Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Side 7
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
7
_________________Fréttir
Kolsýra:
Um 1200
tonn seld
á árinu
Notkun á kolsýru hérlendis hefur
tvöfaldast frá því að Sjóefnavinnslan
hf. hóf kolsýruvinnslu í ársbyijun.
Kolsýruverð lækkaði um helming og
þar með opnaðist miklu stærri mark-
aður. Nú er kolsýrunni hleypt í
gróðurhúsin í vaxandi mæh og gróð-
urinn þýtur upp. Byrjað er að nota
hana við slátrun á eldislaxi og næst
verður kolsýran líklega notuö með
sama hætti við slátrun loðdýra og
svína.
Allt árið í fyrra voru seld um 650
tonn af kolsýru, samkvæmt heimild-
um DV. Tahð er að salan verði ekki
undir 1.200 tonnum á þessu ári. Fram-
leiðslugeta þeirra sem eru í kolsýrunni
hér er um 3.200 tonn. Aukin notkun
snýr ýmist að því að lífga gróður eða
deyða dýr, eins og fyrr segir. Kolsýran
er notuð tíl þess að svæfa dýrin sem
síðan eru afhfuð.
Þá er kolsýran einnig notuð í föstu
formi til kælingar. Forsetamaturinn
er th dæmis fluttur um ailar jarðir
kældur í þurrís. Hann hefur þann
kost að bráðna ekki niður heldur gufa
upp. Af honum er því engirm sóða-
skapur og þess vegna hentar hann vel
í gáma og flugvélar, svo dæmi séu
nefnd. Loks má nefna að kolsýra er
notuð við snöggfrystingu matvæla,
svo sem matarskammta.
Ef Hitaveita Suðumesja kaupir Sjó-
efnavinnsluna er reiknað með aö hún
leiti samvinnu við fyrirtæki sem hafa
hagsmuna að gæta á þessu sviði.
-HERB
Raufarhöfh:
Miklar
framkvæmdir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyit
Mjög mikh atvinna hefur verið á
Raufarhöfn á þessu ári. Auk mikiha
framkvæmda við höfnina, sem voru
stærsta verkefnið á staðnum, voru
gangstéttir lagðar víða og myndarlegt
tjaldstæði útbúið.
Tvö einbýhshús á vegum verka-
mannabústaða eru í byggingu og á að
taka þau í notkun á næsta ári. Þá verð-
ur hafin bygging á tveimur öðrum og
haldið áfram á þann hátt næstu árin.
Auk þess eru nokkrir einstakhngar á
Raufarhöfn að byggja einbýhshús.
Lokið er hönnun á fjórum íbúðum
fyrir aldraða og hefjast byggingar-
framkvæmdir á næsta ári. I sumar
hefur verið unnið að viðgerðum og
endurbótum á hehsugæslustöðinni
auk annarra verkefna og að sögn
Gunnars Hhmarssonar sveitarstjóra
hefur verið meira en nóg að gera og
einungis vantar fleira fólk th starfa.
Ríkisendurskoðandi:
Flugstöðin
í rannsókn
„Við stefnum að því að ljúka rann-
sókn á reikningum og samanburði á
áætlunum og niðurstöðum varðandi
Flugstöð Leifs Eiríkssonar áður en
lánsfjárlög koma th lokameðferðar á
Alþingi," segir Hahdór Sigurðsson rík-
isendurskoðandi. Fjármáiaráðherra
fól embætti hans þessa rannsókn.
Hahdór segir að auk nokkurra
manna hjá embættinu sem koma að
þessari rannsókn vinni tveir verk-
fræðingar að henni sem sérstaklega
voru fengnir th verksins. „Við höfum
ekkert vit á tæknimálum hér og urð-
um því að leita annað th þess að leggja
mat á tæknhegar hhðar málsins," seg-
ir ríkisendurskoðandi.
Samkvæmt þessum upplýsingum er
varla von á niðurstöðum rannsóknar-
innar fyrr en í desember. -HERB
NISSAIVI
PATHFINDER
NISSAN PATHFINDER
VERÐUR FÁANLEGUR INNAN SKAMMS í ÖLLUM GERÐUM
★ Nissan Pathfinder er með 6 strokka bensínvél
(sama vél og er í Nissan sportbílnum 300 zx).
★ Nissan Pathfinder er einnig með 2.4 lítra bensínvél, þrælöflugri.
★ Nissan Pathfinder er fáanlegur með sjálfskiptingu eða 5 gíra.
★ Nissan Pathfinder er fáanlegur með ótal aukahlutum.
Ef hinir kröfuhörðu jeppagagnrýnendur Bandaríkjanna eru á einu máli um að Nissan Pathfinder sé sá besti,
þá hlýtur að vera fótur fyrir því.
PATHFINDER VERÐUR TIL SÝNIS í REIÐHÖLLINNI NÚ UM HELGINA -
17. OG 18. OKTÓBER - KL. 10-20 BÁÐA DAGANA
03
tí Ill i \
dí 1957-1987 Ny
Í3„°Í
:i| IIMGVAR HELGASON HF
■ HR Sýningarsalurinn/Rauðageröi, simi 33560.