Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1987, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987.
25
dv Fólk í fréttum
Olafur Olafsson
Ólafur Ólafsson, verkamaður á
Grundartanga, komst í hann krapp-
an er mjög öflug sprenging varð í
jámblendiverksmiðjunni á laugar-
dagskvöldið.
Olafur fæddist á Akranesi 22.7.
1950 og er alinn upp hjá foreldrum
sínum á Innstavogi við Akranes.
Hann sótti bama- og ungiingaskóla
á Akranesi en hefur síðan unnið
ýmis almenn verkamannastörf.
Hann hefur unnið í fiski og keyrði
olíubíl hjá Skeljungi í sjö ár. Hann
hóf svo störf við verksmiðjuna á
Grundartanga seinni hiuta árs 1979
<og þar er hann nú ofhgæslumaður.
Kona hans er Ingiríður, f. 30.11.
1953, en þau giftu sig árið 1974. For-
eldrar hennar em Kristján Hagal-
ínsson, sem starfar hjá Kristjáni og
Þorgeiri á Akranesi, og Helga Guð-
jónsdóttir.
Ólafur og Ingiríður eiga son og
dóttur: Ólafur er f. 1975 en Kristjana
Helga 1978.
Systkini Ólafs em fimm og búa öll
á Akranesi: Halldór húsasmiður, f.
1947, giftur Guðlaugu Siguijónsdótt-
ur og eiga þau fjögur böm; Jóhannes
sjómaður, f. 1948, giflur Herdísi
Þórðardóttur og eiga þau fjögur
böm; Þráinn húsasmiður, f. 1952,
gjftm- Helgu Jónu Ársælsdóttur og
eiga þau þijú böm; Láms sjómaður,
f. 1954, giflur Valgerði Sveinbjöms-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Stein-
unn, f. 1958, gift Halldóri Haukssyni
sjómanni og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Ólafs em Ólafur verka-
maður, f. 23.11. 1926, og kona hans,
Lilja, f. 14.3. 1926. Föðurforeldrar
Ólafs á Grundartanga em Ólafur, b.
í Litla-Lambhaga, f. 1902, d. 1984, Sig-
urðsson, b. á Fiskilæk í Leirársveit,
Sigurðssonar, og Ólafína, sem nú
dvelst á Dvalarheimflinu Höfða á
Akranesi, f. 1902, Ólafsdóttir, vél-
smiðs á Akranesi, Ólafssonar. Systir
Ólafs, b. í Litla-Lambhaga, var Hall-
dóra, móðir Sigrúnar, konu Matthí-
asar samgönguráðherra. Kona
Sigurðar á Fiskilæk var Guðrún
Diljá, hálfsystir Ingibjargar, móður
Péturs Sigurðssonar, fv. forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Önnur systir
Guðrúnar var Þórunn, tengdamóðir
Sigurðar skólameistara á Akureyri.
Faðir Guðrúnar var Ólafur, hrepp-
stjóri í Mýrarhúsum á Seltjamar-
nesi, Guðmundsson, en kona
Guðmundar var Karitas Runólfs-
dóttir, systir Sigríðar, móður Ágústs
Flygenrings alþingismanns. Önnur
systir Karitasar var Guðrún, kona
Matthíasar skálds Jochumssonar en
bróðir þeirra systra var Þórður á
Móum, faðir dr. Bjöms forsætisráð-
herra.
Móðurforeldrar Ólafs vom Hall-
dór, vömbílstjóri á Akranesi, Óla-
son, b. í Ólafsvik, Amgrímssonar,
og Lára Jóhannesdóttir, b. í Fitja-
koti, Þorlákssonar. Kona Jóhannes-
ar var Steinunn Ijósmóðir
Þórðardóttir, b. í Skiphyl, Svein-
bjömssonar, prests á Staðarhrauni,
bróður Þórðar háyfirdómara og
Guðmundar, langafa Jónasar Rafn-
ar, fv. bankastjóra og tengdafóður
Þorsteins Pálssonar forsætisráð-
herra. Kona séra Sveinbjöms var
Rannveig, systir Bjama skálds og
amtmanns á Möðmvöllum. Faðir
þeirra var Vigfús, sýslumaður á
Ólafur Ólafsson.
Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórarinsson,
sýslumanns á Grund í Eyjafirði,
ættfóður Thorarensenanna. Stein-
unn, kona Vigfúsar, var dóttir
Bjama Pálssonar landlæknis en
kona Bjama var Rannveig, dóttir
Skúla fógeta.
Guðný Krístjánsdóttir
Guðný Kristjánsdóttir er áttræð í
dag. Guðný er fædd á Kaldabakka á
Bíldudal og fór fjórtán ára að heiman
og settist að í Reykjavík. Árið 1926
giftist hún Jóharini Byström Jóns-
syni vélstjóra en hann lést árið 1955.
