Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Page 23
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
23
Veiðieyrað
Nýjasta leynivopnið í sjóbirtingn-
um þessa dagana er stremerin „flæð-
armúsin“ sem Sigurður Pálsson
hefur hnýtt. Er sjóbirtingurinn víst
óður í hana. Hefur hann gengið vel
í Vatnamótunum og víðar, herma
sögur. En Sigurður Pálsson hefur
gert meira síðustu daga en hnýta
„flæðarmúsina“ því hann hefur síð-
ustu helgar kennt fluguhnýtingar og
hélt víst um daginn eina einkanám-
skeiðið sem haldið hefur verið í
fluguhnýtingum og voru tveir mætt-
ir. Fengu þeir fina kennslu, þessir
tveir.
Veiðimenn, sem voru að renna í
Mávabótaála, veiddu vel á „flæðar-
músina“, fengu þrjá sjóbirtinga á
stuttum tíma. Annar veiðimaður sá
sjóbirting narta í fluguna. Það var
blankalogn og veiðimaðurinn togaði
aðeins í og viti menn, silungurinn
sneri við og tók fluguna, hann var 8
pund.
„Yfirfullt var og við urðum að vísa
mönnum frá, við tökum bara 18 í
tíma,“ sagði Kolbeinn Grímsson,
fluguhnýtari og kennari, en Ármenn
byrjuðu flugukennslu í íþróttahúsi
Kennaraháskólans um síðustu helgi.
Á sama tíma byrjaði kennslustarf
Kastklúbbs Reykjavíkur og stanga-
veiðifélaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði í Laugardalshöllinni.
Yfirfullt hjá Ármönnum og góð þátt-
taka í Höílinni í upphafi boðar gott
fyrir veturinn. „Við tókum 18, þetta
eru mikið fjölskyldur sem koma og
hópurinn er passlegur," sagði Kol-
beinn í lokin.
Eitt at því sem hefur verið föst venja i mörg ár fyrir austan, á Kirkjubæjarklaustri, er að fara í ádrátt eftir veiðitímann til að ná í sjóbirting i klak Þett£
eru nemendur og kennarar Kirkjubæjarskólans, en þar er kennt fiskeldi. Þykja þetta hinar fjörlegustu ferðir og hafa ár eins og Hörgsá og GeirlandsÉ
verið heimsottar. Hér eru menn við ádrátt í Hörgsá. Nú eftir veiðitimann á að fara i Geirlandsá en eftirspurn eftir sjóbirtingsseiðum hefur aðeins minnk-
að vegna þess að þeim hefur fjölgað sem ala þau upp og selja.
Sj óbirtingur
óður í
flæðarmúsina
Lítið hefur farið fyrir sjóbirtings-
veiði síðustu daga fyrir austan vegna
þess að vetur konungur hefur ráðiö
þar mestu og ís er víst kominn á flest
stöðuvötn þar. Við fréttum af veiði-
mönnum sem renndu í Fossála fyrir
skömmu og veiddu aðeins eina
bleikju, en sáu nokkra væna sjóbirt-
inga, frá 4 pundum upp í 15, en þeir
tóku alls ekki. Stærsti sjóbirtingur
sem við höfum haft fregnir af veidd-
ist í Hólsá og var 18 pund, hann
veiddist á spún, feikna fiskur.
„Nú er það nýjasta hjá okkur dorg-
veiði í gengum ís eftir að tjörnina
hérna hjá okkur lagði,“ sagði Ólafur
Skúlason um frægustu tjörn landsins
að Hvammi í Hvammsvík í Kjós. Að
undanförnu hafa menn farið á dorg
sem á miklum vinsældum að fagna
hjá mörgum veiðimönnum. Um síð-
ustu helgi veiddust 120 fiskar á dorg
en alls hafa fengist um 2000 regn-
bogasilungar. Veiðimenn gætu með
þessu heldur betur lengt veiðitímann
og dorgað í Kjósinni.
Þegar vetur konugur heldur innreið sína og veiðimenn leggjast i dvala,
þeir sem ekki vilja fara á dorg, koma upp í hugann minningar frá sumrinu.
Þessi mynd er af þeim síðustu sem mokveiddu í Laxá í Dölum 19. septemb-
er, þeir fengu 31 lax af ýmsum stærðum og gerðum. Þetta eru Pétur
Björnsson, Gunnar Björnsson kokkur og Helgi Eyjólfsson. Það hefði verið
gaman ef veiðitúrarnir hefðu verið svona í sumar, flestir.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna það í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaðstorgið teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...
ViÖ birtum... ÞaÖ ber árangurl
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Opið:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID
Frjálst.óháð dagblaö
KREDITKORTAÞJÓNUSTA
Þú hringir - við birtum og auglýsingin verður færð á kortið.