Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 1987. Stjómmál___________________________________________dv Formannsslagurinn í Alþýðubandalaginu: Ólafsmenn fagna sigri - en andstæðingar þeirra segja þá fagna of snemma, þeir hafi gengið of langt með nafnalistanum Úrslitin í landsfundarfulltrúakjöri Alþýöubandalagsfélagsins í Reykjavík hafa vakiö raikla athygli fyrir margra hluta sakir. Út úr þeim lesa pólitískir spekúlantar hin margvíslegustu skila- boð til einstakra forystumanna flokks- ins. Ólafsmenn telja að um 80% landsfundarfulltrúanna í Reykjavík styöji Ólaf Ragnar til formanns. Aörir haida þvi fram aö þriðjungur styðji Ólaf, þriöjungur Sigríöi Stefánsdóttur og þriöjungur fulltrúanna sé óákveð- inn. Eins greinir menn mjög á um hvort þeirra Olafs eða Sigríðar sé meö meiri- hluta úti á landi. Stuðningsmenn Sigríðar telja að hún sé með meiri- hluta í fleiri félögum en Ólafur og að í nokkrum þeirra séu þau svo tíi jöfn. Eftir fulltrúakjörið í Reykjavík séu þau nær jöfn að atkvæðum þegar til Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækur ób. 14-17 Lb.Úb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-19 Ub 6 mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb 12mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb Tékkareikningar 6-8 Allir Sér-tékkareikningar 6-17 nema Vb Ib Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24,32 Úb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 5,5-£,5 Ab.Vb Sterlingspund 8.25-9 Ab.Úb. Vestur-þýskmörk 2,5-3,5 Vb Ab.Vb Danskar krónur 9-10,5 lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 28-29,5 Bb.Lb Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 30,5-31 Almenn skuldabréf eöa kge 29,5-31 Lb Viöskiptaskuldabróf(1) kge Allir . HlaupareikningarMirdr.) Utlán verötryggo 30 Allir Skuldabréf 8-9 Lb Útlán til framleiðslu isl. krónur 28-29 Vb SDR 8-8,25 Bb.Lb, Bandarikjadalir 8,5-8.75 Úb.Vb Bb.Úb. Sterlingspund 11,25- Vb Sp Vestur-þýsk mörk 11.75 5,5-5,75 Bb.Sp. Húsnæðislán 3,5 Úb.Vb Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 42 MEÐALVEXTIR överötr. sept. 87 29,9 Verötr. sept. 87 8.4% VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 1778stig Byggingavísitala 1 sept. 324 stig Byggingavlsitala 2 sept. 101.3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi9%1.júll VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóöa (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu): Avöxtunarbréf 1,2651 Einingabréf 1 2,301 Einingabréf 2 1,356 Einingabréf 3 1,422 Fjölþjóöabréf 1,060 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,332 Lífeyrisbréf 1,157 Markbréf 1.186 Sjóösbréf 1 1,141 Sjóösbréf 2 1,103 Tekjubréf 1,228 HLUTABRÉF Söluverö aö lokinni jöfnur m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiöir 196 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóöurinn 119 kr. lönaöarbankinn 143 kr. Skagstrendingurhf. 182 kr. Verslunarbankinn 126 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaöarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavlxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaöarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, 0b= Otvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánarl upplýslngar um penlngamarkaö- Inn blrtast I DV á flmmtudögum. landsfundarins kemur. Fulltrúar á landsfundi eru 350, þar af 100 úr Reykjavfk. Stuðningsmenn Ólafs Ragnars fagna sigri eftir fuiltrúakjörið í Reykjavík. Þeir halda þvi fram að meirihluti landsfundarfuiltrúa utan af landi styðji Ólaf og að hann hafi stuðning yfirgnæfandi fjölda Reykjavíkurfull- trúanna. Tap flokkseigendafélagsins Hvort sem Ólafsmenn eða Sigríðar- menn fagna sigri í Reykjavík liggur fyrir að sá hópur, sem kailaður hefur verið flokkseigendafélagið og hefur verið mjög virkur og sterkur í félaginu í Reykjavík, beið mikið afhroð í lands- fundarfulltrúakjörinu. Nokkrir forystumanna þeirra til margra ára féllu í kosningunni nú. Þar má nefna menn eins og Inga R. Helga- son, forstjóra Brunabótafélags íslands, Ásmund Stefánsson, forseta Alþýðu- sambandsins, Pálmar Halldórsson, ritara flokksins, Gísli B. Bjömsson