Foreldrar Jóhanns vora Jón Magn-
ússonar, vélstjóri í Rvík, og kona
hans, Guðlaug Margrét Þórðardótt-
ir. Jóhann starfaði hjá Landhelgis-
gæslunm en var síðar á flutninga-
skipum og þá lengst af á ms. Heklu.
Árið 1942 settust þau Guðný og
Jóhann að á Siglufirði þar sem hann
starfaði sem vélstjóri hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins. Þau fluttust síöan
aftur til Reykjavíkur árið 1953 en þar
hefur Guðný búið síðan.
Þeim Guðnýju og Jóhanni varð
fimm bama auðið. Þau era: Ester
Anna, f. 1930, gift Skarphéðni Guð-
mundssyni, skrifstofustjóra í
Samvinnubankanum í Hafharfirði;
Kristján rafsuöumaður, f. 1932, gift-
ur Mattheu Jónsdóttur frá Drangs-
nesi, nú búsettur í Þorlákshöfn;
Ástríður, f. 1936, gift Helga Ó. Bjöms-
syni offsetprentara, ættuðum frá
Skagaströnd; Öm múrarameistari,
f. 1943, giftur Eygló Ólafsdóttur ffá
Húsavík en þau era búsett þar; Jón
Rafn kortagerðamaður, sem nú
starfar sem hönnuður á DV.
Systkini Guðnýjar vom átta:
Magnús sjómaður; Sigrún sem er
látin en var gift Karli Jörgensen tré-
smíðameistara; Guðbjörg, gift
Agnari Milner kaupsýslumanni;
Hanna, gift Jónasi Ásgrímssyni raf-
virkjameistara; Viktoría sem er látin
en var gift Guðmundi Bjömssyni
húsasmíðameistara; Þórður, kvænt-
ur Þóm Sæmundsdóttur leigubíl-
stjóra, og Jakobína sem er látin en
var gift Olafi Péturssyni hamóniku-
leikara.
Foreldrar Guðnýjar: Krislján
Magnússon, skipstjóri á Bíldudal, og
kona hans, Guðmundína Ámadóttir.
Kristján var sonur Magnúsar, b. á
Sellátrum í Tálknafirði, síðar skip-
stjór^ á Bíldudal, Kristjánssonar, b.
á Lokinhömrum, Oddssonar, b. í
Stóra-Garði í Dýrafirði, Gíslasonar.
Móðir Kristjáns var Sigrún ljósmóð-
ir Ólafsdóttir, b. á Auðkúlu í
Amarfirði, Jónssonar og Guðnýjar
Jónsdóttur, b. og hreppstjóra í
Guðný Kristjánsdóttir.
Haukadai í Dýrafirði, Ólafssonar, b.
og hreppsfjóra í Haukadal, Bjama-
sonar.
Móðir Guðnýjar, Guðmundína,
var dóttir Áma Kristjánssonar frá
Hrafnseyri við Amarfjörð, en hann
starfaði lengi sem verkstjóri hjá
Thorstensenútgerðinni á Bfldudai.
Guðný dvelur nú á Hrafnistu í
Reykjavik. Hún mun taka á móti
gestum í Oddfellowhúsinu, Linnet-
stíg 6, Hafnarfirði, eftir kl. 7 á
miðvikudagskvöldið.
Páll Gunnarsson
Páll Gunnarsson, Reykjavikur-
vegi 27, varð sjötugur í gær.
Páll er fæddur á Reyðarfirði og
ólst þar upp til nítján ára aldurs.
Hann fluttist þá til Siglufjarðar og
átti þar heima í fimm ár. Páfl var í
Samvinnuskólanum í tvö ár og út-
skrifaðist þaðan 1939. Hann var
sjómaður og landmaður í Sandgerði
í þijátíu og eitt ár til 1971 og hefur
síðan unnið á skrifstofu hjá Eim-
skipafélaginu í Reykjavík.
Kona Páls var Ingflaug Sigurðar-
dóttir, f. 22. janúar 1918, en hún lést
6. október 1983. Böm þeirra em:
Svavar Hreindal, f. 13. október 1939,
býr í Svíþjóð, giftur Aðalheiði Sig-
urðardóttur. Gunnar, f. 8. mars 1947,
sjómaður í Rvík, giftur Ásu Guðna-
dóttur, eiga þau einn son. Sigur-
bjöm, f. 7. janúar 1950, sendibílstjóri
í Rvík, gifúr Elsu Skarphéðinsdótt-
ur, eiga þau einn son. Sigríður
Pálína, f. 27. maí 1951, lést sjö vikna.
Guðbjörg, f. 28. maí 1953, vinnur hjá
Eimskipafélaginu, á tvö böm. Öm,
f. 14. september 1955, sjómaður í
Njarðvik, giftur Herborgu Harðar-
dóttur, eiga tvö böm.
