Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Page 13
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
13
Angela Lansbury í Morðsögu:
sem sigraði að lokum
Angela Lansbury er orðin vel þekkt
leikkona hér á landi sem Jessica í
sjónvarpsþáttunum Morðsaga, sem
Stöð 2 hefur sýnt á miðvikudögum.
Morðsaga var á dagskrá Stöðvar 2
allan fyrravetur og þegar sýningar
vopu lagðar niður 1. júní sl. komu
ákaflega margar kvartanir frá sjón-
varpsáhorfendum. Það var því ekki
um annað að ræða fyrir Stöðvar-
menn en taka þráðinn upp að nýju
og sýningar á Morðsögu hófust aftur
í byrjun september.
Morðsaga hefur oftsinnis verið til-
nefnd til verðlauna. Angela Lans-
bury fékk Golden Globe verðlaunin
á síðasta ári fyrir leik sinn í þáttun-
um. Hún hefur einnig hlotið Tony
verðlaun. Morðsaga hefur unnið til
nokkurra Emmy verðlauna og marg-
sinnis hefur Angela verið tilnefnd.
Reyndar er Angela Lansbury ekki
óvön því að vera tilnefnd til verð-
launa því hún hefur þrisvar verið
tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir
leik í kvikmyndum en aldrei fengið
þau eftirsóttu verðlaun.
Missti allt
Árið 1979 fékk Angela tvo skelli á
sig. Fyrst var það sonur hennar sem
hafði verið í meðferð á hæli fyrir eit-
urlyíjasjúklinga án þess að það bæri
árangur og síðan kom upp eldur í
húsi hennar þar sem hún missti allt
sitt. „Slíkur missir er svo rosalegur
að því getur enginn lýst." segir Ang-
ela. „Það er ekki hægt að láta sem
ekkert sé og halda áfram. Maður
missir móöinn ósjálfrátt.” útskýrir
hún.
Þegar allt þetta haföi dunið yfir
ákváðu Angela og maður hennar.
Peter Shaw. að yfirgefa Bandaríkin
og flytja til írlands. Angela hafði
tvisvar áöur komið til írlands og ver-
iö ánægð með dvölina í bæði skiptin.
Hún sagði að það væri rétti staðurinn
fyrir þau og börnin. Nú ætlaði hún
aö gerast húsmóðir í sveit og hugsa
um heimili og fjölskylduna. langt í
burtu frá Broadway, sviðum og kvik-
myndaverum. „Ég trúði því sjálf að
ég myndi aldrei aftur fara út á vinnu-
markaðinn,“ segir hún.
stórverslun en það var rétt áður en
ljóskan hún Angela komst á samning
hjá MGM kvikmyndafyrirtækinu.
Hún frétti að þcð vantaði enska leik-
konu í kvikmyndina Dorian Grey.
Fyrst lék hún þó smáhlutverk í kvik-
myndinni Gaslight og síðar í Natio-
nal Velvet áður en hún fékk
hlutverkið í Dorian Grev. Eins ogs
áður hefur komið fram var Angela
Lansbury þrisvar tilnefnd til óskars-
verðlauna. Þar á meðal fyrir leik sinn
í Gaslight og Dorian Grey.
Giftist tvítug
Árið 1945 varð Ángela Lansbury
Angela með dóttur sinni, Deirdre. Þessi mynd var einnig tekin árið 1979 i
samkvæmi sem haldið var á Waldorf-Astoria hótelinu í New York.
hennar og dóttir hættu eiturlyfja-
neyslu og fóru að vinna. Dóttirin.
Deirdre. fékk vinnu i eldhúsi i ná-
lægu gistiheimili og sonurinn fékk
vinnu sem þjónn á bar. Allt gekk vel
utan að Angela missti móður sina er
hún bjó á írlandi.
