Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1987, Side 24
24
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987.
Sérstæö sákamál
Megrunarkúr
og ný föt
Dolores vissi að hún var í þann
veginn að sjá á eftir manni sínum til
annarrar konu. Ástæðan var sú að
hann ákvað að fara í megrun og sam-
tímis fór hann að kaupa sér ný fót.
Þegar hún þóttist orðin viss í sinni
sök fór hún að velta því fyrir sér
hvernig hún gæti brugðist við þess-
um ótíðindum.
Grunaði samstarfskonu
Grunur Dolores beindist brátt að
samstarfskonu manns hennar, Gregs
Clarke, á skrifstofunni sem hann
vann á. Hún hét Rita Worall og var
fjörutíu og þriggja ára. Dolores lét
þó ekki á neinu bera og heldur ekki
þegar maður hennar fór allt í einu
að „vinna yfirvinnu“. Og hún gætti
þess sömuleiðis að láta ekki bera á
grunsemdum sínum er hann fór að
tala af hrifningu um samstarfsfélaga
sinn, Ritu. Reyndar átti Dolores sér
veika von um að hrifnig Gregs á sam-
starfskonunni myndi dvína en þegar
þrír mánuðir voru hðnir án þess að
nokkuð bæri á því varð hún næstum
fuliviss um að tilraunir hennar til
að halda hjónabandinu saman
myndu ekki bera árangur.
Starfsfólkið fer í ferðalag
22. maí í fyrra fór starfsfólkið í fyr-
irtækinu, sem Greg vann við, í
ferðalag. Þá hitti Dolores í fyrsta sinn
keppinaut sinn, Ritu Worall. Um leiö
varö henni endanlega ljóst að stríðið
var tapað.
Ástæðan var ekki sú að Rita Wor-
all væri yngri. Hún var jafnaldri
Dolores Clarke. Þá var það heldur
e!:ki fegurð hennar því hún var alls
ekki áberandi lagleg. Það sem gerði
hana svo aðlaðandi var persónuleik-
inn og framkoman. Meira að segja
Dolores varð að viðurkenna hve
ánægjuleg hún gat verið.
Höfuðverkur
Dolores Clarke ákvað að fá mann
sinn til að koma heim með sér. Hún
gerði sér upp slæman höfuðverk. En
þegar hún ætlaði að snúa sér að
manni sínum var hann hvergi að
finna. Og þaö sama var að segja um
Ritu Worall.
Höfuðverkur Dolores hvarf eins og
dögg fyrir sólu og með það sama hóf
hún leitina að manni sínum og Ritu.
Nokkru síðar fann hún þau á ár-
bakka skammt frá - eða réttara sagt
í sjálfri ánni - því þau voru þar að
baða sig kviknakin. Þetta lífsglaða
par hafði lagt fót sín á bakkann rétt
hjá nokkrum runnum sem þar uxu.
Dolores brosti með sjálfri sér þegar
hún fjarlægði öll fötin. Um leið tók
hún handtösku Ritu Worall með pen-
ingum og lyklum. Fötin og töskuna
faldi Dolores síðan í skurði skammt
frá ánni.
Aftur til hins fólksins
Að svo búnu hélt Dolores aftur til
hópsins sem var að gera sér glaðan
dag. Nokkru síðar stóðu Rita og Greg
á árbakkanum en nú höfðu þau ekk-
ert til að fara í. Báðum varð sam-
Rita Worall.
stundis ljóst að meiriháttar
hneykslismál gat verið í uppsiglingu.
Það gæti orðið erfitt að dylja fyrir
samstarfsfólkinu að óvenju náið
samband var á milli þeirra.
Teppi
Greg varð ofsareiður og bölvaði og
ragnaði en Rita hló bara. Nokkru síð-
ar kom svo einn úr starfsmanna-
hópnum að og sá hvernig komið var.
Hann gerði þegar ráðstafanir til þess
að útvega teppi svo Rita og Greg
gætu hulið nekt sína. Svo fékk Greg
lánaðan bíl svo hann gæti ekið Ritu
heim.
Dolores Clarke var ánægð yfir
frammistöðu sinni og taldi sig hafa
komið fram nokkrum hefndum. Hún
hafði opinberað ótryggð manns sins
og gert hann og Ritu að athlægi. Það
sagði hún aö minnsta kosti við sjálfa
sig.
Greg Clarke kom ekki heim til sín
fyrr en síðdegis daginn eftir og þá
lýsti hann yfir því aö hann heíði ver-
ið um nóttina hjá Ritu Worall.