Systkini Páls era: Anna, verka-
kona í Rvík, en hún er látin, Sigur-
björg, látin, var gift Jörgen.Hólm,
verkamanni á Siglufirði, Jón, verk-
stjóri við sfldarsöltun á Siglufirði,
hann er látinn, Lára, gift Eðvald Ei-
ríkssyni, verkamanni á Siglufirði,
en hann er látinn, Sólborg, gift Þor-
keli Jónssyni, leigubflstjóra í Rvík,
hann er látinn, Ásgeir, bæjarstarfs-
maður á Siglufirði, látinn, var giftur
Guðrúnu Hafliðadóttur, Hjalti. skip-
stjóri og útgerðarmaður á Reyðar-
firði, giftur Aðalheiði Vflbergsdótt-
ur, þau em bæði látin, Páll, lést
ungur, Ingvar, vélstjóri á Eskifirði,
giftur Dagmar Sigurðardóttur, hún
er látin. Systkini Páls, samfeðra, em
Friörik, lést átta ára, Reynir, vél-
stjóri á Reyðarfirði, giftur Guðnýju
Pálsdóttir, Bóas, starfsmaður Kísfls-
verksmiðjunnar í Mývatnssveit,
giftur Kristínu Sigfúsdóttur, Sigríð-
ur, gift Ámmar Andréssyni, verka-
manni á Reyðarfirði, en hann er
Páll Gunnarsson.
látinn, Sigrún, gift Guðmundi Ara-
syni, starfsmanni kaupfélagsins í
Breiðdalsvík, Aðalheiður, gift Halli
Sigurbjömssyni, fyrrv. skattstjóra á
Akureyri, Fjóla, gift Pétri Valdi-
marssyni, tæknifræðingi á Akur-
eyri, Ragnhfldur, gflt Ólafi Oddssyni,
tæknifræðingi í Rvík, en hann er
látinn, og Sólveig, gift Emi Indriða-
syni, húsasmið á Akureyri.
Foreldrar Páls vora Gunnar Bóas-
son, f. 11. maí 1884, d. 28. júlí 1945,
útgerðarmaður á Reyðarfirði, og
fyrri kona hans, Sigríður Jónsdóttir,
f. 11. júní 1884, d. 22. janúar 1922.
Andlát
Sesselja Eysteinsdóttir, Ingólfs-
stræti 16, Reykjavík, lést á heimili
sínu 5. október.
Bragi Jónsson framkvæmdastjóri
er látinn.
Jensey Kjartansdóttir frá Hesteyri
andaðist að Garðvangi 5. október.
80 ára
Guðný Sigríður Gísladóttir, Nóatúni
29, Reykjavík, er áttræð í dag. Hún
mun taka á móti gestum í Domus
Medica laugardaginn 10. okt. milli kl.
14 og 17.
75 ára
Kristín Sigurðardóttir, Fagurhlíð,
Álftavershreppi, er sjötíu og fimm ára
í dag.
70 ára
Ásgeir Sigurðsson járnsmiður,
Gmndagötu 6, ísafirði, er sjötíu ára í
dag.
Pétur G. Jóhannsson, Sæviðarsundi
9, Reykjavík, er sjötugur í dag.
60 ára
Ólafur Einarsson kennari, Frosta-
skjóli 13, Reykjavík, er sextugur í dag.
Afmæli
Bjöm Jónsson
Bjöm Jónsson sóknarprestur,
Laugarbraut 3, Akranesi, er sextug-
ur í dag.
Bjöm er fæddur á Þverá í Blöndu-
hiíð og lauk guðfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1952 og var í fram-
haldsnámi í kirkjusögu, trúfræði og
kennimannlegri guöfræði við há-
skólann í Tubingen í Þýskalandi
1956-1957. Hann var sóknarprestur
í Keflavík 1952-1974 og sóknarprest-
ur í Garðaprestakaili á Akranesi frá
1975. Hann var stundakennari við
gagnfræðiskólann í Keflavik
1953-1956, 1957-1959 og 1962-1975.
Bjöm var stundakennari við bama-
og unglingaskólann í Ytri-Njarðvik
1960-1962 og 1964-1975 og við Iðn-
skóla Suðumesja 1969-1975. Hann
var varaformaöur bamavemdar-
nefndar Keflavíkur 1956-1962 og
formaður hennar 1963-1970. Bjöm
var formaður áfengisvamanefndar
Keflavikur 1954-1975 og formaður
sáttanefndar Akraneskaupstaðar frá
1975. Hann var í bamaheimilisnefnd
þjóðkirkjunnar 1954-1974 og hefur
verið í framkvæmdanefnd Stórstúku
íslands frá 1976. Bjöm hefur verið í
stjóm samvinnunefndar bindindis-
manna frá 1979 og í stjórn Hallgríms-
defldar Prestafélags íslands frá 1975.
