Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 17. OKTOBER 1987.
17
Bóbó í draumi heitir hún, þessi myndasaga,
sem er ein af mörgum sem Auður hefur búið
til.
Auður var aðeins 11 ára er hún orti þessa
visu með hestamyndinni, en aðaláhugamál
hennar eru hestar
minn í að sinna honum,“ heldur hún
áfram. Auður hefur fariö á þrjú reið-
námskeið og oft fylgist hún með
hestamönnum út um gluggann þar
sem hún býr, við Elliðaámar. Faðir
hennar, Aðalsteinn Guðjohnsen, er
rafveitustjóri og það er einmitt hann
sem hefur kennt Auði að setja saman
vísur. „Það eru nú bara einfóldustu
bragfræöireglur," segir hann. Aðal-
steinn hefur sjálfur haft gaman af því
að teikna og yrkja þó ekki vilji hann
hafa hátt um það.
Móðir Auðar, Ragna Siguröardóttir
Guðjohnsen, hefur hins vegar aðstoð-
að dótturina í sambandi við tónlistina.
Ragna leikur á píanó og sama gerir
Auður. „Það má segja að oft séu tón-
leikar á heimilinu en þá koma vinkon-
ur Auðar í heimsókn og þær spila og
syngja af fuilum krafti. Sjálfsagt hafa
margar Madonnur troðiö þar upp,“
segir Aðalsteinn. „Madonna er í miklu
uppáhaldi hjá þeim.“
- Eftir hverju ferðu þegar þú teiknar
Madonnu?
„Eftir plakatmyndum sem ég á. Ég
horíi á þær og teikna síöan,“ segir
Auður og bætir við: „Ég var búin að
teikna mjög margar áður en ég varð
ánægð með þær.“
- Hvað ertu lengi að teikna eina Ma-
donnumynd?
„Ef ég vanda mig er ég hálftíma."
Auður segist nota helst Hörpuhti þeg-
ar hún er að mála en tekur fram að
þeir séu of dýrir. „Ég notaði ailtaf krít,
tréhti og stundum vatnshti en er hætt
því núna.“
Auður er í Árbæjarskóla og þar er
myndmennt kennd eins og annars
staðar. Hún segir að frjálsu tímamir
séu langskemmthegastir því þá fái hún
að ráða hvað hún teiknar Fyrir
nokkrum dögum var mynd eftir Áuöi
valin til veggskreytingar í skólanum
og er það sérstakur heiður sem aðeins
tveir nemendur hijóta.
- Hefur þú einhvern tíma sent mynd
í verðlaunasamkeppni?
„Nei, ég hef aldrei sent neinar mynd-
ir frá mér utan einu sinni. Þá var ég
sex ára og sendi Lesbók Morgunblaðs-
ins jólamynd. Ég fékk hana birta en
síðan hef ég bara gert þetta fyrir mig
sjáffa."
- Hvað hefur hstakonan ákveðið með
framtíðina?
„Það gæti vel verið að ég fari í Mynd-
hsta- og handiðaskólann," svarar
Auður. „Ég er þó ekki endarhega búin
að ákveða það.“
- Þú hefur aldrei sýnt neinar myndir,
er það?
„Nei, en ég gæti það alveg því þær
eru orðnar svo margar. Kannski geri
ég það einhvem tíma,“ segir þessi
unga fjölhæfa hstakona.
Th gamans birtum við hér ljóð eftir
Auði Guöjohnsen:
Fjólan
Fögur er Qólan,
fíngerð og smá.
Draumanna drottning
og drifbjört að sjá
Rósin
Roöagulhð rósahaf
rauðum bjarma slær.
Þaðan berst mér hmur af,
yndislega tær.
-ELA
Verðdæmi:
Saab 900i staðgr. frá kr. 739.000.
Saab 9000i staðgr. frá kr. 1.063.000.
Verðdæmi:
Citroen AX staðgr. frá kr. 339.000.
Citroen BX staðgr. frá kr. 523.000.
Opið laugardag og sunnudag kl. 13-17
Globus?
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
DiLMnmin dcivi nAOvrvuuu cimnM ivmvnoi:
VIÐ
tókum á okkur stóran hluta af hœkkuninni