Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 42
42
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
Jarðarfarir
Guðmundur K. Eiríksson lést 22.
september sl. Hann fæddist í Reykja-
vík 19. september 1906, sonur hjón-
anna Eiríks Sigurðssonar og
Þórdísar Jónsdóttur. Hann hóf nám
í Félagsprentsmiðjunni 1922 og lauk
þar námi í setningu. Starfaði þar síð-
an áratugum saman sem vélsetjari
og síðar við dagblaðið Vísi frá 1963
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir. Guðmundur var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona hans var Svana
Ingibjörg Þorbergsdóttir. Þau slitu
samvistum. Þau eignuðust einn son.
Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er
Þórný Magnúsdóttir. Þau eignuðust
eina dóttur. Útför Guðmundar verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Aðalheiður Björnsdóttir lést 20.
september sl. Hún fæddist 19. sept-
ember 1904 að Helgavatni í Vatnsdal.
Foreldrar hennar voru Hólmfríður
Hannesdóttir og Björn Þorsteinsson.
Nokkurra vikna gamalli var henni
komið í fóstur til hjónanna Ingibjarg-
ar Kristmundsdóttur og Jóns Bald-
vinssonar. Aðalheiður giftist Kristni
Lýðssyni en hann lést árið 1981. Þau
hjónin eignuðust fjögur börn og eru
þrjú á lífi. Útför Aðalheiðar verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Anna Sigurjónsdóttir, Borðeyri,
veröur jarðsungin frá Prestbakka-
kirkjulaugardaginn3. október kl. 14.
Guðmundur Ú. Sigurjónsson, sem
andaðist 26. september, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju föstu-
daginn 2. október kl. 15.
Friðrik fónsson, fyrrv. vörubíl-
stjóri, Ásvallagötu 24, Reykjavík, lést
þriðjudaginn 29. september. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 2. október kl. 15.
Sigríður Sigurðardóttir, Aðalgötu
13, Sauðárkróki, verður jarðsett frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 3.
október kl. 16.30.
Aðalheiður Nílsdóttir, fyrrv. ljós-
móðir frá Leifshúsum á Svalbarðs-
strönd, lést miðvikudaginn 23.
september. Útförin fer fram frá Sval-
barðskirkju laugardaginn 3. október
kl. 13.30.
Gunnar Bjarnason, fyrrum skóla-
stjóri Vélskólans, verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni föstudaginn 2.
október kl. 13.30.
Þóra Petrína Jónsdóttir fyrrum
húsfreyja, Reynisvatni, Mávahlíð 3,
verður jarðsungin að Lágafelli föstu-
daginn 2. október kl. 14.
Gunnhildur Guðmundsdóttir,
Borgarheiði 13, Hveragerði, er lést í
sjúkrahúsi Suðurlands 24. septemb-
er, verður jarðsungin laugardaginn
3. október kl. 14 frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum.
TiJkyrmmgar
Hver keyrði á bílinn fyrir
utan þjóðleikhúsið
I gærkveldi milli kl. 21-23.30 var keyrt á
nýjan bláan Reno station fyrir utan.Þjóð-
leikhúsið. Bíllinn er mikið skemmdur og
er gerandinn eða vitni af ákeyrslunni beð-
inn að gefa sig fram við lögregluna í
Reykjavík.
15. þing Landssambands
slökkviliðsmanna
verður haldið að Hótel Örk í Hveragerði
dagana 2. 3. og 4. okt. 1987 og verður það
sett kl. 16. Meðal gesta á þinginu verður
Frú Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra og mun hún ávarpa þingið,
einnig munu ýmsir frammámenn í bruna-
málum verða viðstaddir. Eitt af aðalum-
ræðuefnum þingsins verður skýrsla
skólanefndar, en hún fjallar um menntun-
armál slökkviliðsmanna. í dag eru fjárfest-
ar rúmar 2 milljónir í menntun hvers
lögreglumanns og er það vel, en lítið sem
ekkert í menntun slökkviliðsmanna.
Vetrarstarf Félagsmálaskól-
ans að hefjast
Vetrarstarf Félagsmálaskóla Alþýðu er að
hefjast um þessar mundir. Fyrsta önn skól-
ans verður í Ölfusborgum 11.-24. október
nk. Félagsmálaskólinn er rekinn af Menn-
ingar- og fræðslusambandi alþýðu og eiga
allir félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ rétt
á vist í skólanum. Tvær annir skólans
verða fyrir áramót, sem hver um sig stend-
ur í hálfan mánuð, en eftir áramótin er
auk fyrri anna gert ráð fyrir þriðju önn
skólans. í Félagsmálaskólanum sitja hag-
nýtar greinar í fyrirrúmi. Auk fræðslu í
helstu greinum, sem snúa að launa og
kjaramálum, er Félagsmálaskólinn dýr-
mætur vettvangur fyrir launþega innan
ASl til umræðu um sín mál og tækifæri
gefast til að ræða við forystumenn í laun-
þegahreyfingunni á hverri önn skólans. Á
dagskránni eru einnig menningar- og
skemmtikvöld, heimsóknir í fyrirtæki og
stofnanir eftir því sem tími gefst til. Þeir
sem áhuga hafa á skólavist í Félagsmála-
skólanum, eru beðnir um að hafa samband
við skrifstofu MFA s. 84233 eða verkalýðs-
félag sitt. Umsóknir um 1 önn skólans
þurfa að berast fyrir 8. október.
Basar
Kökubasar
heldur Kvenfélag Háteigssóknar laugar-
dagiiui 3. október í Blómavali v/Sigtún.
