Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Side 9
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
9
Ferðamál
Bestu flugfélög ávsins
í nokkur ár hefur hið alþjóðlega
ferðablað Business TraveÚer birt
lista yflr bestu flugfélög ársins, bestu
flugvellina, bestu hótelin og bestu
bílaleigumar. Fleiri Ustar eru birtir,
til dæmis yfir bestu toli- og farang-
ursþjónustu á flugvöllum. Hér er um
að ræða skoðanakönnun á meöal
lesenda tímaritsins.
í könnuninni, sem nú er nýbirt,
bárust eitt þúsund svör frá lesendum
og ferðalöngum í fimmtíu og tveimur
löndum víðs vegar um heiminn. Það
er mikið í húfi fyrir viðkomandi að-
Bestu flugfélögin 1987:
1 (1) SWISSAIR
2 (2) British Airways
3 (3) Singapore Airlines
4 (4) Cathay Pacific
5 (8) Lufthansa
6 (6) Thai International
7 (5) KLM
8 (7) British Caledonian
9 (10) Qantas
10(9) SAS
11 (11) Air New Zealand
12 (13) Air France
13 (12) Japan Airlines
14 (17) TWA
14 (23) South African Airways
ila sem til skoðunar eru í könnun-
inni. Það skiptir gífurlegu máb fyrir
flugfélög og hótel að komast á blað
í þessari könnun, gefum við okkur.
Það er sagt aö þeir ferðamenn, sem
taki þátt í þessari skoðankönnum,
greiði atkvæði með eða í gegnum
„tékkheftin". Það skiptir neytendur
máli að fá fyrir peninga sína þá þjón-
ustu sem í boði er eða auglýst er
hveiju sinni. Það er sagt að í yfir
fimmtíu löndum sé áætiað að ferða-
menn verji rúmlega sex þúsund
billjónum króna í flugfargjöld og
gistikostnað á hótelum á ári. (Þetta
mun vera tíu þúsundfóld sú upphæð
sem fjárlög íslenska ríkisins munu
nema á næsta ári.)
í fyrirrúmi
Það sem virðist skipta fólk mestu
máli á ferðalögum um heiminn er
áreiðanieiki, að áætlanir standist,
svo og auglýst þjónusta. Sjö atriði
eru helst gagnrýnisverð af Qugfar-
þegum í viðskiptaferðum og það er
framkoma Qugáhafna á Qugleiöum,
þægindi, stundvísi, máltíöimar, ör-
yggi, Qugleiðir og áætianir.
Besta Qugfélagið árið 1987 er sviss;
neska Qugfélagið SWISSAIR sam-
kvæmt niðurstöðum skoöanakönn-
unar tímaritsins. Það er ekki
breyting á flóm efstu sætunum frá
Usta síðasta árs en í öðru sæti er
British Airways, þriðja Singapore
Airlines og Cathay PaciQc í flórða
sæti. í fimmta sæti er þýska Qugfé-
lagið Lufthansa sem greirúlega hefur
bætt þjónustu sína frá síðasta ári en
Máltíðir og framkoma flugliða um borð i flugvélum skipta miklu máli i vali ferðamannanna í skoðanakönnuninni.
þá var félagið í áttunda sæti. Thai
Intemational er í sjötta sæti, KLM
(hollenskt) er í sjöunda sæti, fellur
úr fimmta sæti í það sjöunda. QANT-
AS og SAS skipta um sæti, SAS var
í níunda sæti síðast en fer í tíunda
en QANTAS tekur niunda sætið,
færist upp um eitt. Aðeins eitt
bandarískt Qugfélag er í einu af fjórt-
án efstu sætum listans. það er TWA.
Tvö Ougfélög deila Qórtánda sætinu.
hitt er South African Airways sem
í f\-rra var í tuttugasta og þriðja
sæti og viröist því vera Qugfélag á
uppleið. Air Canada. sem í fyrra var
í þrettánda sæti. er nú í tuttugasta
og þriðja svo að sviptingar eru hjá
fyrirtækjum á þessum markaði.-ÞG
Ferðapunktar
Ferðum fækkað
Bandaríska Ougfélagið PAN AM
mun draga úr þjónusta til Honolulu
(Hawaii) í næsta mánuði. Daglega hef-
ur Ougfélagið haldið uppi áætiunar-
Qugi frá New York og Los Angeles til
Honolulu en eftir miðjan næsta mánuð
verður ferðum fækkað en þetta er lið-
ur í átján mánaða samdráttaráætiun
félagins.
Sólarhrings-
þjónusta
Nýja þjónustu er verið að taka upp
á Holiday Inn hótelum í Bretlandi og
víðar í Evrópu og einnig í Mið- Aust-
urlöndum. Það er þjónusta sem nefna
má á íslensku „gleymdist eitthvaö".
Feröafólk þekkir það að þegar áð er á
hótelherbergjum kemur stundum í
ljós að það gleymdist aö setja tann-
bursta eða tannkrem, rakvél eða
greiðu og sjampó í töskuna. Þetta
vandamál er mönnum ljóst á Holiday
Inn hótelunum sem ætia nú að hafa
þessa smáhluti til sölu allan sólar-
hringinn.
Jólainnkaup
Það er ekki ráð nema í tíma sé tek-
ið. í Glasgow er mikill viðbúnaður til
að laða til borgarinnar fólk til jólainn-
kaupa. Þegar hafa nokkur hótel kynnt
jóladagskrár sínar. BorgaryQrvöld í
Glasgow hafa heitið auknu ijármagni
og Qeiri aðilar vilja stefna að þvi aö
gera jólainnkaupin í borginni eftir-
minnileg. Það verður mikið um alls
konar „uppákomur" í desember, ráð-
stafanir verða gerðar til að liðka til
fyrir ökumönnum og ljósadýrðin eða
götuskreytingar verða sérstaklega
glæsilegar. Verslunareigendur leggja
mikið upp úr vöruúrvali og orð'hefur
farið af lágu vöruverði. í borgarblöð-
um þarlendum má lesa fréttir um að
fólk komi í verslunarferðir til Glasgow
frá Noregi, Svíþjóð, Frakklandi,
Þýskalandi og íslandi. Og nú vilja
menn fá enn Qeiri fyrir jólin.
Opnum í dag
stórglæsilega blómaverslun
- ina
ji airqn
Bœjarhrauni 26, sími 50202.
Við höfum opnað stórglæsilega blóma-
verslun að Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði.
Þar er stórglæsilegt pottaplöntuúrval og
gjafavörur.
Skreytingameistarar okkar sjá um allar
skreytingar sem hugurinn girnist.
Verið velkomin.