Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
19
eina viku í einu og hætta svo í því
eins og venja var áöur, dansa dansar-
amir nú á hveiju kvöldi meö aukinni
einbeitingu, rétt eins og þeir séu aö
gera bæði sjálfum sér og áhorfendum
ljóst hve einstakt hvert augnablik
kvöldsins er. Þessi nýja verkefna-
skipan hefur allt í einu gert San
Francisco-ballettinn hliðstæðan
Óperu og Sinfóníu borgarinnar og
gert hann eftirsóknarverðan fyrir
ferðamenn.
Öll nýju verkin
sem Helgi Tómasson setti á svið á
liðnu'sýningartímabili, ef frá er talið
New Sleep eftir Forsythe, sýna sama
djúpa skilninginn á þeim sígilda
dansi sem Helgi Tómasson virðist
stefna að að láta dansflokkinn til-
einka sér.
Dreams of Harmony sem er gert
við Aðra sinfóníu Róberts Schumann
er einstakt verk. Það er fjörutíu mín-
útna langt og líkist helst reiprenn-
andi frásögn af tilurð bræðralags
dansins. Höfundurinn, Kudelka, tek-
ur kunnuglegar hreyfingar eins og
stökk og handleggssnúning úr Se-
rendade eftir Balanchine og gerir að
grunnstefi annars kaflans. Um er að
ræða svo mörg afbrigði skrefa og
mynstra að segja má að það sé eins
og hreyfingarnar í verkinu beri skip-
an þess ofurliði.
New Sleep eftir Forsythe er sting-
andi ádeila á öld röksemishyggjunn-
ar. Dansararnir fimmtán líta út eins
og þjálfaðir manndráparar sem hafa
þó engin önnur vopn en tærnar á
skónum sínum og hreyfingar fót-
leggjanna. Sérstaka athygh vekur
einnig lýsingin sem Forsythe stóð
sjálfur að en hún sýnir annars vegar
blindandi birtu rökhyggjunnar en
hins vegar myrkur miðalda.
New Sleep var sérstaklega sett á
svið fyrir Viktoríu Morgan sem var
nú að kveðja það fyrir fullt og allt.
Margvíslegur ávinningur
Hafi New Sleep gefið SFB það sem
hann hafði þörf fyrir færði Sunset
eftir Tayllor ballettinum það sem
hann hafði óskað sér: hvasst stjórn-
málaverk sem sýnir vel að nýfenginn
styrkur dansflokksins liggur í tján-
ingarmáta sem byggist á þeirri
skoöun að karlmennska og ljúf-
mennska stangist ekki á heldur eigi
samleið.
Mesta opinberunin, sem kom fyrir
augu þeirra sem sóttu sýningar San
Francisco-ballettsins á liðnu sýning-
artímabili, var þó sú að nú dylst
engum að dansflokkurinn á sér
stjórnanda sem veit hvað hann vill.
Um er aö ræða nokkurs konar köllun
sem er að grípa um sig meðal dans-
ara í borginni. Þegar síðasta sýning-
arvikan rann upp í maí mátti sjá
mörg kunnugleg andlit úr hópi dans-
ara og áhugamanna um dans af
svæðinu umhverfis San Francisco-
flóa. í fyrsta sinn í mörg ár er það
orðin fagurfræðileg nauösyn fyrir
alla áhugamenn um dans í borginni
að horfa á sýningar San Frnciscobal-
lettsins.
Þýð: ÁSG
Helgi Tómasson.
„Aaaaaaaahhhhhhhh! “
- Við höfum oukið verulega bilið á milli sœtanna.