Með leikhæfiieika i blóðinu
Móðir Angelu Lansbury. Moyna
Macgill. hafði haft mikil áhrif á hana
strax frá fæðingu. Moyna var vel
þekkt leikkona í Englandi. Hún
missti mann sinn ung. Edgar Lans-
bury. en hún átti þá tjögur börn.
Dæturnar Isoldu og Angelu og tví-
burana Edgar og Bruce. Angela var
9 ára og seinni heimsstyrjöldin um
það leyti að skella á. Nokkru áður
en innrás var gerð í England sendi
Moyna bréf til laföi Eleanor Roose-
velt og óskaði eftir því að hún
hjálpaði sér og fjölskyldu sinni að
komast til Ameríku. Tengdafaðir
Moynu. George Lansbury. var bresk-
ur stjórnmálamaður og hafði eitt
sinn haldið fyrirlestur fvrir sjálfan
Roosevelt og Moyna vonaði að þaö
gæti haft áhrif.
Það haföi áhrif því nokkru seinna
var Movna á leið til Bandaríkjanna
rneð Angelu og tvíburasynina. Elsta
dóttirin. Isolda. sem hún átti frá fyrra
hjónabandi, var orðin nógu gömul á
þessum tíma til að vera eftir. Hún
giftist reyndar síðar leikaranum Pet-
er Ustinov. Allt frá því Angela
Lansbury var sextán ára vann hún
fyrir sér í næturklúbbi. Moyna fékk
störf í leikhúsum í Hollywood með
hjálp breskra vina.
Fékk hlutverk hjá MGM
Þær mæðgur björguðu síðan fjár-
hag heimilisins með því að vinna í
ástfangin af leikaranum Richard
Cromwell. þá tvítug að aldri. Þau
giftu sig en hjónabandið stóð aðeins
í niu mánuði. Tveimur árum síðar
hitti hún þann rétta. Peter Shaw. sern
einnig var leikari hjá MGM og sem
einnig var breskur. Þau voru saman
í tvö ár áður en þau gengu í hjóna-
band en brúðkaupið fór fram í
Englandi. Þrjátiu og sjö ár eru síðan
og ennþá eru þau hamingjusamlega
gift.
Að gera hlutina og gera þá rétt.
hefur verið nokkurs konar slagorð
fyrir Angelu Lansbury. Það var ekki
fyrr en hún hafði fullvissað sig um
aö börnin hennar hefðu náð sér upp
úr erfiðleikunum að hún gat með
góðri samvisku flutt aftur til Banda-
ríkjanna frá írlandi.
Vel fagnað í Bandaríkjunum
Angela Lansbury fékk strax hlut-
verk á sviði á Broadway er hún flutti
vestur. Hún lék i tveimur stórum
verkum á Broadway áöur en henni
bauðst hlutverk í kvikmvnd að n\ju.
Fyrst var það Agöthu Christie mynd-
in The Mirror Crack'd og síðan Death
on the Nile. Þar á eftir kom boð um
hlutverkið Jessica Fletcher í Morð-
sögu í sjónvarpsþáttamyndaflokki.
Nú er Morðsaga „Murder, She
Wrote" vinsælasti myndaflokkur
sem CBS sjónvarpsstöðin framleiðir.
Dóttir Angelu, Deirdre, er gift og
búsett á Ítalíu þar sem hún rekur
veitingahús með manni sínum. Ant-
hony, sonurinn, hefur einnig komið
sér vel fyrir og starfar sem fram-
kvæmdastjóri. Og Angela og Peter
hafa byggt sér fallegt hús í Kaliforníu
þar sem eru ensk antikhúsgögn og
ýmsir munir frá írlandi.
samantekt/-ELA
Nýir þættir
Það var árið 1984 sem fyrstu þættir
Morðsögu voru sýndir. Þá þætti
horfðum við á í fyrravetur. Þriðja og
nýjasta syrpa þáttanna verður sýnd
hér á landi eftir áramótin þannig að
í raun fylgjum við Bandaríkjamönn-
um fast eftir i sýningum þáttanna.