Kona Bjöms er Sjöfn Pálfríður
Jónsdóttir, f. 14. nóvember 1934. For-
eldrar hennar em Jón M. Guðjóns-
son, prófastur á Akranesi, og kona
hans Jónína Lilja Pálsdóttir. Böm
þeirra em: Margrét Soffia, f. 9. febrú-
ar 1954, myndmenntakennari, gift
Ólafi Jóni Ambjömssyni, konrektor
Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki.
Ingibjörg Jóna, f. 1. aprfl 1955, launa-
fulltrúi Akranesbæjar, gflt Herði K.
Jóhannessyni umsjónarmanni. Páll,
f. 7. janúar 1961, lést ungur. Jón Páll,
f. 10. maí 1962, tæknimaður í Þjóð-
leikhúsinu. Gunnhfldur, f. 25. maí
1970, nemi í Fjölbautaskólanum á
Akranesi.
Bróðir Bjöms er Stefán, b. á
Grænumýri í Blönduhlíð, giflur Ingu
Ingólfsdóttur. Foreldrar Bjöms vom
Jón Stefánsson, b. í Hjaltastaðakoti
í Blönduhlíð, og kona hans Gunn-
hfldur Bjömsdóttir. Móðir Bjöms,
Gunnhfldur, var dóttir Bjöms, pró-
fasts í Miklabæ í Skagafirði, Jóns-
sonar og konu hans, Guðfinnu
Jensdóttur.
Bjöm og Sjöfn kona hans ætla að
taka á móti gestum laugardaginn 10.
október eftir kl. 15 á heimili sínu á
Laugarbraut 3.
Ragnheiður Guðrún Guðjónsdóttir
Ragnheiður Guðrún Guðjónsdótt-
ir Norðdahl, Úlfarsfelli 2, Mosfells-
bæ, er sjötíu og fimm ára í dag.
Ragnheiður er fædd á Suðureyri
við Súgandafiörð og ólst þar upp
ásamt systkinum sínum, Bjama, síð-
ar vélstjóra, og Ágústu, nú kennara
í Svíþjóð. Hún fór í Menntaskólann
á Akureyri en varð að hætta vegna
heilsubrests. Ragnheiður giftist Að-
albimi Péturssyni og bjuggu þau á
Siglufirði. Böm þeirra: Vera, sauma-
kona í Rvík. Hún á sex böm. Sverrir,
sjómaður í Rvik. Hann á fiögur böm.
Seinni maður Ragnheiöar er Grímur
S. Norödahl. Foreldrar hans em
Skúli Guðmundsson Norðdhal, b. á
Úlfarsfelli í Mosfellssveit, og kona
hans, Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Þau hófu búskap í Reykjavík og vora
meðal frumbyggja í Kópavogi en
íluttu að Úlfarsfelli 1961 og hafa búið
þar síðan. Böm þeirra: Skúli, iðn-
verkamaöur á Álafossi. Guðmund-
ur, iðnverkamaður á Álafossi, giftur
Kolbrúnu Sigríði Guðmundsdóttur
og eiga þau eitt bam. Guðjón, iðn-
Ragnheiður Guðrún Guðjónsdóttir
Norðdahl.
verkamaður í Rvik, giftur Sesselju
Auðbjörgu Pálsdóttur. Ingibjörg,
flugfreyja, gift Daníel Þórarinssyni
viðskiptafræðingi og eiga þau þijú
böm.
Foreldrar Ragnheiðar: Guðjón Jó-
hannsson, skósmiður á Suðureyri,
og kona hans, Ágústa Bjamadóttir.
50 ára
Jón H. Ólafsson málarameistari,
Gaukshólum 2, Reykjavík, er fimm-
tugur í dag. Hann tekur á móti gestum
eftir kl. 20 í Skipholti 70.
Stefán Vagnsson, Minni-Ökrum,
Akrahreppi, er fimmtugur í dag.
Benedikt Bragi Pálmason, Suður-
byggð 25, Akureyri, er fimmtugur í
dag.
Kristín Guðmundsdóttir, Skriðufelli,
Gnúpverjahreppi, er fimmtug i dag.
Hún verður aö heiman.
Jón Árni Jónsson, Sölvabakka, Engi-
hlíðarhreppi, er fimmtugur í dag.
Helga Halldórsdóttir, Fljótsbakka,
Reykdælahreppi, er fimmtug í dag.
40 ára
Vilhelmína Ragnarsdóttir, Alfhóls-
vegi 109, Kópavogi, er fertug í dag.
Elínrós Guðmundsdóttir, Kirkju-
braut 5, Njarðvik, er fertug í dag.
Lilja Hjörleifsdóttir, Lyngfelli, Vest-
mannaeyjum, er fertug í dag.