7 'd.io verður á móti kökum kl. 10 f.h. sama
c..ig. Fyrsti fundur félagsins á þessu hausti
verður þriðjudaginn 6. október kl. 20.30 í
Sjómannaskólanum.
Nú efnalaug í Mjóddinni
1 byijun september opnaði Efnalaugin
Björg nýja efnalaug í Mjóddinni. Efna-
laugin Björg hefur einnig aðsetur að
Háaleitisbraut 58-60 og hefur verið þar í
rúm 20 ár en fyrirtækið er 34 ára gamalt.
I efnalauginni Björg í Mjódd eru nýjustu
tölvustýrðu hreinsivélar sérstaklega stillt-
ar fyrir viðkvæman fatnað og fatnað úr
gerviefrium. Efnalaugin í Mjóddinni sem
er staðsett milli Landsbankans og Kaup-
staðar, sér um alla alrr.enna hreinsun og
pressun en auk þess verður lögð áhersla
á hreinsun á leðri og rúskinni. Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri Efnalaugar-
innar Bjargar í Mjóddinni, hefur kynnt
sér hreinsun á skinnvörum auk þess sem
hann nýtur áralangrar reynslu annarra í
efnalauginni í hreinsun á leðurfatnaði.
Opnunartími er frá kl. 8-18 virka daga og
kl. 8-19 á föstudögum. Á myndinni eru
framkvæmdastjórar efnalauganna og eig-
inkonur þeirra. Frá v. Sigurður Jónsson,
Ágústa Kristín Magnúsdóttir, Soffra
Magnúsdóttir og Kristinn Guðjónsson.
Fréttir
Unnþór Stefánsson með línuspilið fræga fyrir framan sig. Hann segir vinnuaflsskort há sér mest um þessar
mundir. DV-mynd GVA
Sjávarútvegssýningin:
Mikil sala hjá íslensk-
um fyrirtækjum
Flestir sérfróðir menn telja að
sjávarútvegssýningin í Laugardal sé
aðalsjávarútvegssýningin í heimin-
um á þessu ári. Sá fjöldi útlendinga
sem lagði leið sína á sýninguna seg-
ir meira en mörg orð um hverjum
augum menn litu hana. Þau íslensku
fyrirtæki, sem hafa sérhæft sig í
smíði hvers konar tækja og tóla fyr-
ir sjávarútveginn og sýndu á sýning-
unni, segja árangurinn góðan og
mörg þeirra segja hann hafa farið
fram úr björtustu vonum.
Það vantar starfsfólk
Eitt af þeim íyrirtækjum, sem seldi
mikið á sýningunni, er Sjóvélar hf.
í Garðabæ. Aðaleigandi þess fyrir-
tækis er Unnþór Stefánsson og
framleiðir hann bæði línu- og neta-
spil um borð í fiskiskip. Unnþór
sagðist hafa fengið margar pantanir
á línuspilum sínum á sýningunni,
flestar frá bátaeigendum innan-
lands.
Ein erlend pöntun vekur þó mikla
athygli en hún er frá stýrimanna-
skóla í Kanada sem ætlar að nota
spilið sem kennslutæki. Betri aug-
lýsingu er vart hægt að fá.
Unnþór segist hafa selt um 300
línuspil hér heima frá því framleiðsl-
an hófst 1978. Þá hefur hann selt 21
spil til Kanada og Bandaríkjanna og
sagði hann að á sýningunni heföu
menn frá Grænlandi, Noregi og víð-
ar sýnt spilunum mikinn áhuga.
Þeir fengu allar upplýsingar og tóku
þær með sér heim. Út úr því gætu
komið pantanir.
„Það eina sem háir mér og tefur
nú er vinnuaflsskortur. Mig sár-
vantar fleira starfsfólk til að -geta
framleitt með fullum afköstum,"
sagði Unnþór Stefánsson.
-S.dór
Heildsöluverð á grænu paprikunni
er 300 kr. en ekki 200 kr.
Heildsöluverð hjá Sölufélagi garð
yrkjumanna á grænni papriku er 300
kr. en ekki 200 kr. eins og misritaðist
hjá okkur á neytendasíðunni á þriðju-
daginn.
Við biðjumst velvirðingar á þessum
mistökum sem prentvillupúkinn ber
ábyrgð á.
-A.BJ.
Úrdráttur úr grein Gests Ólafssonar
með skýringarmynd
Gestur Ólafsson arkitekt skrifaði
grein í DV þann 18. september síðast-
liðinn sem bar heitið Með báða
fætuma á jörðinni þar sem meðal
annars er fjallaö um „þróunarskaut-
in“ á milli innnesja eða höfuðborgar-
svæðisins og útnesja sem er
Reykjanesið. Með þessari grein átti
að fylgja mynd sem því miður féll
niður og gæti að einhveiju leyti hafa
brenglað merkingu greinarinnar.
Vegna þessa birtum við hér mynd-
ina ásamt skýringartexta sem tekinn
er beint upp út grein Gests Ólafsson-
ar sem hljóðar svo. „Milli þessara
„þróunarskauta" er mikil vaxandi
umferð og fyrirsjáanlegt að fyrirtæki
og einkaaðúar sjái sér hag í að velja
sér stað á milli þessara „skauta"
næstu ár og áratugi ef landið þar
verður gert aðgengilegt og „opnað"
fyrir atvinnustarfsenii og búsetu.
Ennfremur segir hann „í stað þess
að tvöfalda veginn á núverandi vega-
stæði mætti hugsanlega byggja aðra
akbraut röskum kílómetra sunnar
og „opna“ með því stórt landsvæði
fyrir ofangreinda starfsemi."