Dolores sá nú að alvörustund var
runnin upp.
Skilnaður
Hún reyndi að koma af stað rifr-
ildi. Héti Greg því ekki þegar í stað
að slíta sambandið við Ritu myndi
hún krefjast skilnaðar. Greg sagði
að ekkert væri sjálfsagðara en að
veita henni skilnað. Hann skyldi hún
fá á mettíma.
Hann gekk síðan upp á loft og fór
að setja niður i tösku. Þá sá Dolores
að hún hafði fariö rangt að og bað
hann um að hætta viö að fara að
heiman. Orð hennar höfðu þó ekki
mikO áhrif og nokkru síðar heyrði
hún að hann skellti útidyrahurðinni.
Skelfd
Daginn eftir var Dolores sem löm-
uð af skelfingu. Hún spurði sjálfa sig
hvað hún hefði gert. Fimm dögum
eftir ferðalagið fræga hélt hún aftur
niður að ánni. Þar fann hún fót
manns síns og í einum vasanum úr
sem hún hafði gefið honum er þau
áttu tuttugu ára brúðkaupsafmæli.
í tösku Ritu fann hún svo vasabók
með heimilisfangi hennar en hún bjó
í Thorpe Acre, í nágrenni Lough-
borough, en sagan gerðist á Eng-
landi.
Nokkrum augnablikum síðar varð
til djöfulleg áætlun.
Dolores hefst handa
Dolores byrjaði á því að hringja í
skrifstofuna til Gregs. Hún sagði
honum að hún heíöi íhugað skilnað
og væri komin á þá skoðun að ekki
væri um annað að ræða. Gætu þau
ekki rætt málið heima næstkomandi
mánudag? Greg Clarke féllst strax á
það.
Hún átti við mánudaginn 1. júní
og þann dag hringdi Dolores til Ritu
Worall, einnig á skrifstofuna. Hún
breytti rödd sinni og þóttist vera frú
Foster og kvaðst hafa fundið hand-
tösku merkta Ritu Worall.
Konurnar ákváðu að hittast síðar
um daginn í verslunarmiðstöð í
Loughborough.
Hamarshögg
Um sexleytið á mánudagskvöldinu
fór Greg Clarke af skrifstofu sinni
áleiöis heim til konu sinnar til þess
að ræða við hana skilnaðinn. Um
svipað leyti kom Rita Worall í versl-
unarmiðstööina til þess að ræða við
„frú Foster“. Hún ók bíl sínum að
vörugeymslunni og hugsaði ekki um
að verslununum haföi öllum verið
lokað fyrir um klukkustundu.
Það var heldur ekki „frú Foster“
sem barði á bílrúðuna hjá henni. Það
var Dolores Clarke. Hún var íklædd
fötunum sem Greg haföi verið í er
starfsfólk fyrirtækisins fór í
skemmtiferðina, kúrekabuxum og
vindjakka. Rita Worall var svo undr-
andi að hún var ekki nógu fljót á sér
að læsa bílnum.
Dolores dró hana nú undan stýri.
í hægri hendi var hún með hamar.
Rita Worall lést eftir tvö höfuðhögg.
Dolores hélt þó áfram að slá hana
þar til hún var öll orðin blóði drifm
sem og líkið af Ritu. Loks lagði Dolor-
es úr manns síns við hlið líksins og
ók til Thopre Acre.
Föt og hamar í poka
Á leiðinni stöðvaði Dolores bílinn.
Hún fór úr fötum manns síns, lagði
þau í plastpoka og hamarinn með.
Er hún var komin í sín eigin föt ók
hún svo áfram og kom skömmu síðar
að húsinu sem Rita Worall hafði búið
í en það var við 10 Meadside Walk.
Allt eftir áætlun
Dolores var ánægð yfir því að sjá
aö maður hennar var ekki þar. Hann
hlyti að vera heima hjá henni, Dolor-
es, þvi þangað hafði hún stefnt
honum til þess að ræða skilnaöinn.
Auðvitað myndi hún þó harðneita
að hafa nokkru sinni mælt sér mót
við hann þetta kvöld. Nú var bara
að koma pokanum með blóðugu föt-
unum og hamrinum inn í hús Ritu
Worall og þá yrði Greg dæmdur fyrir
morð.
Tók upp lyklana
Dolores tók nú upp lyklana sem
Greg Clarke.
Húsiö sem Rita Worall bjó I.