Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 19. OKTÖBER 1987. 5 Atvinnumál Ekk{ hægt að draga úr afla - segir Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðuriands Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Þessi fundur einkenndist mjög af umræðum um væntanlega fiskveiöi- stefnu okkar íslendinga og um kvóta- málin almennt," sagði Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafé- lags Norðurlands, en aðalfundi félags- ins er nýlokið. Fiskveiðistefna sú sem fylgt hefur verið rennur út um áramótin og sú skoðun hefur komið fram, meðal ann- ars hjá sjávarútvegsráðherra, að æskilegt væri að móta nú stefnu til næstu fjögurra ára. „Þetta er auðvitað aðalmálið í dag. Eins oggefur að skilja voru menn ekki á eitt sáttir. Það er um áherslumun aö ræða en við mun- um hittast afturog móta okkar afstöðu fyrir aðalfund LÍU sem verður haldinn í næsta mánuði," sagði Sverrir. „Ég hef þá tilfmningu að þótt menn finni hnökra á núverandi stefnu okkar í fiskveiðum þá telji þeir yfirleitt að kvótakerfið sé besta leiðin af mörgum slæmum og vilji hafa þetta áfram í svipuðum farvegi. Spumingin er um að slípa þetta keríi til og taka af þvi hnökrana." - Urðu ekki miklar umræður um fiskverð? „Jú, umræður um þetta ftjálsa fisk- verð voru að sjálfsögðu mjög miklar. Menn eru ekki sáttir við að það sé reynt meö ýmsum ráðum að þvinga fram eitthvaö annað þegar frjálst fisk- verð er við líði og ef til vill er það vísbending um að kerfið gangi ekki.“ Sverrir sagði að staða sjávarútvegs- ins á Norðurlandi væri góð um þessar Miklar umræður urðu um fiskverð á nýafstöðnum aðalfundi Utvegsmannafélags Norðurlands. mundir. „Það eru hins vegar blikur á lofti og menn verða að gæta þess að þessi undirstööuatvinnuvegur þjóðar- innar sigli ekki niöur í djúpan öldudal. Ef ákveðiö verður að draga úr afla á næsta ári, eins og rætt hefur verið um, kemur það fyrst niður á sjávarútveg- inum og síðan niður á þjóðinni aliri. Mín skoður. er sú að ekki sé hægt að draga úr aflamagni frá því sem nú er. Þetta er ekkert einkamál útvegs- manna heldur mál sem snertir alla þjóðina enda bitnar samdráttur í fisk- veiðum á heild á henni." sagði Sverrir Leósson. Enn er laxinn að ganga i stöðina, þar sem honum er slátrað. Pólariax Laxinn gengur enn í stöðina „Við höfum fengið 100 laxa núna á tveimur dögum og þetta er allt smár lax. þrigga tii sex punda. bæði nýir laxar og svo þaralegn- ir,“ sagði Þröstur Eliiðason. starfs- maður í Pólarlaxi. í samtali við DV. En síðustu daga hafa laxar geng- ið í nokkrum mæli í stöðina og þykir það athyglisvert núna um miðjan október. „Við fáum stund- um laxa svona seint en ekki í svona miklum mæli. kannski fimm til tiu. Núna í október hafa korrið á milli 1.50 og 200 laxar i stöðma. AUs höfum við fengið um 4000 iaxa í sumar. Það gæti komið eitthvað meira þvi við höfum séð meira af laxi stökkva fyrir utan stöðina hjá okkur." sagði Þröstur í lokin. -G. Bender Hcimilisiæki sem bíða ekki! _______, b v7 \ ‘ - ' ________________ ísskápnr iwn b nwn i Ai ■ i n iri i'i m þurrkari eldavél frystikistá Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúö Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á 24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam- band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki eftir neinu að bíða. (MMB TAKMARKAÐ =MAGN= ................. a þessum kjðmma ^ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 simi-687910

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.