram úr erminni eða kompónerað með því að renna fingrum gegnum hárlubbann eða kreist ópusuna fram eða bara töfrað þá ffarn með því að smeUa fingrum. Sannkallaður töfra- gaUi. Þriöji maðurinn frá Amsterdam Bill og Mary Buchen: Vindhörpumeistarar á La Heinesen. Væddir ómklæðum hrista menn ópusana fram úr erminni. Ars Bectronica

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.