auglýsingateiknara, Úlfar Þormóðs- son, fyrrum blaðamann, Helga Guðmundsson trésmið, Guðmund Ágústsson bankastjóra, Snorra Jóns- son, fyrrum forsetí Alþýðusambands- ins, Jakob Benediktsson, Margrétí Guðnadóttur prófessor, Gunnar Gutt- ormsson vélsmið, Jón Snorra Þorleifs- son, fyrrum formann Trésmiðafélags Reykjavíkur, Þráin Bertelsson, fyrr- um ritstjóra Þjóðviljans, Áma Bergmann, ritstjóra Þjóðviljans, og Sigurjón Pétursson, leiðtoga flokksins í borgarstjóm, svo dæmi séu tekin. Guðrún Hallgrímsdóttir matvæla- fræðingur, Stefania Traustadóttir, Þórurm Sigurðardóttir leikari, Guðr- ún Ágústsdóttir borgarfulltrúi og Bima Þórðardóttir vora fyrir aftan 100 en náöu kjöri vegna reglunnar um að minnst 40% fulltrúa skuli vera konur og minnst 40% karlar. í félögunum í nágrannabyggðum Reykjavíkur hafa fulltrúar flokkseig- enda líka fallið unnvörpum, Óttar Proppé, ritstjómarfulltrúi Þjóðviljans, Guðmundur Hilmarsson, formaður Félags bifvélavirkja, og Logi Kristíáns- son, fyrrum bæjarstjóri í Neskaup- stað, féllu allir í Kópavogi. Þetta hefðu einhvem tímann þótt stórtíðindi í Al- þýðubandalaginu. Verkalýðsforingjar og frambjóðendur Það vekur ekki litla athygli að for- seti Alþýðusambands íslands, Ásmundur Stefánsson, nær ekki kjöri á landsfund. Aftur á móti fékk Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dags- brúnar, tíundu bestu kosninguna. Þessir tveir verkalýðsforingjar kepptu grimmt um 3ja sætíð á lista flokksins við alþingiskosningamar í vor. Þar hafði Ásmundur betur. Nú sigrar Þröstur. Það vekur einnig athygli að Grétar Þorsteinsson, formaður Tré- smiðafélags Reykjavíkur, er í 4. sæti og Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, er í 6. sæti. Sumir túlka þetta sem ábendingu um að félagar Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík séu að skipta um verkalýðsforystu í flokknum. Einnig er athyglisvert að Álíheiður Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson Ingadóttir, sem var í 4. sæti í Reykja- vík við alþingiskosningamar í vor og fyrrum borgarfulltrúi, lendir í 100. og síðasta sætí á listanum með 187 at- kvæði og Ásmundur Stefánsson, sem var í 2. sætínu við alþingiskosningarn- ar, fékk 193 atkvæði. Aftur á mótí fékk Olga Guörún Ámadóttir, sem var í 5. sætínu í vor, næstflest atkvæði nú eða 346 af 378 gildum kjörseðlum. í efsta sætinu varð Bríet Héðinsdóttir leikari með 352 atkvæði. Þessar tvær konur afhentu fólki kjörgögn á fundinum síð- astliðinn fimmtudag og segja gárungar að þess vegna hafi allir munaö eftir þeim! Fullkomið hatur Flestir era þeirrar skoðunar að hvort þeirra sem verður kjörið form- aöur Alþýðubandalagsins, Sigríður eða Ólafur Ragnar, þá klofni flokkur- inn endanlega. Einn af andstæðingum Ólafs orðaði það svo í samtali við tíð- indamann DV að Ólafur Ragnar verði aldrei formaður flokksins, þótt hann nái kjöri á landsfundi. Hann sagði vinnubrögð Ólafsmanna með nafna- listann á fundinum á fimmtudaginn forkastanleg og að aldrei geti gróið um heilt innan flokksins eftir þaö. Ef Ólaf- ur nái kjöri muni stór hluti virkasta fólksins í flokknum neita að viima með honum, hann hafi með nafnalist- anum gengið of langt. Þeir vona einnig að með því að ganga svona langt hafi Ólafur hrakiö frá sér fólk úti á landi sem annars hefði verið tilbúið að styðja hann. Það sem andstæðingum Ólafsmanna sviður sárast við þennan nafnalista, með 91 nafni, er að þar var ekki að finna nafn Svavars Gestsson, for- manns flokksins. Það segja þeir slíkan dónaskap að annað eins þekkist ekki. Ólafsmenn benda aftur á mótí á að þeir hafi skilið eftir 9 auð sæti á listan- um svo fólk hafi getað sett þar hvem sem það vildi ef það óskaði eftír aö bæta einhverjum við sem Ólafsmenn mæltu ekki með. Ólafsmenn segja að með landsfund- arftdltrúakjörinu í Reykjavík hafi í raun átt sér staö kynslóðaskipti í flokknum. Ungt fólk og miðaldra styðji Ólaf. Þeir segjast hafa fundið fyrir bylgju sem saxmi þetta. Nafhalistinn var gerður fyrir fólk í flokknum sem allt í einu nú var tilbúið að taka þátt í kosningu innan hans í þeirri von að geta gert Ólaf að formanni hans. Þetta fólk hafi ekki þekkt nöfn þess fólks sem