Enginn átti von á því í byrjun að
þættir um rithöfund sem leysir
morðgátur ættu eftir að reynast vin-
sælir. En annað kom á daginn. Þessi
rúmlega sextuga kona hefur sýnt
slíka snilld í þáttunum að þeir eru
með vinsælasta sjónvarpsefni í
Bandaríkjunum í dag. „Jessica Fletc-
her er Angela Lansbury því i Jessicu
kemur fram allt það sem Angela hef-
ur til að bera. Hún er vingjarnleg,
gáfuð, fyndin og umfram allt aðlað-
andi persónuleiki," segir framleið-
andi þáttanna.
í Morðsögu byggist söguþráðurinn
venjulega á því sama. Jessica Lange
er rithöfundur sem í hverjum þætti
lendir óvænt í því að leysa morðgátu.
Það er eins og morðmálin elti hana
á röndum þvi það er sama hvar
Jessica er stödd hún fær alls staðar
mál til rannsóknar. Hún hefur einnig
Angela Lansbury ásamt eiginmanni sinum, Peter Shaw. Þau hafa gengið
i gegnum súrt og sætt þau þrjátíu og sjö ár sem þau hafa verið gift.
Sveitalíf á írlandi
Þau fundu rétta húsið í County
Cork á írlandi. Hús sem var byggt
árið 1825, í sveit og hafði stóra jörð,
þar sem voru tré og blóm. Angela lét
búa til nýtt eldhús og lagði sig alla
fram í matargerð og garðrækt. Sonur
Peter, Angela og sonur þeirra, Anthony. Myndin var tekin i New York árið
1979, rétt áður en Angela lagði leiklistina á hilluna til að sinna heimili og
börnum.
lúmskt gaman af því að snúa á lög-
reglustjóra.
Börnin í eiturlyfjum
í hinu raunverulega lífi hefur Ang-
ela Lansbury einnig fengist við að
glíma við vandamál þó ekki snúist
þau um morð. Hún hefur þótt jafn-
snjöll í einkalífmu að ráða í vandann.
Móðir hennar fékk krabbamein,
bæði dóttir hennar og sonur hafa átt
við eiturlyfjavandamál að stríða og
hús sem hún átti í Kaliforníu, með
öllum hennar persónulegu munum,
brann til kaldra kola.
Verst hafa henni þó fundist vanda-
mál barna sinna. Sonur hennar,
Anthony, var farinn ”að reykja
marijúana 12 ára, taka inn LSD 14
ára og 17 ára var hann orðinn heróín-
isti. „Malibu, þar sem við bjuggum
árið 1960, var yfirfull af eiturlyíjum.
Fyrir þessi tvö börn voru eiturlyf
rétt eins og tyggigúmmí,“ segir Ang-
ela. Á sjöunda áratugnuin voru
eiturlyf þjóðarvandamál og komm-
únur voru allsráðandi. En Angela lét
vandamálið til sín taka. Kannski það
hafi verið einmitt þá sem hún leysti
stærsta vandamálið. Hún gaf leiklist-
ina frá sér og byrjaði upp á nýtt.
Þetta var einmitt um það leyti sem
Angela var að ná sér upp á stjörnu-
himininn. Allt síðan á fimmta
áratugnum hafði hún leikið smá
hlutverk en í vinsælum bíómyndum.
Meðal þeirra voru The Long Hot
Summer. The Dark at the Top of the
Stairs og Manchurian Candidate*
Upp úr 1960 fór hún að leika á Broad-
way og náði þar strax miklum
vinsældum. Fyrst í Anyone Can
Whistle og síðan fékk hún boð um
að leika í nýjum söngleik. Mame. þar
sem hún varð stjarna. Angelu þótti
vænt um starfið og lék þannig að hún
átti hug og hjarta allra þeirra sem
sáu hana á sviði.