Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. Sviðsljós ■ , ' s Fergie þarf oft að taka til hendinni. Hér tekur hún þátt í gróður- setningarátaki. Það leynir sér ekki á þessari mynd hvers lensk Fergie er. Símamyndir Reuter Hertoginn og hertogaynjan af York eyða hér stuttri stund sam an, en þær gefast ekki oft i opinberu starfi. Fer Fergie að suða? Hertogaynjan cif York er orðin háð drottningarhunangi Nú er loksins búið að aíhjúpa það hvernig hertogaynjunni af York fer að því að vera alltaf svona óskaplega hress. Hún getur þvælst á milli mót- taka og opinberra skyldustarfa allan daginn án þess aö blása úr nös - þveröfugt við Andrew greyið sem verður oft æði þreyttur á svip. Skýr- ingin er mjög einföld: Fergie borðar nefnilega tvöfaldan skammt af drottningarhunangi á hverjum degi. Hún er orðin nánast háð hunanginu og ber hún ávallt dós af því í hand- tösku sinni ef í nauðirnar skyldi reka. Það hafa reyndar margir orðið til að vekja athygli á hollustu hunangs- íns á undan Fergie. Þessi lífselexír er framleiddur af hunangsflugum í Kína og hafa þau Diana, Anna prins- essa og Philip prins öll notað þetta sniildarráð þó að árangurinn hafi ekki verið jafn áberandi og hjá Fergie. Fergie fór að nota hunangið í janúar á síðasta ári og hefur jafnvel fengið skammt af „hraðvirkum" pill- um sem innihalda hunang. Framleiðandi hunangsins er auð- vitað mjög stoltur yfir öllu umstang- inu: „Þetta er alveg tilvahð fyrir fólk í erilsömum störfum sem þarf á ailri sinni orku að halda allan daginn. Þá eru pillumar einnig mjög góðar ef fólk þarf á aukaorku að halda. Síðast en ekki síst þá eru þær frábærar við timburmönnum," segir framleiðand- inn. En nú er bara spurningin: Fer Fergie að suða? Grettir kanar Söngvarinn heimskunni Billy Joel og kona hans Christie Brinkley gáfu klisjunni „hinir ljótu kanar" nýja merkingu þegar þau tóku sig til og grettu sig herfilega framan í ljósmyndara sem var að festa þau á filmu þar sem þau voru á gangi í París nýlega. Hin eins og hálfs árs gamla dóttir þeirra, Alexa, gaf foreldrum sínum ekkert eftir og gretti sig af miklum móð. Sally knúsar svínið. Beikonið fékk koss Það er ekki að spyija að þessum dýravinum! Þeir láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna þegar kemur að því að sýna dýrum ástúð. Hér smell- ir hún Sally Atkin, sem er mikill dýravinur, kossi á tríni sex vikna gamals svíns sem er gæludýr Sally- ar. Sally, sem er frá Billericay í Englandi, eignaðist svínið þegar það var aðeins dags gamalt og hefur alið það upp síðan. Hún þvertekur fyrir að svínið muni enda á pönnunni heldur muni það lifa við ást og kær- leika á heimili hennar því að svínið „heldur að það sé mennskt“. Eða svo segir Sally.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.