líklegast vær' til að veita Ólafi brautargengi og því hafi það beðið um að svona nafnalisti yrði gerður. Klofnar flokkurinn? Það er alveg ljóst að átökin innan flokksins era komin á það stig að hann er á barmi formlegs klofnings. Hörð- ustu andstæðingar Ólafs í flokkseig- endafélaginu, og þar er að finna marga áhrifamestu menn flokksins um þess- ar mundir, munu ekki vinna með Ólafi sem formanni. Einnig er ljóst að hörðustu stuðn- ingsmenn Ólafs, og margir þeirra era áhrifamenn, munu yfirgefa flokkinn ef Ólafur fellur viö formannskjör. Þeir segja sem svo: Falli Ólafur er fullreynt með að hægt sé að breyta þessum flokki úr 6-8 þingmanna flokki í stærri og áhrifameiri flokk. Andstæðingar Ólafs segja að ef sá ófriður, sem af Ólafsmönnum hlýst í flokknum, verði settur niður skapist friður til að rétta flokkinn við. Þriðji frambjóðandinn Ýmsir sem rætt hefur verið við halda þvi fram að reynt verði að fá einhvem þriðja frambjóðandann til formanns á landsfundi. Það yrði að vera maður sem allir geta sætt sig við. Margir horfa til Ragnars Amalds í því sam- bandi. Hann mun sjálfur vera því algerlega mótfallinn. - Enn aðrir segja að flokkseigendafé- lagið sé nú fullt efasemda um að Sigríður nái að sigra Ólaf Ragnar á landsfundi og leggi hart aö Svavari Gestssyni að endurskoða afstöðu sína með að hætta. Svavar hefur viður- kennt að til sín streymni áskoranir í þá vera. Hann segist þó ekki muni endurskoða afstöðu sína. Andstæðing- ar Ólafs segja að Svavar Gestsson myndi sigra Ólaf í formannskjöri, jafn- vel þótt tillit sé tekið til þess hveijir hafa náð kosningu nú sem lands- fundarfulltrúar. Ýmsir spá því að svo hart verði lagt að Svavar að fara í slag- inn að hann hreinlega komist ekki undan því, hversu óljúft sem það er honum að fara fram. Landsfundur Alþýðubandalagsdins hefst 5. nóv- ember. -S.dór Briet Héðinsdóttir hlaut flest atkvæði í kosningu landsftmdarfulltrúa í Jónsson, formaður Iöju, 332, Erling- flokksfólki hve aftarlega formaður- lenti f 98. sæti með 188 atkvæði og Alþýðubandalagsfélaginu í Reykja- ur Viggósson skipasmiöur 326, innlenfi. dettur út. Álfheiöur Ingadóttír þing- vík hlutu þijár konur flest atkvaeði. Vilborg Haröardóttir blaðamaður Aðrir stórmeistarar í flokknum frambjóðandi lentí í 100. og sföasta Það var Bríet Héðinsdóttir leikari, 325, Jóhannes Gunnarsson, formað- fóru þó enn verr út úr kosningunnL sætí með 187 atkvæöi. sera Qest atkvæðin hlaut, eða352 af ur Neytendasamtakanna, 319, Þröst- Árni Bergmann ritsijóri lenti f 88. Vegna kynjaskiptíngar komst 378 gildum atkvæöaseðlum. 12. sætí ur Olafsson, framkvæmdastjóri sæti með 208 atkvæði en dettur út Guðrún Ágústsdóttir borgarfuUtrúi kom Olga Guðrún Arnadóttir rithöf- Dagsbrúnar, 314, Valgerður Eirfks- vegna kynjaskiptíngarreglunnar. Inn, en hún lentí í 102. sæti með 183 undur með 346 atkvæði og f 3. sætí dóttir 311, Ragna Ólafsdóttir 310, Fyrram samritstjóri hans, Þráinn atkvæðL ÍSvavar Jakobsdóttir, fyrr- Soffia Guðmundsdóttir, fyrram bæj- Haraldur Steinþórsson 309, Gfsli Bertelsson, lentí í 95. sæti meö 204 um alþingismaöur, komst líka inn á arfulltrúi á Akureyri, 339 Sváfnisson 307 og Auður Sveins- atkvæði og dettur líka út af sömu kynjaskiptingarreglunni en hún atkvæði. dóttir 304. Fleiri fengu ekki yfir 300 ástæðum og Árni. Ásmundur Stef- lenti í 101. sætí raeö 186 atkvæöi. NæsturkomsvoGrétarÞorsteins- atkvæðL ánsson, forseti Alþýöusambandsins, Margir nafhfræglr úr flokkseigenda- son, formaöur Trésmiðafélags Svavar Gesfsson, formaöurflokks- lenti í 96. sæti með 193 atkvæði og félaginu náðu ekki kjöri. Sjá frétta- Reykjavíkur, meö 337, Sigrún Val- ins, lenti f 44. sæti með 253 atkvæöi dettur út. Sigtujón Pétursson, leið- ijós um fuBtrúakjörið hér að ofen. bergsdóttir 336, Guðmundur Þ. og vekur þaö ekki litla athygli hjá togi flokksins í borgarstjóm i 20 ár, -S.dór Hér má sjá félaga í Alþýðubandalagsfélaginu i Reykjavik bíða eftir að röðin komi að þeim að kjósa landsfundarfulltrúa á fimmudaginn. Sennilega hafa fáir þeirra átt von á því fyrirfram að kosningin yrði jafnsöguleg og raun bar vitni. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.